Fyrstu 20 dagar desembermánaðar

Meðalhiti fyrstu 20 daga desembermánaðar er +2,5 stig í Reykjavík. Það er +1,5 stigum ofan meðallags áranna 1991 til 2020 og +1,9 stigum ofan meðallags síðustu tíu ára. Hitinn raðast í 7. hlýjasta sæti (af 21) á öldinni. Hlýjastir voru þessir sömu dagar árið 2016, meðalhiti þá +5,6 stig. Kaldastir voru þeir 2011, meðalhiti -2,8 stig. Á langa listanum raðast hiti nú í 20. hlýjasta sæti (af 146). Hlýjast var 2016, en kaldast 1886, meðalhiti þá var -5,6 stig.
 
Á Akureyri er meðalhiti dagana 20 nú +0,9 stig, +1,3 stigum ofan meðallags 1991 til 2020 og 2,1 stigi ofan meðallags síðustu tíu ára.
 
Að tiltölu hefur verið hlýjast við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, hiti þar raðast í 5. hlýjasta sæti aldarinnar, en kaldast hefur verið á Austurlandi að Glettingi og Suðausturlandi, þar raðast hiti í 10. hlýjasta sætið.
 
Á einstökum stöðvum hefur verið hlýjast að tiltölu í Húsafelli. Þar er hiti +3,0 stigum ofan meðallags síðustu tíu ára. Kaldast hefur verið á Fáskrúðsfirði, hiti +0,1 stigi ofan meðallags.
 
Úrkoma hefur mælst 91,4 mm í Reykjavík og er það hátt í 60 prósent ofan meðallags, en langt frá meti. Á Akureyri hefur verið mjög þurrt. Úrkoman hefur aðeins mælst 5,8 mm, en hefur mælst minni sömu daga.
 
Sólskinsstundir í Reykjavík það sem af er mánuði eru 4,5, um 4 stundum færri en í meðalári, hafa þó alloft mælst færri sömu daga.
 
Aðfaranótt 17. desember fór hiti í 16,1 stig á Dalatanga og 16,0 stig á Eskifirði. Er það nýtt landsdægurhámarkshitamet. Það er ekki algengt að svo hár hiti mælist í desember, en þó nægilega oft til þess að landshámarkshitamet 15 desemberdaga er 16,0 stig eða meira. Mánaðarhitamet desember er hins vegar 19,7 stig og mældist 2. desember 2019. Um það - og önnur desemberhitamet var ítarlega ritað í pistli á hungurdiskum 3. desember það ár - þar eru einnig vísanir í fleiri desemberhitamet.

Bloggfærslur 21. desember 2021

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 10
  • Sl. sólarhring: 363
  • Sl. viku: 1835
  • Frá upphafi: 2350571

Annað

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 1638
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 10

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband