Merkilegt veðurár?

Nú er árinu að ljúka. Oftast er gengið á mig síðustu daga ársins til að kreista út einhverja yfirlýsingu um það hvað hafi verið merkilegast á árinu. Fyrir áratug þurfti ég helst að grípa til neyðaryfirlýsinga og segja að árið hafi verið merkilegast fyrir það að hafa verið eitt mesta meðalár sögunnar. Er það svo ómerkilegt?

Möguleikinn á því að árið setji nýtt allsherjarhitamet má heita útilokaður. En enn er spurning um 2. til 5. sæti. Með því má fylgjast í smáatriðum á bloggi Sigurðar Þórs Guðjónssonar. Spár um hita síðustu vikuna eru mjög lausar í rásinni og skýrast væntanlega varla fyrr en á jóladag eða annan í jólum. Þá á lægð að dýpka nokkuð hastarlega í námunda við landið. Það verður með góðri aðstoð leifanna af kuldapollinum sem hefur verið að kæla okkur í dag, í gær og í fyrradag. Hver er sú aðstoð? Það má ræða síðar.

En það er ekki aðeins hiti ársins sem er nærri meti. Heldur er úrkoman einnig með allra minnsta móti um mestallt Suður- og Vesturland. Sem stendur er árið líka nærri topp-5 (botn-5?), spennandi það. En sumar spár gera ráð fyrir 60 mm úrkomu í Reykjavík til áramóta, þannig að enn er ekki víst hvort það haldi. Á Norður- og Austurlandi er staðan önnur. Merkilegast núna í desember er að nær algjör þurrkur hefur verið á Kirkjubæjarklaustri. Dæmafátt er líka úrkomuleysið í Vestmannaeyjum - og ekki furða að menn kvarti yfir öskufoki undir Eyjafjöllum. En ef til vill mun næsta vika bæta um betur - ekki eru þó allar spár sammála um það.

Svo er það snjóleysið suðvestan- og vestanlands. Sáralitlu munar að met verði slegið. Ef ekki koma fleiri en 6 alhvítir dagar til áramóta er nýtt met slegið í Reykjavík. Það er semsagt ekki alveg víst ennþá.  

Og líka loftþrýstingurinn, meðaltal ársins er með því hæsta sem þekkist. En sumar spár fyrir næstu viku sýna lágan þrýsting. Við þurfum því að bíða í spenningi líka varðandi þrýstinginn. En hár þrýstingur og þurrkar eiga ekki illa saman.

Sólskinsstundafjöldi hefur líka verið langt yfir meðallagi í Reykjavík - en þar verður þó ekki um ársmet að ræða. Síðustu ár hafa líka verið mjög sólrík flest.

Kannski verður ekkert allsherjarmet sett í þessum flokkum, en að það gangi svo nærri meti í mörgum greinum verður að teljast harla óvenjulegt. Í fljótu bragði gæti 1941 verið svipað með það. Áhugamenn um stríðsrekstur vita vel um kuldana í Evrópu á þeim hlýindaárum hér.

Og að árið sé það 15. í röð í Reykjavík með hita yfir meðallagi er eiginlega með ólíkindum. Ámóta hlýindaraðir hafa verið í gangi í nágrannalöndunum þar til að 2010 slær út í kulda. Hvað skyldi gerast hér á næsta ári?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sveinn Atli Gunnarsson

Það má einnig bæta því við að árið gæti hugsanlega orðið það heitasta á heimsvísu, en það er að sjálfsögðu óvissu háð enn um sinn. Halldór Björnsson skrifaði ágæta grein um líkurnar á því á loftslag.is, Og árið verður… í byrjun nóvember. Í síðustu athugasemd sinni, sem gerð var núna 20. desember orðaði hann þetta þannig:

Meðalhitafrávik nóvember var 0.69 °C og þá er orðið verulega líklegt að þetta verði hlýjasta árið. Benda má á að til að árið verði kaldara en árið 2005 þarf meðalhitafrávik desember að vera undir 0.34°C. Slíkt hefur gerst einu sinni á þessari öld (þ.e. frá og með janúar 2001) en það var árið 2008.

Sveinn Atli Gunnarsson, 23.12.2010 kl. 08:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 414
  • Sl. viku: 1578
  • Frá upphafi: 2350205

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 1452
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband