Hlýtt loft yfir landinu - ađeins fyrir útvalda?

Eftir ađsókn fjölmargra vestrćnna heimskautakuldapolla ađ undanförnu er nú meinlítiđ millibilsástand. Hlýtt loft hefur náđ völdum í háloftunum yfir okkur en óljóst hvađ tekur viđ. Vindur er svo hćgur ađ hlýja loftiđ nćr illa til jarđar - ţađ flýtur á ţví kalda sem enn liggur yfir landinu.

Ţetta hlýja loft var ađeins fyrir útvalda í dag, en kannski ţađ nái ađ skjóta sér víđar niđur um helgina. Á miđnćtti (ađfaranótt 26. mars) var ekki nema 5 stiga frost í 3 km hćđ yfir Keflavík, en á sama tíma var hiti undir frostmarki víđast hvar á landinu. Frostiđ var meira en 5 stig inni í sveitum á Norđurlandi, t.d. viđ Krossanesbrautina á Akureyri.

Kort dagsins sýnir ţykktina milli 500 og 1000 hPa flatanna eins og HIRLAM-líkaniđ spáir henni kl. 6 ađ morgni laugardags (26. mars).

w-blogg-260311

Hér má sjá Ísland nćrri miđju myndarinnar og Grćnland á sínum stađ. Heildregnu línurnar eru jafnţykktarlínur en hún segir frá međalhita í neđri hluta veđrahvolfs. Tölurnar eru dekametrar (eins og sérviska veđurfrćđinga segir til um). Lituđu fletirnir sýna hita í 850 hPa en sá flötur er ekki fjarri 1400 metra hćđ yfir sjávarmáli.

Viđ sjáum vel ţykktarbrekkuna til norđausturs í átt ađ kuldapollinum mikla sem angrađi okkur um síđustu helgi og fyrstu daga vikunnar. Hann plagar nú N-Noreg, Finnland og fleiri međ miklum illviđragarđi og hörkufrosti. Mikil hlýindi eru í skjóli Grćnlands. Niđurstreymi austan jökulsins á sinn ţátt í hlýindunum. Ţetta hlýja loft leggst hins vegar eins og teppi yfir kalda loftiđ sem liggur í neđri lögum.

Tvćr minniháttar lćgđabylgjur fara til suđausturs fyrir norđan og norđaustan land um helgina. Á međan bylgjurnar fara hjá herđir vind yfir landinu og ţá er von um ađ eitthvađ af hlýja loftinu blandist niđur í ţađ kalda ţannig ađ e.t.v sjást yfir 10 stig hjá ţeim útvöldu. Ţykktin er reyndar svo mikil ađ nái bylgjur ađ hreinsa kalda loftiđ ađ einhverju leyti á brott - en ekki ađeins blandast í ţađ - eru 15 stig eđa meira ekki útlokuđ.

Eftir helgina á lćgđakerfi ađ nálgast hćgt úr suđvestri - ekki eru fréttir af mjög hlýju lofti međ ţví - en alltént verđur loftiđ betur blandađ.

Jafnţykktarlínan 546 (=5460 metrar) sem viđ sjáum mynda lítinn hring á myndinni minnir á sumariđ. Viđ skulum vona ađ viđ sjáum hana oft í námunda viđ landiđ í vor - hún er einskonar vorbođi. Annars megum viđ vel viđ una undir ţykktartölum á bilinu 534 til 540 á vorin, oft eru ţćr talsvert lćgri á ţeim tíma árs.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ben.Ax. (Benedikt  Jóhannes Axelsson)

Takk.

Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson), 26.3.2011 kl. 12:51

2 Smámynd: Sigurđur Haraldsson

Flott fćrsla takk fyrir.

Sigurđur Haraldsson, 26.3.2011 kl. 14:33

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Júlí 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Nýjustu myndir

  • w-blogg220724b
  • w-blogg220724a
  • w-blogg210724
  • Slide2
  • Slide1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.7.): 17
  • Sl. sólarhring: 434
  • Sl. viku: 2733
  • Frá upphafi: 2378309

Annađ

  • Innlit í dag: 14
  • Innlit sl. viku: 2421
  • Gestir í dag: 14
  • IP-tölur í dag: 14

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband