Brúin brotnar

Framan af vikunni var mikil hæð yfir landinu - og síðan hæðarhryggur - brú á milli hæða fyrir austan og vestan land. Brúnni hefur fylgt hægur vindur og þó tekið sé að kólna inn til landsins hefur í heildina verið nokkuð hlýtt - og hiti í neðri hluta veðrahvolfs vel yfir meðallagi. Dagurinn í dag (laugardagur 24.nóvember) varð hægasti dagur ársins - meðalvindhraði í byggðum landsins ekki nema 1,9 m/s - og miðvikudagur og fimmtudagur eru í 3. og 4.hægasta sæti. 

En nú virðist eiga að verða breyting á - að vísu ekki fyrr en á þriðjudag (27.nóvember) og miðvikudag. Lítum á 500 hPa hæðar- og þykktarkort sem gildir á þriðjudagsmorgunn.

w-blogg251118a

„Brúin“ er merkt með brúnni strikalínu. Mjög snarpur kuldapollur er úti af norðausturhorni Grænlands. Hann byltir sér þar og á að sækja heldur á með tilstyrk lægðardrags sem er yfir Íshafinu - norðan við kanadísku eyjarnar og rétt utan við kortið. Nokkuð sterk vestanátt er í háloftum fyrir sunnan kuldapollinn - en við jörð er áttin þar norðaustlæg (víðast hvar). Þeir sem þrek hafa til að telja jafnþykktarlínur (litaskil) og jafnhæðarlínur á þeim slóðum munu sjá að jafnþykktarlínurnar eru þéttari en hæðarlínurnar - það nægir til að snúa áttinni. 

Annar kuldapollur (mun hlýrri þó) er fyrir sunnan land. Hlýtt loft úr suðri á að ganga til norðurs fyrir austan hann fyrir miðja viku (það sést aðeins í það alveg neðst á kortinu) - þar með dýpka lægðir á þeim slóðum. Niðurstaðan verður sú að þykktarbratti yfir Íslandi vex um síðir og það hvessir af norðaustri.

w-blogg251118b

Hér má sjá vindhraða (litir) og vindátt í 100 metra hæð á sama tíma og fyrra kort sýndi - þriðjudag kl.06. Við sjáum norðaustanstrenginn milli Vestfjarða og Grænlands - þar sækir norðankuldinn að, og fyrir sunnan land er austanstrengur lægðarinnar. Sá síðarnefndi snýst smám saman til norðausturs og nálgast. 

Varla verður undan komist undan báðum þessum strengjum. Það er hins vegar spurning hvor þeirra nær undirtökunum. Verst er reyni þeir báðir af afli á sama tíma. Þegar þetta er skrifað (seint á laugardagskvöldi) er evrópureiknimiðstöðin á því að eins konar málamiðlun eigi sér stað - sæst verði á skiptan hlut til beggja - jafnvel að norðanstrengurinn verði látinn um þetta. Fari svo verður veðrið ekki mjög slæmt - en það kostar kalda daga. Það er sjálfsagt skárri kostur heldur en fantabrögð og átök með lítillega hærri hita. 


Bloggfærslur 25. nóvember 2018

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 222
  • Sl. sólarhring: 255
  • Sl. viku: 2047
  • Frá upphafi: 2350783

Annað

  • Innlit í dag: 204
  • Innlit sl. viku: 1832
  • Gestir í dag: 198
  • IP-tölur í dag: 197

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband