Hugsað til ársins 1974

Árið 1974 fékk yfirleitt góða dóma, þrátt fyrir að margskonar skæð illviðri hafi gengið yfir. Tíð síðari hluta vetrar og um vorið var alveg einstaklega hagstæð. Sömuleiðis var heyskapartíð hagstæð um sumarið. Haldið var upp á 1100 ára afmæli Íslandsbyggðar í öllum héruðum landsins og megnið af þeim hátíðarhöldum fór fram í góðu veðri. Eftirbragð ársins þótti því býsna gott - en spilltist svo af snjóflóðasköðunum miklu í Neskaupstað rétt fyrir jólin. 

Nóvember og desember 1973 höfðu vakið mikla athygli veðurnörda og þá fyrir kulda sakir. Fyrsti mánuður ársins 1974 varð hlýrri, en sömuleiðis undrunarefni. Meðalloftþrýstingur mánaðarins varð lægri heldur en vitað var um áður, 977,1 hPa í Reykjavík. Slegið var met frá því í desember 1924, en þá var meðalþrýstingur í Reykjavík 980,5 hPa. Þetta nýja met var síðan aftur slegið í febrúar 1991 þegar mánaðarmeðalþrýstingur í Reykjavík var 975,4 hPa. Þessir tveir mánuðir eru þeir einu með meðalþrýstingi neðan 980 hPa í Reykjavík. Nýtur febrúar 1991 þess að vera styttri en janúar, meðaltal 31 dags á þeim tíma er lítillega hærra en janúartalan 1974. 

w-1974-kort-p-pvik-jan

Kortið sýnir hin óvenjulegu þrýstivik í janúar (litir) og meðalsjávarmálsþrýsting (heildregnar línur). 

Janúar var umhleypinga- og úrkomusamur. Gæftir voru slæmar til sjávarins. Snjóþungt var víða norðan- og austanlands, þann 20. mældist snjódýpt á Hornbjargsvita 218 cm, sú mesta sem vitað er um í janúar hér á landi. Febrúar var óhagstæður norðanlands og snjóþyngsli óvenju mikil, syðra var umhleypingasamt en snjólétt.  Tíð var mjög hagstæð í mars, mjög úrkomusamt var á Suður- og Vesturlandi. Hlýtt. Apríl var sérlega hagstæður og fádæma hlýr. Tún yfirleitt algræn og úthagi að grænka í mánaðarlok.

w-1974-kort-500hpa-vik-april

Meðalhæð 500 hPa-flatarins í apríl 1974 (heildregnar línur), en hæðarvik eru sýnd í lit. Óvenjueindregin sunnanátt var ríkjandi - og mikil hlýindi. Þetta er hlýjasti apríl sem vitað er um á landsvísu, en sá næsthlýjasti í Reykjavík, Stykkishólmi og á Akureyri (á eftir 2019). Vorið (apríl og maí saman) hefur heldur aldrei verið hlýrri á landsvísu, á fáeinum stöðvum er þetta næsthlýjasta vorið (t.d. varð lítillega hlýrra á Stórhöfða í Vestmannaeyjum 1940). Þetta er líka hlýjasta þriggja mánaða tímabil, mars til maí, sem vitað er um á landinu og á þeim veðurstöðvum þar sem lengst hefur verið mælt.

Gæðatíðin hélt áfram í maí. Sömuleiðis var júní hagstæður, en þó var mjög úrkomusamt syðra, einkum framan af. Í júlí var áfram hagstæð tíð, en þó var nokkuð óþurrkasamt norðaustanlands. Ágúst var einnig hagstæður á um landið sunnan- og vestanvert, en austan- og norðaustanlands var heldur votviðrasamt. Kaldara var að tiltölu en áður um sumarið og vorið. September var talinn hagstæður á Suður- og Vesturlandi, en óhagstæður nyrðra og eystra. Uppskera úr görðum var óvenju mikil. Mjög kalt var í veðri. Október var umhleypingasamur, en tíð talin hagstæð engu að síður. Óvenjulegar stillur voru í nóvember og tíð hagstæð. Í desember skipti um. Þá varð tíð óhagstæð, stormasöm og köld.

Við flettum nú fréttablöðum og lítum á helstu tíðindi þeirra af veðri. Dagblaðið Tíminn verður hér oftast fyrir valinu. Fréttir af veðri og tíð skýrar þar (og auðfundnar). Við notumst við timarit.is og höfum eins og venjulega í huga að þar eru stundum ítarlegri upplýsingar um heimildamenn heldur en hér er vísað í - og að við styttum oft fréttatextana. 

Þó veðurlag væri nokkuð stórgert í janúar var ekki mikið um stórtjón. Gríðarlega djúpar lægðir voru yfir Norður-Atlantshafi, en héldu síg oftast fyrir sunnan og suðvestan land. Tíminn segir frá 8. janúar:

Mikil ótíð hefur verið norðanlands og austan undanfarið og hefur það bitnað verulega á samgöngum bæði i lofti og á landi. Á Austfjörðum hafa snjóþyngsli verið slík, að elstu menn muna ekki annað eins um þetta leyti árs.

Þann 9. og 10. var óvenju mikið stórstreymi. Svo vildi til að vindátt var hagstæð. Morgunblaðið segir frá 11. janúar:

Óvenjumikið stórstreymi var í gærkvöldi [9.janúar] og aftur í morgun [10.]. ... Engar skemmdir urðu af flóðum þessum, nema hvað vatn kom í kjallara i miðbænum í Reykjavík og víða flæddi upp um niðurföll á götum, t.d. í Austurstræti. Við suðurströndina óttuðust menn, að sjór gæti gengið á land, þar sem spáð var austanroki, um 10 vindstigum og um klukkan 18 í gær voru 10 vindstig á Loftsölum og á Mýrum. Þó reyndist sjór kyrr við suðurströndina í gærkvöldi og urðu engir skaðar.

Þrumuveður voru óvenjutíð í þessum mánuði, og ollu eldingar tjóni. Í veðurskýrslum er getið um þrumur 19. daga mánaðarins. Tjón varð ekki mikið, en getið er um skemmdir af völdum eldinga á Hellu og undir Eyjafjöllum. Rafmagnsstaurar og spennistöð skemmdust. 

Þann 26. fauk mikill hluti bogaskemmu á Sigmundarstöðum í Hálsasveit, símabilanir urðu í Borgarfirði. Þann 31. braut ísing braut rafmagnsstaura Snæfjallaströnd og á Langadalsströnd í Djúpi og línur slitnuðu. Talsvert tjón varð á húsum á Siglufirði þegar þakplötur fuku og rúður brotnuðu.

Versta veður vetrarins gerði dagana 10. til 14. febrúar. Byrjaði það með miklu fannfergi um landið norðanvert og síðan slydduhríð sem olli óvenjumiklum skemmdum á síma- og raflínum. Mikið var um snjóflóð. Blöðin greina allítarlega frá þessu veðri og má þar finna ítarlegri upplýsingar um tjón.

Mjög djúp lægð fyrir sunnan og suðaustan land bar hlýtt loft úr suðaustri, austri og síðar norðaustri inn yfir landið. Mikil úrkoma fylgdi ásamt hvassviðri. Kortið sýnir sjávarmálsþrýsting, úrkomu og hita í 850 hPa-fletinum að kvöldi þess 11. febrúar. 

w-1974-kort-c

Áttin varð fljótt austlæg og norðaustlæg í öllu veðrahvolfinu og var úrkoma því ekki teljandi á Suðurlandi.

w-1974-kort-d

Kortið (sem gildir á sama tíma og það fyrra) sýnir stöðuna í 500 hPa-fletinum, hlý austanátt er yfir landinu - kaldast þó á Vestfjörðum. 

Tíminn segir frá þann 12.febrúar:

Aðfaranótt sunnudags [10. febrúar] gerði versta veður á öllu Norðurlandi með mikilli snjókomu og hvassviðri. Komst vindhraðinn upp i 8-9 vindstig fyrir norðan á sunnudag. Á aðfaranótt mánudags [11.] fór veðrið að ganga niður, og um hádegi í gær var orðið stillt allt vestur á Skaga. Á Vestfjörðum var enn iðulaus stórhríð síðdegis i gær og hafði verið síðan á föstudagskvöld. Þar voru 8-9 vindstig i gær. Veðrið skall yfir Vestfirðinga 8. febrúar, sama dag og Halaveðrið árið 1925, en versta tíðarfarið er jafnan á Vestfjörðum í febrúar, eins og raunar viðar á landinu, og þá hafa ýmis sjóslys orðið. Sem betur fer hafa engin slys orðið að þessu sinni, svo vitað sé. Mörg skip hafa leitað vars á Ísafirði, þ.á m. þrír breskir togarar. Mannhæðarháir skaflar eru á Ísafirði og Akureyri, og sjálfsagt viðar, á Sauðárkróki og Dalvik eru 4-5 m háir skaflar. Á Ísafirði fór fólk á skíðum til vinnu i morgun. Guðmundur Sveinsson, fréttaritari Tímans á Ísafirði sagði í gær, að ekki hefði stytt þar upp síðan á föstudag. Hús eru sum hálf á kafi i snjó. Fjölda bíla hefur fennt i kaf, en ófært er um nær allan bæinn og á flugvöllinn, en ekki hefur verið flogið síðan á miðvikudag. Í gærmorgun féll snjóflóð á Eyrarhlið milli Hnífsdals og Ísafjarðar, og fóru þrír staurar i háspennulinu. Viðgerð var hafin i gær. Rafmagnslaust er því í Hnífsdal og Bolungavik, en Reiðhjallavirkjun er einnig biluð. Allir sem þurftu að fara út fyrir bæ til vinnu i morgun fóru á skíðum, en einungis var unnt að aka bilum um miðbæinn.

Tíminn hélt áfram að greina frá næstu daga og þann 13.febrúar birtist þessi pistill (nokkuð styttur hér):

SJ—Reykjavik. Miklar rafmagnsbilanir voru i gær og fyrradag um allt Norðurland. Þar sem ástæðurnar voru kunnar, var nær ekkert hægt að aðhafast til viðgerða vegna ofanhríðar og mikils veðurs. Annars staðar hafði ekki einu sinni tekist að kanna orsakir bilananna. Rafveitustjórarnir nyrðra, Ásgeir Jónsson á Blönduósi og Ingólfur Arnason á Akureyri, töldu ástandið mjög alvarlegt, þótt ekki hefði komið til stórvandræða enn. Telja þeir þetta eitt mesta ísingarveður, sem komið hefur um margra ára skeið. Þá var algerlega símasambandslaust við alla Vestfirði og mestan hluta Barðastrandarsýslna. ... Einnig var símasambandslaust við marga staði á Norður- og Norðausturlandi og allt suður í Dali. Mest af rafmagns- og símabilununum stafar af ísingu, sem slitið hefur linur. Einnig hafa staurar brotnað. Vatnsleysi háir mjög rafstöð Laxárvirkjunar. Þar fennti i aðalrennslisskurð á mánudag en svo mikið tókst að losa, að hægt var að keyra dísilrafstöðina i fyrrinótt, en i gær fennti svo mikið, að allt virtist vera að fara á sömu leið, að sögn Ásgeirs Jónssonar, ... Á Skagaströnd, Hvammstanga og Vatnsnesi sagði hann rafmagnslaust. Á Blönduósi var ástandið ekki svo slæmt, þó höfðu nokkrar heimtaugar slitnað þar. Ófært mátti heita um götur á Blönduósi vegna blindhríðar, og símabilanir há mönnum. 

Hér var allt eins ófært og verið gat á mánudag, og er ennþá ófærara i dag, sagði Erlingur Davíðsson, fréttaritari Tímans á Akureyri, i gær. Vinna liggur að mestu niðri vegna rafmagnsleysisins og húsin kólna, því þótt flestir hafi olíukyndingu, gengur hún fyrir rafmagni. Unnið er dag og nótt að því að hreinsa götur. Í gær var bleytuhríð á Akureyri og fært orðið um aðalgöturnar. 

Tíminn 14.febrúar:

SJ—Reykjavik. Mikið rok var á Rauðasandi á Barðaströnd frá því aðfaranótt þriðjudags fram á aðfaranótt miðvikudags. Að Bæ á Rauðasandi fauk járnið af um helmingi þaks íbúðarhússins og álíka mikið af fjósþakinu. Þegar við töluðum við Ragnheiði Sigmundsdóttur húsfreyju á Bæ i gærdag, sagði hún að hefði lygnt. Hún og maður hennar, Árni Jóhannesson eru tvö i heimili og búa á neðri hæð hússins, svo þetta kom ekki svo mjög illa við þau. Gengið hefur verið svo um, að ekki fjúki meira, og þakjárn er væntanlegt með næstu ferð. Að Gröf á Rauðasandi varð einnig tjón i hvassviðrinu. Þar fuku nokkrar járnplötur af þaki hlöðu og annar gafl hennar, sem veðrið, stóð upp á brotnaði. Þá fauk fjárhúsið til á grunninum. Að Gröf búa hjónin Þorvaldur Bjarnason og Ólöf Dagbjartsdóttir.

Vallalina slitnaði á þriðjudag, en viðgerð lauk eftir 14 tíma. Fellalina slitnaði einnig, en viðgerð á henni er sömuleiðis lokið. Senda átti menn á snjóbíl norður á Jökuldal til þess að gera við Jökuldals- og Jökulsárhliðarlinu. Engar fréttin hafa borist úr Hróarstungu, því að símasambandslaust er þangað. Símabilanir hafa raunar orðið viðar. Linur til fjarðanna stóðust þó veðrið, enda mun bleytuhríðin ekki hafa verið jafnmikil á þeim slóðum. Heimtaug að sláturhúsinu á Fossvöllum fór alveg, bæði spennar og lina. Kjöt er þó ekkert i húsinu, sem betur fer. Tveir snjóbílar hafa verið sendir frá Egilsstöðum með mjólk til Seyðisfjarðar, en þangað hefur ekki verið farið síðan um síðustu helgi. Mjög mikill snjór er á Fjarðarheiði, Seyðisfjarðarmegin.

SJ-Reykjavík — Nú hefur fengist gleggri mynd af bilunum þeim, sem orðið hafa á rafmagns- og símalinum vestanlands, norðan og austan i veðrinu undanfarið. Þær eru miklar, og er enn ógerlegt að meta tjónið, sem orðið hefur. Snjóflóð hafa fallið viða, m.a. i Fljótum, Laxárdal og Fnjóskadal, og á Seyðisfirði féll lítil snjóskriða. Viða hafa snjóflóðin skemmt síma- og rafmagnslinur, og i Fnjóskadal fór veiðihús. Á Norðurlandi eystra var i gær vitað um 100 brotna rafmagnsstaura. Í Fljótum voru a.m.k. 46 staurar brotnir, og á utanverðu Snæfeilsnesi var a.m.k. 31 staur brotinn, og sennilega fleiri. Í Frystihúsinu á Grenivik lágu í gær mikil verðmæti undir skemmdum, en þar var rafmagns- og símasambandslaust. Sömu sögu er að segja frá Ólafsfirði. Vonir stóðu til að vararafstöð kæmist þangað i gærkvöldi. Meiri snjór er viða norðanlands, t.d. á Akureyri, en komið hefur i a.m.k. 20 ár. Á Akureyri var enn snjókoma i gær.

Annars fengum við þær fregnir hjá Veðurstofunni síðdegis i gær, að allur ofsi væri nú úr veðrinu. Þó gekk á með éljum sums staðar. Norðaustanátt var um land allt. Viðgerðir voru hafnar á rafmagns- og símalinum, en ófærð og skortur á snjóbílum hamla framkvæmdum.Vitað var um talsvert miklar skemmdir á raflinum og staurum á Vestfjörðum, en símasambandslaust var við marga staði þar, m.a. við Ísafjörð. Óljósar fregnir voru af skemmdum á rafmagnslinum i Dölum, en þær munu einhverjar. Einhverjar bilanir voru á Króksfjarðarnesi og í Reykhólasveit. Á utanverðu Snæfellsnesi frá öxl að Lýsuhóli var vitað um 31 brotinn staur, og sögusagnir voru um að fleiri væru brotnir. Línumenn voru komnir á staðinn síðdegis í gær og viðgerð hafin. Nýir símastaurar voru á leiðinni, og reyna átti að koma rafmagninu i lag sem fyrst, en veðurskilyrði voru óhagstæð um miðjan dag i gær. Í Fljótum var vitað um að 46 staurar voru brotnir. Ólafsfjarðarlina var biluð líka. Þar fór snjóflóð á línuna. Í gær voru viðgerðarmenn komnir á staðinn og efni á leiðinni.

Ég er fæddur og uppalinn Akureyringur og búinn að vera hér í bráðum tuttugu ár rafveitustjóri, og þetta er það versta sem ég hef komist í, bæði hvað veður og bilanir snertir, sagði Ingólfur Árnason, rafveitustjóri á Norðurlandi eystra, í viðtali við Tímann í gær. Þær bilanir, sem við vissum af á þriðjudag, eru hreinustu smámunir hjá því, sem nú er orðið. Í gær voru um 60-70 staurar í Grenivíkurlinu farnir og spennar eyðilagðir. Sem sagt línan var öll niðri frá Fnjóská og út í Grenivik. Ísingin var þetta 20-25 cm i þvermál á vírunum úti í Höfðahverfi inn af Grenivik. Símasambandslaust var við Grenivík og snjóflóð á vegi. Búið var að fá rafmagnsvél að láni hjá Slippstöðinni á Akureyri, og átti að flytja hana með Drangi í gærkvöldi. Linan frá þeim stað, þar sem æskilegast er að tengja hana, og út í frystihús, var biluð líka. Þurfti því einnig að senda viðgerðarmenn til Grenivikur með Drangi. Í Dalsmynni i Fnjóskadal féll snjóflóð og tók rafmagnsstaur og veiðihús. Yfirleitt eru snjóflóð hér um allt, sagði Ingólfur Arnason rafmagnsstjóri. Við Dalvik voru 20 rafmagnsstaurar brotnir. Frammi Ií Eyjafirði voru einnig rafmagnsbilanir og talsverður hluti Saurbæjarhrepps var rafmagnslaus. Þar átti að gera við í gær. Snjóflóð féll hjá Steinsstöðum í Öxnadal og braut bæði sveitalínuna og nýju Skagafjarðarlínuna, sem átti að vera upphafið að samtengingu rafveitna á landinu. Í Suður-Þingeyjarsýslu voru ekki stórvægilegar bilanir. 1 Norður-Þingeyjarsýslu var verið að gera við Axarfjarðarlínuna, en i Axarfirði hafði verið rafmagnslaust i tvo sólarhringa.

Á Fljótsdalshéraði sligaði ísing niður sveitalinur á þriðjudag og nóttina áður, og vitað var um eina tíu brotna staura. Á þriðjudag var eiginlega allt Fljótsdalshérað rafmagnslaust, en rafmagn var á Egilsstöðum. Starfsmenn Rafmagnsveitna ríkisins á Egilsstöðum hafa verið önnum kafnir við viðgerðir. Mikill snjór er i héraðinu og erfitt að komast um. Símasambandslaust er við ýmsa bæi á Héraði, og því ekki vitað til fulls um bilanir. Einn snjóbíll er notaður í viðgerðarferðirnar. Næst er á dagskrá hjá viðgerðarmönnum að kanna línurnar i Jökulsárhlið og Jökuldal, þar sem sennilega er straumlaust. Fellalinan lagðist niður vegna ísingar á tveggja km svæði, en í gær var komið rafmagn annars staðar frá i Fellin nema að einum bæ. Á þriðjudag tvíhreinsuðu viðgerðarmenn frá Egilsstöðum ísingu af sömu línunni. Ásgeir Jónsson, rafveitustjóri á Blönduósi, sagði í viðtali við blaðið, að ástandið á Norðurlandi vestra væri eiginlega óbreytt frá því á þriðjudag. Þó var búið að gera við bilanir á Skagaströnd og Hvammstanga. Laxárvatnsvirkjun framleiðir ekkert rafmagn vegna krapastíflu, og þar var mjög vont veður í allan gærdag. Ekki þurfti að gripa til skömmtunar á svæðinu í gær. Hins vegar hafði Vatnsnesið ekki straum, og Skagalína frá Skagaströnd var slitin og sliguð af ísingu, en búist var jafnvel við, að hægt væri að ljúka viðgerð hennar í nótt. Fjórar díselvélar eru í gangi, og er orkuframleiðsla þeirra samanlagt 1600 kw. Þeim er haldið gangandi með því að dæla á þær vatni úr slökkviliðsbil. Veðrið var aðeins að skána á Blönduósi í gærkvöldi. 

Tíminn 15.febrúar

SJ—Reykjavfk. — Heildarskemmdirnar á rafmagnslinum í óveðrinu nú í vikunni eru nálægt 300 stólpar, sem hafa brotnað, auk þess hefur vír eyðilagst, einangrarar, þverslár o.fl. sagði Valgarð Thoroddsen rafveitustjóri i gær. 

SJ-Reykjavík.Snjóflóð hafa fallið víða i Önundarfirði. Eitt þeirra féll skammt frá barnaskólanum á Flateyri og yfir kirkjugarðinn. Rafmagnslaust var í gærkvöldi í innri hluta Önundarfjarðar af völdum snjóflóðanna.

Tíminn 16.febrúar

SJ-Reykjavik. Á fimmtudag [14.febrúar] féll mikið snjóflóð niður í lón Reiðhjallavirkjunar við Bolungarvík. Flóðið braut ísinn, sem var á lóninu, og olli svo mikilli flóðbylgju að lónið tæmdist yfir stífluna. Rafmagnslinan til Bolungavikur var biluð fyrir af völdum óveðursins fyrr i vikunni, og var Reiðhjallavirkjun notuð til vara. Undir venjulegum kringumstæðum getur virkjunin framleitt um 400 kv og var því sæmilegt ástand á Bolungavik hvað raforku snerti. Eftir snjóflóðið hefur virkjunin aðeins hálfa afkastagetu eða um 200 kv. Algert neyðarástand varð á Bolungavík, að því er Valgarð Thoroddsen rafveitustjóri sagði i gær. Árvakur fór i gær áleiðis vestur á Bolungarvík með 500 kv díselvél, sem átti að fara austur á Djúpavog. Verður díselvélin þar til bráðabirgða meðan þetta ástand stendur, en full þörf er raunar fyrir hana á Djúpavogi. Í gær var aðeins hægt að fá símasamband við Vestfirði norðan Tálknafjarðar um neyðarsíma.

TF—Flateyri. — Síðan 1. febrúar hefur verið hér hvöss norðaustanátt og snjókoma. Aðfaranótt laugardagsins 9. febrúar jókst snjókoma mikið, og kyngdi niður snjó í þrjá sólarhringa. Aðfaranótt þriðjudagsins 12. febrúar gerði hér aftakaveður af aust-norðaustri með snjókomunni, og féllu þá snjóflóð um allan Önundarfjörð og víða þar sem elstu menn muna ekki til, að snjóflóð hafi komið áður. Tvö snjóflóð féllu ofan að Flateyri, eins og venjulega úr Skollahvilft ofan við eyrina, og dreifðist það um svæðið frá Sólbakka og út að efstu húsum á Flateyri, og yfir kirkjugarðinn. Annað snjóflóð kom utan við eyrina og tók raflínustaur og fiskþurrkunarhjall, ásamt skreiðarhjöllum, sem stóðu á Eyrarbót, utan vert á Flateyri. Enginn núlifandi man eftir, að þarna hafi hlaupið áður. Snjóflóð varð innanvert við Flateyri á milli Sólbakka og Hvilftar og tók það 4 raflínustaura og sjónvarpshús áhugamanna, en í því var ein sendistöð í eign Landsímans eða sjónvarpsins — en flytja átti hana á næstunni. Snjóflóð varð á milli Veðrarárbæjanna, og brotnuðu 13 raflínustaurar á aðallinu og sveitalínu. Símalinan slitnaði á öllu svæðinu og fór allt i sjó fram. Miklar skemmdir urðu á síma innar í firðinum, og tilfinnanlegt tjón varð i Bjarnardal, en þar brotnuðu 20 staurar. Allt rafmagn fór af Flateyrarhreppi, Mosvallahreppi og Ingjaldssandi í 10 tíma á mánudaginn var. Síminn fór líka allur úr skorðum, en eitthvað var búið að laga hann í gær.

Þann 19. febrúar birti Tíminn fréttir frá Patreksfirði - og síðan var rætt um vatnselg í Reykjavík.

GS-Ísafirði. — Horfur i rafmagnsmálum eru afar ískyggilegar hér vestra, og er svo að okkur sorfið, að jafnvel hafa verið slökkt götuljósin á Ísafirði til þess að spara rafmagn. Ekkert rafmagn hefur borist vestan yfir frá Mjólkárvirkjun nú um hríð vegna bilunar á háspennulinunni, og vötnin, sem sjá Fossárstöðinni fyrir rafmagni, eru að ganga til þurrðar, svo að hér verður senn líkt á komið og á Hornafirði í vetur.

JH-Reykjavik. Í fjallinu ofan við Patreksfjörð hefur myndast geysimikil snjóhengja sem slútir ískyggilega mikið fram yfir sig. Þessi hengja er uppi á svonefndum Brellum. Í gær kom til orða að gera ráðstafanir til þess að snjórinn hlypi fram, en þegar til kom þótti það of áhættusamt, og var horfið frá því. Fólki stendur af vonum stuggur af þessari hengju, og hefur öll umferð um afmarkað svæði verið bönnuð síðan á laugardaginn. Þarna uppi í fjallinu myndast iðulega hengja, þegar skefur af því langan tíma, og hafa stundum orðið þar snjóflóð, siðast veturinn 1958. Í þessu síðasta snjóflóði eyðilögðust skúrar, sem þrjár bifreiðir voru geymdar í, en áður hafði flóð sópað burt hænsnabúi, er var á svipuðum stað. Vegna snjóflóðahættunnar hafa byggingar ekki verið leyfðar á sex til sjö hundruð metra breiðri spildu upp frá höfninni til fjalls, en nýtt hverfi hefur aftur á móti risið utan við þetta hættusvæði, og eru nú þar út frá miklar nýbyggingar. Að degi til fer fólk, sem erindi á inn i kaupstaðinn úr ytra hverfinu meðfram höfninni, en öll umferð er bönnuð, meðan skuggsýnt er. Grjóthryggur liggur þarna langt ofan úr fjalli niður undir sjó, og hafa snjóflóðin fylgt þessum hrygg. Sjálf hengjan er í fjögur til fjögur hundruð og fimmtíu metra hæð yfir sjó, og fjallið er þarna afar bratt.

Varnargarði hefur verið komið upp og grafinn ofan við hann mikill skurður, sem talsvert af snjó hefur að vísu safnast í, en varnargarðurinn sjálfur stendur uppúr. Hitt er aftur á móti vandséð, hversu mikið viðnám hann veitir eða hvort hann dregur úr afli snjóflóðs, ef á reynir. Snjóflóð, sem þarna hafa komið, hafa farið alla leið fram á sjó, en þótt svo yrði nú, eru bátar ekki i hættu, því að þeir eru ekki á því hafnarsvæði, er flóðið næði til. Hugsanlegt er talið, að fjögur hús, sem standa næst hinni óbyggðu skák, geti lent í jaðri snjóflóðs, sem þarna kæmi niður, tvö í ytri jaðrinum og tvö i hinum innri. Eru þar Mýrar 17, þar sem Hörður Jónsson skipstjóri býr, og Hólar 17, þar sem Kópur Sveinbjörnsson vélstjóri býr, og Hólar 15, þar sem Magnús Friðriksson húsasmiðameistari á heima, og Urðargata 23, þar sem Finnbogi Magnússon skipstjóri á heima. Ekki hefur fólkið þó flúið hús sin, jafnvel hafst við i þeim um nætur. Óneitanlega var þó beygur i sumum um helgina, þegar stórrigningu og hvassviðri gerði á Patreksfirði, því að viðbúið var, að hreyfing kæmi á snjóinn, er hann þyngdist. Svo er líka að sjá neðan úr bænum, að hann hafi sigið talsvert, en hengjan hljóp þó ekki. Það segir sig sjálft, að fólki á Patreksfirði er um og ó að hafa hengjuna uppi á Brellum vofandi yfir byggð sinni. Enginn hefur þó látið þetta nábýli raska ró sinni. — Ætli maður reyni ekki að sofa eins og venjulega? sögðu þau Magnús Friðriksson og kona hans, Kristjana Ágústsdóttir, er Tíminn ræddi við um miðnætti á laugardagskvöldið. Það er ekki annað að gera en bíða og sjá, hverju fram vindur og vona það besta. Húsin hérna eru sérlega traustlega járnbent, og þó að jaðar snjóflóðs lenti á þeim og kæmust inn i gegnum glugga, þá er innréttingu þannig hagað, að þau fyllast ekki af snjó, nema allt brotni.

Í gærmorgun féllu snjóflóð á þrem stöðum í Patreksfirði innan við kaupstaðinn, og lokaðist vegurinn algerlega. Mesta flóðið kom hjá svonefndum Stöpum innan við Raknadal. Svo hittist á að fólk var að koma úr Örlygshöfn i bifreið, og komst ekki lengra en að Stöpunum. Lögreglumenn fóru inn eftir til þess að sækja fólkið og koma því yfir flóðasvæðið. Í gær voru ýtur að ryðja veginn, en það er allmikið verk, því að hjá Stöpunum fór snjóflóðið yfir breitt svæði.

SP—Reykjavik. — Veruleg „stöðuvötn“ mynduðust víða á götum borgarinnar og í Hafnarfirði og Kópavogi á sunnudaginn. Líklega mun mest tjón af völdum vatnselgsins hafa orðið hjá fyrirtækinu Rafha i Hafnarfirði, þar sem vatnið fossaði inn i verksmiðjuna. Er útlit fyrir, að tjón af völdum þessa nemi hundruðum þúsunda. Hafnarfjarðarlækurinn flæddi og yfir bakka sina og voru sum hús umflotin vatni. Féll maður í lækinn, er hann var að veita vatni frá húsi sinu, en hann gat bjargað sér á þurrt aftur. Í Reykjavik var vatnselgurinn mestur undir Elliðaárbrúnum, í Borgartúni (í grennd við Klúbbinn) og á mótum Sundlaugarvegar og Reykjavegar. Einnig var mikill vatnselgur við Unufell í Breiðholti, en þar safnaðist vatnið aðallega saman á bílastæðinu, þar sem niðurfallið var stíflað. Það var eins og Reykjavik væri ný komin úr sturtu i gær, — vot, frísk og hress, en sólin skein. Að sögn Rúnars Bjarnasonar slökkviliðsstjóra var liðið kallað á alls 12 staði á sunnudaginn, yfirleitt vegna þess að vatn hafði komist i kjallara. Mest af þessum útköllum komu frá Breiðholti, en annars viða um bæinn. Ekki sagði Rúnar, að ástandið hefði verið verulega alvarlegt á þessum stöðum, en skemmdir þó vafalaust nokkrar. Einnig var lögreglan kvödd í allmörg hús, auk þess sem hún aðstoðaði fjölda bíla, sem höfðu blotnað og stöðvast.

Þann 21. varð mikið flóð við Þorlákshöfn - fjallað er um það í Tímanum þann 22. febrúar:

JH-Reykjavík. Í gær var heldur óvenjulegt um að litast í Þorlákshöfn. Leysingarvatn, sem streymdi fram sandinn ofan við kauptúnið, stíflaðist við þjóðveginn, og myndaðist gífurlega mikið stöðuvatn vestan hans. Það náði langt upp eftir og mun hafa verið á aðra mannhæð, þar sem það er dýpst. Mörg hús í Þorlakshöfn voru umflotin vatni, og í símstöðina varð að fara á bátum síðdegis í gær. Þetta byrjaði rétt fyrir hádegið, sagði Guðbjörg Magnúsdóttir, stöðvarstjóri i Þorlákshöfn, og þegar skipt var um vakt í stöðinni, urðu stúlkurnar að fara til vinnu sinnar á báti. Og ég kom á báti úr vinnunni í kvöld og réri meira að segja sjálf. Það var ekki viðlit að komast þetta öðru vísi. Dæla var notuð til þess að varna því, að kjallari símstöðvarinnar fylltist. Þó nokkur hús við C-götu er verst hefur orðið úti, eru umflotin vatni. Hefur runnið í kjallara þeirra og vatnið valdið þar verulegum skemmdum, til dæmis á frystikistum. Dælubili er kominn hingað frá Hveragerði, sagði Guðbjörg enn fremur, og þegar ákveðið var að rjúfa Þorlákshafnarveginn svo að vatnið fái framrás til sjávar, komu hingað menn bæði frá Selfossi og Reykjavík því að þarna eru bæði rafstrengir og símastrengir, svo að gæta verður allrar varúðar. Guðbjörg kvaðst vita til þess, að svona flóð hefði komið í Þorlákshöfn einu sinni, en þá var ekki risin þar byggð.

Þessa daga - dagsetning þó óviss - gerði vatnsflóð á Akureyri. Vatn rann víða í hús í asahláku á Akureyri og aur spillti lóðum við svonefnt Skammagil. Vatnavextir spilltu vegum víða. Þann 26. fauk þak  af húsi á Fáskrúðsfirði og skemmdi þrjár bifreiðir. 

Fyrstu dagana í mars gerði mikið sunnanveður með hlýindum og úrkomu. Vegarskemmdir urðu á Suður- og Vesturlandi. Foktjón varð í Árneshreppi á Ströndum. Tíminn greinir frá því í pistli þann 6. mars:

GV—Trékyllisvik — Mikið hvassviðri hefur geisað hér um slóðir undanfarna daga. Verst var veðrið á mánudaginn [4.mars] og þá varð talsvert tjón á nokkrum bæjum. Mest varð tjónið á Stóru-Ávik. Þar fauk sambygging, sem hafði að geyma fjós, inngang og ljósavél heimilisins. Í fjósinu var ein kýr, kvíga og nokkrar kindur. Í einni vindhviðunni um miðnætti á aðfaranótt þriðjudags sviptist húsið í burtu og er að var komið var kýrin ein eftir. Leit var gerð að skepnunum og fundust lömbin heil á húfi, en kvígan er ófundin og er helst haldið að hana hafi hrakið í sjóinn undan veðrinu. Auk þessa tók af aðra hlið þaksins á íbúðarhúsinu og dreifðist brakið um allan sjó. Tjón Guðmundar bónda Jónssonar er því tilfinnanlegt, ekki síst þegar þess er gætt að hann er frumbýlingur og hóf búskap að Stóru-Ávik s.l. vor. Þá fuku 50—70 hestar af heyi á Finnbogastöðum og þak tók af votheysgeymslu. Að Munaðarnesi tættist niður grind að húsi, sem var i byggingu. Rúður brotnuðu og glugga tók úr i Árnesi. Upp úr hádeginu i gær tók að lygna og þá fóru þeir, sem heimangengt áttu, að Stóru-Ávik til þess að leggja Guðmundi bónda lið. Asaleysing hefur verið þessa daga og svellalög, sem voru mikil, hafa runnið verulega niður. Það kemur sér vel, því að menn voru farnir að óttast kal, ef ekki færi að hlána.

Vegna verkfalls prentara komu blöð ekki út í 7 vikur vorið 1974, frá 25. mars til og með 9.maí. Mikið var um að vera á stjórnmálasviðinu, reglubundnar sveitarstjórnarkosningar framundan í maílok og hálfgert upplausnarástand á Alþingi með stjórnarslitum, þingrofi og júníkosningum. Þegar blöð loks fóru að koma út voru þau full af stjórnmála- og stefnufréttum - lítið fór fyrir sparðatíningi um veður enda voru suðlægar áttir ríkjandi allan þennan tíma, lengst af með blíðuveðri og hlýindum um land allt. Tún voru víðast hvar talin algræn í apríllok. Þann 31. mars er getið um vegarskemmdir í vatnavöxtum í Öræfum og víðar á Suðausturlandi.  

Í byrjum maí hófst mikil jarðskjálftahrina í uppsveitum Borgarfjarðar og stóð hún langt fram eftir júní. Hörðustu kippirnir urðu þann 12. Þetta voru fyrstu kippir sem ritstjóri hungurdiska hafði fundið á sinni tíð - var þó orðinn 23 ára gamall. Tíminn segir frá daginn eftir [13.]:

Jarðskjálftarnir í Borgarfirði voru með allra snarpasta móti í gær, sérstaklega voru tveir kippir tilfinnanlegir, sá fyrri um fjögurleytið og hinn síðari um sex-leytið. Fannst seinni kippurinn greinilega í Reykjavík og nötruðu stærri byggingar. Skriða féll á veginn í Bröttubrekku, skammt frá Miðdalsgili, en um sjöleytið var bíll lagður af stað með jarðýtu til að ryðja veginn. Kirkjan í Stafholti varð fyrir skemmdum og hlaðinn veggur hrundi á Hvassafelli í Norðurárdal. — Fregnir víða af landi herma, að seinni kippurinn hafi fundist greinilega í mikilli fjarlægð. — Mældist síðari kippurinn 6,3 stig á Richter-kvarða, en það mun vera svipaður styrkleiki og í jarðskjálftunum miklu, sem urðu á Dalvík árið 1934. [Eitthvað munu endurreikningar hafa dregið úr styrktölunni].

Og þann 14. júní segir Tíminn:

Magnús Kristjánsson i Norðtungu sagði, að þar hefði allt verið á tjá og tundri eftir jarðskjálftana i fyrradag — leirtau, bækur og smámunir ýmiss konar út um allt. Konur og börn hefðu flúið af bæjum og leitað athvarfs í sumarbústöðum i Munaðarnesi og á Hreðavatni. þar á meðal tvær dætur Magnúsar með börn sin. Skemmdir urðu þó nokkrar hér í upphéraðinu, og hér hjá mér skemmdist til dæmis nýbyggt fjós — það komu sprungur bæði í veggi og gólf. Á Hermundarstöðum hrundi íbúðarhús, að vísu gamalt og stóð autt. Sumargestunum hér þykir líklega bara tilbreyting að þessu, sagði Sigrún Bergþórsdóttir húsfreyja á Húsafelli. A.m.k. hefur enginn þeirra haft við orð að fara eða sýnt nein óttamerki. Veggir á gömlum húsum hér að Húsafelli hafa sprungið lítillega, sagði Sigrún, og mikið hefur glamrað í skápum og hrikt i húsinu, en við erum samt hin rólegustu.

Elís Jónsson, umdæmisstjóri vegagerðarinnar i Borgarnesi, sagði, að skriðan, sem fékk á veginn um Bröttubrekku, hefi verið sextíu metra beið, þar sem hún fór yfir veginn. — Þarna var gróin hlið, sagði Elís, og skriðan hefur byrjað alveg upp við fjallsbrún, steypst niður í Miðdalsgil og kastast um tuttugu metra upp i hliðina hinum megin. Vafalaust hefur vatnsagi átt talsverðan þátt í þessu skriðufalli.

Um svipað leyti og jarðskjálftarnir var töluverð úrkoma á landinu. Ritstjóri hungurdiska man vel eð mörgum þótti rigningasumar vera yfirvofandi. Svo fór þó ekki. Sumarið fékk sérlega góð eftirmæli - þó endasleppt yrði. Leysing var ör norðanlands og þann 13. fórst fé og fjögur hross á Núpá í Sölvadal. Vatnavextir voru einnig á svipuðum slóðum þ.20.

Tíminn segir þann 20. af kuldakasti sem gerði þann 16. til 19:

BH-Reykjavik — Það þarf engan að undra svalviðrið, sem verið hefur undanfarna daga, norðanáttin stendur beint af hafíssröndinni við Grænland, og það getur svo sem gerst á öllum árstímum, að það snjói niður undir sjó, eins og gerðist á Vestfjörðum i nótt, sagði Jónas Jakobsson veðurfræðingur, við okkur síðdegis í gær, er við hringdum í hann og leituðum frétta. Þetta hefur svo sem gerst áður í kringum 17. júní, að við höfum fengið kuldakast víða um land, og snjóað hefur í fjöll og niður undir byggð. Annars er breytileg átt um austanvert landið. Við spurðum Jónas að því hvort horfur væru á breytingum, og kvað hann erfitt að lofa nokkru í þeim efnum, en það væri svo sem lítandi á veðurkortið. Á hádegi í gær var svalt um vestanvert landið norðanvert, þar næddi kalda loftið frá hafísnum inn á flóa og firði. Hitinn var 2 stig á Þóroddsstöðum í Hrútafirði og 3 á Hjaltabakka, 8 stig á Akureyri og 7 í Reykjavík, en ekki nema 5 stig í Borgarfirðinum, svo að norðvestan svalinn hlýnar smám saman eftir því sem sunnar og austar dregur. Þá var 13 stiga hiti á Hæli í Hreppum, og 14 stig á Egilsstöðum — í sunnan andvara. — Ég er hræddur um það, sagði Jónas að lokum, að ef ekki bregður snarlega til hins betra, þá verði júní undir meðallagi, hvað hita snertir — en það er auðvitað of snemmt að spá nokkru um þetta ennþá. [Tökum fram að enginn hafís var við strendur Íslands árið 1974].  

En eftir 20. hlýnaði rækilega og gerði skammvinna hitabylgju með óvenjulegum hita víða norðanlands. Sunnudaginn 23. júní mældist hámarkshiti 29,4 stig á Akureyri, það næsthæsta sem nokkru sinni hefur mælst þar. Heyrst hefur að þetta sé óeðlilega hátt, umbúnaður mæliskýlis hafi ekki verið með fulllöglegum hætti við Lögreglustöðina á þessum árum. Mælingin hefur þó ekki verið afskrifuð, enda varð afskaplega hlýtt á fleiri stöðvum, fór í 25 stig eða meira á allmörgum stöðvum, m.a. 27,4 stig á Dratthalastöðum á Héraði og 27,2 á Hallormsstað. Á Suður- og Vesturlandi fór hiti yfir 20 stig á allmörgum stöðvum. Alvöru hitabylgja. 

Blöðin birtu fréttir af hitanum. Tíminn segir frá þann 25. júní:

BH—Reykjavlk — Það er alveg áreiðanlegt, að ónauðsynlegar flíkur háðu ekki mannfólkinu á þeim stöðum, þar sem heitast var um helgina. Hitinn var geysimikill um land allt og að því er Knútur Knudsen veðurfræðingur fræddi okkur um, var nánast engin úrkoma. Hins vegar læddist úrsvöl þoka inn yfir landið vestanvert á sunnudag. — Það er engin vafi á því, að sunnudagurinn er heitasti dagur sumarsins og gerir talsvert strik í reikninginn, því að júnímánuður leit út fyrir að ætla að verða talsvert undir meðallagi. Hitinn sló öll met á Akureyri fyrr og siðar, reyndist vera 29,4 stig — og er raunar með því allra heitasta, sem mælst hefur yfirleitt á landinu. Aðeins örfáum sinnum hefur hiti mælst yfir 30 stig. Ég fæ ekki betur séð en einu dæmin fyrir ofan þetta séu frá Teigarhorni 30 stig, sama dag 30.2 stig á Kirkjubæjarklaustri, og svo 30.0 stig á Hallormsstað 17. júlí 1946, en þetta eru nú kannski ekki alveg áreiðanlegar tölur.

Hverjar eru orsakirnar til þessa óskaplega hita? — Orsakirnar eru hæð yfir landinu og hægviðrið, stillan og sólskinið. Það er nefnilega eðlishlýtt loft yfir landinu, sem nær allt inn á hálendið. Það er alveg jafn heitt inni á hálendi og úti við ströndina.

Hvaðan kemur þetta heita loft? — Þetta heita loft kemur alla leið sunnan úr Evrópu, suðaustan að. Ég býst ekki við miklum breytingum, nema hvað það dregur auðvitað úr hitanum. Annars held ég veðrið verði heldur aðgerðalitið. Ég held þokunni vestanlands létti, en það er annars sólskin um allt landið, glaðasólskin strax austan við fjall.

Og Morgunblaðið sömuleiðis, 25. júní:

Gífurlegur hiti var á Austfjörðum á laugardag [22.júní] og sunnudag og reyndar þurftu Austfirðingar ekki að kvarta undan veðrinu í gær [mánudag], því þá var hitinn víðast 16—18 gráður. Í Neskaupstað mældist hitinn á laugardaginn mest 24 gráður, en á sunnudaginn komst hann í 30 gráður um miðjan dag. Á meðan hitinn var mestur reyndist hitinn á móti sólu vera 50 gráður. Sögðu Norðfirðingar í gær, að þeir væru enn dasaðir eftir þennan mikla hita og nú fyndist flestum kalt, hitinn ekki nema 16 gráður.

Þó ekki næði hitinn neitt svipuðum hæðum það sem lifði sumars var veður áfram gott. Fréttir bárust af góðviðri. Tíminn greinir frá (óvæntum?) tíðarfarstengdum bilunum á hitaveitu í Reykjavík í pistli 10.júlí:

SJ-Reykjavik Óvenjumikið hefur verið um bilanir í heimæðum hitaveitu í Reykjavík að undanförnu. Orsök þessa er þótt einkennilegt kynni að virðast góða veðrið, og hitinn, sem verið hefur síðustu vikur. Bilanirnar eru tíðastar i elstu lögnunum i borginni og þar sem
bilað hefur áður. Fólk skrúfar lítið frá hitaveitu í húsum sinum núna, og margir hafa ekki hleypt á heitu vatni vikum saman. Við þetta kólnar vatnið í heimæðunum og þær dragast saman og hættir þá til að springa. Einnig eykur það á bilanahættu að þrýstingur er með meira móti í lögnunum þegar svo litið er skrúfað frá í húsunum. Jóhannes Zoega hitaveitustjóri, sagði okkur, að bilanir af þessu tagi væri sumarfyrirbrigði, en nú væru þær með meira móti, enda hefði verið hér óvenju langur góðviðriskafli. Lítið sagði hann um að vatn flyti um götur og lóðir af þessum völdum enda væri lokað fyrir vatnið þegar og uppvist væri um slíkt. Bilanirnar eru um alla borgina, en þó eru þær algengastar, þar sem lagnir eru elstar eins og áður sagði. Viðgerðamenn hitaveitunnar eru önnum kafnir við viðgerðir, en þessar bilanir koma á versta tíma nú, þar sem margir eru í sumarleyfi.

Í frétt í Tímanum þann 25. júlí kemur glögglega fram að hlýindakröfuharka borgarbúa var varla hin sama og nú á dögum:

HP—Reykjavik. — Um kl. 15 í gær var mjög gott veður i borginni, vestan 2 vindstig, léttskýjað, skyggni ágætt og hiti var um 11 stig auk þess sem loftvog stóð í 1006 millibörum. Sprangaði fólk um fáklætt og naut blíðunnar og Jesúfólk boðaði vegfarendum
eilífa sælu á göngugötunni í Austurstræti, með gítarspili og söng.

Þjóðhátíð var haldin á Þingvöllum þann 27. og 28. júlí í einmunablíðu þar. Í Borgarfirði þótti ritstjóra heldur napurt í norðaustanbelgingi - en góðum þurrki. 

Heyskapur gekk almennt vel, en talsvert bar á kali í túnum. Kom það nokkuð á óvart eftir sérlega mildan síðari hluta vetrar og methlýtt vor. En ekki má gleyma því að fádæma kuldar voru fyrir áramót. 

Tíminn segir frá þann 30.júlí:

BH-Reykjavik. — Kalskemmdir í túnum hér í Árnessýslu eru mun alvarlegri en búist hafði verið við, sagði Garðar Vigfússon i Húsatóftum, fréttaritari Tímans, er blaðið hafði samband við hann i gær. Það má heita, að kalið nái yfir allar sveitir sýslunnar, mismunandi mikið að vísu, sum tún hafa sloppið betur en önnur, en óviða hafa tún sloppið með öllu. — Eftir að batinn kom í vor hefur hann verið samfelldur, og hefur það eflaust orðið til þess, að ástandið er ekki verra en það er. En það er viðast hvar, sem menn hafa beðið með að slá allt fram á þennan dag í voninni um meira gras. Þeir, sem slógu fyrst, hafa ekki fengið nema hálft magn á við það, sem þeir hafa fengið áður. Annars má segja, að heyskapurinn gangi vel, og heyin eru góð svona yfirleitt, og sprettutíð hefur verið það góð upp á siðkastið, að það má gera sér vonir um, að ýmsir þeir, sem slógu fyrstir, geti slegið aftur. En hitt er augljóst, að margir verða heylitlir, sem ekki áttu því meiri fyrningar.

Og enn segir Tíminn 1.ágúst:

OÓ-Reykjavik. Tíð hefur verið einmuna góð í vor og það sem af er sumars, og heyskapur víðast hvar gengið vel. Þó er það ekki einhlítt, því þurrkar hafa dregið úr sprettu og talsverðar skemmdir komið fram í túnum. Tíminn hafði I gær tal af Þorvarði Júlíussyni, bónda á Söndum í Miðfirði, og sagði hann, að þar um slóðir hefði sprettan verið heldur lítil, sérstaklega þar sem tún voru beitt í vor og seint var borið á. óvenjulega langvinnir þurrkar hafa verið og dregið mjög úr sprettu. Hefur lítil væta verið frá og með marsmánuði. Annars staðar er sprettan góð, eða þar sem túnin voru friðuð og snemma var borið á. Margir eru langt komnir með slátt, en yfir það heila hefur heyskapur verið með minna móti. Víða um land eru tún kalin, og er það óvenjulegt í slíku árferði sem nú, er snemma voraði og tíð var stöðug. En ástæðan er sú, að gífurlegar frosthörkur í nóvember og desember fóru illa með túnin. Þá má segja, að klakahella hafi legið yfir öllu, og nægir ekki þótt vorið sé gott, þegar jörð er ein glæra um miðjan vetur. Menn eru yfirleitt sammála um, að þeir muni ekki eftir öðru eins sumri síðan 1939, en þá fór saman mikil sól og hæfilegt regn, en nú er miklu þurrara. Á sunnanverðu Snæfellsnesi ber mikið á kali í túnum, og á sumum bæjum eru þau illa farin af þeim sökum. Í Kolbeinsstaðahreppi er mikil melarækt og brást hún í ár að miklu leyti. Þeir sem snemma báru á, ná sæmilegum heyjum, aðrir litlum sem engum. Á Norðausturlandi er sums staðar svipaða sögu að segja, þar hafa þurrkar tafið sprettu og kal í túnum, og heyfengur ekki eins góður og ætla mætti eftir veðurblíðu undangenginna vikna.

Enn eru blíðufréttir í Tímanum þann 8. ágúst:

HHJ—Rvik — Undanfarnar vikur hefur sólfar verið meira hérlendis en við eigum að venjast, þótt nú hafi orðið veðrabrigði sunnanlands og líklegt, að votviðri ríki næstu dægur hér syðra. Norðanlands er hins vegar sólskin og hlýviðri. — Já, það hafa orðið nokkur umskipti hér sunnanlands, sagði Jónas Jakobsson, þegar Tíminn hafði tal af honum. Líklega verður suðaustanátt næstu daga, en norðanlands er sólskin og blíða. Hitinn á Grímsstöðum á Fjöllum er t.d. 17 stig, og á Akureyri er 16 stiga hiti. Orsök blíðunnar að undanförnu er sú, sagði Jónas, að vestanvindabeltið svonefnda, sem að jafnaði er á milli fertugustu og sextugustu breiddargráðu, hefur að undanförnu legið öllu sunnar en vant er. Hvað því veldur er hins vegar vandskýrðara. Rigningasumrum hér hjá okkur veldur Azoreyjahæðin svonefnda, sem tíðast liggur frá Azoreyjum norðaustur um Bretlandseyjar. Einstöku sinnum hafa komið sólríkari júlímánuðir hér en sá sem nú er nýliðinn, en þá hefur oftast verið svalara, sagði Jónas að lokum.

Jú, einhverjar áhyggjur höfðu menn af framtíðinni og árinu 2050 (sem nú er nærri 50 árum nær okkur en þá). Menn deila víst um það nú hvort rétt hafi verið spáð. Tíminn segir frá þann 8. ágúst:

Ef við eigum að forðast aumkunarverð endalok alls, sem okkur þykir nú hvað mest um vert, í kringum árið 2050, verður að stöðva blessaðan og marglofaðan hagvöxtinn nú þegar. Það er mikilvægasta ályktunin í einni af umdeildustu dómsdagsbókinni, Takmörk þenslunnar, sem hópur vísindamanna og iðnaðarforsprakka gaf út árið 1972. Með aðstoð tölvu hefur verið kannað, að hverju fer, ef núverandi þensla heldur áfram fram til ársins 2100. Niðurstaðan er þessi: Að liðnum fyrstu áratugum tuttugustu og fyrstu aldarinnar, mun framleiðsla á matvöru og iðnaðarvarningi á hvern mann dragast stórlega saman, því að þá verða hráefni og orka æ dýrari. Þetta veldur því, að dánartala eykst til mikilla muna, og fólksfjöldinn í heiminum fer minnkandi eftir miðja tuttugustu og fyrstu öldina. Það er þó ljós fjöður á þessum væng, að um árið 2040 fer sjálfkrafa að draga úr mengun. Það kemur þó ekki til af góðu: Orsökin er samdráttur framleiðslunnar. Til þess að spádómar af þessu tagi yrðu ekki of einhliða, var tölvan notuð til annarra útreikninga, þar sem meira var tekið með af því, sem gat gert niðurstöðurnar ofurlitið bjartari. Þar var meðal annars gert ráð fyrir ótakmarkaðri orku — til dæmis kjarnorku og sólarorku, — baráttu gegn mengun frá og með árinu 1975, þannig að mengunarvaldar drægjust saman um fjórðung, og takmörkun á mannfjölgun. En eigi að siður var dómur tölvunnar óglæsilegur. Ragnarökunum var aðeins talið skotið á frest fram undir 2100.

Seint í ágúst mátti heita að sumrinu væri lokið, að vísu voru fyrstu dagar september góðir og í stíl sumarsins. Kalt var um land allt. Þann 27. var hiti í Reykjavík var aðeins 4,6 stig kl.12 og er það lægsti ágústhiti í Reykjavík á þeim tíma sólarhrings frá að minnsta kosti 1949. Tíminn birti þann 27. ágúst fréttir af leiðinlegu hreti (við styttum pistilinn lítillega):

BH-Reykjavik. Veðurofsi af norðri gekk yfir landið um helgina [24. til 25. ágúst] með úrkomu og hvassviðri, og olli vatnsflaumurinn skriðuföllum og vegaskemmdum á landinu austanverðu. Á hálendi snjóaði, og tepptust vegir víða, og enda þótt viðast hvar hefði tekist að opna þá í gær, var því verki enn ekki lokið, er blaðið hafði samband við Vegagerð ríkisins í gærdag. Skriður féllu á Austfjörðum og ollu skemmdum á vegum. — Það var síðari hluta laugardagsins og á sunnudag, sem vonskuveður af norðri geisaði um verulegan hluta landsins, sagði Páll Bergþórsson veðurfræðingur, þegar blaðið hafði samband við hann i gær. Þetta byrjaði með úrhellisrigningu, og hefur hún óviða mælst meiri, sérstaklega fyrir austan og norðaustan. ... Í kjölfar rigningarinnar tók að hvessa, fyrst af norðaustri en síðan af norðri, og mátti heita norðanhvassviðri um allt land, þetta 9-11 vindstig. Slydda á hálendi. og á Hólsfjöllum snjóaði, var komið 5-10 sm snjólag á sunnudagskvöld og hiti við frostmark. Hérna sunnanlands var úrkoman mikil, talsvert hvasst og komst upp í 9 vindstig hérna í Reykjavik. Á skipi hérna vestur af Reykjanesinu mældust 10 vindstig og á Stórhöfða reyndust þau 11, og það er mikið í norðanáttinni. Á sunnudagskvöldið fór veðrið að ganga niður. Þá voru 9 vindstig i Grímsey, en voru komin niður í 7 um hádegisbilið í gær. Þannig fórust Páli Bergþórssyni, veðurfræðingi, orð, um veðrið yfir helgina.

Starfsmenn Vegagerðarinnar hafa verið önnum kafnir eftir óveðrið austanlands og norðan um helgina, sagði Hjörleifur Ólafsson hjá Vegagerð ríkisins, er blaðið hafði samband við hann í gær. Vegaskemmdirnar af völdum veðurofsans urðu aðallega á Austurlandi, og skal nú getið þess helsta: Norðfjarðarvegur fór i sundur rétt við kaupstaðinn, en var orðinn fær á sunnudag. Vegurinn milli Eskifjarðar og Reyðarfjarðar lokaðist um tíma. Miklar skriður féllu á Hólmahálsi, á móti Eskifirði — líklega á rúmlega hundrað metra kafla — en sá vegur var orðinn fær í gær. Fáskrúðsfjarðarmegin gekk mikið á í Vattarnesskriðum, þar féllu miklar skriður og skörð komu i veginn, svo að hann lokaðist gjörsamlega, en búist var við því á sunnudagskvöldið, að hann yrði að minnsta kosti jeppafær á mánudag. Þá féllu skriður á veginn utan við Búðareyri. Einnig skemmdist vegurinn í Kambanesskriðum en þar tókst fljótlega að lagfæra hann. Á Berufjarðarströnd hjá Fossgerði hafði verið lagður nýr vegarspotti til bráðabirgða, en hann er ekki lengur til, og verður að notast við gamla veginn þar.

Um skemmdir sunnar á Austfjörðum er naumast að ræða. Á Héraði lokaðist vegurinn efst í Fagradal um tíma. Þetta er nú helst að segja um vegaskemmdir af völdum skriðufalla og úrkomu, en þess ber að geta, að um landið norðan- og norðaustanvert lokuðust fjallvegir um tíma vegna snjóa. Byrjað var að ryðja Vopnafjarðarveg á sunnudag, en þar skóf og var haldið áfram að ryðja hann i gær. Hálka er á Austurlandsveginum, en ekki um ófærð á honum að ræða. Axarfjarðarheiði er þungfær, og leiðin frá Grímsstöðum niður í Axarfjörðinn illfær. Námaskarðið var ófært í gærmorgun og var veghefill sendur í það I dag. Mývatnsvegurinn, sem venjulegast gengur undir nafninu Kísilvegur, lokaðist með öllu, og var verið að ryðja hann í gær. Fljótsheiði, Vaðlaheiði og Lágheiði eru ófærar, og ekki búist við því að þær verði ruddar fyrr en í dag — þriðjudag, eða jafnvel næstu daga. A Öxnadalsheiði er hálka, sömuleiðis er mikil hálka á Breiðadalsheiði, en hún lokaðist ekki. Ekki hafa orðið tafir á Þorskafjarðarheiði. Þá er að geta þess, sagði Hjörleifur Ólafsson okkur að lokum, að Uxahryggjaleið varð ófær á sunnudaginn vegna sandfoks. Þetta gerist stundum í norðanáttinni, þótt ekki blási eins og nú um helgina.

Þá höfðum við samband við fréttaritara blaðsins á Seyðisfirði, Ingimund Hjálmarsson, og sagðist honum svo frá: — Þetta var óskaplegt úrfelli hérna fyrir austan um helgina, og muna menn ekki annað eins. Snemma á sunnudagsmorgun féll skriða yfir Búðareyrina, eftir Búðará, þar sem hún rennur milli húsanna númer 8 og 10 við Hafnargötu. Bar skriðan mikinn aur og stórgrýti með sér og stíflaði lækinn, svo að vegurinn varð ófær. Myndaðist mikið vatn við þetta og flæddi upp að nýju símstöðinni, en þar var nýbúið að rækta allt upp, fluttar þökur ofan af Fljótsdalshéraði, — það losnaði vist allt. Það var talsvert verk að ryðja til svo að Búðaráin félli aftur leið sína til sjávar. Þá féll stór skriða úti við svokallaða Strönd hjá söltunarstöðinni Þór. Lokaði hún veginum, og er það verulega bagalegt, því að nú kemst enginn út á nýja flugvöllinn, fyrr en vegurinn hefur verið ruddur.

Þann 28. ágúst birtist ágætt viðtal í Tímanum við Jónas Jakobsson veðurfræðing. Við styttum það nokkuð hér:

Nú er senn á enda eitt fegursta sumar, sem menn muna á Suðurlandi. Samt höfum við heyrt, að á mælikvarða Veðurstofunnar sé þetta ekki neitt sérstakt. Hvað veldur því? Koma slík sumur ekki fram á veðurskýrslum sem einstök afbrigði? — Þetta er hlutur, sem þarf að athuga vel, þegar metið er hvað sé gott veður. Það er talið gott sumar fyrir atvinnuvegina og almenning, þegar lítil úrkoma er, en þó verður hún að vera nægjanleg til þess að gróðurinn dafni eðlilega, og það þarf að vera nokkurt sólskin. Yfirleitt teljum við, að þegar þessir tveir þættir eru komnir i meðallag, þá þurfi að vera kyrrt i lofti, en ekki vindasamt. Það er einmitt þetta, sem hefur verið i sumar, að litið hefur verið um hvassviðri, vindur hefur oftast verið hægur, og er það því að þakka, að lægðir hafa sneitt hjá landinu, hafa yfirleitt farið sunnar en venjulegt er, og þær hafa oftast verið grunnar. Það eru þessar stillur, sem hafa einkum gert sumarið gott í augum almennings. Veðurspárnar eru hugsaðar með þarfir atvinnuveganna fyrst og fremst fyrir augum, þótt auðvitað komi þær öllum að daginn gamlan mann, sem sagði mér, að sumrin 1929 og 1939 hefðu verið svona góð, svo það verður að leita langt aftur til þess að finna samjöfnuð. Hann var að vísu Akureyringur, svo hann hefur ef til vill ekki verið sunnanlands þessi ár, og hann sagði mér einnig, að sumarið 1914 hefði mælst 30 stiga hiti á Akureyri þrjá daga i röð og hefði hitinn þá jafnvel komist upp i 36 stig. Hvort þær mælingar hafa verið samkvæmt þeim reglum, sem veðurfræðin setur, skal ég ekki segja.

Nú hafa veðurfræðingar á Íslandi fengið afnot af gervihnöttum. Veðurskipum hefur fækkað á sama tíma, og meira verður að treysta á tilfallandi skipaumferð á N-Atlantshafi til að safna upplýsingum. Hvernig hefur þessi breyting komið fram i veðurspánum? — Ég tel, að þegar umhleypingasamt er, þá hljóti það að hafa áhrif á veðurspárnar, að á stóru svæði á hafsvæðinu fyrir vestan okkur eru ekki lengur neinar fastar veðurathugunarstöðvar. Fyrir um það bil fimm árum voru þarna fjögur veðurskip. Á hafinu milli Íslands og Grænlands var veðurskipið Alfa, milli Suður-Grænlands og Labrador var veðurskipið Bravó, þriðja skipið var svo alllangt suður i Atlantshafi, og það fjórða var alllangt austur af Nýfundnalandi. Skipin á austanverðu Atlantshafi, Indía og Júlía, eru hins vegar ennþá á sínum stað. Þau gera að vísu mikið gagn, en koma hins vegar ekki i stað þeirra skipa, sem horfin eru. Myndirnar frá veðurhnöttunum fylla mikið inn i þær myndir, sem við gerum okkur um veðrið umhverfis landið. Ef við fáum myndir af hafsvæðunum fyrir vestan okkur á æskilegum tíma þá geta þær hjálpað okkur mikið við spárnar. Myndirnar eru teknar tvisvar á sólarhring. Við sjáum hins vegar ekki á myndunum, hve hvasst er, né heldur hve djúpar lægðirnar eru. Aðstaða veðurstofunnar og veðurfræðinga er því verri nú en hún var, meðan veðurskipunum var haldið úti. Þó verður að geta þess, að skipaumferð kemur oft til mikillar hjálpar við veðurathuganir á þessum slóðum. Það eru einkum íslensku millilandaskipin, sem þarna eru á ferð, en auðvitað líða oft dagar, þegar engin skip eru á þessum slóðum. Ennfremur fáum við skeyti frá dönskum  Grænlandsförum og togurum, en hinir síðasttöldu eru þó oftast of nærri landi. 

Nú tóku menn eftir því, vegna þjóðhátíðarinnar, að það tókst að spá mjög nákvæmlega um veðrið á þjóðhátíðardaginn, og það nokkrum dögum áður. Hvað olli því? — Voru gerðar einhverjar sérstakar ráðstafanir? — Það má segja, að þetta hafi verið sérstök heppni. Það var staðviðrakafli um þetta leyti. Það sem gert var, og reyndist líka rétt, var að spá svipuðu veðri „næstu daga", því ekkert var sjáanlegt, sem benti til skyndilegra breytinga á hæðum og lægðum umhverfis landið. Farið var einvörðungu eftir þeim upplýsingum, sem fyrir lágu á veðurstofunni, og ekkert sérstakt var gert eða unnt að gera til þess að sjá lengra fram i tímann en endranær. Vísindastörf í veðurfræði — Það hefur komið fram, að  Alþjóðaveðurfræðistofnunin er aðili að umfangsmiklum vísindarannsóknum á Norðuríshafinu, hafinu norður af Ísandi og austur með Grænlandi. Álitið er, að þekking á íshafinu aukist mikið á næstu árum. Mun þetta hafa áhrif á veðurspár á Íslandi? — Ég get auðvitað ekki sagt fyrir um það, sem kemur út úr þessum rannsóknum, en allt vísindastarf í veðurfræði skilar sér með einhverjum hætti í hagnýtri veðurfræði. hitastig i hafinu umhverfis okkur hefur mikil áhrif, og ég held, að reglubundnir leiðangrar hafrannsóknaskipa frá Ísandi hafa þegar gert mikið gagn til þess að sýna samhengið milli sjávarhita og veðurfars á Íslandi. Viðbótarrannsóknir eru vel þegnar. Veðurstofan vinnur alltaf að vísindastarfi, skráningu og úrvinnslu gagna um veður á Íslandi. Sem dæmi um þetta má nefna, að veðurstofan hefur undanfarin ár skráð allar haftsfregnir og gefið út sérstakt rit um þá starfsemi. Einstakir menn hafa ritað merkilegar ritgerðir í tímarit okkar [Veðrið], og svona mætti lengi telja.

Nú hefur verið gott sumar, og þá líklega „gott“ að vera veðurfræðingur. Hvernig er það í rysjóttri tíð? Er ykkur þá kennt um vonda veðrið? — Við erum nú lítið skammaðir. Þó kemur það fyrir, að óánægðir „neytendur“ láta okkur fá orð í eyra. Síðan sjónvarpið kom, hefur skilningur manna á veðurfræði aukist til muna um allt land. Sjónvarpið gefur einnig meiri möguleika en t.d. veðurfregnir gera í útvarpi. Í veðurfregnum og veðurspám í útvarpi verður þetta að koma hreint og klárt, en í sjónvarpinu gegnir öðru máli. Oft er það svo, að fleiri en einn möguleiki er hugsanlegur um þróun veðurfarsins, og þá getur veðurfræðingurinn ekki einasta spáð veðri morgundagsins, hann getur einnig skýrt frá því, hvað annað kunni að vera hugsanlegt, en það er einmitt þetta, sem kemur fram i spánni. Möguleikarnir eru því meiri. Útvarpsspáin gerir hinsvegar ráð fyrir aðeins einum möguleika. Áhugi almennings á veðurfræði hefur líka aukist, og menn hafa meiri skilning á þeim vinnubrögðum, sem notuð eru til þess að segja fyrir um veður, og þetta gefur aukna möguleika til þess að koma upplýsingum og spám til almennings, misgóðum að vísu. — Nú standa sumarleyfin yfir. Er ekki ráðlegt að taka sumarleyfið um leið og veðurfræðingarnir, upp á að fá gott veður? — Nei, blessaður vertu. Þeir eru illviðrakrákur hinar mestu. Það er sagt, að ef þrír veðurfræðingar komi saman, þá geri snarvitlaust veður, sagði Jónas Jakobsson að lokum. J

Rétt fyrir miðjan september rigndi mikið austanlands og urðu vegir illa úti. Tíminn segir frá þann 14.:

HJ-Reykjavik Mikil úrhellisrigning hefur gengið yfir Austfirðina, og hefur það haft í för með sér heldur leiðinlegar afleiðingar fyrir vegakerfi þeirra Austfirðinga. Að sögn Arnkels Einarssonar, vegaeftirlitsmanns hjá Vegagerð ríkisins, lokaðist Suðurfjarðarvegur í Kambanesskriðum, milli Stöðvarfjarðar og Breiðdalsvikur, í gærmorgun. óvist er, hvenær sá vegur verður á ný fær bílum. Auk þess lokaðist Austurlandsvegur í Berufirði, milli  Teigarhorns og Framness. Þar gróf frá ræsi, en vonir standa til, að því megi koma í lag mjög fljótlega.

Þann 26. september og næstu daga á eftir gerði allmikið norðanillviðri. Fjölmargar plötur fuku af raðhúsi í Mosfellssveit (nú Mosfellsbæ). Tíminn segir 1. október af hrakningum eftirleitarmanna á Suður- og Austurlandi og einnig línutjóni eystra:

BH — Eftirleitarmenn úr Biskupstungum hrepptu hið versta vedur á afréttum um helgina og varð að hjálpa tveim þeirra til byggða, var annar fótbrotinn, en hinn hafði fengið sand í augun. Slíkt aftakaveður var á Biskupstungnaafréttum, að blæddi úr augum hunda og hesta, og að því er heimildarmenn okkar eystra sögðu okkur í gær, er engu líkara en tveggja ára sandgræðslustarf inni á afrétt sé með öllu ónýtt. Um fjárheimtur var lítið vitað í gær. Þegar við ræddum við fréttaritara okkar, Garðar i Aratungu, voru þeir komnir til byggða, Guðjón á Tjörn og Þórarinn í Fellskoti. Var Guðjón fótbrotinn. Hafði hestinn hrakið undir honum, svo að hann lenti á steini, með áðurnefndum afleiðingum. Þórarinn hafði hins vegar fengið sand í augun svo illyrmislega, að hann treysti sér alls ekki til að halda áfram. Það er nú kannski ekki hægt að segja, að það hafi verið hrakningar á okkur, en vont var veðrið, sagði Þórarinn, þegar blaðið ræddi við hann. Mikinn moldbyl fengum við þarna einn daginn. Menn og hestar voru illa leiknir. Það var líka ansi vont, sem ég fékk í augun, svo að ég varð að hætta leitinni. — Við vorum að tala um sandgræðsluna, við Garðar. Hvað sýndist þér um hana? — Það er náttúrlega ekki gott að segja, hvernig þetta er farið, en það fýkur auðvitað gífurlega upp, þegar svona þurrt er. — Heldurðu, að það hafi hrakist eitthvað fé? — Við vorum nú litið búnir að sjá af fé, og náttúrlega ekkert þennan dag, af því að það var engin leið að sjá það, en ég veit um fjórar kindur, sem búið er að finna þarna. Svo veit maður ekkert um hitt — Nú ert þú vanur gangnamaður, Þórarinn. Hefur þú lent í einhverju svipuðu áður? — Nei, ekki svona. ekkert svipað þessu.

Gsal-Gé Bé — Rvik — Í síðustu viku brotnuðu raflínustaurar á Austfjörðum, bæði á Gagnheiðarlinu og Fjarðarheiðarlínu. Enn fremur brann yfir spennir á Eiðum. Af þessum sökum varð rafmagnslaust á Úthéraði, og hefur verið erfiðleikum háð að halda slátrun gangandi á Fossvöllum. Að sögn Jóns Kristjánssonar, fréttaritara Tímans á Egilsstöðum, er nú búið að tengja díselvél í Lagarfljótsvirkjun inn á raflínukerfið, og því hefur ástandið batnað talsvert síðan — Hér hafa verið stórrigningar og mjög úrkomusamt alla síðastliðna viku, og slydda og snjókoma til fjalla. Staurarnir á Gagnheiði og Fjarðarheiði brotnuðu vegna ísingar. Ísing leggst á línurnar, sem liggja þvert á vindáttina, og staurarnir brotna undan þunganum. Sagði Jón, að snjór umlykti þorpið, svo að segja á allar hliðar, og að aðeins á láglendinu við Lagarfljót væri auð jörð. Að sögn Jóns var veðrið mjög gott í gær, og eins á sunnudaginn. — Það má segja, að þetta sé blíðuveður, og hér hefur breytt um átt. Á sunnudaginn var hér milt haustveður, eins og maður kannast best við það, og sömu sögu er raunar að segja um veðrið hérna í dag (mánudag). Sagði Jón, að undanfarnar vikur hefði verið mjög úrkomusamt og „illskuveður yfirleitt“ eins og hann orðaði það sjálfur. — Allt haustið hefur verið óvenjuslæmt, og það eru dæmi þess, að menn eigi hey úti ennþá, sem þeir höfðu ekki náð inn fyrir miðjan ágústmánuð. Gangnamennirnir sjö, sem tepptir voru í nokkra sólarhringa í Loðmundarfirði, með á annað þúsund fjár, fóru í gær yfir Fjarðarheiði, sem þá var sæmilega fær. Auðvelt var að reka féð yfir, en eitthvað var flutt á bílum. Fjárskaðar hafa orðið á Efri-Jökuldal og í Hrafnkelsdal, en ekki er enn fullkannað, hve miklir þeir eru. Eitthvað af kindum fór í Víðidalsá. Veðrið hefur verið með afbrigðum leiðinlegt, fyrir austan, geysilega mikil snjókoma og hvasst til fjalla. Gangnamenn voru nýfarnir til smölunar, þegar veðrið skall á fyrir helgi, og urðu þeir að snúa frá við svo búið og skilja það fé eftir, sem búið var að smala. Búist er við að fjárskaðarnir séu miklir, en eins og áður segir er ekki mögulegt enn að segja um, hve miklir þeir hafa verið.

Tíminn segir fréttir af veðurblíðu nyrðra þann 16. október:

BH—Reykjavik — Það er „Indian summer“ á Akureyri þessa dagana. Þar var 16 stiga hiti í fyrradag [13.október], og 14 stiga hiti í gær og logn og blíða. Menn nyrðra notfæra sér að sjálfsögðu blíðuna, og mátti sjá ærið marga dytta að húseignum sinum á sunnudaginn og mála í blíðunni. Þetta er eins og besta vorblíða, sögðu menn, allt í fullum gangi og menn fullir bjartsýni.

Mikil illviðrasyrpa gekk yfir landið 23. til 27. október. Þar fóru tvær mjög djúpar og krappar lægðir. Tjón varð einkum samfara fyrri lægðinni.

w-1974-kort-e

Lægðin kom á miklum hraða langt suðvestan úr hafi, dýpkaði ört og fór til norðausturs skammt úti af Vestfjörðum. Í sunnanáttinni rigndi feikn um landið sunnanvert, en síðan olli vestanstormurinn foktjóni, mestu á Austurlandi. 

Tíminn segir frá þann 24.:

FB-Reykjavík. Mjög mikil úrkoma og vegaskemmdir urðu á Miðsuðurlandi og í Borgarfirðinum í gær. Mest mældist úrkoman í Vík í Mýrdal, 96,4 mm, og vegir skemmdust einna mest í Mýrdalnum. Þar var í gær aðeins fært stórum framdrifsbilum. Einnig höfðu orðið miklar vegaskemmdir. Í Borgarfirði, og ekki voru öll kurl komin þar til grafar, er blaðið hafði samband við Vegagerð ríkisins í gær. — Geysimikið vatnsveður var á Suðurlandi aðfaranótt miðvikudagsins. Þess var reyndar ef til vill að vænta, vegna þess að þetta loft, sem hér sótti að okkur úr suðri, er komið af svæði, sem liggur um það bil 3000 km sunnar heldur en Ísland, hafsvæðið suðaustan við Bermúdaeyjar, sagði Jónas Jakobsson veðurfræðingur i viðtali við Tímann. Af veðurskeytastöðvum, sem senda okkur daglega skeyti, var mest úrkoman á Mýrum í Álftaveri, 65 mm. Þetta þótti hins vegar svo mikill viðburður, að veðurathugunarstöðin í Vík í Mýrdal, sem ekki sendir okkur daglega skeyti, heldur mánaðarskýrslur, sendi skeyti um úrkomuna, enda mældist hún 96,4 mm á 15 tímum, frá kl. 18 til 9, og þó byrjaði ekki að rigna fyrr en klukkan 18:30. Þetta er geysimikil úrkoma. — Þriðja stöðin þarna frá að magni til, sem við fáum skeyti frá, var Hella á Rangárvöllum með 51 mm. Víða var úrkoman milli 40-50 mm. Mest virðist hafa rignt á Miðsuðurlandi, en í Borgarfirði rigndi líka mikið. Til dæmis mældist úrkoman í Síðumúla 29 millimetrar, og 31 á Gufuskálum á Snæfellsnesi. Nú er kominn útsynningur, suðvestlæg átt með skúrum (um miðjan dag í gær), og ég býst við að það verði slydduél með morgninum (fimmtudagsmorgni).

Mjög miklar rigningar hafa orðið hér á sunnan- og vestanverðu landinu, sagði Arnkell Einarsson hjá Vegagerðinni, þegar við spurðumst fyrir um ástand veganna. — Af því hafa orðið allmiklar vegaskemmdir. Meðal annars rofnaði í morgun Suðurlandsvegur skammt frá Skeiðflöt í Mýrdal, og er þar nú alveg ófært í svipinn, nema hvað stórir framdrifsbílar hafa komist þar fram hjá. Þar verður nú hafin viðgerð strax og vatnið sjatnar, og það ætti ekki að taka mjög langan tíma. Töluvert miklir vatnavextir hafa verið í Árnessýslu, og þar hefur nokkuð viða runnið yfir vegi, en hvergi orðið ófært. Verst hafa vegir orðið úti í Borgarfirðinum. Borgarfjarðarbraut rofnaði til dæmis alveg við Geitaberg í Svínadal. Þar flæddi Þverá yfir veginn, og rauf hún hann við brúna hjá Geitabergi. Vesturlandsvegur rofnaði við Bjarnardalsárbrýrnar, fyrir neðan Dalsmynni í Norðurárdal. Þar er nú um 10 metra breitt skarð í veginum, og mjög mikill vöxtur er þar í ánni. Ekki verður hægt að eiga við viðgerðir á veginum þar fyrr en vatnið sjatnar. Viða rennur yfir vegi í Borgarfirði, og er hætt við að þar eigi eftir að verða frekari vegaskemmdir, þar sem vötn eiga ef til vill eftir að vaxa meira, því að úrkomu er spáð áfram. Vegasambandið til Norðurlands mun þó ekki rofna alveg, af því að hliðarvegur er um sunnanverðan Norðurárdal, og verður reynt að halda honum færum á meðan þetta ástand varir hjá Dalsmynni. Þessi hliðarvegur var reyndar ekki nema jeppafær í gærmorgun, þar sem á hann höfðu runnið aðfaranótt miðvikudagsins aurskriður og stórgrýti. Um hádegið í gær var verið að ryðja því af veginum, og vonir standa til, að þar verði fært, þangað til viðgerð hefur farið fram við Dalsmynni. Að öðru leyti fer áframhaldið mjög eftir því, hvernig veðrið verður, sagði Arnljótur Einarsson, —en þó gæti farið svo, að enn frekari vegaskemmdir ættu eftir að verða, og að þær séu heldur ekki allar komnar í ljós núna, sem orðið hafa. Til dæmis hefur mér verið sagt, að Mýrarnar í Borgarfirðinum séu eins og hafsjór yfir að líta. Allt á þetta vatn auðvitað eftir að skila sér til sjávar. Frá Sandgerði bárust þær fréttir, að í höfninni hefði sokkið 10 lesta bátur.

ÞS-Hveragerði. Úrfelli hefur verið alveg gífurlegt aðfaranótt miðvikudags og á miðvikudag, og hefur slíkur vöxtur hlaupið í Varmá, að menn muna vart álíka. Brúin, sem er á veginum upp i Gufudal, hér fyrir innan Hveragerði, gaf sig, og biluðu ein eða tvær undirstöður undir henni, og er hún gjörsamlega ófær bilum. Sennilega er þó óhætt fyrir fólk að ganga yfir hana. Þarna hjá var hliðarvegur yfir ána, og tók hann burtu, og er því gjörófært bilum upp i Gufudal. Skriðufall varð svo i gilbarminum austan megin, beint niður undan Garðyrkjuskóla ríkisins. Hefur þar fallið niður töluvert jarðvegsmagn. Varmá er eins og foraðsvatnsfall núna, þótt hún sé venjulega aðeins sáralítil spræna.

Og meiri illviðrafréttir daginn eftir, þann 25.október. Einkum er sagt af foki eystra:

Í vatnsveðrinu og úrfellinu sem gengið hefur yfir fóru allar engjar í Ölfusi á kaf og var undirlendi sem hafsjór yfir að lita allt frá Varmárbrú neðan við Hveragerði til sjávar. Allt frá birtingu um morguninn og fram eftir degi voru bændur önnum kafnir við að bjarga búfénaði, sem flúið hafði undan vatninu og leitað upp á hóla, sem myndast hafa við skurðgröft. Féð var margt illa haldið af bleytu og kulda, og því ekki til mikilla átaka við vatnsflauminn. Björgunarstarfið var að sjálfsögðu slarksamt og urðu þeir, sem ekki voru ríðandi að vaða flauminn upp undir hendur. Í býtið í gærmorgun var farið á báti um flóðasvæðið til þess að bjarga þeim ám, sem ekki hafði tekist að reka upp úr í fyrradag vegna hvassviðris. Fáeinar kindur fundust dauðar en óttast er að fleira fé hafi drukknað eða króknað, því að ránfuglager er sums staðar á sveimi yfir flóðasvæðinu. Á nokkrum stöðum flæddi yfir vegi, en ekki varð verulegt tjón af, svo að kunnugt sé. Í gærmorgun hafði veðrið gengið niður og var hið fegursta haustveður eystra, þótt Ölfus væri óneitanlega allkynlegt yfir að líta — undirlendið allt sem spegilsléttur fjörður að sjá þótt vatnselgurinn sjatnaði mjög er á daginn leið.

Í óveðrinu og rigningunni, sem gekk yfir landið aðfaranótt miðvikudags og miðvikudag urðu nokkrar skemmdir á húsum og mannvirkjum. Fréttaritarar Tímans á Egilsstöðum og Reyðarfirði símuðu, að á Reyðarfirði hefðu fokið járnplötur af nokkrum húsum, en ekki valdið skemmdum. Á Völlum, á Jaðri, fauk þak af fjósi og á Krossi í Fellum fauk einnig þak af hlöðu. Á Egilsstöðum skemmdist uppsláttur við nýbyggingar og járnplötur losnuðu á þökum. Samkvæmt upplýsingum Ólafs Rúnars Gunnarssonar. Í Grindavík, var þar mjög mikið aftakaveður. Mestur var veðurofsinn milli 7 og 9 um kvöldið, og var þá vart hættandi á að fara út fyrir húsdyr. Á þessu tímabili urðu einnig nokkrar rafmagnstruflanir. Ljósaskilti,sem nýlega var sett upp á félagsheimilinu Festi datt niður og gjöreyðilagðist í veðurofsanum. Nokkrar lausar járnplötur fuku og einnig fauk járn af þaki fiskverkunarhússins Sævikur. Lítil trilla, er lá við bryggju sökk og þegar síðast fréttist hafði enn ekki tekist að ná henni upp. Jón Hjálmarsson skólastjóri að Skógum sagði, er Tíminn hafði samband við hann: Feiknarlegt úrkomuveður gekk hérna með Fjöllunum og í Mýrdal í fyrrinótt, aðfaranótt miðvikudags, svo að sjaldan hefur verið annað eins. Skriðuföll urðu mörg úr fjöllum, og skemmdir á landi talsverðar. Skriða féll til dæmis uppi í landi skógræktarinnar fyrir ofan Héraðsskólann í Skógum og eyðilagði allmikið af trjám, nokkurra ára gömlum og vænum. Kvað Jón skriðuföllin aðallega hafa orðið i austanverðum Eyjafjöllum. — Þar ber helst að nefna skriðuföll í landi Skarðshliðar, Hrútafells og svo Skóga. Uppundir tíu slíkar smáskriður féllu úr fjöllum.

Þá er að geta þess, að í gær snerist veður nokkuð, sagði Jón, fyrst til suðurs og síðan til vestlægrar áttar og í gærkvöldi var ofsahvasst um tíma, og þá tók þak af fjárhúsum i Drangshliðardal. En þetta mun vera eina tjónið, sem nokkuð kveður að af völdum roksins. Þakið tók af í heilu lagi og fauk langt niður eftir brekku, og lá þar eftir. Austan úr Vik i Mýrdal var það að frétta, að þar féllu skriður á nokkrum stöðum úr fjallshlíðum þar nærri og skörð komu i vegi, eins og skýrt hefur verið frá i Tímanum. Skriður féllu yfir gömul tún og rifu niður girðingar. Íbúðarhúsið I Skammadal var um tíma umflotið vatni. Þá féll skriða yfir túnið á Giljum.

Eftir þetta má segja að vetur hafi verið genginn í garð. Tíminn segir frá þann 29. október:

Gsal—Rvlk — Verulegar truflanir voru á rafmagni á svæði Laxárvirkjunar í fyrrinótt, en sökum frosthörku og mikillar veðurhæðar skóf mjög í ánni, og leiddi það til þess, að virkjunin missti um sjö þúsund kílówött — Úr tæplega tuttugu og einu í fjórtán. Allar kvíslar virkjunarinnar við Mývatn voru opnar, og að sögn Knúts Otterstedt, fyrrverandi. rafveitustjóra, bar fyrst á þessum rafmagnstruflunum snemma kvölds, en þær hefðu svo aukist, er á leið.

Rætt er um veðurfarsbreytingar í pistli í Tímanum þann 7.nóvember:

NTB -— London. Ný ísöld getur skollið á þá og þegar — jafnvel núlifandi kynslóðir geta orðið vitni að nýjum jökultíma. Þessar hrollvekjandi upplýsingar komu fram í heimildarmynd, sem sýnd var i breska sjónvarpinu á miðvikudag. Veðurfræðingar um allan heim hafa komist að þeirri niðurstöðu, að „veður skipist skjótar i lofti" en talið var. Hættan á nýrri ísöld ógnar mannkyninu á sama hátt og hætta á kjarnorkustríði, að sögn fréttamanns þess, er sá um gerð heimildarmyndarinnar af hálfu BBC. Hann hefur ennfremur sagt: — Ísaldir hafa skipst örar á við hlýviðrisskeið samkvæmt nýjustu rannsóknum en vísindamenn töldu áður. Rannsóknirnar benda til, að ísöld hefði átt að vera komin fyrir löngu og borgir á borð við Leningrad og Glasgow liggja undir snjó. — Margt bendir og til, að ísöld geti skollið á þá og þegar, án þess að gera boð á undan sér. Veðurfræðingar hafa greint á milli ísalda: Þær, sem nú hefur verið skýrt frá, nefnast meiri háttar ísaldir, en styttri kuldaskeið kallast minni háttar ísaldir. Í mynd BBC er skýrt frá, að kólnað hafi verulega á nyrðri helmingi jarðar síðan 1950. Hinir örlagaríku þurrkar á stórum svæðum í Afríku og Indlandsskaga geta — að sögn fréttamanns BBC — gefið til kynna, að minni háttar ísöld sé þegar hafin. Sé sú reyndin, aukast líkur á, að innan skamms skelli á ný meiri háttar ísöld.

Eins og fram er komið var tíð hagstæð í nóvember og þóttu stillur óvenjumiklar. Litlar fréttir er að hafa af tjóni. Þó skemmdust vegir í vatnavöxtum þann 4. í Öræfum og í Fáskrúðsfirði og víðar á sunnanverðum Austfjörðum. 

Tíðarfar var mjög óhagstætt í desember. Tíminn segir frá þann 10.:

gébé—Reykjavik — Óveður geisaði á Norðurlandi aðfaranótt sunnudagsins og á sunnudag [8. desember], snjókoma var mjög mikil, og eru vegir víða ófærir. Vegir i Húnavatnssýslum eru að vísu, færir, en um Vatnsskarð til Skagafjarðar er aðeins fært stórum bifreiðum. Áætlað var að moka þar á þriðjudag. Mjög þungfært er milli Varmahlíðar og Sauðárkróks, en sennilega mun sú leið hafa verið rudd á mánudag. Fært er fyrir stórar bifreiðar út I Fljót, en algjörlega ófært er þaðan til Siglufjarðar, og beðið er eftir að veðrið gangi niður, svo hægt verði að hefja mokstur. öxnadalsheiði. er ófær, og í Eyjafirði hefur snjóað allmikið, T.d. er þungfært á milli Dalvíkur og Akureyrar, og Ólafsfjarðarmúli er algjörlega ófær sökum snjóflóða. Vaðlaheiði er einnig ófær, en á mánudag var verið að ryðja veginn frá Akureyri, til Húsavíkur, um Dalsmynni. Á mánudag, var veðrið að ganga niður i Eyjafirði.

Þann 12. segir Tíminn af rafmagnsraunum eystra: 

SJ—Reykjavik — Í fyrrinótt [aðfaranótt 11.] var 15 stiga frost á Egilsstöðum og Grímsá nær þornaði upp, svo grípa varð til rafmagnsskömmtunar á samveitusvæðinu í gær. Grímsárvirkjun var óvirk í gær, og auk þess bilaði gastúrbína á Eskifirði í fyrrakvöld, og komst ekki í lag fyrr en í gærmorgun. Í gær var verið að safna vatni í lónið við Grímsárvirkjun, og stóðu vonir til að hægt yrði að hætta rafmagnsskömmtun um 4-5 leytið síðdegis, hafa virkjunina í gangi til miðnættis, og byrja síðan aftur að safna vatni í lónið.

Þann 15. desember birtist í Tímanum allítarlegt viðtal við Hlyn Sigtryggsson veðurstofustjóra. Er þar m.a. fjallað um sögu veðurspáa og framtíðarhorfur í þeim efnum. Í lokin víkur Hlynur sér fimlega undan spurningu um yfirvofandi ísöld:

„Nú eru sem sagt allir farnir að viðurkenna, að loftslagsbreytingar eiga sér stað, alltaf annað kastið, enda varla annað hægt. Hitt er aftur annað mál, hvað veldur þeim. Tilgátur um það eru mýmargar, og getur vel verið að fleiri en ein sé rétt. Ekkert er líklegra en að margar ástæður verki þar saman á hinn flóknasta hátt. Segja má, að frumdrættir að rannsóknum á þessu hafi verið lagðir með mælingum á hita i sjó og sjávarlögum og athugunum á breytingum á þeim. Enn fremur með því að athuga beina geislun frá sólinni og þá um leið að rannsaka, hvort sú geislun tekur einhverjum breytingum. En það er skemmst frá að segja, að ég minnist þess ekki að hafa heyrt neina sannfærandi skýringu á því, hvers vegna loftslagið hefur breyst i aldanna rás, eða hvers vegna það ætti eða hlyti að breytast í framtíðinni. Og á meðan góðar og glöggar skýringar á því eru ekki fyrir hendi, held ég að réttast sé að spá sem minnstu“. VS 

Um illviðrið sem olli snjóflóðunum miklu í Neskaupstað, á Siglufirði og víðar dagana 19. og 20. desember er fjallað í sérstökum pistli hungurdiska og því ekki getið hér.

Illviðrin héldu áfram af fullu afli um jól og frem yfir áramót. Tíminn segir frá þann 28. desember:

HJ—Reykjavik — Að þessu sinni voru mikil snjóajól um meginhluta landsins og sums staðar aftakaveður á köflum. Tæknin brást gersamlega i heilum landshlutum, og þó hvergi jafnhrapallega og á Austurlandi, þar sem allt gekk úr skorðum samtímis. Þar lokuðust að sjálfsögðu allar leiðir á landi, flugvellir sumir á kafi i snjó, rafmagnsskortur mikill og rafmagnsdreifing í ólestri, símasamband rofnaði, og hvorki sást sjónvarp né heyrðist útvarp. Dægrum saman var þannig ekkert samband milli Austurlands og annarra landshluta, og ekki heldur milli einstakra byggðarlaga þar eystra. Sú von, sem rafmagnsveitustjóri ríkisins lét uppi fyrir jólin, þess efnis að rafmagn myndi verða nægjanlegt, brást á hálfu landinu. Prentsvertan á því sem hann lét Tímann hafa eftir sér, var varla þornuð, þegar ströng skömmtun hafði verið tekin upp á Austurlandi og Norðurlandi eystra. Tíminn hafði i gærdag samband við nokkra fréttaritara sina á Austfjörðum og spurði fregna.

Jóni Kristjánssyni á Egilsstöðum sagðist svo frá: — Þetta hefur verið óvenjutíðindasöm jólahátíð. Á Þorláksmessu var mjög sæmilegt veður fram eftir degi. Síðari hluta dagsins fór veður að versna, en þó náðu flestir þeirra, sem hér voru utan úr sveitum heim. Á aðfangadag gekk svo i blindbyl, með miklu hvassviðri og geysilegri snjókomu, og voru mjög margir veðurtepptir hér yfir jólin. Bæði voru veðurtepptir menn utan úr sveitum, sem hér stunda vinnu, og eins og fram hefur komið í fréttum, tepptust einnig menn héðan i Neskaupstað, og voru því óvenju margir hér í nágrenninu, sem ekki gátu haldið jólin i heimahúsum. — Sennilega hafa þó starfsmenn rafveitunnar og viðgerðamenn átt ónáðugasta daga yfir jólin, því að þeir voru á eilífum þönum til að gera við línubilanir og annað slíkt. í morgun voru viðgerðamenn að búa sig undir að fara inn í Tungudal, þar sem línan er slitin, en þar er nú blindbylur, svo að vart mun fært þangað í dag. — Hér var ekkert útvarp og sjónvarp yfir jólin. Útvarpið komst þó í lag á jóladagsmorgun, en þá hafði verið útvarps- og sjónvarpslaust í heilan sólarhring. Sendirinn á Gagnheiði var ekki kominn i fullkomið lag í gærkvöldi, því að sums staðar heyrðist ekkert tal i sjónvarpinu. — Byrjað var að ryðja vegi út frá Egilsstöðum i dag, og mjólkurbíll er á leiðinni utan úr Hjaltastaðaþinghá með ýtu á undan sér. Mjólk barst til mjólkurbúsins frá Egilsstaðabúinu í gær, og hér er næg mjólk til neyslu eins og er. — Við þurftum ekki að búa við rafmagnsleysi yfir hátíðirnar, nema rafmagnslaust varð í skamman tíma að morgni aðfangadags, þegar línan slitnaði, en að öðru leyti voru ekki teljandi erfiðleikar í rafmagnsmálum. — Hér hefur ekkert verið messað um jólin og menn litið farið milli húsa vegna ófærðar Presturinn okkar býr inni í sveit, í Vallarnesi, og komst hann að sjálfsögðu ekki hingað til að messa. Burtséð frá þeim atriðum, sem hér hafa verið nefnd, hefur jólahald verið með venjulegum hætti.

Sigmar Hjelm fréttaritari á Eskifirði sagði: — Þessi jól hafa verið með þeim dauflegri, sem ég man, og að sjálfsögðu settu atburðirnir í Neskaupstað sitt mark á jólahátíðina. — Sími, sjónvarp og útvarp fóru alveg úr sambandi á tímabili. Á aðfangadag heyrðist ekkert ú útvarpi, en það komst í lag á jóladag. Sjónvarpið er á hinn bóginn ekki komið i lag ennþá, ýmist sést mynd eða heyrist tónn, en það fer ekki saman. — Hér er gífurlega mikill snjór og allar götur ófærar. Segja má, að ófært sé milli húsa, því að vegir hafa ekki verið ruddir yfir hátíðina. Fólk hefur því að mestu verið tilneytt að halda sig innan veggja heimilanna. Á aðfangadagskvöld átti að vera messa hér, en hún féll niður vegna óveðurs. — Varla er hægt að segja, að við höfum búið við rafmagnsskort, nema hvað skömmu fyrir klukkan sex á aðfangadagskvöld varð rafmagnslaust, en sú bilun stóð þó ei lengur en klukkutíma, og varð þess eins valdandi, að kvöldverði seinkaði dálitið. Það sem fólk hefur saknað mest nú yfir jólin, er sjónvarpið og þykir mörgum leitt að hafa misst af jóladagskránni. — Nokkuð af fólki héðan var veðurteppt i Neskaupstað, en það komst heim í gærdag. Skilja varð snjóbílinn eftir, og kom fólkið með varðskipi á Reyðarfjörð. Vegagerðin hefur haldið opnum vegum milli Reyðarfjarðar og Eskifjarðar, og sennilega hefur það verið eini vegurinn á Austfjörðum, sem var fær. Marinó Sigurbjörnsson fréttaritari á Reyðarfirði sagði: — Við höfum sennilega sloppið hvað best allra Austfirðinga. Hérna hefur viðrað sæmilega, snjór er töluverður en þó ekki mjög mikill. Við söknuðum þess mest að missa af jóladagskrá sjónvarps og útvarps. Útvarpið er nú komið í lag, en sjónvarpið hvorki sést né heyrist enn. — Verið er að reyna að opna leiðina um Fagradal. Ýturnar fóru í morgun og eru nú komnar að Egilsstaðaskógi. Við vonumst til að leiðin opnist í kvöld, svo að fá megi mjólk niður eftir. Símasamband hefur verið hér mest allan tímann, og jólahald að mestu gengið fyrir sig með eðlilegum hætti, nema hvað fólk gekk milli húsa í stað þess að aka. Ekki er mjög snjóþungt, en mikill hluti af moksturstækjum er i Norðfirði, svo að götur hafa litið verið ruddar. Aðalsteinn Aðalsteinsson á Höfn í Hornafirði sagði: — Við lentum ekki í neinni rafmagnsskömmtun og höfum getað fengið fréttir af umheiminum, bæði gegnum síma og sjónvarp og útvarp. Jólahald, hefur verið með eðlilegum hætti og mun betra en i fyrra, þegar við bjuggum við rafmagnsleysi. Ekki tókst að ná tali af fréttariturum okkar á Stöðvarfirði og Breiðdalsvik i gær, vegna þess að aðalsímalinur til þeirra staða voru bilaðar.

Og Morgunblaðið sama dag [28.]:

Stórhríð brast á víðast hvar á Austfjörðum seinni partinn f gær, og þegar Morgunblaðið hafði samband við fréttaritara sinn á Seyðisfirði f gærkvöldi, Svein Guðmundsson, kyngdi svo niður snjónum að með ólíkindum var. Sagði Sveinn, að allt væri bókstaflega að fara í kaf. Þak síldar- og fiskimjölsverksmiðjunnar Hafsíldar hf. þoldi ekki snjóþungan og féll hluti af þakinu, eða 130 fermetrar, en alls mun þakið vera 3—400 fermetrar. Þakið sem féll var á mjölskemmu, en ekkert mjöl var þar undir. Sagði Sveinn, að menn óttuðust að fleiri þök gæfu sig ef snjókoman héldi áfram og einnig óttuðust menn, að snjóflóð kynnu að falla. Knútur Knudsen veðurfræðingur tjáði Morgunblaðinu í gærkvöldi, að stórhríð væri á öllu Austurlandi. Hiti væri yfir frostmarki og væri búist við því, að á láglendi breyttist hríðin í rigningu þegar liði á nóttina. Dregur það síður en svo úr snjóþunga á þökum, a.m.k. ekki fyrst í stað. Bjóst Knútur við því, að rigning yrði á láglendi á Austfjörðum um helgina en snjókoma til fjalla. Ofsaveður geisaði annars á öllum Austfjörðum á aðfangadag og fram á jóladag. Miklum snjó kyngdi niður og er víðast hvar á Austurlandi hin mesta ófærð. Miklar rafmagnstruflanir urðu í þessu ofsaveðri og settu verulega svip sinn á jólahald Austfirðinga, auk þess sem fjarskiptastöðin á Gagnheiði fór út, þannig að Austfirðingar voru algjörlega símasambandslausir og þar heyrðist ekki útvarp né sást sjónvarp. Fárviðrið var einna mest í Neskaupstað, eins og fram kemur f annarri frétt, en einnig urðu Hornfirðingar óþyrmilega varir við það. Margir urðu veðurtepptir í þessu veðri og komust ekki heim til sín til að halda jólin með nánustu vandamönnum. Í gærkvöldi var veður að versna að nýju og kominn mikill skafrenningur, svo að allar helstu leiðir á Austfjörðum eru ófærar.

Eitthvert versta veður í manna minnum gekk hér yfir á aðfangadag og setti svip sinn á jólahald Norðfirðinga ásamt hörmungaratburðunum á föstudaginn, sem hvíla enn eins og mara yfir staðnum. Þetta var i einu orði fárviðri og var hamurinn einna mestur frá því í birtingu og fram undir kl.3, en þá fór heldur að dúra og um kl.5—6 mátti merkja að mesti ofstopinn væri genginn yfir. En meðan veðurofsinn var mestur var mönnum ekki stætt úti heldur urðu fullhraustir karlmenn að skríða milli húsa og dæmi voru til þess að þeir væru upp undir klukkustund að fara leið sem undir venjulegum kringumstæðum er örfárra mínútna gangur. Engar alvarlegar skemmdir eða tjón urðu þó í fárviðri þessu nema hvað á fáeinum stöðum munu rúður hafa brotnað. Töluverðir erfiðleikar urðu líka í höfninni, þar sem ein trilla mun hafa sokkið, og nokkrir bátar slitnuðu upp. Var hópur manna niðri við höfnina og tókst þeim jafnan að koma stálvírum út í bátana aftur, þannig að komið var í veg fyrir að bátana ræki frá landi. Einnig var hópur manna að störfum í stjórnstöð almannavarnanefndarinnar vegna þessa ofsaveðurs, þannig að fjöldi manna var að störfum þegar jólahátíðin gekk í garð og fram eftir öllu aðfangadagskvöldi. Nokkrir björgunarsveitarmenn frá Egilsstöðum og Seyðisfirði urðu veðurtepptir hér í Neskaupstað yfir jólin og máttu halda upp á þau i Egilsbúð fjarri ættingjum sínum. Bæjarstjórnin reyndi þó að bæta þeim upp jólaleysið og færði þeim bækur i jólagjöf.

Morgunblaðið segir þann 31. desember frá skemmdum á togaranum Sigluvík í illviðrinu aðfaranótt aðfangadags:

Skuttogarinn Sigluvik varð fyrir talsvert miklu tjóni aðfaranótt aðfangadags þegar skipið slitnaði frá bryggju i vondu veðri um nóttina og slóst utan í bryggjuna með þeim afleiðingum að skipið dældaðist bakborðsmegin á 20 m löngum kafla fyrir ofan millidekk. Ekki er búið að áætla tjónið á skipinu, en talið er að skemmd sé á 36 böndum og bandabilum bakborðsmegin, en rúmt fet er á milli banda. Má reikna með milljónatjóni. Sigluvik mun þó halda á veiðar nú um áramótin, þar sem skemmdirnar eru ofan sjólínu og ekki taldar rýra sjóhæfni skipsins.

Þann 29. desember segir Morgunblaðið:

Gífurlegt austan stórviðri gekk yfir Austfirði í fyrrinótt og er það fremur óvenjulegt af þessari átt. Talsverð brögð urðu að því að símalínur slitnuðu í stórviðri þessu, en samkvæmt upplýsingum, sem unnt var að fá var ekki talið að neinar verulegar skemmdir hefðu orðið af völdum veðursins. Ástandið í rafmagnsmálum Austfirðinga var t.d. bærilegt f gær og aðeins varð um smátruflanir að ræða af völdum veðursins. Í veðri þessu kyngdi niður miklum bleytusnjó. Mest varð veðurhæðin á Egilsstöðum. Hitastig var rétt neðan við frostmark bæði þar og á Seyðisfirði. Úrkoman hætti um tvöleytið í fyrrinótt, en hvassviðrið hélt áfram og lægði ekki fyrr en undir morgun. Var í gær komin sunnanátt og hið besta veður. 

Hlaup hófst í Skaftá aðfaranótt sunnudagsins 29. desember, þá talið með mestu Skaftárhlaupum. Nokkrar skemmtir urðu á vegum og bærinn Sandasel í Meðallandi einangraðist um stund.

Fram að þessu höfðu flest illviðri mánaðarins staðið af norðri eða norðaustri. Síðasta veðrið var hins vegar af vestri og suðvestri. Ritstjóra hungurdiska eru þessi umskipti minnisstæð. Veðurlag virtist bundið í fast far - en var það auðvitað ekki.

w-1974-kort-f

Á miðnætti var lægðarmiðjan skammt úti af Vestfjörðum. Um þetta veður ritaði Jóhann Pétursson vitavörður á Hornbjargsvita skemmtilega grein: „Fáein orð um glitský og misjafna hegðan veðurguðsins“ og birtist hún í tímaritinu Veðrinu 1. hefti 1975, bls.19 og áfram [aðgengilegt á timarit.is].

Tíminn segir frá í pistli þann 4. janúar 1975:

gébé Reykjavik — Mikið óveður gekk yfir í Svarfaðardal og nágrenni aðfaranótt gamlársdags. Skemmdir urðu á þremur bæjum i Svarfaðardal, og einnig fauk hlöðuþak i Ytra-Kálfskinni á Árskógsströnd og rúður brotnuðu á Sólvangi og á Hauganesi, og hluti af bilskúrsþaki við skólann í Árskógi fauk af. Sveinn Jónsson, Ytra-Kálfskinni sagði að um þriðjungur af þaki á sambyggðu húsi, þar sem hlaða, fjós og haughús er, hafi fokið af hjá sér. Byrjaði hann strax að gera við og festa nýjar plötur á þakið og naut við það hjálpar nágranna sinna, og væri því verki nú að mestu lokið. Veðrið var slæmt meðan á viðgerð stóð, og þurfti maður að liggja á plötunum meðan verið var að negla þær niður. Sveinn Jónsson hafði ekki tryggt fyrir roki, þannig að hann þarf að bera tjónið sjálfur. Hey tók ekki, nema að litlu leyti. Við skólann að Árskógi var nýbyggður stór bilskúr, en af honum fauk hálft þakið. Þá brotnuðu rúður d ýmsum stöðum svo sem á Sólvangi og á Hauganesi, og þá aðallega í nýbyggingum. Í Svarfaðardal urðu skemmdir á þremur bæjum, Koti, Atlastöðum og Sandá. Veðurhæð hefur verið mikil á þessum slóðum, mjög hvasst að sunnan og skafrenningur. Gunnlaugur Jónsson bóndi á Atlastöðum sagði að járnplötur hefðu fokið af íbúðarhúsinu og að ekkert hefði verið hægt að gera við það ennþá sökum þess hve veðurofsinn er mikill, en þar hefur verið ýmist ofsarok eða stórhríð undanfarna daga. Gunnlaugur sagði að einnig hefði fokið jeppi og járnplötur stórskemmt hann, auk þess sem ýmislegt smávegis hefði farið úr skorðum. Á bænum Koti fauk mikill hluti af fjárhúsþaki og íbúðarhúsið á Sandá er mikið skemmt, en Sandá er nú í eyði. Þá hafa hey fokið á öðrum bæjum og ýmsar smærri skemmdir orðið vegna veðurofsans.

Þann 15. janúar 1975 birti tíminn fréttabréf af Ströndum. Þar segir m.a.:

Þann 30. desember. var hér nokkuð hvöss vestanátt, en kl.12 um kvöldið skall á ofsastormur og stóð aftakaveður af norðvestri fram til kl. 4 um nóttina. Þá fór heldur að draga úr veðrinu. Allt lék á reiðiskjálfi, eins og allt ætlaði um koll að keyra. Þegar dagaði og menn gátu farið að athuga verksummerki, kom í ljós, að margt hafði farið forgörðum. Engum var fært út meðan ofviðrið stóð. Á Munaðarnesi tók þak af hlöðu, sem hey var í. Fauk það út í veður og vind, og sést litið eftir af því, allt gjörónýtt. Í Norðurfirði braut glugga og hurðir í vélageymslu og hurðir frá heyhlöðu. Hjá Kaupfélagi Strandamanna sogaði veðrið burt hurð frá nýbyggðum bílskúr i heilu lagi. Þakplötur fuku af gamla íbúðarhúsinu. Fleira var þar á tjá og tundri. Á Krossanesi sviptist af hluti af hlöðuþaki. Lenti það á gafli íbúðarhússins, steinsteyptum, braut þar glugga úr eldhúsi og sprengdi steinsteypu út frá honum. Ný Zetordráttarvél stóð úti. Brak úr hlöðuþakinu, eða annað, hefur lent á henni, brotið framrúðu og þak hennar. Einnig tók þar vélsögunarborð, og sést ekkert eftir af því. Á Gjögri tók þak af íbúðarhúsi Sveins Jónssonar. Húsið var mannlaust. Hjá Axel á Gjögri tók járnþak af skúrbyggingu, áfastri við íbúðarhúsið. Á Kjörvogi lagðist í rúst sögunarhús, sem stóð við lendinguna. Aðrar minniháttar skemmdir urðu, sem ekki verða taldar hér. Engum varð svefnsamt þessa nótt, a.m.k. ekki á meðan mesti veðurofsinn geisaði. Margir fóru ekki úr fötum, því að við öllu mátti búast. Þetta ofviðri er af ýmsum talið það mesta, sem menn muna. Þar sem misvindasamt var í þessari vindátt, stóðst ekkert fyrir. Til marks um veðurhæðina á Krossanesi má geta þess, að nokkuð stóran bút (um 50 sm langan) úr sverum stálbita tók upp af sléttum grunni, og kastaðist hann langt úr stað. Einnig steypta stéttarhellu, sem lá á sléttri jörð. Tjónið af þessu veðri er mikið. Verður engin tilraun gerð hér til að meta það. Þar sem það var mest, á Krossanesi, nemur það eflaust mörgum tugum þúsunda. Daginn eftir og næstu daga hélst veður hvasst og með snjókomu.

Lýkur hér upprifjun hungurdiska á ýmsum veðuratburðum ársins 1974. Tölur og fleiri upplýsingar má finna í viðhenginu.  


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Bloggfærslur 12. ágúst 2022

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 65
  • Sl. sólarhring: 65
  • Sl. viku: 1001
  • Frá upphafi: 2351202

Annað

  • Innlit í dag: 60
  • Innlit sl. viku: 851
  • Gestir í dag: 54
  • IP-tölur í dag: 54

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband