13.1.2011 | 00:22
Dægurhámörk og dægurlágmörk í janúar
Hér á blogginu hafa stundum komið pistlar um hæsta og lægsta hita sem mælst hefur á veðurstöðum ákveðinn dag í hverjum mánuði. Dægurmet af þessu tagi eru vinsæl víða erlendis og sérstaklega þó í Bandaríkjunum. Dægurmetametingur getur verið skemmtilegur en alltaf fer um mig dálítill kjánahrollur þegar fréttir berast um að aldrei hafi jafn hár (eða lágur) hiti mælst í einhverri heimsborginni. Þegar nánar er að gáð er oftast átt við daginn einan - en hvorki mánuð né árið allt.
En höldum leiknum áfram. Myndin að ofan sýnir hæsta hita sem mælst hefur á hverjum degi í janúar á íslenskum veðurstöðvum. Hún nær sæmilega heiðarlega aftur til 1949 en síðan þá hafa núverandi lestrarhættir hámarks og lágmarks haldist. Einnig notaði ég nokkuð af gögnum aftur til 1924 við gerð töflunnar, en svo vill til að sú subbuviðbót mín skilaði engum dögum í janúar. En ég vinn enn að málinu.
Á myndinni sjáum við að engin leitni er yfir mánuðinn - við erum í miðjum vetri í árstíðasveiflunni. Svo vill til að hæstu gildin eru í kringum miðjan mánuð en við trúum því að það sé tilviljun ein. Elsta metið er sett þann 9. árið 1949 á Dalatanga. Sú stöð á met fyrir níu daga alls og metagæfust allra. Allar stöðvar sem eiga landsdægurmet i janúar eru norðanlands og austan, syðst Teigarhorn í Berufirði. Sú vestasta er Dalsmynni við Hjaltadal í Skagafirði (metið þ.20. 1992, heldur aumingjalegt: 14,1 stig). Linasta metið er þó frá Seyðisfirði, 13,1 stig - sömuleiðis frá 1992. Alls á janúar 1992 sex dægurmet.
Þeir sem eru glöggir geta um skeið séð tilsvarandi mynd fyrir lágmarksmetin í svæðinu nýjustu myndir hér til hliðar, en að öðru leyti verður hún ekki birt að sinni. Ég sé of marga galla í listanum.
Eitt vandræðalegasta vandamál lágmarks- og hámarksmælinga er að reglur um aflestur hafa breyst í gegnum tíðina. Fyrir 1931 var lágmark og hámark að jafnaði lesið einu sinni á dag, kl.8 að morgni (9 að okkar tíma). Það þýðir að hámörkin eiga oftast við daginn áður. Eiga þau hámörk þá að keppa við daginn í dag, þótt hitinn hafi náð hámarkinu í gær? Svipað á við um lágmarkshitann.
Frá 1931 og um það bil til 1949 á skeytastöðvum náði hámarksaflesturinn aðeins til tímans frá 9 til 18. Ef hámarkshiti dagsins var utan þessa tíma var hann týndur og tröllum gefinn. Þetta er alvarlegast á vetrum þegar hæsti hiti sólarhringsins getur orðið að nóttu sem degi og lágmarkið e.t.v. um hádaginn. Það gerðist einmitt 1918, hitinn var lægstur um miðjan dag þann 21. Lesið var af lágmarksmælingum að morgni þess 22. Það er því talinn metdagurinn í prentuðum bókum. Það sem er ískyggilegt er að hefði reglum þeim sem voru í gildi á skeytastöðvum 1931 til 1948 hefðu -38 stigin ekkert verið lesin sem lágmark á Grímsstöðum. Við hefðum þurft að sætta okkur við hitann kl. 14 í Möðrudal sem Íslandsmet.
Um lágmarksmetið 1918 er fjallað í ítarlegum fróðleikspistli mínum á vef Veðurstofunnar.
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.4.): 4
- Sl. sólarhring: 464
- Sl. viku: 1983
- Frá upphafi: 2459338
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 1845
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Athugasemdir
Áhugaverður pistill hjá þér. Er einhver regla eða mynstur í því hvernig vindhraði og vindátt eru þegar frostmet eru slegin hér á landi? Þá er ég að aðallega hugsa um þegar frostið hefur verið um -30° til -40°C hér á landi.
Sumarliði Einar Daðason, 13.1.2011 kl. 13:46
Sumarliði. Hiti verður lægstur hér á landi þegar lægir í kjölfar snarpra norðanáhlaupa. Um þetta fjalla ég á blaðsíðu 18í ritinu Kuldaköst og kaldir dagar sem aðgengilegt er á vef Veðurstofunnar. Undirfyrirsögnin er: Hvað getur hiti orðið lágur á Íslandi?
Trausti Jónsson, 14.1.2011 kl. 00:38
Takk fyrir þetta. Er vitað um einhver met sem tengjast vindkælingu hér á landi?
Sumarliði Einar Daðason, 14.1.2011 kl. 09:01
Sumarliði. Nei, ekki er samkomulag um vindkælireikninga við þær aðstæður sem ríkja í illviðrum hér á landi. Vindkælitöflur eru marklitlar fari vindur yfir 20 m/s. Þá er erfitt að greina á milli vinds- og annarra kælingarþátta svosem snjóbráðnunar/uppgufunar í fötum og mæðikælingar. Þessir tveir þættir eru enn hættulegri (stærrri) en vindáhrifin auk fleiri atriða sem gera reikningana óvissa.
Trausti Jónsson, 15.1.2011 kl. 00:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.