Landsynningsrok

Landsynningur er nafn á suðaustanátt, en ekki aðeins vindátt heldur fylgir hangir slagviðri venjulega á nafninu líka. Að vetrarlagi getur hríð komið í stað slagviðris (alla vega á heiðum). Ritstjóri hungurdiska telur gerðir landsynnings raunar að minnsta kosti tvær - en þeirri hugsýn deila víst fáir aðrir (ef nokkrir) og við látum hana því liggja á milli hluta hér og nú.

En kort ámóta því hér að neðan hefur verið sýnt í veðurfréttum. Það sýnir vindátt (örvar) og vindhraða (litir) klukkan 21 á sunnudagskvöld, 5. nóvember - eins og harmonie-líkanið reiknar.

w-blogg051117a

Á bleiku og rauðu svæðunum er vindhraði (10-mínútna meðaltal) meira en 24 m/s, rok að fornu vindstigatali. Meginbeltið er ekki svo breitt - en norðaustan við það eru renningar (í stórum dráttum) þvert á vindátt þar sem vindhraði nær hæstu hæðum. Kunnugir sjá strax að renningar þessir fylgja fjallgörðum. Þar nær vindur í hæð að slá sér niður í öldudali mikilla flotbylgna sem fjallgarðarnir mynda þegar loftið streymir yfir þá. 

Sé kortið stækkað má sjá tölur í litlum, gulum ferningum - þær sýna mestu vindhviður sem líkanið reiknar, þær stærstu í norðurhlíðum Langjökuls, um 58 m/s. Þeir sem vilja píra augun mega reyna að finna Reykjavík - þar stingur mjór, blár fingur sér inn í bleiku breiðuna, og er vindhraði á litlum bletti ekki „nema“ 18 m/s. Líkanið virðist finna eitthvað fyrir borginni. - Og sumir borgarbúar munu væntanlega spyrja (eins og venjulega): Hvað varð um þetta veður sem verið var að spá? 

Rétt vestur af Reykjanesi er vindur mun minni - einhver skil á ferð, landsynningurinn er þar genginn niður. 

Við lítum líka til lofts (þó sumir fái hálsríg). Myndin að neðan sýnir þversnið sem liggur norður með vesturströndinni (sjá litla kortið efst til hægri). Þversnið af þessu tagi eru ekki auðlesin - en áhugaverð engu að síður.

w-blogg051117b

Lárétti ásinn sýnir breiddarstig eftir línunni - gráu fletirnir neðst á myndinni eru sjór og svo fjöll sem línan sker, Snæfellsnes á miðri mynd og Vestfirðir þar hægra megin. Lóðrétti ásinn sýnir loftþrýsting, 1000 hPa neðst og upp í 250 efst, í um 10 km hæð. Vindörvar sýna vindátt og vindhraða á hefðbundinn hátt, litir vindhraðann og heildregnar línur sýna mættishitann. 

Það sem skiptir mestu máli hér er að sjá að vindstrengur landsynningsins er mestur í um 850 hPa hæð - í um 1200 metrum yfir sjávarmáli, - sem t.d. Langjökull nær upp í. Ofan við vindhámarkið er vindur langt í frá hægur, en samt áberandi minni heldur en strengnum. Við köllum vindstreng af þessu tagi gjarnan „lágröst“ - ekki er ritstjóri hungurdiska sérlega ánægður með það orð - en það verður að duga þar til betra sýnir sig. 

Heimskautaröstin (háröstin) er síðan sýnileg efst í vinstra horni, í um 300 hPa (um 9 km). Ekki vantar mikið á að háröst og lágröst tengist (kannski gera þær það í öðrum sniðum á öðrum tíma í þessu veðri). Til að tenging náist verður vindátt að vera nær samstíga eftir að komist er upp úr því belti þar sem núningur yfirborðs nær að snúa áttinni. 

Skilin (undan Reykjanesi) sjást mjög vel á myndinni. Mikill munur er á vindi sitt hvoru megin þeirra allt upp í 3 til 4 km hæð - en hárastarhámarkið er beint ofan við svæðið rétt aftan skilanna. Þeir sem best sjá mega taka eftir því að jafnmættishitalínurnar eru talsvert gisnari sunnan skilanna (vinstra megin) heldur en norðan þeirra. Loft er óstöðugt (eða nær því að vera það) þar sem jafnmættishitafletir eru gisnir, en stöðugt þar sem þær liggja þétt. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Svo að minnst sé á orðanotkun Veðurstofu Íslands, þá má spyrja hvort ekki megi nota rauðgulan lit á veðurkortunum í staðinn fyrir appelsínu gulan.

Einnig sakna ég blessaðrar golunnar, að ég ekki tali um storminn og rokið sem virðist vera fokið út í veður og vind.

Hörður Þormar (IP-tala skráð) 5.11.2017 kl. 10:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg160424b
  • w-blogg160424a
  • w-blogg120424c
  • w-blogg120424b
  • w-blogg120424a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 9
  • Sl. sólarhring: 157
  • Sl. viku: 1758
  • Frá upphafi: 2348636

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 1539
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband