Meir um hafís í norðurhöfum (2. lestur)

Þetta er reyndar allt of mikið efni fyrir bloggpistla, en það sakar varla að vera með nokkrar framhaldssögur í gangi. Fyrsti lestur hafísbálks Trausta var 19. september. Hefst nú annar lestur.

koch-trj_hafis 

Myndin sýnir norðurheimskautssvæðið. Síðla vetrar þekur hafís allt Norðuríshafið og þar að auki er þá mikill ís í Barentshafi, við Austur-Grænland og við Baffinsland og Labrador - suður til Nýfundnalands eða jafnvel lengra. Útbreiðslan á sumri er um eða innan við helmingur vetrarþekjunnar, hin síðari ár rúmlega þriðjungur.

Straumur ber ísinn þvert yfir norðurskautið frá svæðinu norður af Beringssundi og í átt að Framsundi. Einnig liggur straumur meðfram nyrsta hluta Grænlands til vesturs og suðvesturs meðfram Kanadísku heimskautaeyjunum og inn i hringstraum norður af Alaska. Þar heitir Beauforthaf.

Sumir muna e.t.v. eftir íseyjunni ARLIS II sem brotnaði upp undan Grænlandsströnd vestur af Íslandi snemmsumars 1965 og var talsvert í fréttum hér á sínum tíma. Þessi eyja hafði brotnað úr íssyllu við Ellesmereeyju 1955 að því er talið var. Árið 1961 var hún norður af Alaska og þá var komið fyrir vísindabúðum á eyjunni. Höfðu menn aðsetur á eyjunni fram undir það að hún brotnaði. Frá Alaska rak eyjuna til þess að gera hratt þvert yfir heimskautið. Önnur ámóta eyja sem brotnaði frá landi á svipuðum slóðum 1949 slapp ekki inn í þverstrauminn og hringsólaði í 30 ár í Beauforthringnum. Lesa má um íseyjamálin á netinu, t.d. hér. Arlis var næst Íslandi í um 80 sjómílna fjarlægð. Í ísnum á eyjunni var talsvert af grjóti frá Ellesmereeyju og ekki munaði svo miklu að það endaði hér.

Mikill ís berst í gegnum Framsundið og inn í Austur-Grænlandsstrauminn, í meðalári eru það um 2800 rúmkílómetrar (um 90 þúsund rúmmetrar á sekúndu) auk álíka magns ferskvatns.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Skemmtilegt og fróðlegt. Takk!

Gunnar Th. Gunnarsson, 13.10.2010 kl. 16:20

2 Smámynd: Sveinn Atli Gunnarsson

Takk fyrir áhugaverða grein.

Mig langar að vekja athygli á nýlegri grein (2010 Geographic muting of changes in the Arctic sea ice cover, Geophys. Res. Lett., 37, L16501, doi:10.1029/2010GL043741), þar sem vísindamaðurinn Ian Eisenman skoðar þann mun sem er í þróun hafíss eftir því hvort litið er til leitni í útbreiðslu hafíssins við hámarkið (2,6% minnkun/áratug) eða lágmarksið (11,2% minnkun/áratug) sem sýnir nokkuð ólíka þróun yfir síðustu áratugi (frá 1979). Þessi sýnilegi munur varð til þess að Eisenman fór að velta fyrir sér hvað gæti legið að baki. Það sem er athyglisvert í vangaveltum hans er að hann skoðar landfræðilega þætti til að útskýra þennan mun. Við skrifuðum lítilega um þetta á loftslag.is, sjá hér. Mér þykir þessar vangaveltur fróðlegar þar sem þær virðast við fyrstu sýn allavega, útskýra þann mun sem er í leitninni sem er á milli hafíshámarksins og -lágmarksins. En þessar pælingar eru kannski ekkert nýjar fyrir þér Trausti.

Sveinn Atli Gunnarsson, 13.10.2010 kl. 21:41

3 Smámynd: Trausti Jónsson

Þakka ykkur fyrir, Gunnar og Svatli. Ég hef séð greinina sem Svatli vitnar í. Hún er mjög snyrtileg og allrar athygli verð. Við á Veðurstofunni höfum fullan aðgang að tímaritum ameríska jarðeðlisfræðisambandsins (AGU) og þar með greininni. Slæmt er að ekki hafi verið samið um landsaðgang við það félag - eins og tókst varðandi ameríska veðurfræðifélagið (AMS) en öll tímarit þess eru nú aðgengileg hverjum sem er hér á landi. Bæði þessi félög gefa mönnum kost á að vera látnir vita þegar ný hefti koma út - efnisyfirlit er sent í tölvupósti. Það fyrirkomulag hentar þó sennilega fæstum nema sérfræðingum - þetta sýnist allt vera ruslpóstur.

Trausti Jónsson, 14.10.2010 kl. 00:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • w-blogg200324b
  • w-blogg200324a
  • Slide10
  • Slide9
  • Slide8

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 41
  • Sl. sólarhring: 52
  • Sl. viku: 532
  • Frá upphafi: 2343294

Annað

  • Innlit í dag: 38
  • Innlit sl. viku: 484
  • Gestir í dag: 33
  • IP-tölur í dag: 30

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband