10.2.2011 | 00:06
Illviðrin þessa dagana - aðeins víðari sýn
Nú ganga illviðrin hjá eitt af öðru. Veðrið sem gekk yfir síðastliðna nótt (aðfaranótt miðvikudags) var býsna slæmt víða á landinu. Næsta veður kemur annað kvöld eða aðra nótt (segja spár), ég vil ekkert segja um hversu slæmt það verður. Enn eitt veður á síðan að ganga yfir á laugardag en spár eru enn mjög óvissar um hvort við verðum illa fyrir því eða ekki. Í gær og fyrradag var útlit fyrir það, en nú eru spár ekki eins vissar.
En við höldum áfram að líta á bakgrunn illviðranna og lítum á tvær skýringarmyndir. Sú fyrri er hefðbundin innrauð gervihnattamynd - að vísu lituð og skorin af Kanadísku veðurstofunni (Environment Canada). Hin er 500 hPa-greining frá evrópsku veðurreiknimiðstöðinni frá hádegi í dag.
Myndin er tekin kl. 21:45 í kvöld og sýnir ástandið við norðvestanvert Atlantshaf. Ég hef merkt nokkra staði inn á myndina til að lesendur átti sig betur á því undir hvaða horni við horfum. Neðri hluti myndarinnar nær allt vestan frá New-York og austur til Kanaríeyja en sá efri frá Hudsonflóa í vestri og nærri því til Noregs í austri. Ísland er efst á myndinni og Grænland þar til vinstri.
Græni liturinn er sá hlýjasti á myndinni, grátt og hvítt kaldara og appelsínugult og rautt er kaldast. Ég verð að játa að uppeldislegt gildi myndarinnar er ekki það besta vegna þess hversu flókið skýja- og lægðakerfið suður af Grænlandi er. Einhvern veginn geta vanir menn samt klínt einhverjum skilakerfum inn í súpuna - en ég er ekkert upprifinn yfir því. Þó súpan sé þykk má samt greina tvo skýjasveipi, þeir eru merktir B1 og B2 og ofan við þá eru tvö háloftalægðardrög - óþægilega nærri hvort öðru. Auk þessa má sjá einhver brot úr heimskautaröstinni í skýjunum - en ógreinilega. Mælingar í dag sýndu mikið þrumuveður í rauðgulu klessunni austan við B1.
Ekki eru mjög mörg ár síðan tölvulíkön fóru að ná góðu taki á svona flóknum kerfum. Tökin í dag virðast allgóð - því til staðfestingar má skoða svonefndar gervi-gervihnattamyndir en þær eru reiknaðar út úr líkönunum (undarlegt - ekki satt). Þessar gervimyndir sýna í dag kerfi þar sem eitthvað ámóta kemur fram og á hinni raunverulegu mynd. Við skoðum svona myndir ekki að sinni en e.t.v. má einhvern tíma sýna þær sem dæmi.
Ef við horfum stíft á myndina má sjá lægð gærdagsins sem sveip við suðausturströnd Grænlands, sömuleiðis sjáum við nýtt skýjakerfi (rauðgular klessur) nærri New York á myndinni. Hvort þær tengjast laugardagslægðinni veit ég ekki ennþá.
Ég hef einnig merkt kuldapollinn Stóra-Bola II (S_B II) með miðju nærri suðurenda Baffinseyju. Hann hreyfist lítið sem ekki neitt. Hin myndin í dag á að sýna veldi hans vel. Henni er hnuplað af vef evrópsku reiknimiðstöðvarinnar eins og áður sagði. Hún sýnir hæð 500 hPa-flatarins á hádegi í dag (miðvikudag). Litirnir marka hita í 850 hPa-fletinum.
Þessi mynd nær yfir meginhluta vesturhvels jarðar norðan hitabeltis, miðjuð á Norður-Ameríku. Við sjáum varla í Ísland við efsta jaðar myndarinnar og hún nær langt vestur á Kyrrahaf og suður til Suður-Ameríku. Kuldapollurinn Stóri-Boli II þarf enga sérmerkingu við sjáum helbláan kjarna hans í kringum Hudsonflóann. Hann stýrir vindum allt frá vesturströnd Bandaríkjanna norður til norðurskauts og austur að vesturströndum Evrópu.
Í dag sjást að minnsta kosti fimm bylgjur á leið í kringum kjarna pollsins. Sú sem fylgdi illviðri gærdagsins er ómerkt við Suður-Grænland. Hún verður trömpuð til bana á morgun af sameinuðum bylgjum B1 og B2 í illviðri því sem gengur yfir síðdegis á fimmtudag og aðfaranótt föstudags. Þetta eru sömu bylgjurnar og þær sem við merktum á gervihnattamyndinni.
Bylgja B3 er ekki mjög greinileg en er þarna samt - eins og við sáum á gerfihnattarmyndinni sem skýjakerfi yfir New York, skýin eru við austurjaðar bylgjunnar. Hún sést mun betur á því samblandi þykktar- og hæðarkorta sem við höfum skoðað að undanförnu.
Bylgja B4 olli í dag (fimmtudag) mjög skæðu hríðarveðri í Bandaríkjunum. Veðurbloggarinn góði, Jeff Masters, fjallar um veðrið undir fyrirsögninni: Winter storm dumps 2 feet of snow on Oklahoma, Arkansas. Blogg Jeffs er eitt það besta í veðurbransanum með ótal fróðleiksmolum inn á milli greina um veður dagsins.
Við sjáum að allar þessar bylgjur eru mjög stuttar og hreyfast því hratt til austurs og síðan norðausturs í kringum stóru bylgjuna, Stóra-Bola II, sem nær yfir um 140 lengdarstig. Hringurinn er 360 stig og bolabylgjan er meir en þriðjungur hringsins að lengd, e.t.v. bylgjutala 3 við 50 gráður norðlægrar breiddar.
Ég veit ekki hver örlög B3 og B4 verða, það verður bara að sýna sig. Sömuleiðis verður að sýna sig hvort bylgjan stóra suður af Alaska muni þrengja sér í gegnum hæðarhrygginn mikla vestan Klettafjalla og sparka í kvið Stóra-Bola þannig að hann hristi sig, hreyfist eða lendi í alvarlegum veikindum.
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 48
- Sl. sólarhring: 146
- Sl. viku: 1969
- Frá upphafi: 2412633
Annað
- Innlit í dag: 48
- Innlit sl. viku: 1722
- Gestir í dag: 47
- IP-tölur í dag: 46
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.