Snjóhula um jólin (almenn sannindi)

Viđ skulum nú líta á snjóhulu um jólin. Snjóhula er metin daglega á fjölmörgum veđurathugunarstöđvum. Viđ getum reiknađ međaltal hennar - segjumst fá út hversu stór hundrađshluti jarđar er snćvi hulinn. Flestir veđurathugunarmenn meta einnig snjóhulu í fjöllum, ţá í 500 til 700 metra hćđ yfir stöđinni. Upplýsingar um daglega snjóhulu eru í gagnagrunni Veđurstofunnar aftur til haustsins 1964 - (mánađameđaltöl eigum viđ aftur til 1924 fyrir byggđ, en aftur til 1935 fyrir „fjöll“). 

Reiknum nú međaltöl fyrir dagana ţrjá, 24., 25. og 26. desember frá 1964.

w-blogg221218b

Lárétti ásinn sýnir árin, en sá lóđrétti međalsnjóhulu. Međaltal allra jólanna 54 er 68 prósent. Áraskipti eru mikil - eins og vćnta mátti. Minnst var snjóhulan áriđ 2002, en ţá mátti heita alautt í öllum byggđum landsins, međalsnjóhulan ađeins 4 prósent. Litlu meiri snjór var 1997 og sömuleiđis mjög lítill snjór um jólin 1970, 2001 og 2006. Jólasnjórinn virđist hafa „jafnađ sig“ á síđari árum. Dagarnir ţrír hafa allir saman aldrei veriđ alhvítir á öllu landinu á tímabilinu. Snjólagsmeđaltaliđ var hćst á jólum 1980, 96 prósent - ţađ má nú heita alhvítt. 

Reiknum viđ leitnina (heldur vafasamt - eins og venjulega) kemur í ljós ađ snjóhulan hefur ađ međaltali minnkađ um 2 prósent á áratugi hverjum - varla međ nokkru móti hćgt ađ segja ađ ţađ sé marktćkt.

w-blogg221218c

Snjóhula í fjöllum er ekki jafnbreytileg - međaltaliđ er 87 prósent - nćgilega hátt til ţess ađ viđ getum međ sćmilegri samvisku sagt ađ fjöll á Íslandi ofan viđ 500 til 700 metra séu ađ međaltali alhvít á jólum. Fáein ár skera sig nokkuđ úr, jólin 1997 sérstaklega áberandi, ţá var snjóhulan ekki nema 36 prósent á fjöllum. Fáein ár á ţessari öld hafa einnig veriđ snjólítil til fjalla á jólum. Leitnin er -2 prósent á áratug - sú sama og í byggđ.

Annars fylgjast snjóhula á fjöllum og í byggđ vel ađ.

w-blogg221218d

Lárétti ásinn sýnir snjóhulu í byggđ, en sá ljóđrétti til fjalla. Snjóhula getur auđvitađ ekki orđiđ meiri en 100 prósent - ţess vegna munar minna og minna á gildunum eftir ţví sem nćr 100 prósentunum kemur. 

Viđ gćtum nú framkvćmt ámóta reikninga fyrir Norđur- og Suđurland í sitt hvoru lagi - en látum ţađ bíđa betri tíma. 


Frostrigning?

Ţegar vindur er hćgur og veđur heiđríkt kólnar yfirborđ landsins hratt (mismikiđ ađ vísu). Hiti ţess getur veriđ neđan frostmarks ţó ekki sé frost í lofti. Viđ ţessar ađstćđur getur rigning eđa súld orđiđ ađ ís viđ snertingu viđ jörđ. Veđurlíkön nútímans reyna ađ segja fyrir um ađstćđur sem ţessar - en gengur ţađ af ýmsum ástćđum misvel. Viđ notum tćkifćriđ og lítum á spákort igb-líkansins um úrkomutegund ađra nótt - ađfaranótt ţorláksmessu. Úrkoman sem veriđ er ađ spá er ekki mikil ađ magni til - og gćti ţess vegna falliđ annars stađar en spáin segir til um - eđa ekki. Ađstćđur eru svipađar allt kvöldiđ og alla nóttina um mestallt sunnan- og vestanvert landiđ. Minniháttar súldar-, élja- og regnbakkar koma úr vestri inn yfir landiđ - 

w-blogg221218a

Fjólubláir litir segja ađ úrkoma sé snjókoma, grćnir tákna regn - en bláir frostrigningu eđa frostúđa. Ţegar ţetta kort gildir (kl.2 á ađfaranótt ţorláksmessu) er blár blettur á Reykjanesi - nćrri Grindavík. Fyrr um kvöldiđ og síđar um nóttina eru ámóta blettir annars stađar á Suđur- og Vesturlandi - aldrei mjög stórir eđa langlífir - en frostrigningin er jafnhćttuleg fyrir ţađ - fljúgandi hálka getur myndast á örskammri stund ţó úrkomumagniđ sé sáralítiđ. 

Vegfarendur - gangandi og akandi ćttu ađ hafa ţennan möguleika í huga og hegđa sér samkvćmt ţví. 


Bloggfćrslur 22. desember 2018

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Maí 2024
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Slide10
  • Slide9
  • Slide8
  • Slide7
  • Slide6

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (11.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 84
  • Sl. viku: 1264
  • Frá upphafi: 2353309

Annađ

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 1106
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband