Landsynningsrok

Landsynningur er nafn á suđaustanátt, en ekki ađeins vindátt heldur fylgir hangir slagviđri venjulega á nafninu líka. Ađ vetrarlagi getur hríđ komiđ í stađ slagviđris (alla vega á heiđum). Ritstjóri hungurdiska telur gerđir landsynnings raunar ađ minnsta kosti tvćr - en ţeirri hugsýn deila víst fáir ađrir (ef nokkrir) og viđ látum hana ţví liggja á milli hluta hér og nú.

En kort ámóta ţví hér ađ neđan hefur veriđ sýnt í veđurfréttum. Ţađ sýnir vindátt (örvar) og vindhrađa (litir) klukkan 21 á sunnudagskvöld, 5. nóvember - eins og harmonie-líkaniđ reiknar.

w-blogg051117a

Á bleiku og rauđu svćđunum er vindhrađi (10-mínútna međaltal) meira en 24 m/s, rok ađ fornu vindstigatali. Meginbeltiđ er ekki svo breitt - en norđaustan viđ ţađ eru renningar (í stórum dráttum) ţvert á vindátt ţar sem vindhrađi nćr hćstu hćđum. Kunnugir sjá strax ađ renningar ţessir fylgja fjallgörđum. Ţar nćr vindur í hćđ ađ slá sér niđur í öldudali mikilla flotbylgna sem fjallgarđarnir mynda ţegar loftiđ streymir yfir ţá. 

Sé kortiđ stćkkađ má sjá tölur í litlum, gulum ferningum - ţćr sýna mestu vindhviđur sem líkaniđ reiknar, ţćr stćrstu í norđurhlíđum Langjökuls, um 58 m/s. Ţeir sem vilja píra augun mega reyna ađ finna Reykjavík - ţar stingur mjór, blár fingur sér inn í bleiku breiđuna, og er vindhrađi á litlum bletti ekki „nema“ 18 m/s. Líkaniđ virđist finna eitthvađ fyrir borginni. - Og sumir borgarbúar munu vćntanlega spyrja (eins og venjulega): Hvađ varđ um ţetta veđur sem veriđ var ađ spá? 

Rétt vestur af Reykjanesi er vindur mun minni - einhver skil á ferđ, landsynningurinn er ţar genginn niđur. 

Viđ lítum líka til lofts (ţó sumir fái hálsríg). Myndin ađ neđan sýnir ţversniđ sem liggur norđur međ vesturströndinni (sjá litla kortiđ efst til hćgri). Ţversniđ af ţessu tagi eru ekki auđlesin - en áhugaverđ engu ađ síđur.

w-blogg051117b

Lárétti ásinn sýnir breiddarstig eftir línunni - gráu fletirnir neđst á myndinni eru sjór og svo fjöll sem línan sker, Snćfellsnes á miđri mynd og Vestfirđir ţar hćgra megin. Lóđrétti ásinn sýnir loftţrýsting, 1000 hPa neđst og upp í 250 efst, í um 10 km hćđ. Vindörvar sýna vindátt og vindhrađa á hefđbundinn hátt, litir vindhrađann og heildregnar línur sýna mćttishitann. 

Ţađ sem skiptir mestu máli hér er ađ sjá ađ vindstrengur landsynningsins er mestur í um 850 hPa hćđ - í um 1200 metrum yfir sjávarmáli, - sem t.d. Langjökull nćr upp í. Ofan viđ vindhámarkiđ er vindur langt í frá hćgur, en samt áberandi minni heldur en strengnum. Viđ köllum vindstreng af ţessu tagi gjarnan „lágröst“ - ekki er ritstjóri hungurdiska sérlega ánćgđur međ ţađ orđ - en ţađ verđur ađ duga ţar til betra sýnir sig. 

Heimskautaröstin (háröstin) er síđan sýnileg efst í vinstra horni, í um 300 hPa (um 9 km). Ekki vantar mikiđ á ađ háröst og lágröst tengist (kannski gera ţćr ţađ í öđrum sniđum á öđrum tíma í ţessu veđri). Til ađ tenging náist verđur vindátt ađ vera nćr samstíga eftir ađ komist er upp úr ţví belti ţar sem núningur yfirborđs nćr ađ snúa áttinni. 

Skilin (undan Reykjanesi) sjást mjög vel á myndinni. Mikill munur er á vindi sitt hvoru megin ţeirra allt upp í 3 til 4 km hćđ - en hárastarhámarkiđ er beint ofan viđ svćđiđ rétt aftan skilanna. Ţeir sem best sjá mega taka eftir ţví ađ jafnmćttishitalínurnar eru talsvert gisnari sunnan skilanna (vinstra megin) heldur en norđan ţeirra. Loft er óstöđugt (eđa nćr ţví ađ vera ţađ) ţar sem jafnmćttishitafletir eru gisnir, en stöđugt ţar sem ţćr liggja ţétt. 


Bloggfćrslur 5. nóvember 2017

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 216
  • Sl. sólarhring: 290
  • Sl. viku: 2041
  • Frá upphafi: 2350777

Annađ

  • Innlit í dag: 199
  • Innlit sl. viku: 1827
  • Gestir í dag: 194
  • IP-tölur í dag: 193

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband