Árstíđasveifla hámarks- og lágmarkshita (1)

Eins og margoft hefur fram komiđ eru árstíđa- og dćgursveiflur mjög hugleikar ritstjóra hungurdiska. Hann lendir endrum og sinnum á slćmum sveiflutúrum og kann sér lítt hóf međan á ţeim stendur og nánast óhjákvćmilegt ađ eitthvađ sullist út á síđur bloggsins. Í dag er fjallađ um árstíđasveiflu hámarks- og lágmarkshita á landsvísu (efniđ dugar í marga pistla - en vonandi tekst ritstjóranum ađ halda flóđinu eitthvađ í skefjum.

Ţađ sem hér fer á eftir er ţó tiltölulega saklaust og skýrt(?). Ţeir sem nenna ađ lesa ţađ allt ćttu ţó ađ gera ţađ í rólegheitum.

w-blogg150319a

Myndin byggir á mćlingum sjálfvirkra stöđva í byggđum landsins á tímabilinu 1996 til 2018. Mánuđir ársins eru á lárétta ásnum, en hann nćr ţó yfir 18 mánuđi - til ţess ađ hvorki sumar né vetur séu sundurklippt á myndinni. Lóđrétti ásinn er hitakvarđi. 

Neđri ferillinn sýnir međalhámarkshita allra stöđva sérhvern dag ársins á umrćddu tímabili. Taka ţarf fram ađ stöđvakerfiđ er ekki alveg einsleitt allan tímann. Viđ erum hins vegar ekki endilega á höttunum eftir nákvćmum tölum - heldur er ţađ frekar form sveiflunnar sem vekur áhuga. Viđ sjáum ađ međalhámarkiđ er ofan frostmarks alla daga ársins og ađ nokkur munur er á međalhámarkshita og miđgildi hans. Međalhita fáum viđ međ ţví ađ reikna međaltal allra daga, hann er 7,4 stig. Miđgildiđ skiptir dreifingunni í tvennt, jafnmargir dagar eru neđan ţess og ofan, ţađ er hér 6,2 stig - merkt međ grárri línu ţvert yfir myndina. Lóđréttu, gráu strikalínurnar sýna hins vegar misseramörkin gömlu, sumardaginn fyrsta og fyrsta vetrardag. Ţau lenda mjög nćrri miđgildi hitans eins og sjá má.  

Ţađ er sjórinn umhverfis landiđ sem heldur hitanum uppi ađ vetrarlagi, ef hans nyti ekki viđ vćri sennilega minni munur á ársmeđalhámarkshita og miđgildi međalhámarkshitans. Ţađ er 28.júlí sem reiknast hér hlýjastur (miđađ viđ međalhámark landsins), 8,6 stigum ofan miđgildisins [ţessi dagur er trúlega annar á öđrum viđmiđunartímabilum]. Kaldastur er hér 7.febrúar (međalhámark 1,3 stig) - ţađ gćti auđvitađ veriđ nćr hvađa dagur sem er á tímabilinu 15.desember til 1.apríl sem lendir í ţessu hlutverki - svo litlu munar. Ţessi kaldasti dagur er ađeins 4,9 stigum kaldari en miđgildiđ. Viđ gćtum ímyndađ okkur ađ kaldasti dagurinn ársins vćri jafnlangt frá miđgildinu eins og sá hlýjasti. Ţá vćri međalhámarkshiti hans -2,4 stig. 

Ferillinn sem viđ höfum veriđ ađ fjalla um sýnir međaltal byggđa landsins alls - en viđ leitum nú ađ hćsta hámarki hvers dags og reiknum međaltal ţess fyrir hvern almanaksdag. Rauđi ferillinn á myndinni sýnir niđurstöđu ţeirra reikninga. Í fornum hungurdiskapistli (2011) var eitt sinn fjallađ ţađ hvar á landinu líklegast er ađ finna hćsta hámark á mismunandi tímum dagsins. 

Ţađ eru fáeinir dagar á ári (17) ţegar međallandshámarkiđ er hćrra en 20 stig (á ţessu umrćdda tímabili) - ţar af samfleytt frá 17. til 30.júlí. Hćst reiknast ţađ hér 28.júlí, 21,1 stig, lćgst er ţađ 7.febrúar, 5,7 stig. Ársmeđaltaliđ er 12,2 stig, en miđgildiđ 10,8 stig. Hér er sjávarhjálpin enn meiri en í fyrra dćmi. 

Viđ lítum einnig á međallágmarkshitann á sama hátt.

w-blogg150319b

Gráa línan sýnir međallágmarkshita á sjálfvirkum stöđvum í byggđ hvern almanaksdag 1996 til 2018, en sú bláa međaltal lćgsta lágmarkshita landsins hvern almanaksdag. Í fljótu bragđi virđast ţessir ferlar eins og ţeir á fyrri myndinni - ađ öđru leyti en ţví ađ allar tölur eru mun lćgri (ađ sjálfsögđu), en viđ berum ferlana e.t.v betur saman síđar (athyglisverđur munur kemur í ljós). Spönn međallágmarks- og hámarkshita er mjög áţekk, spönn međaltals lćgsta lágmarks ţó nokkru meiri en spönn međaltals hćsta hámarks. 

Ţađ er 30.júlí sem á „hlýjustu nóttina“, međallágmarkiđ er ţá 8,2 stig, en lćgsta talan er 18.janúar, -4,8 stig.  

Ađ lokum lítum viđ á nokkrar dagsetningar vor og haust. Ţađ er 27.apríl sem međallágmarkshitinn fer yfir frostmark ađ vori, ađ hausti fellur hann niđur fyrir ţađ 25.október (alveg í samrćmi viđ misseraskiptin fornu). Ţađ er ekki fyrr en 4.júní sem međaltal lćgsta lágmarks á landinu fer upp fyrir frostmark - og dettur niđur fyrir ţađ aftur 12.september - og nćr aldrei 5 stigum - stutt er sumariđ.

Viđ látum hér stađar numiđ - en eigum mjög mikiđ inni.  


Bloggfćrslur 15. mars 2019

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Mars 2024
S M Ţ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • w-blogg120324a
  • w-blogg080324a
  • w-blogg010324c
  • w-blogg010324b
  • w-blogg010324a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 3
  • Sl. sólarhring: 83
  • Sl. viku: 971
  • Frá upphafi: 2341345

Annađ

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 889
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband