Hlýtt er á Íslandi - miðað við landfræðilega breidd

Ég held mikið upp á það sem kalla má „landafræði lofthjúpsins“. Ekki er þetta formleg fræðigrein en spannar hins vegar vítt svið, allt frá barnaskólalærdómi um árstíðaskiptin yfir í svæsnustu fræðigreinar um hringrás lofts og sjávar.

Flestir vita að hér á landi er mjög hlýtt miðað við það að landið er á 65° norðlægrar breiddar, rétt við heimskautsbauginn nyrðri. Ein ástæðan er sú að landið er umkringt sjó sem geymir í sér varma sumarsins og mildar veturinn. Þegar kemur að því að fara nánar út í þá sálma dýpkar á skýringum og verður loks að flækju sem fræðingar deila um á síðum vísindarita. Látum það gott heita - í bili alla vega. En við getum alla vega litið á punktarit sem sýnir eina staðreynd málsins.

Hiti eftir breiddarstigi

Á láréttum ás myndarinnar má sjá breiddarstig, 20 gráður norður eru lengst til vinstri, en norðurpóllinn lengst til hægri. Lóðrétti ásinn sýnir ársmeðalhita. Svörtu punktarnir sýna ársmeðalhita á 87 veðurstöðvum víða um norðurhvel jarðar. Gögnin eru úr meðaltalssafni Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar (WMO) fyrir tímabilið 1961-1990. Við tökum strax eftir því að mjög gott samband er á milli breiddarstigs stöðvanna og ársmeðalhitans. Ef við reiknum bestu línu gegnum punktasafnið kemur í ljós að hiti fellur um 0,7 stig á hvert breiddarstig norður á bóginn.

Það má taka eftir því að á köldustu stöðinni er ársmeðalhitinn nærri mínus 20 stigum, ívið kaldara en hér er talið hafa verið á ísöld. Á þeirri hlýjustu er meðalhitinn um 27°C. Spönnin er um 47 stig. Hver skyldi hafa verið halli línunnar á ísöld?

Punktarnir ofan línunnar eru staðir þar sem hlýrra er en breiddarstigið eitt segir til um. Reykjavík er meðal þeirra. Sjá má að ársmeðalhitinn er um 6°C hærri en vænta má og svipaður og er að jafnaði á 55°N. Hafið (eða hvað sem það nú er) flytur Reykjavík 9° til suðurs í ársmeðalhita.  

Í viðhenginu (textaskrá) er taflan frá Alþjóðaveðurfræðistofnuninni. Þar má finna nöfn stöðva - sum kunna að vera ókunnugleg - en einnig er þarna staðsetning, breidd, lengd og hæð yfir sjó. Síðan eru bæði janúar- og júlíhitameðaltöl fyrir þá sem vilja meiri upplýsingar. Þeir geta þá leikið sér að því að búa til myndir fyrir mánuðina tvo.


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Mig hefur alltaf langað til að koma til Eureka og Fergana.

Sigurður Þór Guðjónsson, 19.11.2010 kl. 01:57

2 Smámynd: Árni Davíðsson

Eru ekki til sambærilegar upplýsingar um meðalvind og úrkomu fyrir veðurstöðvar um heiminn?

Árni Davíðsson, 19.11.2010 kl. 11:20

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Þetta er athyglisvert.

En eitt á ég erfitt með að átta mig á; ef ársmeðalhitinn á 90. breiddargráðu er -20c, hvernig getur þá hlýnun upp á 2 gráður sett allt úr skorðum þarna norðurfrá?

Svo held ég að það sé smá innsláttarvilla hjá þér Trausti, þegar þú segir "Hafið (eða hvað sem það nú er) flytur Reykjavík 9° til norðurs í ársmeðalhita." Væntanlega á að standa "til suðurs", ekki satt?

Kv.

Gunnar Th. Gunnarsson, 19.11.2010 kl. 16:03

4 Smámynd: Trausti Jónsson

Þakka innsláttarábendinguna Gunnar - gott að einhver les þetta með athygli. Allt úr skorðum er kannski fullmikið sagt, en það munar samt um 2 gráður þegar sú breyting tekur til margra áratuga. Hún nægir t.d. til að bræða alla jökla á Íslandi nema á hæstu fjöllum. Jöklar á þriggja breiddargráða bili á Grænlandi breytast úr því að bráðna aðeins að neðan yfir í það að kelfa, hafís þynnist, sumarið lengist, sífrerajafnvægi raskast og svo framvegis og síðan eru óbeinu áhrifin. En þetta nýja ástand þarf að standa lengi, 20 ár nægja ekki. Náttúrulegar sveiflur frá ári til árs og áratugum til áratuga eru enn stærri. Það er ákveðið öfugmæli að þar sem búist er við mestum breytingum vegna hlýnunar er jafnframt erfiðast að sýna fram á að hún eigi sér stað. Þrátt fyrir mikla hlýnun á síðustu áratugum er hún ekki enn orðin marktæk á norðurslóðum. Ekki er alveg víst að við lifum það.

Árni. Sambærilegar upplýsingar eru til um úrkomu, það er hins vegar nokkurt pillerí að taka þær til. Taflan sem fylgdi með pistlinum varð ekki til alveg fyrirhafnarlaust. Upplýsingar um meðalvind eru erfiðari, hann er svo ofboðslega staðbundinn.

Sigurður: Það kostar væntanlega ekki mjög mikið að fara til Fergana, en Eureka er í dýrari kantinum.

Trausti Jónsson, 19.11.2010 kl. 16:55

5 Smámynd: Árni Davíðsson

Ástæðan fyrir að ég spyr er að ég hef áhuga á að bera saman vindhraða á Íslandi við  önnur lönd. Þá fyrst og fremst höfuðborgarsvæðið. Ég hef tekið eftir því að meðalvindhraði hefur minnkað á Bústaðavegi frá 1949 til 2009. Hann var yfir 6 m/s árin eftir 1949 en er rúmir 4 m/s síðustu ár. Á því eru væntanlega nokkrar skýringar. Meiri byggð og meiri trjágróður. Sennilega hafa aðstæður við Bústaðaveg breyst og stöðin jafnvel verið færð til og mæliaðferðir breyst?

Árni Davíðsson, 21.11.2010 kl. 23:22

6 Smámynd: Trausti Jónsson

Þrjár ástæður eru fyrir lækkandi vindhraða í Reykjavík. Í fyrsta lagi hefur trjágróður í Reykjavík aukist mjög, ekki síst í Öskuhlíð þar sem vestanáttin blés óhindruð inn að veðurstöðinni en þarf nú að fara yfir allstórt svæði með trjágróðri. Trjágróður hefur einnig aukist í öðrum áttum, nú síðustu 2- árin er trjágróður farinn að vaxa mjög nærri mælingareitnum. Í öðru lagi hefur í raun og veru verið ívíð hægviðrasamara síðustu árin en áður var. Í þriðja lagi var skipt um gerð vindhraðamælis í maí 2000, þriggja ára samanburður sýndi að gamli mælirinn mældi meiri vind en sá nýi. Allt þetta hefur dregið úr vindhraða í Reykjavík. Lækkun vindhraða er ekki alveg jafn áberandi á flugvellinum, en mælingar þar eru því miður ekki samfelldar. All þetta veldur þeirri lækkun sem þú minnist á.

Trausti Jónsson, 22.11.2010 kl. 00:00

7 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Einhversstaðar sá ég því haldið fram að trjágróðurinn í Heiðmörkinni, hafi aukið sumarhitann mælanlega í Reykjavík í austan áttum.

Það er ekki órökrétt.... eða hvað?

Gunnar Th. Gunnarsson, 22.11.2010 kl. 04:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 86
  • Sl. sólarhring: 297
  • Sl. viku: 1660
  • Frá upphafi: 2350287

Annað

  • Innlit í dag: 53
  • Innlit sl. viku: 1502
  • Gestir í dag: 52
  • IP-tölur í dag: 51

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband