Austanblástur

Við lítum nú á stöðuna á norðurhveli og veljum til þess spákort evrópureiknimiðstöðvarinnar sem gildir kl.18 síðdegis á þriðjudag, 5.febrúar.

w-blogg030219a

Jafnhæðarlínur 500 hPa-flatarins eru heildregnar. Af þeim má ráða vindátt og vindstyrk í veðrahvolfinu. Þykktin er sýnd í lit, hún mælir hita í neðri hluta veðrahvolfs. Því minni sem hún er því kaldara er loftið. Kvarðinn skýrist nokkuð sé kortið stækkað. Mörk á milli blárra og grænna lita eru sett við 5280 metra, rétt ofan meðallags þessa árstíma hér á landi. Mikil lægð suðvestur af landinu beinir til okkar heldur hlýrra lofti en því sem hefur verið yfir undanfarna viku - en mestu munar samt að töluvert hvassviðri fylgir, sérstaklega um landið sunnanvert og líkur því á að kalda loftið sem legið hefur yfir í neðstu lögum víki undan og blandist upp. 

Snjór veldur því hins vegar að hiti verður ekki sérlega hár og um leið og hægir frýs aftur. Lægðin á síðan að mjakast til austurs fyrir sunnan land og líkur taldar á því að næsta bylgja - sem á kortinu er undan austurströnd Bandaríkjanna fari svipaða leið - breyti sem sagt stöðunni ekki í grundvallaratriðum. Sá kostur er við þetta þó að „hlýindin“ sem yfir okkur verða á þriðjudaginn lenda fyrir norðan land og mynda þar dálitla fyrirstöðu gegn mjög alvarlegum kuldaárásum úr norðri. Í svipinn er þó talið líklegt að eitthvað af allköldu lofti læðist að okkur úr norðri austan þessarar smáfyrirstöðu á fimmtudag og föstudag. Kuldatíðinni er því ekki lokið þó eitthvað lini á þriðjudag og miðvikudag og hætt við að nokkuð napurt þyki þegar vindur fer að blása. 

Kuldapollurinn Stóri-Boli er að endurskipuleggja sig - ekki mjög öflugur á þessu korti - en það stendur til bóta síðar. 

Það vekur nokkra athygli að kalt er við vesturströnd Bandaríkjanna á þessu korti, og er viðlíka stöðu spáð eitthvað áfram. Við höfum eitthvað frétt af rigningum í Kaliforníu, en minna af óvenjulegheitum við Seattle og Vancouver en kuldar eru ekki algengir á þeim slóðum, en kannski fjallgarðurinn mikli hafi varið þessa staði eins og oftast er. 

Eins er ekki neinn blíðusvipur á lægðinni yfir Miðjarðarhafi, kuldi í Túnis og Líbýu.


Bloggfærslur 3. febrúar 2019

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 211
  • Sl. sólarhring: 306
  • Sl. viku: 2036
  • Frá upphafi: 2350772

Annað

  • Innlit í dag: 194
  • Innlit sl. viku: 1822
  • Gestir í dag: 189
  • IP-tölur í dag: 189

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband