Færsluflokkur: Vísindi og fræði
16.10.2023 | 13:19
Hálfur október
11.10.2023 | 14:58
Fyrstu tíu dagar októbermánaðar 2023
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 16:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.10.2023 | 16:47
Hugsað til ársins 1973
Heldur órólegt ár - í minningunni - en var samt lengst af talið hagstætt. Eldgosið í Heimaey var auðvitað aðalfrétt ársins - og á veðurvængnum var það illviðrið sem kennt er við leifar fellibylsins Ellen sem er sérlega minnisstætt. Við sinnum eldgosinu lítt hér - og fellibylinn Ellen hafa hungurdiskar afgreitt áður. Margt annað gefur tilefni til upprifjunar. Fréttir af færð og hrakningum eru nokkuð áberandi í þessari upprifjun - dálítið staglkennt, en vel þess virði samt að rifja upp. Sömuleiðis eru fregnir af erfiðleikum vegna kulda, hita- og rafveitur voru víða við þolmörk. Olíukreppan alþjóðlega sem hófst þetta haust ýtti síðan undir aðgerðir til að bæta innviði á næstu árum (held að orðið innviðir hafi þó ekki verið til - í núverandi merkingu). Sömuleiðis vekja hin tíðu sjóslys athygli. Þau verða ekki öll rifjuð upp hér, þó þau tengist oft veðri. En við byrjum þessa upprifjun á samantektarfréttum um sjóslysin sem birtist í Tímanum 30.mars:
ÞóReykjavik. Það má vera mikið góðæri framundan, ef iðgjöld fiskiskipatrygginga þurfa ekki hækka á næstunni, sagði Páll Sigurðsson framkvæmdastjóri Samábyrgðar Íslands á fiskiskipum, er við spurðum hann um tjón það, sem tryggingafélögin hafa orðið fyrir að undanförnu vegna hinna miklu skipsskaða, en frá áramótum hafa nú 17 skip farist eða stórskemmst. Páll sagði, að af þessum 17 bátum hefðu 10 verið tryggðir hjá Samábyrgðinni, og tryggingafé þeirra væri í kringum 110 milljónir, og væri það meira en 3% af heildartryggingum félagsins. Hann sagði ennfremur, að hann myndi ekki eftir öðrum eins óhappavetri í þau 25 ár, sem hann væri búinn að fást við tryggingamál. Og hann bætti við: Því miður eiga mörg óhöpp undanfarinna ára rót sina að rekja til sjálfstýringarinnar. Það er eins og menn verði andvaralausir gagnvart hækkunum, þegar þessi mikla tækni er komin um borð i skipin. Það er ekki nóg, að fá tæknina, menn verða líka að kunna að fara rétt með hana. Guðmundur Guðmundsson hjá Íslenzkri endurtryggingu sagði, að tryggingafélögin hefðu orðið fyrir 160-170 milljón króna tjóni vegna stærri skipanna, væru þá bætur vegna dauðsfalla ei taldar með. Hann sagðist vera sammála Páli um það, að þessi miklu tjón ættu eftir, að valda hækkunum á iðgjöldunum, því að tryggingafélögin gætu ekki staðið undir þessum miklu tjónum mikið lengur. Samkvæmt þessu lætur því nærri, að tryggingartjón þeirra fiskiskipa, sem farist hafa á þessum vetri sé um 300 milljónir.
Blaðatextar hér að neðan eru sleiktir upp af vefnum timarit.is, oft styttir hér og stafsetningu lítillega hnikað (vonandi sætta höfundar sig við þá meðferð), villur í slíku eru ritstjórans. Að þessu sinni er mest um texta úr Tímanum, en einnig úr fleiri blöðum. Heimildir eru að auki úr Veðráttunni, tímariti Veðurstofu Íslands, og töluleg gögn og fleira úr gagnagrunni og safni Veðurstofunnar. Talnasúpu má finna í viðhenginu. Þetta var mikið slysaár á sjó og er margskonar slysfara ekki getið í þessum pistli - eitthvað af því sem ekki er getið kann að hafa tengst veðri.
Febrúar var vondur og illviðrasamur, snemmsumarið mjög kalt og sérlega kalt var í nóvember og desember. Janúar var aftur á móti sérlega hlýr, en nokkuð umhleypingasamur. Í mars var hagstæð tíð eystra, en umhleypinga- og úrkomusamt vestanlands. Apríl var hagstæður lengst af. Maí aftur á móti óhagstæður gróðri og júní sérlega kaldur og heldur óhagstæður. Júlí var hagstæður og grasspretta góð - en ekki var hlýtt. Ágúst var heldur votviðrasamur, en samt ekki talinn óhagstæður. Næturfrost spilltu kartöfluvexti. September var votviðrasamur um landið vestanvert, en annars var tíð talin hagstæð - þrátt fyrir eitt óvenjulegt illviðri. Október var hagstæður.
Kortið sýnir meðalhæð 500 hPa-flatarins (heildregnar línur), þykkt (daufar strikalínur) og þykktarvik (litir) í janúar 1973. Þetta er einn af fimm hlýjustu janúarmánuðum allra tíma hér á landi.
Ingibjörg í Síðumúla segir af janúar: Óvenju hlýr og snjóléttur. Jörð klakalaus með öllu.
Tíminn segir 7. ov 9. janúar af flóðum í Borgarfirði, þau voru þó mun minni en árið áður. Talsverð flóð urðu einnig í Eyjafirði og vestur á Fjörðum.
ErlReykjavik. Það er ekki ný bóla, að Hvítá og Norðurá í Borgarfirði vaxi, svo að um muni. Mega menn minnast flóðanna sem urðu í byrjun árs í fyrra. Nú er áramótaflóðið komið í árnar, þótt fjarri fari því, að það jafnist á við flóðið í fyrra. Veldur þessu hláka ofan á þau fannalög, er voru til fjalla. Mikið vatn hefur hlaupið í Ferjukotssíki, svo sem oft ber við þegar Norðurá vex til verulegra muna, og flæddi þar yfir veginn. Hann hafði þó lítið grafist, og ekki var vatnið dýpra en svo í gær, að hann var fær fólksbilum. ... Annars staðar á landinu hafa sums staðar orðið talsverðir vatnavextir, og dæmi eru um skemmdir á vegum. Var það einna helst af því, tagi er blaðið hafði spurnir af, að á Þelamörk í Eyjafirði grófst vegurinn sundur, en við þær skemmdir var búið að gera til bráðabirgða í gær. Í Skagafirði flæðir iðulega yfir þjóðveginn í hlákum að vetrarlagi og svo er raunar víðar.
[9.] ErlReykjavik. Flóðin, sem kaffærðu vegi um helgina, voru sjötnuð í morgun, en víða hafði runnið úr vegum og voru þeir sums staðar ófærir með öllu. Minni háttar vegaskemmdir urðu um allt land, en Eyjafjörður virðist þó hafa orðið verst úti. Eins og fram hefur komið voru flóðin langmest í Borgarfirði hjá Hvítárvöllum og Ferjukoti. Þó hefur oft sést meira vatn á þeim slóðum en nú var, og er í því sambandi skemmst að minnast flóðanna miklu fyrir ári síðan, en þá var Ferjukotsbær aðeins á smáhólma í öllum vatnselgnum. Vatnið þarna var komið í farveg sinn í gærmorgun, og var þá strax fært öllum bilum, en unnið var að lagfæringum í gær. Þarna gróf ekki mikið úr veginum og voru það einungis smærri skörð, sem fylla þurfti.
Vestur í Dýrafirði varð úrrennsli vega öllu stórkostlegra, en þar var í gær, nánast ófært fyrir fjörðinn. Hið sama mátti segja um veginn í Önundarfirði en þar voru stór skörð höggvin í veginn.
Norður í Svarfaðardal flæddi áin yfir veginn hjá Hrísatjörn, en það telst nær árviss viðburður, að sögn Hilmars Daníelssonar, sveitarstjóra á Dalvik. Flóðið var sjatnað í gærmorgun, en hafði aldrei verið mikið, t.d. sagðist Hilmar hafa ekið veginn þar á fólksbil um það leyti sem vatnið stóð hæst. Mestu skemmdirnar urðu, eins og áður segir, í Eyjafirði og Hörgárdal. Sunnan við Krossastaði á Þelamörk tók veginn af á nokkrum kafla, en við hann var gert á sunnudag og var þar fært í gær. Hjá Laugarbrekku í Hrafnagilshreppi grófst vegurinn á alllöngum kafla, og varð þar ófær, en fram hjá því mátti komast með því að fara heim í hlað á Kristnesi og þar í gegn. Á þessu svæði var unnið að viðgerð í gær. Í Öngulsstaðahreppi í austanverðum Eyjafirði urðu einnig miklar vegaskemmdir hjá Höskuldsstöðum og Garði. Þar var með öllu ófært í gær, en unnið að viðgerð, og stóðu vonir til að fært yrði þarna um í dag. Þá mun skriða hafa fallið hjá Flögu í Hörgárdal og lokað veginum þar, og var hann ófær, er siðast fréttist. Þá urðu viða um land minni áttar skemmdir, eins og áður sagði, en ekki svo að vegir lokuðust. Skemmdir þessar urðu að sjálfsögðu mest vegna asahláku og mikillar rigningar, en vegir eru nú mjög viðkvæmir sökum frostleysis í jörð. Þeir þola því, mun verr en vanalega, ósköp venjulega leysingu, og verða að láta undan vatnsþunganum. Flestar eru skemmdir þessar, þar sem grefur út frá ræsi, en einnig þar sem rennur úr brattri hlíð yfir veg eins og t.d. á Vestfjörðum.
Þjóðviljinn segir 13.janúar frá sjávargangi á Ísafirði:
Ísafirði 1l/l. Í nótt gerði hér hávaðarok af suðaustan en snerist síðan í sunnan- og suðvestanátt. Á háflæðinu um hádegisbilið í dag gerði svo mikinn sjógang hér á Pollinum að sjór gekk yfir Hafnarstrætið og út í þvergötur og kirkjugarðurinn og túnið kringum sjúkrahúsið fylltist af drasli er sjórinn skolaði með sér. Þegar brimið skall á bólverkinu gekk sjórinn yfir tveggja hæða hús sem standa sunnanvert við Hafnarstrætið og fylltust kjallarar þeirra af sjó. Einnig kom sjór í kjallara nokkurra húsa norðanvert við Hafnarstrætið. Þetta er kallað Básarok hér, en það dregur nafnið af klettum sem eru hér út með firðinum. Flug hefur legið niðri síðan á sunnudag vegna veðurs og á sunnudag hafði ekki verið flogið síðan á fimmtudag. Ísfirðingar eru mjög óánægðir með samgöngur og telja að Flugfélagið geti gert betur, enda þótt veður hamli við og við. Þá koma strandferðaskip ekki nema hálfsmánaðarlega. Hér var gífurlegt fannfergi, en nú hefur verið asahláka í vikutíma og allur snjór horfinn úr bænum. Gisli.
Til þess var tekið að fært var yfir Fjarðarheiði. Tíminn 18.janúar:
KJReykjavik. Það er ekki algengt, að fólksbílar sunnan af fjörðum séu á ferðinni á Seyðisfirði um hávetur, en sú er nú raunin um þessar mundir, sagði Ingimundur Hjálmarsson á Seyðisfirði í gær. Fjarðarheiði var rudd á dögunum, og hefur verið fær öllum bílum síðan. Telst þetta til algjörra undantekninga, en svo er veðurfarinu fyrir að þakka, að heiðin er nú fær. Í fyrravetur var farið fyrir heiðina á bilum að vetrarlagi, en venjan hefur verið sú undanfarin ár, að Fjarðarheiði hefur verið lokuð frá því fyrir jól og fram á vor. Ef ekki hefur verið snjór til trafala, hefur heiðin verið ófær vegna aurbleytu. Mestan hluta vetrarins hafa Seyðisfirðingar og aðrir því þurft að skrönglast til og frá kaupstaðnum í snjóbilum, og allir aðdrættir ofan af Héraði hafa einnig farið fram með snjóbílum.
Þann 23.janúar hófst eldgos í Heimaey. Hungurdiskar hafa áður fjallað um veðrið í gosbyrjun - og verður það ekki endurtekið hér. Mikil heppni var þá yfir íbúum Vestmannaeyja.
Óróleg tíð var til sjávarins og brimasamt. Tíminn 24.janúar:
[Höfn í Hornafirði] Hér hefur verið hafátt að undanförnu og mesti sjógangur, og á föstudaginn og laugardaginn lá Hekla hér inni, af því að hún komst ekki út um ósinn, en Esja lónaði fyrir utan, því að hún komst ekki inn, sagði Aðalsteinn Aðalsteinsson, fréttaritari Tímans í Höfn í Hornafirði í gær. Þessa daga var svo vont í sjóinn hér á Suðausturlandi, að Esja gat ekki heldur lagst að bryggjum hér í næstu höfnum austan við okkur.
Ingibjörg í Síðumúla segir af febrúar: Mjög raka- og umhleypingasamur. Úrkomur tíðar. Samgöngur hafa því verið erfiðar vegna snjóa, sérstaklega seinni hluta mánaðarins. Oft hefur orðið að hjálpa bílum áfram. Sumstaðar er ófært heim að bæjum og hefur því víða þurft að flytja mjólk í veg fyrir mjólkurbílana.
Veðráttan segir frá því að 1.febrúar fórst bátur frá Sandgerði og með honum fjórir menn. Aðrir bátar lentu í erfiðleikum á sömu slóðum.
Mikla illviðrasyrpu gerði milli 10. og 20. febrúar. Mjög djúp lægð kom að landinu þann 10. og fór austur fyrir, hægði þar á sér og hreyfðist til norðurs og síðar suðvesturs skammt fyrir austan land. Varð úr mikið norðanillviðri. Furðufljótt varð síðan í næstu tvær lægðir, en þær ollu báðar allmiklum útsynningi 16. og 17. Tjón varð þó mun minna í þeim veðrum heldur en því fyrra.
Hér má sjá línurit sem sýnir lægsta þrýsting á 3 klst fresti á landinu dagana 8. til 21. febrúar (rauð lína). Bláu súlurnar sýna mun á hæsta og lægsta þrýstingi á landinu. Allgott samband er á milli þessa munar og vindhraða. Þann 8. og 9. var vindur hægur, en síðan hvessti af austri og suðaustri þegar lægð nálgaðist. Minni vindur er við lægðarmiðjuna, en síðan gekk í mjög hvassa norðanátt sem stóð samfellt á fjórða sólarhring.
Lægðin nálgast landið aðfaranótt 11. febrúar.
Síðdegis þann 13. var lægðin búin að fara hring fyrir austan land og veðrið um það bil að ná hámarki. Það gekk síðan ört niður eftir hádegi þann 14. eins og sjá má á línuritinu fyrir ofan. Blöðin birt fréttir af veðrinu. Fyrst eru þó fréttir af snjóþyngslum sem brutu skíðaskála nærri Skagaströnd. Tíminn 10.febrúar:
JJ Höfðakaupstað. Enginn getur farið á skíði nema snjór falli, og enginn, sem skíðaíþrótt iðkar, amast við dálitlum vetrarsnjó. En svo getur komið fyrir, að fannalögin verði svo mikil, að þau valdi óskunda, jafnvel skíðamönnunum sjálfum Það hefur gerst hér. Uppi í Spákonufellsborginni ofan við kaupstaðinn er skíðaskáli. Í snjóalögunum miklu fyrr í vetur lagðist á hann afarmikil fönn, og varð þunginn svo mikill, að þakið brotnaði undan honum.
Veðrið bar upp á helgi þannig að engar fréttir eru í blöðum fyrr en á þriðjudag 13. Tíminn segir þá frá:
GS, Ísafirði Aðfaranótt sunnudags [11.] byrjaði að snjóa hér á Ísafirði með feiknakrafti, og um hádegi í gær skall hér á ofsaveður úr norðaustri. Í gærmorgun var veður farið að lægja, en gífurleg ófærð er hér í bænum. Loka varð öllum skólum og hér fóru engir til vinnu nema þá helst á skíðum. Allir Bolungavikurbátarnir leituðu hér skjóls í veðrinu, og skip leituðu hér hafnar. Vélbáturinn Brynjólfur AR-4 var að koma úr lengingu frá Akureyri þegar veðrið skall á. Þegar báturinn var á móts við Horn fékk hann á sig mikinn brotsjó og við það fylltist brú bátsins. Sjórinn náði til að flæða niður í vélarrúm og íbúðir, og við það fóru öll viðkvæm rafmagnstæki úr sambandi. Vélbáturinn Hegranes fór á móti Brynjólfi til hafnar og gekk sú ferð vel. Í gær var svo gert við öll tæki Brynjólfs og tjónið af brotsjónum mun ekki hafa verið mjög mikið.
Eins og vænta mátti, féll snjóflóð í fannferginu. Kom það frekar innarlega í bænum, féll þar niður á milli húsa, og fór yfir gæsabú, sem þar er, og drap fjórar gæsir. Þá braut snjóflóðið einn háspennustaur.
Morgunblaðið segir einnig frá 13.febrúar (og gerir furðulítið úr veðrinu í inngangi):
Stórviðrið sem gekk yfir landið í fyrradag og í gær, olli minna tjóni en búast hefði mátt við. Bilanir á síma- og raflínum vorn smávægilegar, ekki var um neitt tjón á öðrum mannvirkjum að ræða, svo að Morgunblaðinu sé kunnugt um, og þar sem bátar lágu víðast hvar í höfn yfir helgina var minna um að bátar lentu í erfiðleikum en hefði getað orðið. Stórviðrið byrjaði á Vestfjörðum seinni hluta sunnudagsins og var vindur af norðaustri og komst upp í 1012 vindstig. Veðrið barst síðan austur, þannig að í gærkvöldi var hægur vindur á Vesturlandi, en norðvestanstormur, 9 vindstig að jafnaði á Norðausturlandi, og náði vestur í Grímsey. Þessu veðri fylgdi 89 stiga frost víðast hvar og var kælingin það mikil, að samsvaraði 3040 stiga frosti í logni. Rafmagnsbilanir voru ekki ýkja miklar, samkvæmt upplýsingum Baldurs Helgasonar, rafveitustjóra hjá Rafmagnsveitum ríkisins, en þær voru erfiðar viðureignar, því að veðrið gerði mönnum mjög erfitt fyrir með viðgerðir. Helsta bilunin varð á Vestmannaeyjalínunni, neðarlega á Landeyjasandi, skammt þar frá, sem dælustöðin fyrir Vatnsveitu Vestmannaeyja er og stöðvuðust því dælumar í um sólarhring, frá miðjum sunnudegi fram á miðjan dag í gær. Víða urðu nokkrar truflanir, bæði af völdum samsláttar og ísingar, en ekki var um neinar stórfelldar bilanir að ræða, svo að heitið gæti. Símalínur stóðust líka stórviðrið að mestu og þær bilanir, sem urðu, voru ekki alvarlegar, að sögn Ársæls Magnússonar, yfirdeildarstjóra hjá Landssímanum, en erfiðar viðureignar í þessu veðri og ekki hægt að gera við þær fyrr en það lægir. Í gærkvöldi var sambandslaust á þremur stöðum, á Raufarhöfn, á Hólmavík og inni í Ísafjarðardjúpi. Einnig var um að ræða línubilanir á Snæfellsnesi og í Barðastrandarsýslu, en þar var þó ekki sambandslaust. Ekki var vitað til þess að síma- eða rafmagnsstaurar hefðu brotnað í þessu veðri, og var það á allan hátt mun vægara línulögnunum en aftakaveðrið, sem gerði í lok október s.l., er miklar skemmdir urðu á síma- og raflínum og staurum.
Samkvæmt spá Veðurstofunnar í gærkvöldi var búist við litlum breytingum á veðrinu í dag frá því sem var í gær, enda er lægðin, sem veðrinu olli nú orðin það stór, að hún hreyfist lítið úr stað. Hún var óvenjudjúp eða 945 millíbör, og var stormurinn því svo mikill sem raun bar vitni.
Hér fara á eftir frásagnir fréttaritara Mbl. á þremur stöðum á landinu af veðrinu og afleiðingum þess á þessum stöðum, sem eru Stykkishólmur, Akureyri og Keflavik.
Stykkishólmi, 12. febrúar. Ofsaveður var hér í gær og í nótt, rok og stórhríð brast á um sexleytið í gær. Rafmagnsvírar slógu saman og varð því rafmagnið óvirkt af og til. Lítil not hafði fólk af kvikmyndinni í sjónvarpinu og varð að hafa vakt á rafstöðinni, vegna þessara truflana. Í nótt slitnaði mb. Gyllir, 26 lesta bátur, upp í höfninni og fór á land á klettarif og brotnaði þar talsvert. Aðrar skemmdir urðu ekki á bátum. Fréttaritari.
Akureyri, 12. febrúar. Hér skall á glórulaust moldviðri um tíuleytið í morgun með mikilli veðurhæð, fannkomu og frosthörku. Lengi dags var tæpast hægt að segja, að sæi milli húsa. Kennsla var felld niður um hádegi í gagnfræðaskólanum og barnaskólum bæjarins og bílar áttu í erfiðleikum víða um bæinn vegna slæms skyggnis og sums staðar vegna ófærðar. Rennsli Laxár í Þingeyjarsýslu snöggminnkaði í morgun og raforkuvinnsla þar með og hefur verið lengi dags um 2/3 af venjulegri raforkuvinnslu. Dísilstöðvarnar á Akureyri, Húsavík, Raufarhöfn og Hjalteyri hafa verið í gangi og framleitt eftir fremstu getu, en þó hefur orðið að skammta rafmagn á orkuveitusvæði Laxár frá því um hádegi. Svæðinu er skipt í þrennt og hvert hverfi fær rafmagn í fjórar stundir í senn, en er rafmagnslaust í tvær stundir þess á milli. Lítið hefur frést af ferðum manna um þjóðvegi í nágrenni bæjarins, enda má gera ráð fyrir að þeir séu flestir ófærir. 5060 manna hópur unglinga úr Æskulýðsfélagi Akureyrarkirkju var við Vestmannsvatn um helgina og lagði af stað heimleiðis síðdegis í gær, en eftir sjö tíma barning komst hópurinn með hjálp jarðýtu í heimavistarskólann á Stóru-Tjörn í Ljósavatnshverfi og hefur látið fyrirberast þar í dag. Sv.P.
Keflavik, 12. febrúar. Í nótt um kl.03 slitnaði mb.Skjöldur RE 8 frá hafnargarðinum í Njarðvíkurhöfn. Enginn var um borð í bátnum, en þrír skipverjar voru að reyna að komast um borð í mb. Valþór, sem einnig lá við hafnargarðinn, en ófært var að komast um borð vegna stöðugrar og mikillar ágjafar yfir hafnargarðinn. Um kl.04:15 hitti svo Keflavíkurlögreglan þessa þrjá skipverja uppi á veginum, þar sem þeir voru að reyna að ná í bíl til þess að tilkynna um strand bátsins. Báturinn liggur nú í fjörunni á Fitjum, milli Ytri- og Innri-Njarðvíkur, og má búast við frekari skemmdum á bátnum, því að sjaldan er kyrr sjór í þeirri höfn. Skjöldur er 47 lestir að stærð, smíðaður í Danmörku 1955. Eigandi er Skjöldur h.f. í Reykjavík. hsj.
Í þessu veðri fórst vélbáturinn Sjöstjarnan. Lengi höfðu menn von um að einhverjir hefðu komust af þannig að þessi atburður er fjölmörgum mjög minnisstæður. Tíminn segir frá 13.febrúar:
Þrátt fyrir víðtæka leit í sjó og úr lofti af tveim gúmmíbjörgunarbátum, sem í eru 10 eða 11 manns, af vélbátnum Sjöstjörnunni KE-8 hafa þeir ekki fundist. En báturinn sökk kl. 14 s.l. sunnudag um 100 sjómílur suðsuðaustur af Dyrhólaey. Vitað er að allir, sem um borð voru komust í björgunarbátana og heyrðist í neyðartalstöðvum þeirra rétt eftir að Sjöstjarnan sökk, en síðan heyrðist ekkert, bátarnir finnast ekki þótt leitarskip hafi verið fljót á staðinn. Sjöstjarnan var á leið frá Færeyjum. Um borð voru fimm Íslendingar, þar af ein kona, eiginkona skipstjórans, og fimm eða sex Færeyingar, sem eru á leið til Íslands til að vera hér á vertíð.
Erl-Reykjavik. Eftir margra vikna sumartíð hefur Vetur konungur tekið völdin í sinar hendur að nýju, svo sem menn hafa orðið varir við um helgina. Þó að Reykvíkingum hafi sjálfsagt þótt blása kalt í gær og fyrradag, fengu aðrir landsmenn að kenna öllu óþyrmilegar á kjúkum karls, einkum þó þeir, sem á norðanverðu landinu búa. Tíminn hafði í gær samband við nokkra af fréttariturum sinum, sem töldu þetta veður svo sem ekkert verra en menn ættu að venjast á miðjum vetri á Íslandi. Hvergi fréttist heldur af tjóni af völdum veðursins, en skólum var lokað nokkuð viða, og umferð tepptist að sjálfsögðu meira og minna. Svavar Jóhannesson á Patreksfirði sagði, að alla helgina hefði þar verið vonskuveður, og í gær og fyrradag var þar mikil hríð með 10 stiga frosti og hvassviðri af hánorðri. Allt var þar orðið ófært og ekki þýddi að hugsa til moksturs að óbreyttu veðri, sagði Svavar. Veðrið var síðdegis í gær farið að lægja nokkuð, en snjókoman hélst.
Í Bolungavik hefur verið vitlaust veður frá því síðdegis á laugardag, sagði Kristján Júlíusson okkur í gær, en þá var veðrið farið að lægja nokkuð. Héldi því áfram taldi Kristján, að bátar þeirra Bolvíkinga, sem farið var með til Ísafjarðar, þegar hann skall á, myndu halda heimleiðis aftur undir kvöldið. Hliðin lokaðist fljótlega eftir að veðrið hófst, en hún verður mokuð strax og lægir, taldi Kristján, en byrjað var að ryðja snjó af götum bæjarins í gær. Þá urðu og miklar rafmagnstruflanir í Bolungavik, og fór rafmagn af í fyrrinótt, en um hádegi í gær, var það komið aftur, og hélst stöðugt eftir það.
Hér er ekkert vitað um færð, en ég held að allt hljóti að vera að lokast, og enginn hefur reynt að hreyfa sig, sagði Jónas Jónsson á Melum í Hrútafirði, er við ræddum við hann í gær. Holtavörðuheiði var farin á sunnudag, en í gær var ekki vitað um neinn, sem á hana hafði lagt, enda veðurhæðin mikil og mikið kóf. Við vorum rétt búin að halda þorrablót í Staðarskála, sagði Jónas, enda jafngott að vera sloppin með það, svo að veðrinu tækist ekki að fresta því, eða eyðileggja fyrir okkur. Við erum nefnilega á allan hátt háð veðurfarinu hér í dreifbýlinu, eins og reyndar fleiri.
Á Skagaströnd var aftakavedur, að sögn Jóns Jónssonar fréttaritara okkar þar. Veðrið skall á eins og hendi væri veifað með mikilli veðurhæð, en snjókoman var ekki mikil, og flestar leiðir færar síðdegis í gær, að því er Jón taldi. Suðri var í höfninni er veðrið skall á, og þurfti að færa hann á milli bryggja, sem gekk slysalaust, enda þótt mikil ólga væri í sjó, og litlu hefði mátt muna svo að illa færi. Vestri var í vandræðum úti fyrir og vantaði miðun. Auk þess var skipið með vondan farm, eða plastkassa frá Noregi, þar af nokkuð á dekki. Tók því skipið mikið á sig og ísing var nokkur. Það varð úr, að Örvar fór út til að miða Vestra og reyndist hann þá vera úti á Skagagrunni, en því þurfti Örvar út, að höfðinn truflaði samband inn á höfn. Vestri kom svo upp undir land og lagðist í var. Svo illa tókst til að rafmagnið fór af Skagaströnd í miðjum Brekkukotsannál, og misstu því menn þar af 15-20 mínútum úr myndinni. Vonast þeir til að myndin verði endursýnd sem fyrst aftur, enda séu áreiðanlega margir til að styðja þá í þeim málum. Guttormur Óskarsson á Sauðárkróki, sagði að þar gæti ekki kallast kaffönn, þó að mikið væri búið að snjóa. Færð væri orðin erfið, og hefði hann ekki frétt af því að bílar hefðu komið framan úr sveit, en þar gæti það einnig ráðið um, hve hvasst væri og blindað, svo að vart sæi út úr augum í kófinu. Hér eru flestar götur ófærar, og ófært inn til Akureyrar, sagði Hilmar Daníelsson á Dalvik, en þar skall á norðan ofsaveður um fimmleytið í fyrradag, en var heldur farið að lægja undir kvöldið í gær. Rafmagnsskömmtun ríkti þar, eins og viðar á orkuveitusvæði Laxárvirkjunar, en í Laxá urðu einhverjar rennslistruflanir.
Á Húsavik ríkti bara ósköp venjuleg norðlensk stórhríð, eins og fréttaritari okkar, bormóður Jónsson, komst að orði í gær. Þar var áttin norðaustanstæð, og bærinn því að nokkru í skjóli, og kyrrð á höfninni. Ekki var Þormóði kunnugt um neitt tjón þar, frekar en mönnum, sem við ræddum við á öðrum stöðum, og mjólkurbílar höfðu komið úr lágsveitunum í gærmorgun. Á Snæfellsnesi og við Breiðafjörð var vonskuveður alla helgina, en þar höfðum við ekki spurnir af neinum sköðum frekar en annars staðar á landinu. Þá var í gær símasambandslaust við landið norðaustan og austanvert, en undir kvöldið var það viðast komið í lag. Að sjálfsögðu lágu bátar í höfnum allt land, þar sem óveðrið ríkti, og er því kyrrð á loðnumiðunum, og víðar, þar sem menn eiga allt sitt undir veðri.
JGK-Reykjavik. Í fyrrinótt slitnaði 47 tonna bátur Skjöldur RE 80 frá bryggju í Njarðvík. Enginn var í bátnum, sem rak upp í fjöru skammt frá og strandaði þar. Veður hefur verið slæmt á þessum slóðum og í gær var ekki vitað um skemmdir á bátnum, en þó höfðu menn góðar vonir um, að þær hefðu ekki orðið verulegar og að unnt yrði að bjarga honum, ef veður lægði. Skjöldur, sem hét áður Þorlákur 2., er eikarbátur smíðaður í Danmörku 1955. Eigandi bátsins er Skjöldungur h/f i Reykjavik.
Tíminn segir 14.febrúar frá meiri vandræðum:
Ofstopaveður af norðri hefur verið um nær allt land undanfarin dægur, stórhríð með mikilli fannkomu um nyrðri hluta landsins og frost átta til tíu stig. Í gær var hvassast á Vestfjörðum, víða ellefu vindstig, tíu í Reykjavik, en átta til tíu norðan lands og austan. Viðbúið er, að svipað veður verði enn um hríð, og sagði Páll Bergþórsson veðurfræðingur að tæpast væri þess að vænta, að norðanrokið lægði fyrr en á fimmtudag [15.]. Samgöngur liggja allar niðri í heilum landshlutum, fólk er veðurteppt hópum saman, skólar lokaðir í sumum bæjum og kauptúnum og miklar truflanir eru á raforkuvinnslu. Tólfti hluti venjulegrar orkuvinnslu.
ÞóReykjavík. Rafmagn er nú skammtað á öllu svæðinu frá Dalvik til Raufarhafnar, en það er orkuveitusvæði Laxárvirkjunar. Krapastíflur byrjuðu að myndast í Laxárdal í fyrrinótt, og við það minnkaði rafmagnsframleiðsla Laxárvirkjunar úr 12.000 kílóvöttum, sem er meðalframleiðsla virkjunarinnar, í 6.000 kílóvött. Svo var það klukkan rúmlega fjögur í gærdag, að stór og mikil krapastífla í Laxárdal, brast og við það fylltust inntakslón Laxárvirkjunar. Við þetta versnaði ástandið mjög og í gærkvöldi var framleiðsla virkjunarinnar ekki nema eitt til tvö þúsund kílóvött, sagði Knut Otterstedt rafveitustjóri í samtali við blaðið í gær. Hann sagði, að ástandið gæti enn versnað, því búast mætti við að önnur krapastífla í Laxárdal brysti og ef það gerðist væri virkjunin að mestu leyti óvirk. Annars er von til þess, að vélar virkjunarinnar vinni á krapanum með tíð og tíma, og þá eykst rafmagnsframleiðslan hægt og sígandi. Þegar við ræddum við Knut, sagði hann, að veðrið væri síst betra, en það hefði verið í fyrradag, og veðurhæðin væri meiri. Í gærmorgun var farið að skammta rafmagnið og er orkuveitusvæðinu skipti niður í þrjú svæði. Hvert svæði fær rafmagn í fjóra tíma, og síðan er rafmagnslaust í tvo tíma. Knut sagðist vilja taka það fram, að ekkert mætti út af bregða til þess, að rafmagnsskömmtunin færi úr skorðum, svo mikið álag væri nú á kerfinu.
Hér á Akureyri eru allir vegir ófærir og sömu sögu er að segja úr næstu byggðarlögum. Hingað hefur engin mjólk borist í dag, en í morgun lagði ýta af stað frá Dalvik með mjólkursleða í togi, og er hún ekki enn komin, sagði Erlingur Davíðsson á Akureyri, er við ræddum við hann á fjórða tímanum í gær. Hann sagði að glórulaus hríð væri búin að vera á Akureyri í tæpa tvo sólarhringa og að frostið væri nú 10 stig. Vegir á Akureyri mega nú heita ófærir og þótt snjóruðningstæki séu stanslaust að verki, hefur það lítið að segja. Helst er það, að menn geta brotist áfram á jeppum. Fólk hefur verið í vandræðum með að komast til vinnu og menn úr flugbjörgunarsveitinni hafa aðstoðað fólk við að komast áfram, meðal annars hafa þeir komið starfsfólki sjúkrahússins á vinnustað og af. Kennsla í gagnfræðaskólanum og barnaskólanum hefur legið niðri í tvo daga. Þó sagði Erlingur, að hann hefði frétt, að engin mjólk hefði komið til Húsavikur í gær, nema hvað reyna átti að nálgast mjólk úr Reykjahverfi, en óvist var talið að það tækist.
Snjóflóð í Dalsmynni. Menn sem þurftu nauðsynlega að komast til Akureyrar frá Húsavik og viðar úr Þingeyjarsýslu í gær, ætluðu að komast í gegnum Dalsmynni. Þegar mennirnir áttu skammt eftir að Skarði í Dalsmynni, var á vegi þeirra mikið snjóflóð, sem fallið hafði á veginn, sunnan við Skarð á 170 metra kafla. Urðu því mennirnir að snúa við og dvelja þeir núna í Stórutjarnarskóla i Ljósavatnshreppi.
Skólum frestað á Austurlandi. Hér hefur ekki sést á milli húsa i allan dag, og hefur svo verið síðasta sólarhringinn sagði Hilmar Thorarensen á Eskifirði. Hann sagði, að veðrið hefði skollið á í gærdag og í fyrrakvöld var svo hvasst á Eskifirði, að menn, sem voru að koma úr vinnu, urðu að styðja hvorn annan, ef þeir áttu að standa á fótunum. Í gærmorgun varð að nota snjóbíl til að flytja fólk til vinnu í frystihúsið og í síldarverksmiðjuna, og er þetta í fyrsta skipti, sem snjóbil þarf til að flytja fólk á vinnustað á Eskifirði. Nokkrir loðnubátar liggja í höfn á Eskifirði, en margir bátar, sem þar lágu, létu úr höfn í fyrradag til leitar að áhöfn Sjöstjörnunnar frá Keflavik. Benedikt Guttormsson í Neskaupstað sagði, að þar væri búin að vera iðulaus stórhríð í tæpa tvo sólarhringa og frostið væri 12 stig. Mikil snjókoma hefur fylgt þessu veðri en snjó hefur ekki fest verulega, þar sem hann hefur fokið jafnóðum í átt til sjávar. Kennslu var aflýst i barnaskólanum í Neskaupstað í gær, þar sem ekki var talið ráðlegt að láta börn fara ein í skólann.
JGK-Reykjavik. Er blaðið hafði samband við fréttaritara sinn á Ísafirði, Guðmund Sveinsson, síðdegis í dag, var þar iðulaus stórhríð. Í gær hafði veðrið lægt og var bjart veður í gær og nótt og fóru allir bátar á sjó. Þeir voru þó ekki komnir nema út i Djúpmynnið, þegar aftur brast á og sneru þá flestir við til hafnar. Þó héldu nokkrir áfram og munu þeir hafa lent í einhverjum erfiðleikum. Vitað var að Víkingur 3. frá Ísafirði hafði misst linu. Bátarnir voru á leið til hafnar, þegar við töluðum við Guðmund. Ófært er nú um allt nágrenni Ísafjarðar, bæði sakir ófærðar og dimmviðris. Lítilsháttar snjóskriða féll í Tunguskógi og tók með sér sumarbústað, en um annað tjón er ekki vitað í landi. Rafmagn hefur verið með eðlilegum hætti á Ísafirði.
Rafmagnsskortur. Stefán Eggertsson á Þingeyri sagði, að óveðrið hefði skollið aftur á seinnihluta nætur, eftir að hafa legið niðri um hríð, og í dag hefði verið þar iðulaus stórhríð. Laust fyrir hádegi féll snjóflóð við eyðibýlið Rauðsstaði við Arnarfjörð og braut fimm rafstaura. Rauðsstaðir eru næsti bær við Mjólkárvirkjun og er nú rafmagnsskortur á orkuveitusvæði hennar norðan Arnarfjarðar. Varastöðin biluð. Enginn bátur var á sjó frá Flateyri, þegar við höfðum tal af Trausta Friðbertssyni, fréttaritara okkar þar. Flateyrarbátar lögðu allir af stað til veiða, er vedur hægðist, en sneru við þegar brast á. Tvær díselstöðvar eru staðsettar á Flateyri, en svo óheppilega vill til, að sú sterkari, sem er 750 hestöfl, er biluð og var flutt til Reykjavikur í gær. Eru því Vestfirðingar verr undir það búnir að mæta rafmagnsskortinum en ella. Minni stöðin á Flateyri er í gangi, en sú er 450 hestöfl. Rafmagnslaust á Bolungavik Héðan er litið gott að frétta, sagði Kristján Júlíusson á Bolungavik. Bátarnir lögðu af stað á sjó, en sneru aftur nema Hafrún, sem er ekki komin að landi ennþá, en allt mun vera i lagi um borð. Þeir á Hafrúnu urðu fyrir veiðarfæratjóni í gær eða fyrradag og mun hafa ætlað að reyna að hafa uppi á þeim í dag, en það er ólíklegt að það hafi tekist. Það hefur verið glórulaust veður hér í dag og mestan part höfum við verið rafmagnslausir. Veðurhæðin hefur sennilega verið eitthvað um 7-8 vindstig.
ÞJ-Húsavik. Þriðjudag. Ekkert lát er enn á stórhríðinni, sem brast á seinni hluta sunnudagsins. Aðeins hefur þó dregið úr veðurhæðinni en snjókoma og dimmviðri hefur aukist. Í gær komust aðeins fjórir mjólkurbílar til Húsavikur. Mjólkurbílar úr Bárðardal, Ljósavatnshreppi og Mývatnssveit komust ekki með mjólk. Í dag verður reynt að sækja mjólk úr Reykjahverfi, en ekki er gert ráð fyrir, að mjólk berist til Húsavíkur í dag annars staðar frá. Fjöldi fólks er veðurtepptur í skólanum að Stóru-Tjörnum i Ljósavatnshreppi og hefur hafst þar við síðan á sunnudagskvöld. Stærsti hópurinn er um 70 skólabörn frá Akureyri, sem dvöldu í búðum kirkjunnar að Vestmannsvatni yfir helgina. Annað veðurteppt fólk í skólanum var ýmist á leið frá Akureyri til Húsavíkur, eða á leið úr Þingeyjarsýslu til Akureyrar, þegar veðrið skall á. Nóg húspláss er í skólanum, því að skólabörnin þar komust ekki í skólann úr helgarfríi sinu, utan börn frá Grenivik, sem voru komin í tæka tíð. Húsvíkingarnir, sem dvelja í skólanum ætla að reyna að brjótast heim í dag með aðstoð snjóbils. Ekki er vitað hversu mikill snjór er á vegum og engin leið að kanna það að svo stöddu sakir dimmviðris.
Morgunblaðið segir 14.febrúar - að hluta til af sömu atburðum:
Aftakaveður geisaði enn á öllu landinu í gær, og kom það enn verr við aðra landshluta en Suðurland. Allir þjóðvegir eru nú ófærir, nema vegir út frá Reykjavík vestur á Snæfellsnes og austur í Vík í Mýrdal, innanlandsflug lá niðri í gær og rafmagnstruflanir og rafmagnsleysi gerðu víða vart við sig, einkum á Norðurlandi, þar sem raforkuframleiðsla Laxárvirkjunar var í lágmarki. Sunnanlands var farið að bera á tjóni af völdum veðursins, t.d. var talsvert um skemmdir á húsum í Mosfellssveit og á Kjalarnesi. Samkvæmt frásögn fréttaritara Morgunblaðsins á Akureyri var ennþá mjög hart veður þar í gær og mikil frostharka, en aðeins virtist vera farið að draga úr veðrinu í gærkvöldi. Rafmagnsskömmtun var ennþá á orkuveitusvæði Laxárvirkjunar og var orkuframleiðslan í Laxárvirkjun orðin mjög lítil síðdegis í gær, eftir að krapastífla hafði brostið og fyllt inntak virkjunarinnar. Orkuframleiðslan, sem venjulega er um 15.000 kílóvött á klukkustund, var komin niður i 12000 kílóvött, en í gærkvöldi var hún aðeins farin að aukast aftur. Kennsla var felld niður í öllum skólum á Akureyri í gær, nema í Menntaskólanum, og viðast annars staðar á Norðurlandi var kennsla í skólum felld niður. Er ósennilegt, að hún verði hafin að nýju fyrr en rafmagnsskömmtun linnir, því að skólabyggingarnar, eins og flest önnur hús, þurfa rafmagn til að hægt sé að halda kyndingarkerfum gangandi. Víða í Akureyrarbæ var talsverð ófærð á götum og fólksbílar áttu í erfiðleikum innanbæjar, en reynt var að halda helstu götum bæjarins opnum og notaðir við það snjóplógar og vegheflar. Björgunarsveit var í gærmorgun kvödd út til aðstoðar lögreglunni til að hjálpa við að koma öryggisþjónustufólki til vinnu, á sjúkrahúsinu og viðar.
Raunar má segja, að viðast hvar á landinu, nema sunnanlands, hafi ástand verið að mestu leyti svipað og á Akureyri. Fréttaritari Morgunblaðsins við Ísafjarðardjúp símaði, að þar hefðu orðið talsverðir fjárskaðar í óveðrinu. Veðrið skall mjög skyndilega á um miðjan dag á sunnudag og áttu mangir bændur fé úti, Tókst að ná flestöllu fénu í hús.
Tíminn heldur áfram 15.febrúar:
KJReykjavik. Það ætlar ekki af nýju Búrfellslinunni að ganga, því þegar til átti að taka í gær, var línan ónothæf, og þess vegna var orkuveitusvæði Landsvirkjunar rafmagnslaust í nærri fjóra tíma. Í nýju línunni eru fjórir vírar, og er sá fjórði svokallaður jarðvír. Þessi vír er efst á stálgrindamöstrunum, og það var hann, sem féll til jarðar undir Ingólfsfjalli í veðurofsanum í fyrrinótt. Lá vírinn m.a. á veginum, við vegamótin upp í Grímsnes og Biskupstungur hjá Selfossi. Fannst mörgum Sunnlendingnum það ógnvekjandi að sjá hvar vírinn hafði fallið á veginn, hvort sem það telst hættulegt eða ekki. Í frétt frá Landsvirkjun segir m.a. svo um þetta atriði: Eins og áður hefur verið sagt í fréttum, var nýja Búrfellslinan prófuð í fyrri viku og reyndist vel. Þegar til átti að taka, var hún hins vegar ekki straumhæf eins og áður segir. Orsökin var sú, að jarðvír linunnar slitnaði undan Ingólfsfjalli, og stafar það af galla í hönnun á festingum jarðvírsins. Landsvirkjun hafði fyrir alllöngu bent verktakanum á þetta, og lofaði hann úrbótum eins fljótt og unnt væri. Því miður var þessum endurbótum ekki lokið, þegar framangreind bilun varð en áætlað er að nýja línan verði straumhæf innan sólarhrings. Það skal skýrt tekið fram, að lagningu nýju Búrfellslinunnar er enn ekki að fullu lokið, og er línan því algjörlega á ábyrgð verktakans. Hins vegar er og verður reynt að hafa línuna straumhæfa með stuttum fyrirvara, ef til hennar þyrfti að gripa, á meðan á fullnaðarfrágangi stendur.
Orsök rafmagnsbilunarinnar á orkuveitusvæði Búrfellsvirkjunar var sú, að bilun varð í tengingu í spennistöðinni ofan við Geitháls, og þar með fékk svæðið enga orku frá Búrfelli. Ætlunin var þá að veita meiri orku á Sogslínuna, til að Reykjavik og nágrenni yrði ekki alveg rafmagnslaus, en þá vildi svo illa til að spennir brann yfir austur við Sog. Það stóðst svo á endum að viðgerð var lokið á báðum stöðunum um líkt leyti, en þá var líka búið að vera rafmagnslaust í nærri fjóra tíma meira og minna. Eins og venjulega, var litið um að íbúar á suðvesturhorni landsins heyrðu í Útvarp Reykjavik, meðan á straumleysinu stóð, og því hefði yfirvöldum gengið illa að koma áriðandi tilkynningu til helmings landsmanna í fjóra tíma. Aftur á móti má geta þess, að allan tímann hélt Keflavikurútvarpið áfram útsendingum sinum, enda eru vararafstöðvar á Keflavikurflugvelli, sem taka við ef Landsvirkjunarrafmagnið fer.
ÞÓReykjavik. Háspennulinan frá Laxárvirkjun til Akureyrar slitnaði um klukkan 00:30 í fyrrinótt. Rafveita Akureyrar hóf þá þegar stranga skömmtun, og átti að reyna að láta einn þriðja hluta bæjarins hafa rafmagn í einu. Þetta tókst ekki, þrátt fyrir það, að iðnfyrirtæki fengu ekki rafmagn. Varð að taka það til bragðs, að láta aðeins einn fjórða hluta bæjarins fá rafmagn hverju sinni í tvo tíma, og síðan var hver bæjarhluti rafmagnslaus í sex klukkustundir. Ekki tókst þetta samt nógu vel, og sum svæði voru að mestu leyti rafmagnslaus þar til viðgerð á háspennulínunni lauk klukkan fjögur í gær. Knútur Otterstedt, rafveitustjóri á Akureyri sagði í gærkvöldi, að háspennulinan hefði slitnað í austanverðri Vaðlaheiði. Voru menn sendir strax upp á heiði, og fundu þeir bilunina fljótlega. Þessir menn hófu þegar viðgerð, sem gekk vel, þrátt fyrir það að veður væri mjög slæmt.
KJ-Reykjavik. Hálf er óhrjálegt í mörgum húsum þegar rafmagnið fer. Það er ekki aðeins það, að ekki sé rafmagn í húsunum til ljósa og eldunar, heldur er þá ekki heldur hægt aö kynda upp húsin, þar sem olíukynding er, og sumstaðar verður líka vatnslaust. Þannig er þessu t.d. farið i sumum hlutum Garðahrepps eða í þeim húsum, sem hæst liggja. Dælurnar, sem dæla neysluvatninu í húsin, eru rafknúnar, og þar sem engin vatnsmiðlunartankur er fyrir vatnsveituna, verður fljótlega vatnslaust, ef rafmagnið svikul. Vatnsból hreppsins er skammt frá Vífilsstaðavatni, og þaðan þarf að dæla. Íbúarnir í Garðahreppi, sem búa í húsum, sem liggja hátt, sögðu Tímanum í gær, að af einhverjum orsökum þá kæmi kalda vatnið ekki aftur, fyrr en eftir dúk og disk, ef rafmagnið færi, og þannig var vatnið t.d. ekki komið um hádegið í gær, þótt rafmagnið hefði komið um klukkan tíu. Í ráði mun að reisa miðlunarvatnsgeymi í Garðahreppi, og ætti þá vatnsleysi í kjölfar rafmagnsleysis að vera úr sögunni.
ÞÓ-Reykjavik. Langferðabíll frá Sæmundi í Borgarnesi fauk út af veginum rétt við Fiskilæk i Melasveit á tólfta tímanum á sunnudagskvöld. Langferðabíllinn var á leið til Borgarness, þegar þetta átti sér stað. Tiltölulega fáir farþegar voru í bílnum, sem valt niður fyrir veginn. Ökumaðurinn meiddist lítillega og var hann fluttur í sjúkrahúsið á Akranesi, en farþegar munu ekki hafa meiðst neitt að ráði.
Morgunblaðið segir af tjóni í pistli 15.febrúar:
Stórtjón varð í Mosfellssveit í óveðrinu í fyrrinótt. Mesta tjónið varð við nýja gagnfræðaskólann, sem þar er í smíðum, en víðar í sveitinni urðu skemmdir á mannvirkjum og eignum, að sögn fréttaritara Morgunblaðsins, Péturs Hjálmssonar. Pétur taldi, að milljónatjón hefði orðið á gagnfræðaskólanum í óveðrinu. Þar brotnuðu flest allar rúður á norðausturhlið skólans og með þeim afleiðingum að innveggur í skólanum hrundi vegna loftþrýstingsins, sem þannig myndaðist. Auk þess skemmdist þakið mjög verulega, því að pappi fauk af því, svo og þakgluggar. Víðar í sveitinni urðu töluverðir skaðar. Þakhlutar og bárujárn fauk af gömlum og nýjum húsum, auk þess sem mjög mikið var um rúðubrot vegna grjótfoks og veðurofsa. Raflínur slitnuðu víða í sveitinni þegar járnplötur fuku á þær Þá skemmdust gróðurhús víða í sveitinni. Þannig skemmdist nýtt gróðurhús að Reykjum, og einnig nokkur í Mosfellsdal, bæði á Laugarbóli og Dalshverfi. Loks urðu skemmdir á allmörgum bílum þegar rúður brotnuðu og lakk rispaðist vegna grjót- og sandfoks.
Í stinningskaldanum undanfarið hefur eðlilega mikið mætt á Hitaveitu Reykjavíkur en hún varð fyrir tveimur skakkaföllum á síðasta sólarhring vegna rafmagnstruflana og varð því talsverður skortur á vatni um tíma. Þó var vonast til þess að jafnvægi væri - að nýju komið í kerfið nú í nótt. Jóhannes Zöega, hitaveitustjóri sagði í viðtali við Morgunblaðið í gær, að starfsemi Hitaveitunnar hefði gengið eðlilega fyrir sig þrátt fyrir kuldann, þar til á þriðjudagskvöld, að rafmagnsbilun við Reyki olli því að Reykjavatnið fór út úr kerfinu og þá um leið varastöðvamar, sem eru einnig tengdar því kerfi. Þó tókst fljótlega að gera við þá bilun og var allt komið í eðlilegan gang um miðnætti. En um hálfsjöleytið í gærmorgun varð önnur rafmagnsbilun nú uppi við Geitháls og við það stöðvaðist öll framleiðsla hitaveitunnar og safngeymarnir á Öskjuhlíð tæmdust. Að sjálfsögðu olli þetta því, að hiti fór af þorra húsa á höfuðborgarsvæðinu, en síðdegis í gær var þó framleiðslan komin í fullan gang nema helst í hluta gamla bæjarins, sem fær vatn sitt úr safngeymunum á Öskjuhlið. Jóhannes Zöega, hitaveitustjóri, kvaðst þó vonast til að komið yrði jafnvægi í veitukerfið með kvöldinu eða í nótt, ef ekkert óvænt gerðist og setti strik í reikninginn á nýjan leik.
Þórshöfn, 16.febrúar. Síðastliðinn sunnudag [11.] gekk hér í norðan aftakaveður, sem stóð stanslaust í þrjá og hálfan sólarhring. Aðfaranótt þriðjudagsins [13.] var brimið orðið svo mikið að með ódæmum var. Sjö bátar voru bundnir við hafskipabryggjuna og daginn áður voru sjómenn búnir að binda þá eins vel og nokkur kostur var. Sjór gekk stöðugt yfir bryggjuna og virtist þar engum manni vært. Um kl.01:30 slitnuðu svo tveir bátar frá bryggjunni og rak þá mannlausa upp í stórgrýtta fjöru sunnanvert við kauptúnið. Mikil ísing hlóðst á þá báta, sem eftir urðu við bryggjuna og skömmu síðar hvolfdi einum þeirra undan þunganum og sökk hann þegar. Þegar hér var komið, tóku sjómenn það ráð, að róa á litlum báti þvert yfir höfnina til að freista þess að komast um borð í þá fjóra, sem eftir voru, því að einsýnt þótti að þeir myndu allir fara sömu leið. Þetta tókst vel og mátti ekki tæpara standa. Börðust sjómennirnir hvíldarlítið í sólarhring við að berja ísinn af bátunum, en þá fór veðrið að ganga niður. Bátarnir sem rak á land eru Fagranes ÞH 123, 50 lesta stálbátur og Skálanes ÞH 190, 36 lesta eikarbátur. Báðir þessir bátar voru nýlegir og er verðmæti þeirra á milli 30 og 40 milljónir króna. Þetta voru tveir stærstu bátarnir hérna og má því heita áð stoðunum hafi verið kippt undan atvinnulífi þorpsins í bili með þessum atburðum. Báturinn, sem sökk var Snætindur ÞH 120, 5 lesta trébátur, Óli.
Tíminn segir 17.febrúar af snjóflóði á Ströndum og fleiri vandræðum af völdum veðursins:
GV-Bæ, Trékyllisvik. Að morgni s.l. sunnudags [11.] féll snjóflóð á véla- og vörugeymslu á Munaðarnesi og eyðilagði hana. Snjóað hafði töluvert að suðaustan um nóttina og kembt fram af brúninni og varð mikið snjóflóð í Munaðarneshlið og svo snjóflóðstunga heim við bæinn, þar sem vélageymslan var. Fyrir tveim árum féll snjóflóð á vélageymsluna á þessum sama stað, en ekki er vitað til að snjóflóð hafi fallið þarna nema í þessi tvö skipti. Í geymslunni var bili, dráttarvél og snjósleði, auk þess matvæli, svo sem kjöt, fiskur og fóðurvörur. Tjónið er ekki að fullu kannað, þó er talið að ekki hafi orðið varanlegar skemmdir á tækjum, en matvara og fóðurvörur skemmdust nokkuð. Um miðjan síðastliðinn sunnudag renndi snögglega á með aftakaveðri og snjókomu. Stóð það veður í fjóra daga, eða þar til í gær, að birti upp og hægði. Skemmdir urðu á símalínum og varð símasambandslaust um sveitina. Með herkjum tókst að koma símasambandi á milli bæja seint á miðvikudag. Slæmt samband var þó viða. Í gær átti að fá Björn Pálsson í sjúkraflug hingað norður til að sækja sjúkan mann. Leiðin á flugvöllinn á Gjögri var rudd í gær. Snjór var það mikill, að ekki tókst að ljúka því verki, enda líka komið vont flugveður í Reykjavik. Í dag er vestan rok og snjókoma. Verður því að biða með flug þar til veður og skilyrði batna.
ÓH Gunnarsstöðum. Þórshöfn varð fyrir þungu áfalli í norðanveðrinu í byrjun vikunnar. Tvo stærstu bátana rak upp í fjöru, og er hætt við, að þeir séu gerónýtir, auk þess sem litill bátur sökk. Öðrum bátum, sem lágu við bryggju, tókst að bjarga með miklu áræði og harðfengi. Skarðið, sem höggvið hefur verið í bátaflotann, er mjög tilfinnanlegt, og mun meðal annars hafa í för með sér mikla atvinnuskerðingu á Þórshöfn í vetur. Það var síðastliðið sunnudagskvöld að á brast mikið norðanveður hér á Norðausturlandi, og færðist það í aukana er kom fram á mánudag, og gerði þá foráttubrim. Allur bátaflotinn á Þórshöfn lá við bryggju, og þegar veðrið herti, var farið að fjölga landfestum og treysta þær, ef það gæti bjargað bátunum. Að þessu var unnið fram á mánudagskvöld. Með kvöldinu gekk vindur meira til norðvesturs, og með kvöldflóðinu varð með öllu ófært niður bryggjuna, því að linnulaust gekk yfir varnargarðinn, svo að hún færðist i kaf. Hefði öllum verið bráður bani búinn, er þá hefðu ætlað að hætta sér þar fram. Menn áttu þess því ekki annan kost en biða átekta og sjá, hverju fram yndi. Á fjörunni á þriðjudagsnóttina slitnuðu tveir stærstu bátanna frá bryggjunni og köstuðust upp í fjöru. Annar þeirra var Fagranes, fimmtíu lesta stálbátur, smíðaður á Seyðisfirði árið 1969, eigandi Árni Helgason skipstjóri mikið aflaskip, sem flutt hafði áttatíu lestir af fiski að landi frá áramótum. Hinn var Skálanes, þrjátíu og fjögurra lesta eikarbátur, smíðaður í Stykkishólmi 1970, eigendur Kjartan Þorgrímsson skipstjóri, Kristján Karlsson vélstjóri og fleiri. Sennilegt er, að hvorugur þessara báta komist aftur á sjó, þótt ekki verði sagt um það með fullri vissu, þar sem skoðunarmenn eru ekki enn komnir hingað. Þar að auki sökk við bryggjuna sex lesta bátur, Snætindur, eign Þorgríms Kjartanssonar, en þeir Þorgrímur og Kjartan eru feðgar. Tjón þessara manna er gífurlegt, sem og áhafnanna á bátunum og þorpsins alls. Litlanes, Geir, Björg og einn eða tveir til viðbótar voru í bráðri hættu vegna hafrótsins. Var þá gripið til þess ráðs að manna árabát, sem gefinn var út í böndum og róið með, og tókst þannig með mesta harðfengi og við mikla áhættu að komast út í bátana, að nokkru leyti i vari við síldarverksmiðju, er þarna stendur. Voru þarna að verki bæði menn af þeim bátum, sem eftir héngu við bryggjuna, sem og þeim, er upp rak. Þegar var hafist handa um að brjóta klaka af bátunum og treysta festar. Var það þó ekki árennilegt verk í stórhríð og hörkufrosti og slíku hafróti, að holskeflurnar ginu yfir hafnargarðinum eins og í fjall sæi. Í þessum hamförum tepptust allar samgöngur, raflinur og símalinur biluðu. Hefur verið símasambandslaust milli Þórshafnar og Reykjavikur frá því á mánudaginn, þar til nú í morgun, sagði Óli Halldórsson á Gunnarsstöðum við Tímann í gær. Á fimmtudaginn var vegurinn frá Þórshöfn að Gunnarsstöðum ruddur, en í gær fór að hvessa á ný og allt orðið ófært aftur.
Svo eru fréttir af næstu veðrasyrpu, við leyfum okkur að leggjast í hrakningafréttir og fleira. Tíminn 20.febrúar:
Það var í hvassara lagi i Hafnarfirði í fyrramorgun [18.], þegar togarinn Haukanes slitnaði frá bryggju, þar sem hann lá við landfestar, rammlega bundinn. Það er raunar varla rétt að segja, að hann hafi slitnað frá. Það voru sem sé pollarnir, sem rifnuðu upp úr bryggjunni, þótt þeir sýnist allsterklegir. ... Skipið barst síðan að landi stuttan spöl og staðnæmdist með síðuna við grjótgarð framan við eina götu bæjarins. Haukanesið náðist út á flóði í gærmorgun og mun ekki mjög mikið skaddað.
Í norðaustan [hér er farið rangt með vindátt - vindur stóð af vestsuðvestri] rokinu aðfaranótt sunnudags s.l. [18.] gekk sjór yfir Skúlagötu og Ánanaust. Ekki var hægt að aka þessar götur þegar verst lét. Á Skúlagötunni var sjórótið svo mikið, að gangstéttarhellur á nyrðri gangstéttinni losnuðu og þeyttust allt yfir á gangstéttina hinum megin, en þarna er Skúlagatan svo breið að fjórar akreinar eru á henni. Á háflóðinu um nóttina var Ánanaust nær á kafi í sjó, og náði flóðið allt inn á enda Sólvallagötu. Talsvert af grjótinu í fjörunni rótaðist upp á veginn, sem varð óökufær. Á sunnudagsmorgun var unnið með ýtum og heflum frá borginni við að ryðja göturnar, og komst umferð um þær brátt í gott horf eftir að fjaraði út og storminn lægði.
GS Ísafirði. Á Ísafirði og í nágrenni hefur verið stöðug ótíð síðustu tíu daga, nema á fimmtudag í fyrri viku [15.], og i dag, mánudag [19.]. Mikil snjókoma hefur verið og veldur snjórinn erfiðleikum. Ein flugvél kom á fimmtudaginn, en í dag, mánudag, komu fjórar flugvélar, og eru elstu blöðin, sem með þeim komu orðin tíu daga gömul. Á fimmtudaginn ætlaði 30 manna hópur nemenda úr gagnfræðaskólanum á Ísafirði að fara í skoðunarferð til Reykjavikur, og höfðu nemendurnir safnað fyrir fargjaldinu í vetur með ýmsum hætti. Helmingur hópsins komst með Flugfélagsvélinni, sem kom á fimmtudaginn, en hinir fimmtán voru beðnir að bíða á flugvellinum eftir vél, sem væri að koma, en hún kom aldrei, þrátt fyrir indælisveður á Ísafirði. Skólastjórinn, Jón Ben, beið allan daginn úti á flugvelli, en hópurinn sem komst með flugvélinni, var í reiðileysi í Reykjavik. Við vitum, að það er erfitt að fljúga, en okkur finnst óþarfi að láta þetta henda.
Það blés heldur napurt um fólkið sem lagði af stað yfir Holtavörðuheiði á laugardagsmorgun [17.]. Þá lögðu upp úr Hrútafirðinum 30 bilar, þ.á m. tveir bílar Norðurleiðar. Alls munu þarna hafa verið 70 manns. Fyrir lestinni fóru jarðýta og veghefill og stjórnaði ýtustjórinn Gunnar í Hrútatungu ferðinni, en hann þekkir heiðina flestum mönnum betur. Frásögnin, sem hér birtist.er höfð eftir einum bilstjóranna, Gísla Sigurgeirssyni frá Akureyri. Bílarnir tóku að safnast saman við Staðarskála á föstudagskvöld, en ekki þótti vegagerðarmönnum fýsilegt að ráðast í heiðina um nóttina, enda höfðu þeir verið allan daginn að hjálpa bílum sunnan yfir og lent í erfiðleikum. Fólkið svaf því í Staðarskála um nóttina og mátti segja með sanni að þá væri setinn Svarfaðardalur. Um morguninn var lagt af stað upp á heiði. Strax og komið var að svonefndu Miklagili fór veður að versna og brátt kominn blindbylur. Þegar komið var upp að hliðinu á mæðiveikigirðingunni, sem er norðan í heiðinni, fréttu bílstjórarnir af því í talstöðvum sinum að bilar væru á leiðinni sunnan yfir og hefðu lagt upp frá Fornahvammi um morguninn Var þá ákveðið að staldra við og biða meðan ýtan færi á móti þeim og hjálpaði þeim norður yfir. Þegar því var lokið var enn haldið áfram en fljótlega varð ljóst að það var óvinnandi verk vegna ofviðris og dimmviðris, sem var slíkt að ekki sást vegurinn framan við bílana. Var numið staðar neðan við svokallaða Konungsvörðu, sem er norðan í heiðinni. Giskuðu menn á, að veðurhæðin væri 10-12 vindstig. Var tekið það ráð, að snúa annarri rútunni við með hjálp ýtunnar og halda aftur niður í Hrútafjörðinn. Fikruðu menn sig á milli með hjálp kaðla og urðu að gæta þess að verða ekki viðskila við hópinn en þar voru m.a. konur og börn. Þetta tókst þó giftusamlega og var komið aftur niður að Staðarskála undir kvöld. Um nóttina dreifði fólkið sér niður á svefnstaði, sváfu margir á Reykjaskóla, einnig var gist á Staðarskála, Brú og nokkrum sveitabæjum í Hrútafirðinum. Á sunnudaginn var svo lagt upp að nýju eftir hádegið og fóru bílstjórarnir fyrst með rútunni þangað sem bílarnir voru skildir eftir en rútan sneri við til að ná í farþegana. Aðkoman að bílunum var ekki glæsileg og sagði einn sá reyndasti í hópi bilstjóranna, að hann hefði ekki komið að bílum við verri aðstæður. Bæði hafði snjór barist upp að þeim og annað hitt að vélarhlífar voru fullar af snjó. Tók margar klukkustundir að gangsetja bílana og lögðu þeir fyrstu ekki af stað fyrr en á sjöunda tímanum á sunnudagskvöldið. Var lögð áhersla á, að bílarnir færu af stað um leið og þeir kæmust í gang því veður fór versnandi og tíminn dýrmætur, ef sagan frá því daginn áður átti ekki að endurtaka sig. Allir komust bílarnir niður af heiðinni og gekk ferðin vel upp frá því. Komu fyrstu bílarnir til Reykjavikur um tvöleytið á aðfaranótt mánudagsins. Gísli sagði að lokum, að það hefði komið illa við fólkið, að meðan á hrakningunum stóð hafi það hlustað á mjög villandi fréttir af ferðalaginu í útvarpi. Þannig hafi verið sagt í hádegisfréttum á laugardag, að fólkið væri á leið suður yfir Holtavörðuheiði í góðu veðri. En meðan fólkið hlustaði á þessi tíðindi var veðrið á heiðinni slíkt, að ekki sást út úr augunum. J.G.K.
Þennan vetur voru stöðug sjóslys. Tíminn 23.febrúar:
Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík bjargaði 12 manna áhöfn loðnuveiðiskipsins Gjafars VE-300, en báturinn strandaði á vestanverðu Hópsnesi, skammt frá Grindavík, aðfaranótt fimmtudagsins [22.]. Björgunaraðstæður voru erfiðar, vestanrok og mikið brim. Varð að draga mennina yfir og gegnum brimskaflana og voru þeir að vonum kaldir og hraktir, þegar þeir komust á land, en allir ómeiddir að kalla. Gat kom á botn skipsins og fylltist það af sjó. Flestir mennirnir á Gjafari eru frá Vestmannaeyjum.
Tíminn segir 28.febrúar af snjóflóði á Súðavík - og hve furðurólegir menn virðast hafa verið þrátt fyrir augljósa hættu - Veðráttan setur flóðið á þann 11.:
HM-Súðavik. Hér hafa mikil veður geisað í hálfan mánuð, enda er allt á kafi í snjó. Á Súðavíkurhlíð hefur hvert snjóflóðið rekið annað, og úr gili hér beint ofan við kauptúnið, Traðargili, komu óhemjumiklar snjódyngjur á dögunum. Í þetta gil safnast mikill snjór i norðaustanátt, og voru þar komnar óskaplegar hengjur, er allt brast fram. Komst snjóflóðið lengra niður en við vitum áður dæmi um. Stöðvaðist það ekki langt ofan við húsin, en olli þó ekki öðru tjóni en því, að ein fjárhúshlaða brotnaði. Samgöngur hafa að mestu leyti legið niðri í þessum harðindakafla, en ekki hafa snjóflóðin, sem komið hafa á Súðavíkurhlíð, og raunar einnig í Skutulsfirði, valdið neinu tjóni, enda hafa staðkunnugir menn vara á sér, þegar svo stendur á, sem nú hefur verið.
Veðráttan segir að þann 27. hafi um 80 bílar skemmst í ófærð á höfuðborgarsvæðinu. Þann 28. fórst vélbáturinn Íslendingur við Dritvíkurflös með tveimur mönnum. Kópanes strandaði við innsiglinguna í Grindavík, mannbjörg varð.
Mars varð öllu skárri en febrúar. Ingibjörg í Síðumúla lýsir tíð:
Fyrstu vikuna var alhvít jörð og harðindi. Dagana á eftir var að mestu frostlaust og nokkuð hlýtt. Þó veður væru mild þennan kafla, einkenndist tíðin (þó) af hráslaga og dimmu. Þann 23. breytti aftur um með frosti og snjó og nú um mánaðamót er jörð næstum alhvít. Víðast er haglaust. Vegir voru færir allan mánuðinn nema fyrstu vikuna.
Tíminn segir af ófærð 2.mars:
KJ-Reykjavik. Í gær var unnið að því á Holtavörðuheiði og víðar á Norðurlandsvegi að jafna úr ruðningunum meðfram veginum, til að minnka hættuna á að vegurinn lokaðist skyndilega, ef frost herti og hvessti. Voru ruðningarnir sumstaðar 2ja-3ja metra háir. Einstaka bíll braust yfir Holtavörðuheiði í gær, en færð var viða mjög erfið. Í dag er reglulegur mokstursdagur á leiðinni norður í land, og ráðgerði Vegagerðin að gera leiðina færa í dag. Hellisheiði lokuð. Frá því um miðjan dag þriðjudag [27.febrúar], hefur nýi vegurinn um Hellisheiði verið ófær, og í gær var ekkert farið að ryðja þar, en aftur á móti voru Þrengslin vel fær, enda þótt töluvert hafi þurft að ryðja á þeirri leið frá því mikla snjókoman var á þriðjudaginn [27.]. Hæðarmismunurinn á veginum um Þrengsli og nýja veginum yfir Hellisheiði er um 110 metrar, og má því búast við að mikill snjór sé á Hellisheiðarveginum. Töluverðan tíma getur tekið að ryðja veginn, þar sem hann er breiður á köflum, og ekki dugar bara að stinga i gegn eina bílbreidd eða svo, heldur verður að gera tvöfalda akbraut, svo umferðin gangi eðlilega.
Enn vandræði í höfnum og á sjó. Tíminn 3.mars:
Skemmdir urðu á mörgum bátum í Þorlákshöfn í gærkvöldi [2.]. Þar var hávaðarok og mikið brim. Í höfninni lágu 25 bátar og var þar mikil ókyrrð. Höfnin er þröng og lágu bátarnir hver utan á öðrum og ultu til og frá í brimrótinu, lömdust hver utan í annan og í bryggjurnar. Brotnuðu lunningar á mörgum bátanna og fleira var sem varð fyrir hnjaski. Sérstaklega skemmdust þeir bátar, sem lágu næst bryggjunum, en þeir, sem utan á þeim lágu, krömdu þá upp að bryggju, en sjö og átta bátar voru bundnir hver utan á annan. Friðrik Sigurbjörnsson, sem er 2ja ára gamalt stálskip, lá næst bryggju og urðu miklar skemmdir á síðu skipsins. Ekki var viðlit að hreyfa bátana úr höfninni. Úti fyrir var holskeflubrim og leiðin út úr höfninni eða inn í hana lokuð, eða að minnsta kosti hættuleg skipum og mannslífum. Var því ekki um annað að ræða fyrir sjómenn, en að sjá um, að bátarnir losnuðu ekki frá og horfa á þá lemjast hver á annan og á bryggjurnar og dælast og brotna. OÓ.
Mikill brotsjór reið yfir Arnar HU-1 um kl. 16.30 í gær, en báturinn var þá 2,5 sjómílur austur af Elliðaey. Fór báturinn á kaf og brotnuðu rúður í stýrishúsi og víðar. Þegar bátnum skaut upp aftur, var hann hálffullur af sjó, frammi og afturí. Vélarnar stöðvuðust og var beðið um aðstoð fljótt. Varðskip var þarna nærri og kom brátt að Arnari og dró hann í var við Heimaey. Snarvitlaust veður var við Vestmannaeyjar þegar bátnum hlekktist á. Arnar er 187 lestir að stærð og er gerður út á þorskanet frá Þorlákshöfn. Þegar sjórinn reið yfir skipið var það á leið í var. Litlu mátti muna að ekki færi verr, því að vélarrúm, stýrishús og íbúðir skipverja frammi í skipinu hálffylltist allt af sjó. Þegar vélarnar stöðvuðust lét það ekki lengur að stjórn, sem von var til. Var öllum opum skipsins lokað og hálftíma eftir að aðstoðarbeiðnin var send út kom varðskip að og kom dráttartaug í Arnar og dró í átt til Heimaeyjar. Um kl. 18 var hægt að koma ljósavélinni í gang og klukkustund siðar aðalvélinni og farið að dæla sjónum úr skipinu. En einhver bilun var í stýrisútbúnaði. Áhöfnin yfirgaf ekki skipið og í gærkvöldi lá það enn í vari ásamt varðskipinu.
Augljóst er að Íslendingur HU-16 hefur farist við Snæfellsnes. Brak úrbátnum rak á fjörur og sömuleiðis gúmmíbjörgunarbáturinn, og var hann mannlaus. Með Íslendingi fórust tveir menn.
Og bátstapi enn, Tíminn 4.mars:
KJ, Reykjavík. Tíundi bátstapinn á rúmum mánuði varð í fyrrinótt, er vélbáturinn Framnes IS608 frá Þingeyri strandaði undan bænum Lambavatni á Rauðasandi. Ellefu manna áhöfn fór i gúmmíbjörgunarbátana, sem rak fljótlega á land, og gistu skipbrotsmenn á bæjunum á Rauðasandi.
Morgunblaðið segir fréttir af ófærð 4.mars:
Í fyrrinótt og í gær var vindur af suðvestri um allt land, víðast hvassviðri og sums staðar stormur, og þessu fylgdi nokkur éljagangur, einkum á vesturhluta landsins. Færðin á þjóðvegunum, sem verið hefur slæm undanfarna daga, batnaði ekki við þetta og þar sem spáð var sama veðri næsta sólarhringinn, þ.e. fram á miðjan dag í dag, má búast við að flestallir vegir á vesturhluta landsins verði þungfærir í dag og jafnvel ófærir litlum bílum. Hjá Mjólkurbúi Flóamanna á Selfossi fengust í gær þær upplýsingar, að vegir til Reykjavíkur væru þungfærir og alls ófærir smábílum. Þá var einnig slæm færð víða á Suðurlandi, einkum þó í Biskupstungum og Laugardal. Vegagerðin hefur unnið að því að ryðja vegi á þessu svæði undanfarna daga og hafa mjólkurbílar búsins því ekki átt í neinum teljandi erfiðleikum, en talið er hætt við, að vegirnir verði ófærir strax og hætt verður að ryðja þá.
Fréttaritari Mbl. á Staðarskála í Hrútafirði símaði, að færð hefði verið með slæmu móti undanfarna daga þar í nágrenninu. Holtavörðuheiði var rudd á föstudag [2.mars] og þá komust bílar bæði suður og norður yfir. Talsvert mikill snjór er þó á heiðinni núna og þar sem átt er á vestan, er hætt víð að ófært verði yfir heiðina. Mjólkurbílar hafa ekki átt í neinum teljandi vandræðum undanfarna daga, en ef heiðin lokast, verður hún vart rudd fyrr en á þriðjudag. Jafn snjór er yfir öllu í V-Húnavatnssýslu og með öllu haglaust fyrir skepnurnar.
Sunnudaginn 4. mars féll snjóflóð á Sauðárkróki, Tíminn segir frá 6.mars:
GÓ, Sauðárkróki. Á sunnudaginn [4.] féll snjóflóð á Sauðárkróki, þar sem heitir Kristjánsklauf. Þar eru allmörg peningshús, bæði yfir hross og fé, og lenti snjóflóðið á fjárhúsi í eigu Sveins Nikódemussonar og braut það. Þar inni voru 36 kindur, 28 fullorðnar, 6 gemlingar og 2 lömb, sem fæddust 13. október í haust. 17 ær drápust strax og annað litla lambið, en hinn helmingurinn slapp lítt eða ekki skaðaður. Þetta gerðist rétt fyrir hádegi og var Sveinn þá fyrir skömmu farinn frá húsunum, en óvist er hver afdrif hans hefðu orðið, hefði hann enn verið þar að gegningum er snjóflóðið féll. Er skaði hans tilfinnanlegur að missa 17 ær á besta aldri. Við fjárhúsin var hlaða með um 60 hestum af heyi og brotnaði hún líka, er snjóflóðið skall yfir, m.a. brotnaði þakið og er nú heyið á kafi í snjóflóðinu. Rétt hjá fjárhúsunum var hesthúskofi, sem flóðið lenti einnig á og braut. Þar inni voru 2 tryppi á fyrsta og öðrum vetri. Grófust þau bæði í snjóflóðinu en náðust úr því skömmu síðar, bæði ómeidd. Flóðið lenti einnig á þriðja húsinu, þar sem inni voru hross- og skekkti það verulega. Menn muna ekki til að snjóflóð hafi áður fallið á Sauðárkróki. Þar var á laugardaginn ofsaveður af vestri og suðvestri með mikilli snjókomu. Hefur þá barið saman þá fönn í Kristjánsklauf, sem daginn eftir sprakk svo fram, en flóðið átti sér ekki langan aðdraganda, eða það byrjaði um 30 metrum fyrir ofan fjárhúsin. Þá má ekki gleyma því að þrír strákar voru að leika sér í snjónum, þar sem fyllan sprakk fram. Sátu þeir á henni alla leiðina niður, en hún sprakk ekki sundur fyrr en þangað kom. Hefur það vafalitið orðið þeim til lífs, því að hefði fyllan sprungið á framskriðinu, hefðu þeir vafalaust grafist í henni. Drengirnir eru á aldrinum 9-13 ára og hafa þarna fengið sérstæða sleðaferð.
Erl, Reykjavik Hér er orðið mjög haglítið og viðast hvar alveg haglaust, sagði Magnús Ólafsson á Sveinsstöðum, er við ræddum við hann í gær. Snjór er að vísu ekki mjög mikill hér um Þing og Ása, en mun meiri frammi í dölunum. Það sem fyrst og fremst segir fyrir þessu, er að undanfarnar þrjár vikur hefur verið mjög umhleypingasamt, hríðað og blotað í á víxl. Þessar kerlingarhlákur hafa því gert eina stroku yfir allt (pistillinn er lengri).
Viku af mars gerði þíðu og snjór hjaðnaði. Tíminn segir frá 10. og 13. mars:
[10.] JK-Egilsstöðum. Enn einu sinni er Egilsstaðaflugvöllur lokaður vegna aurbleytu. Menn fara nú að gerast langþreyttir á þessum lokunum,sem verða nær í hvert skipti,sem tíð batnar að vetrarlagi, og þykir óþarfi, að þær bætist ofan á tafirnar, sem verða af náttúrulegum orsökum.
[13.] ÞG-Ölkeldu. Hlýindi hafa verið hér undanfarið og má heita að snjóa og klaka hafi leyst. Una menn því heldur vel við sinn hag, enda ástæða til bjartsýni, ef svo heldur áfram sem nú horfir. Hlýindin hafa hins vegar haft það í för með sér, að vegir eru illa farnir í héraðinu og eru raunar nánast ófærir eins og stendur. Þar kemur reyndar einnig til að miklir flutningar hafa átt sér stað á fiski úr sjávarplássunum til Akraness og fleiri staða og hefur það sett sitt mark a vegina. Fyrri hluta vetrarins var tíðarfar heldur leiðinlegt, tíðir umhleypingar og rosar. Bændur hafa orðið að hafa fé sitt á gjöf miklu lengur en vanalegt er. Það veldur þeim þó varla neinum vandræðum, því heyskapur var mikill i sumar og heyjaforði nægur.
Þann 25. lá við mannsköðum í snjóflóði í Óshlíð. Tíminn 27.mars:
Á sunnudaginn féll snjóflóð á nokkrum stöðum á Óshlið, og urðu þrír menn fyrir síðustu spýjunni, og barst einn þeirra alla leið niður undir sjó. Svo giftusamlega tókst þó til, að tveir sluppu með öllu ómeiddir, en hinn þriðji marðist aðeins lítillega á baki. Nýsnævi var vestra ofan á gömlu hjarni og dró saman í skafla á Óshlið. Kom fyrsta snjóskriða á sunnudagsmorguninn og önnur um hádegisbilið, og voru báðar mokaðar, án þess að til tíðinda bæri. í þriðja sinn kom snjóflóð rétt innan við svonefndan Kross, utan til á Svuntu, um sexleytið á sunnudagskvöldið. Var þá allmargt bíla á ferð á Óshlið, þar á meðal stór bíll með börn eða unglinga, sem voru að koma af skíðamóti á Ísafirði. Menn fóru til að moka bílnum braut gegn um snjóhrönglið með skóflum, en er þeir voru að því starfi, kom ný spýja, og hreif hún með sér þrjá menn. Einn þeirra, Birgir Finnbogason frá Ísafirði, staðnæmdist rétt við vegarbrúnina, annar, Jón Guðbjörnsson, formaður slysavarnadeildarinnar í Bolungavik, barst hálfa leið til sjávar, en hinn þriðji, Pálmi Karvelsson bifvélavirki, staðnæmdist ekki fyrr en niðri við fjöruborð. Það var hann, er marðist á baki. Það voru þarna vörubifreiðar, sem áttu að sækja loðnu út í Bolungavik, sagði Jón Guðbjörnsson, er við ræddum við hann, og voru þær fengnar til þess að snúa við inn í Hnífsdal, til þess að fá gröfu til þess að ryðja veginn. Kom hún nokkru síðar, og biðu þá ellefu bílar innan við snjóskriðuna, en fjórtán utan við hana. JH
Þann 26. varð hörmulegt flugslys, orsökin talin ísing. Tíminn segir frá 28.mars:
TF-VOR fannst snemma í gærmorgun skammt norður af Langjökli. Fimm menn voru í flugvélinni og voru þeir allir látnir.
Svo komu enn fleiri skipsskaðafréttir, Tíminn 29. og 30.mars:
[29.] Þó Reykjavík. Sextándi skipsskaðinn á þessu ári átti sér stað í fyrrinótt, þegar Elías Sveinsson VE 167 strandaði rétt austan við Stokkseyri á svonefndu Langaskeri, en það er rétt niður af Ísólfsskála. Báturinn strandaði í dimmu en stilltu veðri skömmu eftir miðnætti. Þrátt fyrir lognið gekk björgun frekar erfiðlega, þar sem brim var nokkuð og báturinn lá í sjálfum brimgarðinum. Skipverjunum, níu talsins, hafði þó verið bjargað á fjórða tímanum.
[30.] ÞÓReykjavik. Enn einn Vestmannaeyjabáturinn fórst í gær. Að þessu sinni var það Frigg VE. Bátinn rak upp í Krísuvíkurberg og brotnaði hann þar. Áður hafði tekist að bjarga áhöfninni, fimm manns, um borð í annan Vestmannaeyjabát, Sigurð Gísla. Frigg er sautjándi báturinn, sem ferst frá áramótum og þriðji Vestmannaeyjabáturinn, sem ferst á stuttum tíma. Frigg fékk á sig mikinn brotsjó út af Grindavik í fyrrinótt, og við það kom mikill leki að bátnum, og ofanþilja brotnaði margt. Varð strax ljóst að ekki yrði ráðið við lekann og sent var út neyðarkall.
Apríl var almennt hagstæður. Ingibjörg í Síðumúla segir frá:
Fyrsta vika aprílmánaðar var nokkuð frosthörð og jörð að mestu þakin snjó. Þ.8. hlánaði og tók þá snjó fljótt upp. Jörð grænkaði að mun. Vegir urðu slæmir yfirferðar. Þ.27. kólnaði með vægu frosti, hvassri norðanátt og lítilsháttar éljum. Hélst svo til mánaðamóta.- Hættulegt veður nýbyrjuðum gróðri.
Morgunblaðið segir af snjókomu í pistli 5.apríl:
Í gærkvöldi kyngdi niður talsverðum snjó og olli snjókoman geysilegri hálku á götum Reykjavikur og nágrannabæjanna. Ekkert frost var og því dugðu snjódekk bifreiðanna skammt, því að enga spyrnu var að fá. Myndaðist af þessum sökum hálfgert umferðaröngþveiti á helstu götum þegar leið á kvöldið.
Tíminn segir af vandræðum eystra í pistlum 6.apríl:
JKEgilsstöðum. Geysilega miklum snjó hefur kyngt niður á Austfjörðum, og eru þar allir vegir gersamlega ófærir. Miklar skemmdir hafa orðið á raflínum og símalínum, snjóflóð fallið og með öllu var rafmagnslaust á stórum svæðum um tíma í gær. Ekki voru afgreidd símtöl milli Austurlands og annarra landshluta nema hraðsamtöl um eina línu gegnum Hornafjörð. Í fyrradag hlóð niður firnum af snjó á skömmum tíma, einkum í fyrrakvöld, og varð allt ófært. Þegar á fætur var komið í gærmorgun, var fönnin svo mikil og jafnfallin, að harðfylgi þurfti til þess að ösla á milli húsa hér í Egilsstaðaþorpi. Þessi snjór féll í hægri austanátt og var raunar bleytuhríð um skeið, en nú er komin norðaustanátt. Á láglendi niðri á fjörðum er snjórinn miklu minni, þótt úrkoma væri þar einnig mjög mikil.
Krapastífla í Grímsá, dísilstöðvar bilaðar. Mjög viða slitnuðu raflinur og símalínur, er snjórinn hlóðst á þær. Þrír staurar raflínunnar, sem liggur um Svínadal til Eskifjarðar brotnuðu, og búnaður á tuttugu til viðbótar skemmdist. Í gærmorgun kom krapastífla í Grímsá, og stöðvaðist þá orkuverið þar, og var með öllu rafmagnslaust í hálfan sjötta klukkutíma. Dísilrafstöðvarnar á Seyðisfirði og í Neskaupstað hafa verið bilaðar vegna mikils álags í sambandi við loðnubræðsluna að undanförnu, og hafa varahlutir i Seyðisfjarðarstöðina ekki fengist vegna verkfalls í Englandi. Dísilrafstöð Norðfirðinga tókst að koma í gang í fyrrinótt. Allir mjólkurflutningar liggja að sjálfsögðu niðri á Héraði og til marks um símabilanir má nefna að línan á Fagradal eyðilagðist á fimm hundruð metra kafla. Símalína á Gagnheiði rofnaði einnig, svo og víðs vegar annars staðar í héraðinu. Þá var endurvarpsstöðin á Eiðum biluð í gær.
Fréttaritari Tímans á Seyðisfirði, Ingimundur Magnússon, sagði svo frá, að loðnubræðslu hefði lokið þar í fyrradag, og var þá haldið kveðjuhóf. Þegar hófið stóð sem hæst, rofnaði háspennulinan að síldarverksmiðjunni, og var myrkur í bænum í rúma klukkustund. Í gær var engan mat að fá í mötuneytinu vegna rafmagnsskorts. Mikill snjór er í fjöllum, þótt ekki kveði ýkjamikið að honum niðri við sjóinn, og hafa snjóflóð fallið á nokkrum stöðum skammt innan við söltunarstöðina Neptún. Snjóbíll var sendur til könnunar, og fór hann yfir tvær snjóskriður, en sneri frá við þá ystu og breiðustu. Voru þær tíu til þrjátíu metra breiðar og náðu í sjó fram. Þarna hafði raflína fallið niður og staurar brotnað, einn eða fleiri. Við Hánefsstaði var sambandslaust í gær.
Maí var heldur óhagstæður gróðri, en veður samt meinlítil. Ingibjörg í Síðumúla segir frá:
Vætu hefur sárlega vantað. Gróður stendur því alveg í stað. Sauðburður er langt kominn og hefur gengið vel. Hagar eru litlir og fé víðast gefið með beit. Kýr voru látnar út seinnipartinn í mánuðinum, en eru á fullri gjöf. Jörð hefur lengi verið klakalaus og bíður tilbúin hagstæðara veðurs.
Þann 2. maí var kveikt í sinu við Hvaleyrarvatn og varð að skógareldi, Alþýðublaðið segir frá 3.maí:
Það er hryllilegt að sjá eyðileggjast 14 eða 15 ára starf okkar hjónanna, mér liggur við að segja á nokkrum mínútum, sagði Guðrún Jónsdóttir, eiginkona Hákonar Bjarnasonar skógræktarstjóra, þegar Alþýðublaðið hafði samband við hana vegna bruna skógræktargirðingar þeirra hjóna suður við Hafnarfjörð. Þarna eyðilögðust 1215 þúsund grenitré, sem sum hver voru orðin tveggja til þriggja metra há. Hákon er erlendis og hefur því ekki frétt af atburðinum ennþá, en hann er svo bjartsýnn, að ég veit að hann byrjar strax að byggja upp skógræktarreitinn okkar aftur, það er ekki líkt honum að leggja árar í bát, sagði Guðrún. Það var flugmaður, sem varð fyrst eldsins var, og lögreglan í Hafnarfirði fékk tilkynningu um brunann kl.14:40 í gær. Þegar slökkviliðið kom á vettvang var skógarreiturinn alelda, og tók um þrjár klukkustundir að ráða niðurlögum eldsins. Talið er sennilegast að kveikt hafi verið í sinu, sem mikið var af þarna. Svörðurinn er nú allur sviðinn, en trén standa ennþá græn. Skógræktarfræðingar telja hinsvegar, að trén hafi engan möguleika á að lifa, en muni deyja smátt og smátt.
Skömmu eftir að slökkvistarfi lauk var tilkynnt um eld í sinu á tveimur stöðum við Vífilsstaðavatn, og varð talsverður skaði á gróðri. Þá hefur slökkviliðið í Reykjavik orðið að berjast við sinubruna bæði í gær og fyrradag. Í fyrradag kom upp eldur á þremur stöðum, Vatnsmýrinni, Blesugróf og Fossvogi, og í gær kom upp eldur í Selásnum og læsti sig í fisktrönur. Einnig varð að slökkva eld, sem hafði kviknað í öskuhaugunum á Gufunesi. Að sögn lögreglustjórans í Reykjavik er alltaf mikið um sinubruna um þetta leyti árs, og má segja, að þetta sé eitt af vormerkjunum. Í flestum tilfellum er um að ræða íkveikju.
Tíminn fór yfir gróðurhorfur 16.maí:
KlpReykjavík. Við hringdum í gær í nokkra fréttaritara okkar víðsvegar um land til að fá fréttir um tíðarfar og gæftir í byggðarlögum þeirra. Það kom fram hjá þeim öllum, að gróður væri lítill enn sem komið væri, og kenna þeir um slæmri veðráttu að undanförnu. Viða væri sauðburður hafinn og sums staðar væru bændur uggandi um sinn hag, þar sem þeir þyrftu að hafa allt fé á gjöf. En við skulum nú heyra hvað þeir hafa að segja:
Þorsteinn Sigurðsson, bóndi, Vatnsleysu Biskupstungum, sagði okkur, að þar hefði gróður verið að koma til þar til kuldakastið kom á dögunum. Síðan hefði allt staðið í stað, en nú væri farið að rigna og þá skánaði þetta vonandi aftur. Annars er hálf gróðurlaust yfir að lita hjá okkur þessa stundina. En ef hann hlýnar og rignir eitthvað að ráði þá fer senn að grænka. Hér er öllu sauðfé gefið enn og heybirgðir manna eru yfirleitt góðar. Sauðburður er almennt ekki byrjaður, en mun hefjast næstu daga.
Guðmundur Valgeirsson, bóndi i Trékyllisvik Strandasýslu, sagði að á Ströndunum væri gróður heldur skammt á veg kominn. Það kólnaði svo hér í lok síðustu viku, að nú sést varla grænn blettur. Það er ennþá heldur svalt í lofti hér, en þó ekki eins og um helgina. Búið var að opna veginn hingað, en hann lokaðist aftur vegna snjóa. Nú í dag er verið að moka hann aftur og vonar maður að ekki þurfi að moka hann á næstu mánuðum. Sauðburður er hafinn hér á mörgum bæjum, og hefur hann gengið vel. Þá hafa hrognkelsaveiðar mikið verið stundaðar að undanförnu og hefur veiði verið góð.
Hafsteinn Ólafsson í Fornahvammi Norðurárdal, sagði að þar hefði verið leiðindatíðarfar að undanförnu, bæði kalt og hráslagalegt. Gróður væri lítill og ættu sumir bændur hálf erfitt uppdráttar þessa dagana. Sauðburður er hafinn en ekki er hægt að koma fénu út vegna gróðurleysis og kulda. Flestir bændur ættu enn nokkurt hey og bjargaði það miklu. Annars væri heldur þungt hljóð í bændum vegna tíðarfarsins. Hafsteinn sagði okkur einnig, að ferðamannastraumurinn vær heldur lítill, enn sem komið væri, enda væri litill áhugi hjá fólki fyrir að ferðast um gróðurlausar sveitir í veðráttu eins og hefði verið undanfarna daga.
Guðmundur Arason á Breiðdalsvik, tjáði okkur að þar væri litill gróður og kalt í veðri eins og víðast annars staðar. Bændur væru velbirgir af heyjum, enda hefði heyfengur verið góður í fyrra, en nú gætu þeir vel þegið meiri gróður til að geta komið fénu úr húsum. Sauðburður er hafinn á sumum bæjum, og hefur yfirleitt gengið vel. ... Bátarnir eru að búa sig á tog- og humarveiðar og má búast við að þeir fari af stað einhvern næstu daga.
Einar Kristjánsson á Laugavöllum í Dalasýslu, sagði að þar í Dölunum þætti mönnum tíðarfarið hafa verið heldur stirt að undanförnu. Fyrir hálfum mánuði hefðu tún verið farin að fá á sig grænan lit, en eftir síðasta kuldakast væri hann horfinn. Sauðburður er hafinn á mörgum bæjum en almennt mun hann þó ekki hefjast fyrr en í þessari viku. Samgönguerfiðleikar voru nokkrir um tíma í vetur, en samgöngur eru nú óðum að komast í sæmilegt lag. Heilsufar hefur verið gott, þó hefur mislingafaraldur gengið síðustu vikur, og hefur af þeim sökum verið mikið um forföll í skólanum. Þó ekki sé hægt að tala um harðindi síðastliðinn vetur, er því samt ekki að leyna að hann hefur verið mörgum þungur í skauti. Er t.d. talið að þetta sé einn gjaffrekasti vetur, sem hér hefur komið lengi.
Stefán Jasonarson bóndi í Vorsabæ í Gaulverjabæjarhreppi hafði sömu sögu að segja okkur og hinir, hvað varðaði gróðurfar. Þar væri ekki nokkur hagi fyrir lambfé og yrði að gefa því inni en víðast hvar væri sauðburður hafinn í Gaulverjabænum. Frost hefur verið undanfarnar nætur og hefur það að sjálfsögðu spillt fyrir. Nokkuð er farið að vinna við garðlönd, sumstaðar hafa menn sáð gulrófnafræi og jafnvel reynt að setja niður kartöflur. Undanfarið hefur hópur manna frá vegagerðinni unnið að því, með stórvirkri mulningsvél, að mylja hraunið og bera mulninginn ofan í vegina, sem eru flestir hálf erfiðir yfirferðar og illa farnir. Þetta er í fyrsta sinn, sem þetta er reynt hér hjá okkur, og verður fróðlegt að vita hvernig það reynist.
Óli Halldórsson, bóndi Gunnarstöðum Norður-Þingeyjarsýslu, sagði, að þar hefði verið kalsaveður undanfarna daga, og litill litur á jörð nema þá helst hvítt, því þar væri víða snjór. Það snjóaði hér í síðustu viku, og um helgina og undanfarnar nætur hefur verið þetta 6 til 8 stiga frost. Gamall snjór er lítill sem enginn, og á láglendi var viða orðið autt. Snjórinn sem nú kom var ekki það mikill, að hann hverfur í næstu rigningum og þar með vonum við, að við séum lausir við snjóinn á þessu vori. Viða er sauðburður hafinn og hefur hann gengið vel. Grásleppuveiðar hafa gengið sæmilega, og afli verið nokkuð góður. Í norðanáttinni, sem gerði um daginn, misstu menn mörg net og er því hætt við að grásleppuveiðum sé þar með lokið að þessu sinni.
Morgunblaðið segir af hreti fyrir norðan í pistli 30.maí:
Björk, Mývatnssveit, 29. maí. Um helgina var hér frekar milt og gott veður. Síðdegis í gær gerði hér geysilegt vatnsveður. Þar sem jörð var ákaflega þurr og þétt eftir langvarandi þurrka, mynduðust viða stórar tjarnir á túnum. Með kvöldinu kólnaði og um miðnætti var komin krapahríð og hiti um frostmark. Í morgun var kuldalegt út að líta, alhvít jörð og bleytuhríð. Veðrið lagaðist þó fljótlega og var allur snjór horfinn í byggð um hádegið. Síðan hefur verið þurrt veður í dag, en hvasst. Hins vegar virðist vera mikill snjór til fjalla. Sauðburði er víðast að verða lokið. Hefur hann yfirleitt gengið vel, þar sem til hefur frést. Margt er tvílembt og allt hefur verið látið bera í húsi. Dágóður sauðgróður er talinn vera kominn í sandlendi og þegar búið að sleppa töluverðu af lambám. Annars fer gróðri frekar hægt fram, enda hafa verið hér margar frostnætur í maímánuði. Við vonum, að senn fari að hlýna fyrir alvöru og allur jarðargróður taki fljótt við sér. Ég tel að Veðurstofan hafi ekki sagt nægilega snemma til um þetta hríðarveður og í morgun var talað um slyddu hér í Veðurstofunni. Kristján.
Júní var sérlega kaldur. Litirnir á kortinu sýna meðalþykktarvik mánaðarins.
Ingibjörg í Síðumúla segir: Júnímánuður í heild fádæma kaldur, sérstaklega voru 2 fyrstu vikurnar kaldar og þurrar. Þ.16. hlýnaði nokkuð og vætti flesta daga eftir það. Gróður, sem staðið hafði að mestu í stað, tók vel við sér og nú um mánaðamót er von um að sláttur geti hafist innan skamms. Kúm hefur víðast verið gefið með beit fram undir mánaðamót.
Sigketill í Eyjafjallajökli? Tíminn 5.júní:
Fyrir um það bil einni viku veitti Sigfús bóndi Auðunsson á Ystaskála undir Eyjafjöllum því athygli, að djúp sigskál hafði myndast í Eyjafjallajökli upp af Ásólfsskálaheiði. Var hann þá leiðsögumaður við áburðardreifingu í flugvélinni Páli Sveinssyni. En með því flugvélina bar fljótt yfir, veittist honum lítið ráðrúm til þess að huga að þessu fyrirbæri. Á sunnudaginn var bjart og heiðskírt veður í Rangárvallasýslu, og mátti þá glöggt sjá þessa sigskál í sjónauka af láglendi. Í gær var aftur á móti vont skyggni, svo að alls ekki sást til jökulsins neðan úr sveit, og ekki gat heldur orðið af því, að dr. Sigurður Þórarinsson flygi yfir staðinn til könnunar, eins og hann hafði hug á að gera, þar eða einnig var of dimmt yfir til þess. Ekki hefur verið farið upp að jöklinum til þess að hyggja að vegsummerkjum. Það er óráðin gáta hvað þarna er á seyði, sagði Einar Sveinbjörnsson, bóndi á Ystaskála, er Tíminn ræddi við hann í gær. Þarna virðist hafa myndast sigketill með börmum allt í kring hátt upp í jökli, sem alltaf hefur verið sléttur, á að giska tíu kílómetra frá heiðarbrúninni hérna fyrir ofan. Ég virti þetta fyrir mér á sunnudaginn í sjónauka, og ég sá ekki betur en þetta væri djúp skál þarna sunnan í jöklinum, alllangan veg frá jökuljaðrinum. Á þessum slóðum koma fram þrjár ár Holtsá, Miðskálaá og Írá. Á þeim er litill jökullitur alla jafna, en í miklum leysingum verða þær korgaðar. Ekki hafa þær verið jökullitaðar undanförnu venju fremur, og er því ekkert, sem bendir til þess, að meira jökulvatn hafi borist í árnar en endranær.
Við höfum hér þrjá jarðskjálftamæla, sagði Einar H. Einarsson í Skammadalshóli, er við ræddum við hann í gær einn hjá mér, annan í Vik og hinn þriðja í Selkoti undir Eyjafjöllum. Mælingar virðast benda til þess, að nokkur ókyrrð hafi verið í vetur þarna vestur frá líklega i vestanverðum Mýrdalsjökli. Aftur á móti hefur verið sérlega kyrrt á Kötlusvæðinu. Það er auðvitað hugsanlegt, að vatn, sem kynni að hafa bráðnað vegna jarðhita þarna í Eyjafjallajökli, sé fyrir löngu sigið fram þótt menn hafi ekki þá gefið því gaum, en jökulskánin síðan fallið niður eftir á. Annars er best að segja sem fæst um þetta meðan allt er ókannað. Þær spurnir, sem ég hef haft að austan, benda varla til þess, að þarna hafi stórtíðindi gerst, sagði dr. Sigurður Þórarinsson, þegar við snerum okkur til hans síðdegis í gær. Svona sigkatlar muni ekki einsdæmi á Eyjafjallajökli, en það ber meira á slíku nú en ella vegna öskuryksins, sem borist hefur á hjarnið frá Vestmannaeyjum. Sprungurnar verða greinilegri en þær hefðu annars orðið, og þess vegna vekja þær meiri athygli.
Mikið kuldakast gerði um hvítsunnuna [10.júní]. Þá mældist í fyrsta sinn meira en -10 stiga frost í júní á Íslandi, -10,5 stig. Mælingin fór fram við stöð sem nefndist Nýibær og var starfrækt i eitt ár á Nýabæjarfjalli inn af Eyjafirði, í 890 metra hæð yfir sjávarmáli. Stendur þetta met enn. Rétt þó að geta þess að 2020 fór frostið niður í -13,1 stig þann 6.júní á Dyngjujökli, en sú stöð er í 1689 metra hæð - skynjari ekki í löglegri 2 m hæð frá jörðu. Þessa sömu nótt, aðfaranótt 10.júní 1973 mældist frostið á Vöglum í Fnjóskadal -6,7 stig og er það enn mesta frost sem mælst hefur í byggð á Íslandi í júní.
Kortið sýnir stöðuna í 500 hPa að kvöldi hvítasunnudags, 10.júní. Þykktin einhver sú lægsta sem vitað er um í mánuðinum. Kuldastrokan náði allt til Noregs - þar sem ritstjóri hungurdiska bjó sig undir próf í algebru.
Þjóðviljinn segir af kuldakastinu í pistli 13.júní:
Versta veður hefur verið nú um helgina miðað við árstíma. Hefur verið nokkurt frost að næturlagi, allt upp í 5 - 6 stig. Kaldast hefur verið fyrir norðan og þar hefur einnig snjóað talsvert. Við höfðum samband við Pál Bergþórsson á veðurstofunni og inntum hann eftir fréttum um veðrið. Hann sagði þetta vera þráláta norðanátt, ættaða norðan úr Íshafi. Sjór er kaldur fyrir norðan land og þegar svo stendur á skiptir engu þótt litið sé um ís nálægt landi. Fyrir norðan hefur verið kaldast. Þar hefur verið 1 - 3 stiga hiti yfir hádaginn og þar sem þetta er hafátt þar hefur verið skýjaðra en fyrir sunnan. Að næturlagi hefur frostið farið niður i 5 - 6 stig. Talsvert hefur einnig snjóað og var t.d. í fyrradag samfellt snjókomusvæði frá Skagafirði að Langanesi. Ekki hefur þó fest mikinn snjó í byggð,en víða er þó allt grátt. Á heiðum er þó nokkur snjór, einna mest í útsveitum því þar er úrkoman mest. Páll sagði að ekki væri að vænta neinna breytinga á næstunni.
Við ræddum við Svein Arnason á Egilsstöðum og inntum hann frétta af ástandi þar. Hann sagði að útlitið væri ekki glæsilegt. Undanfarnar tvær nætur hefur frostið farið niður í fimm stig og nokkur snjókoma verið þannig að grátt er í rót. Fjarðarheiði er ófær og hefill sem sendur var til að ryðja hana réði ekkert við snjóinn. Þá eru Möðrudalsöræfin varhugaverð. Þetta hefur komið illa niður á gróðri sem var lítill orðinn fyrir, en stendur nú alveg í stað. Bændur hafa fé á túnum og er langt í land með að haglendi verði beitarhæft. Sveinn sagði að mjög langt væri síðan þeir á Egilsstöðum hefðu reynt svo slæmt vor. Vorið 1952 hefði þó verið slæmt og glórulaus kuldi fram undir 20. júní. En að því frátöldu hefði ekki komið eins slæmt vor í manna minnum.
Þorgrímur Starri bóndi á Garði i Þingeyjarsýslu sagði þetta vera með verstu kuldaköstum á þessum tíma árs. Hann sagði að verið hefði hörkukuldi og golusteyta um helgina og hefði fryst undanfarnar þrjár nætur, allt niður í 5 - 6 stig. A mánudag kvað hann hafa verið krapahríð og hefði allt verið hvítt yfir að líta á mánudagsmorgun [11.]. Snjó hefði þó tekið upp á láglendi,en hvítt væri enn til fjalla. Hann sagði gróður hafa staðið í stað að undanförnu. Í maí komu nokkrir hlýir dagar og hrökk gróður þá af stað, en síðan ekki söguna meir. Litill klaki er í jörð fyrir norðan og jörð góð, og ef fljótlega hlýnar ætti allt að vera í lagi. En ef kuldinn heldur áfram er illt í efni. Þessi kuldi hefur þó tafið gróður og stolið dýrmætum tíma. Bændur hafa yfirleitt sleppt lambfé norður þar. Starri sagði þetta vera versta vor síðan 1952 en það vor og vorið 1949 hefðu verið mjög slæm. Ekki sagðist hann þó kviða fjár- eða mannfelli eins og greinir frá í annálum. En í samanburði við vorið í fyrra sem var eitt indælasta vor sem menn muna fyrir norðan er þetta vor mjög slæmt Það er eins og svart og hvítt, sagði Starri að lokum. ÞH
Tíminn segir 13.júní frá hátíðahöldum um hvítasunnuna. Mótshaldarar í Þjórsárdal bera sig vel - þrátt fyrir heldur laklegt umtal:
Klp-Reykjavik. Veðrið skemmdi nokkuð fyrir hinum árlegu hvítasunnukappreiðum Fáks, sem fram fóru á velli félagsins á annan í hvítasunnu. Úti í norðangarranum vildu áhorfendurnir ekki vera og sátu því flestir í upphituðum bílum sinum og fylgdust með atburðunum úr fjarlægð.
ÓV, Reykjavík. Hvítasunnuhátíðin Vor í dal, sem Ungmennafélag Íslands ásamt Ungmennafélaginu Skarphéðni og Ungmennasambandi Kjalarnesþings, stóð fyrir í Þjórsárdal um hvítasunnuhelgina, heppnaðist vel. Á milli 5000 og 6000 manns voru á hátíðarsvæðinu þegar mest var, mest unglingar, sem áttu það helst sameiginlegt að vera kalt. Ölvun var hverfandi lítil, dálítil á laugardagskvöld en víða mátti sjá dauðadrukkna unglinga, sem voru ófullir við og við og höfðu sjálfsagt ekki bragðað dropa af áfengi. Lögreglan tók talsvert magn af áfengi af samkomugestum og hellti töluverðu niður en engu að síður voru ýmsir sleipir við að fela áfengi sitt. Leitað var í bílum en þó ekki öllum. Til dæmis var ekki litið inn í þann langferðabil, er blaðamaður Tímans kom með. Meiriháttar óhöpp urðu ekki en þó leituðu um 500 manns til slysahjálpar hjálparsveitanna, sem voru á staðnum og fengu flestir plástur á skeinur sinar. Eitt tjald brann en eigandinn slapp ómeiddur út með svefnpokann sinn í fanginu. Þátttaka mótsgesta í dagskrá var heldur dræm, nema til dæmis í hestaleigunni og urðu margir til að leigja sér hnakk á hestbaki í 15 mínútur fyrir 150 krónur. Þá má nefna að einn var skráður til þátttöku í torfæruakstri og þrettán tóku þátt í viðavangshlaupi karla. Þrír þeirra voru hvorki drukknir né timbraðir og sigruðu með nokkrum yfirburðum. Forráðamenn mótsins voru ánægðir með gang mála, lögreglan lýsti ánægju sinni með allan framgang mótsins og gestir virtust mjög ánægðir með helgina, þrátt fyrir kuldann og sandrokið.
Tíminn segir 14.júní frá mosaeldi:
ÓVReykjavlk. Laust eftir hádegið í gær kviknaði í mosa í Þrastaskógi. Varð af töluverður eldur en slökkviliðið á Selfossi kom á staðinn og tókst að ráða niðurlögum hans eftir rúma tvo tíma.
En heyannir nálguðust Tíminn segir frá 27.júní:
SB-Reykjavík. Ekki mun víða byrjað að slá á landinu, en af einum bæ fréttum við í gær, þar sem byrjað var að slá fyrir viku og meira en það, þar er jafnvel komið nýtt hey inn í hlöðu. Þetta er á Hólshúsum í Hrafnagilshreppi í Eyjafirði. Þar er félagsbú þeirra Reynis og Helga Schiöth. Við hringdum til Reynis, sem við vitum ekki betur en hafi byrjað fyrstur íslenskra bænda að slá í ár.
Sumarið kom loks í júlí. Það kom til ritstjóra hungurdiska einmitt þegar hann kom út úr hraðfrystiklefa í Brákarey - þegar hann fór þar inn var enn kuldi í lofti - en þegar út var komið var sumarið mætt. Þetta var um 10. júlí, næstu vikur voru hagstæðar, en aldrei varð þó mjög hlýtt.
Ingibjörg í Síðumúla segir af júlí: Fyrri partur mánaðarins yfirleitt kaldur og rakur. Sláttur hófst almennt um miðjan mánuð og honum fylgdu þeir veðurbestu dagar, sem komið hafa til fleiri ára hér um slóðir, sólríkir og heitir. Nætur voru þó óvenju kaldar. Á þessum dögum luku einstaka bændur alveg við heyskap og flestir náðu öllu upp í sæti. Síðustu 6 dagana var ekki hagstæð heyskapartíð og eru því víða mikil hey úti.
Enn urðu hörmuleg slys. Tíminn segir frá 17.júlí:
Sá hörmulegi atburður varð á sunnudag, að lítil flugvél fórst í Snjófjöllum og með henni tveir bræður og eiginkonur þeirra. Þau voru á leið frá Reykjavík til Þórshafnar, er slysið varð. Ekki er vitað um orsök þess, en þau, sem með vélinni voru, létust samstundis. Flakið af vélinni fannst í gærmorgun og voru líkin flutt til Reykjavikur með þyrlu Landhelgisgæslunnar.
Nokkuð eftirminnilegt sunnanhvassviðri gerði þann 26.júlí - moldrok varð á hálendinu og eitthvað fauk af heyi. Veðráttan segir að sviptivindur hafi valdið slysi í Stykkishólmi. Morgunblaðið segir frá 27.júlí:
Kiðafelli, 26. júlí. Eftir nokkra ágæta þurrkdaga, hvessti í morgun af austri og suðaustri, og var þá ekki að sökum að spyrja. Hey var víða ný slegið og flatt eða í görðum, hálfþurrt og létt eftir hlýjan blástur í nótt. Það var því létt fyrir Kára, að hreinsa túnin og má víða sjá girðingar og skurði fulla af heyi. Í dag hafa bændur keppst við að ganga frá göltum til að forðast frekara tjón. Ekki er hægt að gera sér grein fyrir tjóni eða magni því, sem hefur fokið. Vitað er að það er tilfinnanlegt. Allt að 150200 hestburðir af heyi hafa fokið á sumum jörðunum. Hjalti.
Þjóðviljinn segir af moldrokinu í pistli 27.júlí:
Nú virðist veðurblíðan hafa yfirgefið okkur a.m.k. um stundarsakir og í gær var hið mesta hvassviðri. Þessum stormi fylgdi mikið moldrok og var þykkur moldarmökkur viða á bersvæði. Þegar blaðamaður Þjóðviljans átti leið fram hjá Reykjavikurflugvelli í gærmorgun, huldi mökkurinn stóran hluta flugbrautanna. Blaðið hringdi í Veðurstofuna seinni partinn í gær og innti frétta af hvassviðrinu. Veðurfræðingur fræddi okkur um, að lítil lægð hefði verið fyrir hafinu fyrir sunnan land í fyrradag á leið til landsins og stormurinn að landinu í gærmorgun. Mikill stormur hefði verið í Vestmannaeyjum og á Hellu og í Reykjavik hefði hann náð átta vindstigum. Aðalástæðan fyrir moldrykinu væri sú, að stormurinn fylgdi á eftir miklu þurrkatímabili, sem staðið hefur í hálfan mánuð, og væri jörðin óvenju þurr núna. Rykið kæmi frá söndunum við Ölfusá og frá moldarbörðum fyrir ofan Reykjavik. Loks taldi veðurfræðingurinn, að storminn myndi væntanlega lægja um kvöldið og þá væri von á skúrum, sem myndu stöðva uppblásturinn í bili.
Tíminn segir 28.júlí frá breytingum á hverasvæðinu í Námaskarði. Hvort þetta var einhver forboði Kröfluelda sem hófust rúmum tveimur árum síðar - eða bara þurrkar eins og stungið var upp á - veit ritstjóri hungurdiska ekki:
Jí MývatnssveitHJJRvik. Talsverðar breytingar hafa orðið á hverasvæðinu við Námskarð að austan undanfarna daga. Hver, sem komið hafði upp í gamalli borholu, en ekki látið mikið á sér kræla fram til þessa, er nú farinn að sletta úr sér leirgusum marga metra í loft upp, svo að leirdreifin þekur nú 10-12 metra breitt belti umhverfis hann. Gosunum fylgja miklar drunur og jörðin nötrar undir fótum manna, þegar nærri er komið. Þá hafa líka komið upp vænir hverir, , þar sem áður voru aðeins smáaugu, og hverir, sem áður fór ekki meira fyrir en svo, að kraumaði í þeim líkt og í grautarpotti, hafa færst í aukana og eru nú farnir að spýta leirgusum í loft upp. Meiri hiti og ólga virðist vera á jarðhitasvæðinu en verið hefur til skamms tíma. ...
Tíminn hafði tal af,dr. Sigurði Þórarinssyni, sem sagði, að ekki væri að svo komnu máli ástæða til þess að ætla, að ekki væri allt með felldu við Námskarð, því að hræringar væru eðlilegar á hverasvæðum, en hins vegar væri full ástæða til þess að koma upp jarðskjálftamæli nyrðra, svo að menn væru við öllu búnir.
Kaldir nætur komu í ágúst - og blautt var öðru hvoru - en mánuðurinn hlaut samt nokkuð góða dóma. Ingibjörg í Síðumúla segir: Fyrstu 6 dagar mánaðarins sæmilega hlýir en votviðrasamir eins og mánuðurinn í heild. Stirt hefur því verið með hirðingu heyja. Víðast hvar þó heyskap lokið nokkru fyrir mánaðamót. Kaldast varð þ. 19., -1,5 st. frost. Féllu þá eða skemmdust mikið kartöflugrös. Það litla sem er af berjum, sakaði ótrúlega lítið, líklega vegna vanþroska.
Tíminn segir af góðri tíð 2.ágúst:
GJ-Asi, Vatnsdal. Hér í Húnavatnssýslum hefur verið alveg einmunatíð. Bændur eru hér almennt langt komnir með heyskap.
Gríðarlega rigningu gerði í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum um verslunarmannahelgina. Tíminn segir frá 7. og 8. ágúst:
[7.) Bindindissamkomu ýmissa norðlenskra æskulýðs- og ungmennasamtaka aö Hrafnagili við Akureyri lauk aðfaranótt mánudags eftir að hana hafði rignt í burtu. Á einum sólarhring var úrkoman þar fyrir norðan um 25 mm og fór fólkinu,sem var um 1500 þegar mest var, stöðugt fækkandi. Þegar samkomunni var slitið, að loknum dansleik á sunnudagskvöld voru aöeins 3-500 manns á svæðinu.
[8.] SB, Reykjavik Þetta var óskaplegt vatnsflóð, sagði Sigurður Eiríksson bóndi og veðurathugunarmaður á Sandhaugum í Bárðardal í gær, er við inntum hann eftir rigningunni þar um helgina, sem mældist hvorki meira né minna en 99 millimetrar á einum sólarhring. Nærri mun láta að það sé tvöföld mánaðarúrkoma. Það byrjaði að rigna á sunnudagsmorguninn, en varð ekki verulegt fyrr en eftir tíu. Frá kl.9 á sunnudagsmorgun til sama tíma á mánudag féllu 99 mm á Sandhaugum og næsta sólarhring 33,5 mm Sigurður hefur haft á hendi veðurathuganir þarna í tólf ár og segist aldrei hafa séð neitt þvílíkt. Hann telur að sumarið 1962 komist næst þessu, en þá féllu eitt sinn 42 mm á sólarhring. Tólf til tuttugu mm þykir mikil rigning á þessum slóðum. Eitthvað var um smáskriðuföll af völdum vatnselgsins, en ekkert tjón varð. Mikil skriðuhætta er þarna, en Sigurður taldi hana liðna hjá í þetta sinn. Hey fór mjög illa í bleytunni og eiga margir talsvert mikið óhirt. Einstaka bóndi hefur þó náð öllu inn. Þurrkar hafa verið í Bárðardalnum undanfarnar þrjár vikur og heyskapur gengið vel. Vegir urðu næstum ófærir í rigningunni og sagði Sigurður, að það væri í fyrsta sinn. Þá hljóp mikill vöxtur í Skjálfandafljót. Samkvæmt upplýsingum veðurstofunnar rigndi viðast um landið um helgina, nema í Vestmannaeyjum. Mest varð rigningin fyrir norðan og austan. Á áðurnefndum sólarhring rigndi um 25 mm á Akureyri, sem er hálfsmánaðar úrkoma og 40 mm á Vopnafirði. Víða var hvassvirði með í förum, og veður því hálf óyndislegt til útilegu.
SBKeykjavik Tvær skemmtanir voru auglýstar í Búðardal um helgina og kom allmargt fólk á staðinn. Um 70 tjöld voru á tjaldstæði þorpsins á laugardag og um 700 manns á dansleik i Dalabúð um kvöldið. Á sunnudag fór veðrið að versna og tjöldum fækkaði eitthvað. Mannfjöldi var einnig í Dalabúð það kvöldið. Um nóttina gerði svo vitlaust veður, rok og rigningu, og mun rokið hafa verið ein sjö vindstig. Þá fór heldur að versna ástandið á tjaldstæðinu, tjöld fuku upp, rifnuðu og lögðust niður og fólk var í miklum vandræðum. Var þá gripið til þess ráðs að opna félagsheimilið og hleypa gestunum inn. Munu um 300 manns hafa haft þar aðsetur um nóttina. Húsvörður og fjölskylda hans unnu fram morgun við að hlynna að fólki, sem var margt illa haldið af kulda og vosbúð. Að sögn fréttaritara blaðsins í Búðardal, Steinþórs Þorsteinssonar, mun aldrei hafa verið jafn margt fólk samankomið í Búðardal og um helgina. Þrátt fyrir óveðrið og vandræði af völdum þess, fór allt hið besta fram.
Morgunblaðið segir 8.ágúst frá hlaupi í Súlu:
Flóð byrjaði í Súlu í fyrrinótt, og í gærkvöldi var talið, að áin væri tveggja metra djúp, þar sem hún rennur undir nýju brúna á Skeiðarársandi austan við Lómagnúp. Brúin yfir Súlu og Núpsvötn austan við Lómagnúp er fjögur hundruð metra löng, og er þessi brú fyrsta stóra brúin, sem byggð er yfir Skeiðarársand. Í gærkvöldi var talið, að vatnsmagnið í Súlu væri um 2000 sekúndulítrar, en að öllu jöfnu er áin ekki nema 150200 sekúndulítrar.
Tíminn segir 9.ágúst af næturfrosti í Þykkvabæ - og af breytingum á hverum við Kröflu:
SB, Reykjavik útlitið með kartöflusprettu í Þykkvabæ er heldur slæmt núna, að sögn Sigurbjarts Guðjónssonar í Hávarðarkoti. Ástæðan er einkum vorkuldinn, sem varaði fram á sumar. Í fyrrinótt var svo kalt þar eystra, að kartöflugrös frusu, en féllu þó ekki vegna þess að þau náðu að þiðna áður en sól kom upp. Hitinn var í frostmarki síðla nætur í tveggja metra hæð og er þá oft um 2ja stiga frost við jörðu. Ef svona heldur áfram með veðurfar, er ekki við því að búast að farið verði að taka upp fyrr en í september, en ef hlýindakafli kemur fyrir haustið, getur það breyst eitthvað.
JI-Mývatnssveit. Menn héðan úr sveitinni fóru að Kröflu á þriðjudaginn var. Þá kom í ljós, að gufuútstreymi er með meira móti. Gufuhverinn Litla-Víti var t.d. í töluverðum ham. Þar hefur gufan að undanförnu streymt út um eitt aðalop, en vellur nú út um ein sex til átta op, þótt erfitt væri að telja þau nákvæmlega vegna gufumökksins. Í síðustu viku fóru menn að Kröflu, en þá var ekki að sjá annað en að allt væri með felldu, svo að þessi breyting hlýtur að hafa orðið einhvern síðustu daga. Þess ber þó að geta í þessu sambandi, að oft verða breytingar á þessu svæði. Hverirnir við Námaskarð sóttu mjög í sig veðrið fyrir skömmu, eins og frá var sagt hér í blaðinu, en nú hefur sljákkað í þeim. Sumir geta sér þess til, að umbrotin hafi verið af völdum þurrkanna. Jarðvatnsyfirborð hafi lækkað vegna langvinnra þurrka og þá lækkað í hverunum, en um leið hafi hitinn í þeim aukist.
Mjög kalt var upp úr miðjum mánuði, þann 18. varð alhvítt á Grímsstöðum á Fjöllum og við Brú á Jökuldal.
Vísir segir af svölum dögum 20.ágúst:
Það leynir sér ekki að nú haustar að, enda er þegar farið að frjósa á nóttunni á einstaka stað á landinu. Í nótt mældist 1 stigs frost á Hellu en í fyrrinótt var örlitið frost hér í Reykjavik, það fyrsta á haustinu. Féllu kartöflugrös í nágrenni borgarinnar, t.d. á Hólmi rétt við Geitháls, en þar mældist 2ja stiga frost. Er haustið óvanalega snemma á ferðinni í ár. Þrátt fyrir sól og blíðu í gær mældist hitinn hér í Reykjavik aðeins um 11 stig, en borgarbúar létu það ekki á sig fá og nutu sólarinnar í ríkum mæli, enda líklega hver síðastur að fá lit á andlitið fyrir veturinn. Spáð er hægviðri með skúrum hér vestan til á landinu næsta sólarhring, en sólskini fyrir austan. ÞS
Fyrir utan illviðrið mikla þann 23. og 24. og næstu daga á eftir þótti tíð í september nokkuð hagstæð. Meira að segja komu nokkrir óvenjuhlýir dagar fyrir norðan um miðjan mánuð og hiti fór yfir 20 stig. Ingibjörg í Síðumúla segir af september:
Að jafnaði veðragóður og hlýr - Vætusamur var hann þó og því oft erfiður og ömurlegar smalamennskur. Í göngum fengu menn þó góð veður og björt og leitaðist vel í þeim öllum þrem. Nokkrir skaðar urðu í héraðinu í fellibylnum þ. 23., svo sem hey- og þakplötufok. Hér í uppsveitum hvessti ekki að ráði fyrr en um nóttina. Mesti skaði hér í nágrenninu var í Deildartungu, en þar hrundi til grunna uppsláttur að nýju húsi. Eftirtektarvert er, að elstu hús virðast standa best af sér slík veður og því betur sem þau eru eldri og ónýtari talin.
Nokkur óróleiki var í jörð í mánuðinum. Fyrst var svæði við Langjökul til umræðu - reyndist að einhverju byggt á misskilningi - en við leyfum fréttum af því að flakka með. Síðan urðu breytingar á efnainnihaldi vatns í Múlakvísl - og rætt var um yfirvofandi Kötlugos - rétt einu sinni - og allmiklir jarðskjálftar urðu á Reykjanesi:
Tíminn segir frá 6.september:
Undanfarna daga hefur orðið vart við jarðhræringar við Langjökul, og svo var einnig í gær. Barst þá sú fregn, að sprunga hefði myndast í jökul við Bláfell, suðaustur af Langjökli, og flugmenn úr Loftleiðavéi töldu sig hafa séð gosbólstra stiga í loft upp á þessum slóðum. Það var Ragnar Stefánsson, jarðskjálftafræðingur hjá Veðurstofunni, sem fyrstur kom skilaboðum til Almannavarna um þetta, og var þá þegar brugðið við að kanna, hvað þarna væri á seyði. Þegar til kom, sást þó ekki neitt, sem benti til náttúruhamfara. Flugmenn frá Flugfélagi Íslands, sem flugu þarna yfir skömmu á eftir Loftleiðavélinni urðu einskis óvenjulegs varir. Dr. Sigurður Þórarinsson, Guðjón Petersen frá Almannavörnum ríkisins og Sveinbjörn Bjarnason frá Almannavörnum Reykjavíkurborgar höfðu sömu sögu að segja. Urðu þeir einskis vísari, nema hvað óvenjulegir skýjabólstrar voru yfir fjöllum á þessum slóðum, en dr. Sigurður taldi þá þá þó ekki hafa einkenni gosbólstra.
Natríum og kalíum í Múlakvísl hefur tvöfaldast á einni viku, og getur það bent til þess að til tíðinda sé að draga í Mýrdalsjökli. Venjulega eru tíu milligröm af natríum í litra vatns í Múlakvist og Jökulsá á Sólheimasandi og hálft annað milligramm af kalíum, og svo var í sýni, sem var tekið 27. ágúst, sagði Sigurður Steinþórsson jarðfræðingur við Tímann í gærkvöldi, en í sýni, sem tekið var 3. september, hafði natríum- og kalíummagn í Múlakvist tvöfaldast. Aftur á móti hafði það ekki breyst í Jökulsá.
Ragnar Stefánsson jarðskjálftafræðingur sá ástæðu til að rita bréf. Tíminn 8.september:
Svo virðist, sem undirritaður hefi verið meðsekur um að valda einum allsherjar jarðskjálfta í íslenskum fjölmiðlum 5. sept. s.l. Forsaga þessa máls er sú, að þennan dag hringdi til mín maður austan úr Biskupstungum og sagðist hafa séð óvenjulega sprungu í skafli eða jökli ofarlega í Bláfellinu. Taldi hann sprunguna vera þannig, að ekki væri útilokað, að hún hefði getað orðið til við bráðnun vegna hita neðan frá. Hafði hann nokkrar áhyggjur af þessu, þar sem vinnuflokkur væri þarna ekki mjög fjærri og vildi að þetta mál væri kannað. Það taldi ég líka rétt og hringdi til Almannavarna, þar sem ég taldi eðlilegt, að sú stofnun hefði þarna frumkvæði. Það eina, sem ég ráðlagði var, að talað yrði við jarðfræðing. Spurningu um jarðhræringar á þessum slóðum svaraði ég á þann veg, að talsvert hefði verið um mjög litla jarðskjálfta undanfarin ár á svæði kringum Sandvatn og Hagavatn, suður af Langjökli (15-20 km suðvestur af Bláfellinu). Undanfarna daga hefur verið litið um jarðskjálfta þarna miðað við s.l. vetur t.d. Það er því rangt eins og gert var í einu dagblaðanna a.m.k. að leggja með fyrirsögn áherslu á, að komið hefðu jarðhræringar á þessu svæði dagana fyrir umrætt blaðagos. Að lokum þetta. Ábendingar almennings geta verið ómetanlegar, hvað snertir viðvörun um náttúruhamfarir. Slíkar ábendingar þarf að kanna nánar af þeim, sem best þekkja til áður en gossögur eru settar af stað. Óvarkárni eða fljótfærni fjölmiðla, hvað þetta snertir, getur hrætt almenning frá að veita slíkar upplýsingar. 6. september 1973. Ragnar Stefánsson.
Þann 15. og næstu daga urðu miklar jarðhræringar á Reykjanesi - enginn misskilningur þar. Morgunblaðið segir frá 16.september:
Talsvert miklar jarðhræringar urðu á Reykjanesi í fyrrinótt og má segja að Reykjanesið hafi leikið á reiðiskjálfi mestalla nóttina. Fannst jarðskjálftinn víða um land, m.a. vestur á Ísafirði, á Akranesi, Hvolsvelli, í Hrútafirði, Síðumúla og víða á Mýrum. Snarpasti kippurinn varð klukkan 01:46 og mældist hann 5,4 stig á Richter-kvarða. Til samanburðar má geta þess, að jarðskjálftinn, sem lagði Agadir [í Marokkó] í rúst 1960 mældist 5,8 stig og jarðskjálftinn, sem nýlega olli stórtjóni í Mexíkó mældist 5,5 stig. Aragrúi jarðskjálftakippa fannst í alla fyrrinótt og í gærmorgun. Upptök þessa alls var í sunnanverðum Núpshlíðarhálsi í um það bil 10 km fjarlægð í austur frá Grindavík. Tjón mun ekki hafa orðið að ráði af jarðskjálftanum, nema í Krísuvik, en fólk varð víða felmtri slegið vegna hræringanna. Jarðskjálftinn var mestur á Reykjanesskaganum að sjálfsögðu og fólk sem var i tjöldum við Ísólfsskála fyrir austan Grindavik varð vart við mestan ágang, svo og fólkið á Krísuvíkurbænum. Grjót hrundi úr Núpshlíðarhálsinum, þar sem upptökin urðu og hrundu þar talsverð björg. Einnig hrundi grjót á veginn við Kleifarvatn.
Ragnar Stefánsson, jarðskjálftafræðingur sagði að jarðskjálfti þessi hefði ekki verið ýkja stór á íslenskan mælikvarða. Árið 1968 varð á Reykjanesi jarðskjálfti, sem mældist 6 stig og voru upptök hans nokkru austar en þessa nú. Þá varð jarðskjálftinn, sem varð fyrir mynni Skagafjarðar árið 1963 allmiklu snarpari, þar sem hann mældist 7 stig á Richter-kvarða. Ragnar sagði að kippurinn, sem varð klukkan 01:46 í fyrrinótt hefði verið sterkastur, en klukkan 02:22 hefði komið annar allsnarpur einnig og var styrkleiki hans 4,6 stig.
Tíminn segir frá áframhaldandi hæringum í pistli 18.september:
Á sunnudagskvöld og aðfaranótt mánudags urðu enn allsnarpar jarðhræringar á Suðvesturlandi eins og spáð hafði verið. Upptök skjálftanna höfðu líka fært sig um set frá því aðfaranótt laugardags, eins og eðlilegt er talið, þegar um misgengi jarðlaga er að ræða og voru að þessu sinni allmiklu vestar en áður, eða um fimmtíu kílómetra frá Reykjavik, þannig að þeirra gætti ekki verulega þar. Hins vegar höfðu þau færst nær Grindavik og voru um það bil sjö kílómetra norðaustur af þorpinu, enda urðu Grindvíkingar hræringanna óþyrmilega varir og margir flúðu úr húsum og leituðu skjóls í bílum sinum líkt og gerðist í Reykjavik aðfaranótt laugardags. Harðasti kippurinn mældist um fimm stig á Richterskvarða, eða öllu vægari en sá, sem snarpastur var aðfaranótt laugardags. Hann kom laust fyrir hálftíu á sunnudagskvöldið og síðan reið hver kippurinn af öðrum yfir langt fram á nótt, svo að fæstum varð svefnsafnt í Grindavík. Heimilisfólk í Krýsuvík varð að flýja bæinn á nýjan leik og hafðist við í Njarðvíkum í nótt. Þá flúði fólk frá Ísólfsskála til Grindavikur, þegar ljóst var,að vegurinn þangað væri í þann mund að teppast. Vegurinn er allur sprunginn og gríðarmikil björg hafa fallið yfir hann. Mikið hefur hrunið úr Festarfjalli og klettabeltið ofan við Hraunssand hefur sprungið fram á köflum og á brúninni má sjá sprungur, sem eru hátt á annan metra á breidd og sum björgin í fjörunni eru trúlega margir tugir smálesta á þyngd. HHJ
Að kvöldi 23.september gerði mikið landsynningsveður um allan vesturhelming landsins. Voru á ferð leifar fellibylsins Ellen. Þetta er í flokki mestu skaðaveðra septembermánaðar og jafnvel ársins alls. Um veðrið var fjallað í sérstökum pistli hungurdiska fyrir nokkrum árum og verður það ekki endurtekið hér - rétt aðeins rifjaðar upp fáeinar blaðafregnir.
Tíminn segir frá 25.september:
Óveðrið sem gekk yfir landið sunnan- og vestanvert síðari hluta sunnudagsins [23.] og aðfaranótt mánudags, var eitt af snörpustu áhlaupsveðrum, er hér koma, og veðurhæð svo mikil, að fara verður aftur í tímann til þess að finna viðlíka dæmi svo snemma hausts. Það olli líka tjóni, sem enn er vanséð, hversu mikið er, á bátum, mannvirkjum, línum og bifreiðum og öðrum tækjum, en vafalaust nemur það tugum milljóna.
Tíminn segir enn af veðrinu 26.september:
SBReykjavik. Lítið tjón varð á Blönduósi í óveðrinu á mánudagsnóttina, en hins vegar varð allmikið tjón í nágrannasveitunum. Hey fauk viða, sums staðar hurfu stærðar fúlgur gjörsamlega. Í Langadal fuku þök og þakhlutar af útihúsum á flestum bæjum. Aðeins á Holtastöðum lét veðrið öll þök f friði. Að Hvammi í Vatnsdal fauk þak í heilu lagi af sambyggðum fjárhúsum, og lagðist það við húsvegginn, án þess að ein einasta sperra
brotnaði. Vélskófla, sem stóð í malargryfju fyrir neðan Öxl, er gjörsamlega ónothæf, í henni er allt gler brotið og lakkið horfið utan af henni. Vegagerðarskúrar fóru lítilsháttar á flakk, en gerðu ekki skaða. Í Brekku í Þingi fauk mikið járn af nýju íbúðarhúsi, og víða í Sveinsstaðahreppi fuku hey. Ekkert þakjárn er til í kaupfélaginu á Blönduósi, það seldist upp á svipstundu á mánudaginn. Þess má geta, að gangnamenn voru þessa óveðursnótt uppi á Auðkúlu- og Grímstunguheiði. Ekki gerði veðrið þeim sjálfum mein, en farartæki þeirra tókust á loft. Þá tókst einnig á loft jeppi, sem var á ferð á Reykjabrautinni, og kom hann niður utan vegar. Bilstjórinn, Kári Steinsson ýtustjóri, meiddist lítið sem ekkert. Á þessum slóðum mun veðrið hafa verið verst framan af nóttinni, en ekkert fór að hvessa fyrr en orðið var aldimmt um kvöldið.
SBReykjavik. Í óveðrinu á mánudagsnóttina skemmdust tveir bátar í höfninni á Flateyri. Voru það þeir Vísir og Sóley, sem báðir eru um eða yfir 100 lestir. Skemmdirnar hafa ekki verið metnar ennþá, en eru talsverðar.
SB-ReykjvikTalsvert tjón varð á Ísafirði og í grennd af völdum óveðursins á mánudagsnóttina. Þar var veðrið verst milli fimm og sex um nóttina, en allhvasst var orðið þegar um kl. 2. Vakt var á lögreglustöðinni alla nóttina, og hringdi fólk mikið þangað, er rúður fóru að brotna og þakjárn að fjúka. Lögreglan veitti aðstoð eftir megni, og margir aðstoðuðu hana einnig. Járnplötur skemmdu nokkra bíla í kaupstaðnum, en verst mun veðrið hafa farið með bifreiðaverkstæði Ísafjarðar. Þar var búið að slá upp fyrir mikilli nýbyggingu, og fauk uppslátturinn allur út í veður og vind. Þá fauk hús í Hnífsdal, sem verið var að hlaða.
Tjón af völdum illviðrisins nýafstaðna varð nokkuð í Búðardal, að sögn Steinþórs Þorsteinssonar fréttaritara. Allt járna tók af nýbyggðu húsi, svo að ekki var ein einasta járnplata eftir. Minni háttar járnfok varð viða á bæjum i grenndinni, og töluvert fauk af heyjum. Aldrei varð rafmagnslaust, en símasamband hefur verið slæmt.
Morgunblaðið nefnir tölur 25.september:
Eignatjónið í óveðrinu í fyrrinótt nemur tugum milljóna króna. Skemmdir á húsum urðu einkum þær að þakjárn losnaði og fauk, rúður brotnuðu og sjónvarpsloftnet og reykháfar skemmdust. Hús í byggingu urðu víða mjög illa úti, mótauppsláttur féll og hlaðnir veggir hrundu. Bílskúrar skemmdust viða og hjólhýsi fuku um koll. Talsverðar skemmdir urðu á fjölmörgum bifreiðum af völdum foks, bæði sand- og grjótfoks og járnplötu- og timburfoks. Sums staðar fuku bifreiðar einnig til og a.m.k. 3 bifreiðar í akstri fuku út af vegum. Mikið tjón varð víða við verksmiðjur, m.a. í álverinu í Straumsvík og á sementsverksmiðjunni á Akranesi. Í flestum höfnum varð meira og minna tjón á bátum og bryggjum og víða sukku trillur og litlir bátar. Talsvert tjón varð einnig víða á sveitabæjum, einkum það, að járn losnaði af þökum. Tvö möstur á Búrfellslínu féllu og víða slitnuðu símalínur og raflínur, einkum í þéttbýlinu af völdum foks járnplatna. Rafmagnslaust varð við og við alls staðar á orkuveitusvæði Landsvirkjunar vegna seltu á tengivirkjum og línuslits.
Veðráttan segir að þann 27. hafi eldingar skemmt sjónvarpstæki, síma og fleira á Fagurhólsmýri.
Tíminn ræðir loftslagsbreytingar í þýddri, erlendri grein 28.september (vitnað er í fræga vísindamenn):
Grein úr U.S. & World Report: Eru miklar loftlagsbreytingar í vændum? Auknar líkur á verulegum loftslagsbreytingum virðast koma fram víða um heim. Þurrkaskeið, stórflóð og stormar ganga yfir. Jafnframt verður vart langtímabreytinga á hita og úrkomu. Allt eru þetta drættir í sömu myndinni. Sérhver meiriháttar breyting gæti haft mjög örlagarík áhrif á matvælaframleiðslu og velferð milljóna manna. Hið þurra, hrjóstruga svæði sunnan Sahara-eyðimerkurinnar er ljóst dæmi um breytt veðurfar. Þar hefir að undanförnu gengið yfir langvinnari þurrviðrakafli en sögur fara af áður og hungursneyð hefir vofað og vofir enn yfir milljónum manna á þessum landsvæðum. Vísindamenn halda fram, að jaðar eyðimerkurinnar þokist um þrjátíu mílur suður á bóginn ár hvert, bithagi og ræktarland blási upp og borgir eyðist.
Margskonar illviðri gerðu vart við sig í Bandaríkjunum síðastliðið vor. Meðal annars má nefna mannskætt hríðarveður í Colorado, nálega 400 hvirfilbylji til og frá um meginlandið, stórflóð í Mississippidalnum og mikla snjókomu viða í suðurfylkjunum. Miklu hærra er í vötnunum miklu á landamærum Bandaríkjanna og Kanada en tíðast áður, en stórviðrin í vor skoluðu burtu vænum spildum af strandlengju þeirra, eyðilögðu meðal annars nokkra þjóðvegarkafla og eyddu heimilum nokkurra manna. Allmörg undangengin ár hafa vetur verið mildir á austurströnd Bandaríkjanna en nokkuð harðir á vesturströndinni. Þetta er öfugt við það, sem gerðist áratuginn þar á undan.
Þurrkur háði verulega á allbreiðu belti í Rússlandi, Indlandi og Kína árið sem leið og olli uppskerubresti á mikilvægum korntegundum. óttast er, að uppskera sé einnig léleg í haust. Uppskeran í Pakistan verður einnig rýr í ár, en það stafar ekki af þurrki. Þar urðu mestu flóð, sem sagnir eru um í fjörutíu ár, kornuppskera skolaðist burt og að minnsta kosti 15 þúsund manns fórust. Gífurlegt tjón varð einnig af flóðum í fyrra í Mexíkó, Túnis og Kóreu. Óvenjulega og óeðlilega köld tíð háir verulega ræktun ýmissa fæðutegunda í Japan, en þar má ekki miklu skeika i því efni. Því er og spáð, að veðurfar haldi áfram að kólna þar um sinn að minnsta kosti.
Veðurfar hefir verið óvenjulegt á ákveðnum svæðum að undanförnu, en veðurfræðingar eru einnig að athuga um líkur á langvarandi breytingum. Til dæmis hefir veður farið hægt og hægt kólnandi á norðurhveli síðan um 1940. Jafnframt hefir orðið votviðrasamara en áður umhverfis miðbaug, en úrkoma orðið enn minni á þurrviðrisbeltunum síðastliðinn áratug, en hún varð nokkru sinni á fyrra helmingi aldarinnar. Einnig verður vart reglubundinna breytinga á veðurfari á ákveðnum fresti. Nefna má sem dæmi þurrkana, sem komið hafa á tuttugu ára fresti á sléttunum miklu í Bandaríkjunum og valdið verulegu tjóni. Þessi þurrkaskeið hafa gengið reglulega yfir síðan fyrir borgarastyrjöld. Benda má á þurrkana upp úr 1930 og þurrkana í suð-vesturfylkjunum upp úr 1950. Nú eru liðin meira en tuttugu ár síðan að þurrkaskeið skall á siðast og sumir sérfræðingar um veðurfar eru því farnir að brjóta heilann um, hvort ekki séu einhverjar alvarlegar veðurfarsbreytingar þarna að verki.
Hvað boðar þetta svo í heild? Hinn kunni evrópski loftslagsfræðingur dr. H.H. Lamb litur svo á, að ef til vill séu að verða meiri og víðtækari veðurfarsbreytingar en áður hafa orðið síðan á átjándu öld. Dr. Murray Mitchell yngri segir: Stormar hafa gengið yfir á annan veg en áður. Regnbelti ganga hægar yfir en áður. Það veldur flóðum á sumum svæðum og ofþurrki annars staðar, en við vitum bara ekki, hvað veldur. Ef þessi fyrirbæri halda áfram að valda erfiðleikum viða um heim allmörg ár enn er að mínu viti tímabært að fara að hugleiða, hvort verulegar og varanlegar veðurfarsbreytingar séu að verða á jörðinni. Blaðamaður frá U.S. News & World Report leitaði til margra sérfræðinga og dr. Mitchell var á sama máli og flestir þeirra í því efni, að nokkur dæmi um undarlegt og fágætt veðurfar þurfi ekki endilega að boða alvarlegar og varanlegar loftslagsbreytingar á jarðkringlunni.
Sérfræðingar um veðursögu benda á, að hlýindaskeið á jörðinni standi venjulega um tíu þúsund ár. Nú er talið, að núverandi hlýindaskeið hafi einmitt hafist fyrir um það bil tíu þúsund árum. Ýmsir vísindamenn vilja því halda fram, að gera megi ráð fyrir, að veðurfar taki að kólna verulega ef marka megi söguna. Langsennilegast er þó, að slík breyting gerðist smátt og smátt og tæki að minnsta kosti nokkrar aldir. Við ættum að hafa yfrið nægan tíma til undirbúnings ef alvarleg breyting væri að hefjast, segir dr. Mitchell. Hitt veldur ekki minni heilabrotum í sambandi við langtímaspár, hvað hrindi veðurfarsbreytingunum af stað. Dr. Helmut Landsberg hjá Marylandháskóla segir í því sambandi: Áhrif hafs og andrúmslofts hvors á annað valda sennilega óstöðugleika veðurfarsins, ásamt ótölulega mörgu öðru auðvitað. Hafið tekur við hita og varðveitir hann lengur en andrúmsloftið og dregur áhrifin þannig á langinn. Langvarandi breytingar verða sennilega vegna utanaðkomandi áhrifa eins og breytingar á orkuútstreymi frá sólinni.
Vísindamenn bera einnig á borð þá kenningu, að möndull jarðar vaggi eitthvað til á þúsund árum og snúi þá öðru skauti jarðar eilítið frá sólu en hinu að henni. Þetta valdi ísöldum eða hlýviðraskeiðum. Nokkrir vísindamenn andmæla því, að sumar hneigðir i veðurfari kunni hvað þá þurfi að boða alvarlegar og örlagaríkar breytingar á veðurfari jarðar. Og flestir veðurfræðingar vilja forðast djarfa spádóma. Dr. Jerome Namias hjá Hafrannsóknastofnun Scripps í Kaliforníu annaðist fyrr meir langtímaspár um veðurfar. Hann tekur í sama streng og fjölmargir starfsbræður hans þegar hann segir: Við vitum ekki skýr svör við spurningum um veðurfar og loftslag hnattarins fyrri en að viðhöfum fengið nægilegar upplýsingar og gefist tóm til að kanna þær. Veðurfar kann að vera að breytast á jörðinni, en okkur skortir vitneskju til þess að dæma um, hvort svo sé I raun og veru, eða hvers vegna, ef sú verður raunin.
Október hófst á miklum hlýindum. Um miðnætti að kvöldi 30. september mældist hiti á Dalatanga 9,8 stig. Kl.03 aðfaranótt 1.október var hann hins vegar kominn í 22,6 stig og kl.06 mældist hann 22,7 stig. Lesið var af hámarksmæli kl.06 og hafði hámarkið komist í 23,5 stig. Sennilega hefur það verið einhvern tíma milli kl.3 og 6. Þetta er hæsti hiti sem mælst hefur á landinu í október. Hlýtt var langt fram eftir degi, en hiti lækkaði þó, var 16,2 stig kl.18, en síðan kólnaði frekar. Á Seyðisfirði mældist hitinn þessa nótt hæstur 19,0 stig. Daginn eftir, þann 2. fór hiti í 22,0 stig á Seyðisfirði, í 20 stig á Hallormsstað og 20,6 stig á Vopnafirði. Þann 1. komst hiti í 20,2 stig á Siglunesi.
Tíminn segir af vegarskemmdum í pistli 2.október:
Klp-Reykjavik. Miklar vegaskemmdir urðu af völdum skriðufalla og úrfellis á Vestfjörðum um helgina [29. til 30.september]. Á að minnsta kosti tveim stöðum urðu stórskemmdir á vegum og voru þeir lokaðir í gær, að sögn Arnkels Einarssonar hjá Vegagerð ríkisins. Hann sagði, að vitað væri um skemmdir á veginum innan við Rafnseyri við Arnarfjörð, en þar hafa skriður lokað veginum á nokkrum kafla. Búist er við að viðgerð á þeim kafla ljúki í nótt, en í gærkveldi var jarðýta frá Þingeyri á leið á staðinn. Þá sagði hann, að skemmdir hefðu orðið á veginum í Gufudalssveit í Austur-Barðastrandarsýslu. Þar hefði grafist frá ræsum og einnig féllu skriður á veginn þar. Vitað var um einn jeppa, sem komst þarna yfir við illan leik í gær, en annars er litið hægt að segja um þessar skemmdir eða aðrar, sem orðið hafa á vegum um helgina, að svo komnu máli.
Ingibjörg í Síðumúla segir af október: Fyrstu 8 dagana voru hlý og góð veður, en mjög var úrkomusamt eins og mánuðurinn í heild. Þrjá síðustu dagana voru stórfelldar rigningar. Urðu mikil flóð í ám og lækjum. Ekki hef ég heyrt um neina meiriháttar skaða þar af. Nú um mánaðamót er ekki farið að taka lömb eða annað fé í hús.
Morgunblaðið segir af veðurblíðu 5. og 6. október:
[5.] Grímsstöðum á Fjöllum 4. okt. Septembermánuður hefur verið með eindæmum góður. Frostnætur hafa verið fáar. Göngur hófust hér 16. september, og voru smalanir mjög erfiðar, sökum þess að féð var dreift um allar heiðar eins og um hásumar. Í Búrfellsheiðagöngum sáu gangnamenn nýútsprungna sóley og mun það vera einsdæmi á þessum tíma árs. Gróðurinn um allar heiðar er alveg sérstakur um þessar mundir, því að hann hefur verið að gróa fram eftir öllu sumri, og þar sem fannirnar lágu fram eftir í sumar, er nú dökkgrænn feldur eins og í túni. Af þeim sökum er féð eins dreift um allar heiðar og raun ber vitni. Heimtur eru mjög slæmar vegna þessa, því féð hefur ekki fundist. Fallþungi dilka er eitthvað lakari nú en í fyrra, en þá voru dilkar líka mjög vænir. Bændur kenna nú um þessum miklu vorkuldum, sem voru s.l. vor. Hér er í dag sumarblíða, 9 stiga hiti og við biðjum að heilsa. Benedikt.
[6.] Einstök veðurblíða hefur verið í Neskaupstað að undanförnu, og hefur hitinn mest komist nokkuð yfir tuttugu stig. Svona hefur veðrið verið dag eftir dag, og í dag er hitinn orðinn um 18 stig, sagði Ásgeir Lárusson, fréttaritari Morgunblaðsins, þegar við ræddum við hann í gær. Hann sagði, að lognið væri það mikið, að ekki blakti hár á höfði, og gróðurinn væri eins og að sumarlagi. Reynitré eru t.d. algræn enn og fíflar eru útsprungnir í görðum.
Veðrið hérna á Vopnafirði, er eins og á Mallorca, og svona hefur það verið síðustu daga, hitinn komst t.d. í 22 stig í fyrradag, sagði Haraldur Gíslason, fréttaritari Morgunblaðsins á Vopnafirði í samtali við blaðið í gær.
Úrhelli gerði víða norðanlands þann 7. október. Tíminn segir af því þann 9.;
JÞ-Siglufirði, mánudag. Úrkoma hefur verið með eindæmum hér á Siglufirði síðasta sólarhring, meiri en nokkurn tíma í manna minnum. Miklar skemmdir urðu á veginum við Strákagöng, og er vegurinn sundurskorinn vestan við þau. Lækir ruddust niður fjallhliðina, og flæddu jafnvel niður í kjallara í sumum húsum. Ekki er þó vitað um verulegt tjón, en eitthvað er um skemmdir í einum kjallara, og einnig munu mörg þök og gluggar hafa lekið. Austan megin við Strákagöng, þ.e. Siglufjarðarmegin, féll aurskriða með grjóti. Meiri skemmdir urðu þó vestanmegin gangnanna. Þar féll skriða og mikið vatn gróf sig niður í veginn og skar hann í sundur. Vonast er til, að búið verði að lagfæra veginn fyrir morgundaginn. Veður fer nú batnandi á Siglufirði, en snjór í fjöllum og grátt niður í miðjar hliðar.
Þann 25. flæddi upp á bryggjur í Grindavík. Morgunblaðið segir frá þann 26:
Í gær [25.] flæddi yfir bryggjur í höfninni í Grindavík, en þar var þá mikið hvassviðri af suðvestan og háflæði. Við lá að suma bátana ræki upp á bryggjurnar, og hætt er við, að illa hefði farið, ef nýju varnargarðarnir hefðu ekki verið til staðar. Í fyrravetur kom álíka flóð eða meira, og margir bátar voru í höfninni, og var tjón þá nokkuð. Grindvíkingar bjuggust við hinu versta í gær, og voru allir bátar rammlega festir við bryggjur, og sem betur fer náðu öldurnar aldrei að hagga við þeim. Í gærkvöldi var allt orðið rólegt í höfninni í Grindavík, enda komin fjara. Suðvestanrok skall á í Grindavík skömmu eftir hádegi í gær, og á sama tíma byrjaði að flæða að. Á skömmum tíma varð því mikið brim og alda í innsiglingarrennunni, en bátar, sem voru að koma að, komust allir klakklaust inn í höfnina. Um kl. 16 var komið háflæði, og þá voru allar bryggjur komnar í kaf, og náði sjórinn þá langt upp á land. Bátarnir virtust þá vera bundnir við sjóinn, því ekki sást nema endrum og eins í bryggjupollana. Alls konar drasl og grjót barst upp á bryggjurnar, en þó ekki stórgrýti eins og s.l. vetur, þegar heilu björgin bárust upp á bryggjurnar.
Í lok október lokaðist vegurinn við Ferjukotssíki rétt einu sinni. Morgunblaðið 31.október:
Mikil úrkoma var á Vesturlandi í gær. Vegagerðinni var þó í gærkvöldi ekki kunnugt um neinar verulegar vegaskemmdir, nema hvað Uxahryggjavegur mun hafa lokast. Eins tók að bera á miklum vexti í Hvítá í Borgarfirði, en áin flæddi yfir veginn við Ferjubakkasíkin og á Hvítárvöllum á flóðinu milli kl. 9 og 10 í gærkvöldi. Lokaðist vegurinn þar algjörlega um tíma.
Nóvember var sérlega kaldur. Umhleypingar voru einnig stríðir. Olíukreppan svonefnda var að skella á. Vinnsla var að hefjast í Norðursjó og þar gengu yfir stöðug illviðri í nóvember og desember og ollu miklu tjóni þar og vandræðum.
Ingibjörg í Síðumúla segir af nóvember: Kaldur, en snjóléttur og því kominn nokkur klaki í jörðu. Sæmilegir hagar voru fyrir fé til þ. 20. Aðfaranótt þ. 4. gerði mikið hvassviðri af norðaustri. Eitthvert fok varð, t.d. fauk þak af fjárhúsum á Hurðarbaki í Reykholtsdal. Einnig fauk þar um koll heyvagn og skemmdist mikið.
Tíminn segir af miklum hrakningum og rafmagnstruflunum 13.nóvember:
Talið er, að um tuttugu manns á átta jeppum hafi teppst inni í Landmannalaugum vegna óveðurs og fannkomu þar efra á sunnudaginn [11.], og sat þar enn í gærkvöldi, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til þess að koma því til hjálpar. Þetta fólk fór inneftir á laugardaginn í góðu veðri, þó ekki allt í einum hópi, og ætlaði aftur til byggða á sunnudaginn. [Sagt frá leit og hrakningum í blaðinu 14.nóvember].
Nokkrar rafmagnstruflanir urðu í Reykjavik og nágrenni í fyrrakvöld [sunnudag 11.] vegna ísingar, sem hlóðst á línurnar í blotaveðrinu. Hafnarfjörður varð verst úti, en þar voru miklar rafmagnstruflanir í nokkra klukkutíma. Rafmagnslínurnar urðu allt að handleggsþykkar af ísingu, þegar verst var. Þá varð yfirsláttur á línunni og var brugðið á það ráð að tengja inn Reykjaneslínuna. Hún flutti hins vegar ekki nógan straum vegna álagsins á Suðurnesjum, svo að skammta varð rafmagn í Hafnarfirði. Viðgerðir gengu þó vel þrátt fyrir veðrið, og allt var komið í samt lag laust eftir klukkan ellefu í fyrrakvöld. Línan á milli Vífilsstaða og Hnoðraholts sligaðist af ísingu og lágspennulinur á Seltjarnarnesi slitnuðu. Af þessum völdum var nokkuð um rafmagnstruflanir frá því um klukkan sex og fram undir níu í Breiðholti og á Seltjarnarnesi, en þar var þó aðeins um fáein hús að ræða. Þá var Garðahreppur straumlaus í hálfan annan tíma. Að sögn Kristjáns Jónssonar verkstjóra hjá RR gengu viðgerðir verr en ella, vegna þess að erfitt var að komast leiðar sinnar sakir illrar færðar, en allt var samt komið í lag í gær. Hann sagði, að alltaf mætti búast við truflunum í veðrum eins og því sem var um helgina og lítið eða ekkert væri hægt að gera til þess að koma í veg fyrir að ísing hlæðist á línurnar. Nýju hverfunum er sérstaklega hætt við rafmagnstruflunum, því að þar er rafmagnið flutt með loftlinum, þar eð ekki er unnt að leggja jarðstrengi fyrr en lokið er allri jarðvegsvinnu. HHJ.
Slæmt veður var í Keflavik á sunnudaginn [11.] og voru eigendur báta í höfninni aðvaraðir og beðnir að huga að bátum sinum. Að sögn hafnaryfirvalda urðu engar skemmdir á bátum í höfninni, en vindur var 9-10 vindstig, og stóð þvert á hafnargarðinn, sem var ófær vegna sjógangsins. Einu skemmdirnar, sem vitað er um, eru á kaffiskúr sem stóð við höfnina, en hann for af stað og færðist litið eitt um set. Skemmdir urðu ekki á skipum eins og áður sagði, þótt útlitið væri slæmt þegar verst lét. Stórstraumsflóð var er veðrið lét sem verst og þess vegna ekki stætt á hafnargarðinum vegna sjógangsins, en að sögn starfsmanns hafnarinnar er höfnin nokkuð skjólgóð en of lítil og því oft þröngt í henni. hs
Morgunblaðið segir af foki í pistli 13.nóvember:
Mosfellssveit, 12. nóv. Í rokinu í gærkvöldi [11.] fauk þak af hlöðu á bænum Lykkju á Kjalarnesi. Krafturinn í þessari vindhviðu var svo mikill, að þakið fauk í heilu lagi og fylgdu múrfestingarnar með. Litlu munaði, að þakið lenti á íbúðarhúsinu, það skreið meðfram því og lenti á girðingu, sem er rétt við bæinn og braut nokkra girðingarstaura. Ekkert hey, var geymt í hlöðunni, enda enginn búskapur um þessar mundir á Lykkju. Var hlaðan nú notuð sem geymsla og munu skemmdir á því, sem þar var geymt, ekki hafa orðið miklar. Pétur.
Tíminn ræðir veðurhorfur við Pál Bergþórsson í pistli 27.nóvember:
Það má búast við heldur mildara veðri á næstunni, minnkandi frosti og suðaustan átt, sagði Páll Bergþórsson, veðurfræðingur, er hann var að því spurður í gær, hvort ekki færi að linna frosthörkunum, sem verið hafa undanfarna daga. Mest fór frostið niður í 27 stig í þessu mikla kuldakasti á Staðarhóli í Þingeyjarsýslu og á Grímsstöðum. Mest frost í Reykjavik varð 13 stig, en svo kalt hefur ekki orðið í nóvember s.l. 50 ár. Ekki vildi Páll spá því, að við hér á norðurslóðum þyrftum að búast við miklu kuldaskeiði næstu árin eða áratugina. Sjórinn er það eina, sem hægt er að lita til við langtímaspár og það hefur komið í ljós, að hitastigið hér á Íslandi, fer talsvert eftir því hitastigi, sem var á Spitzbergen síðustu 3-4 ár. Það, sem sennilega veldur þessu samræmi, eru mjög hægfara hafstraumar, sem eru frá 1 til 4ra ára á leið sinni frá Spitzbergen til Íslands. A árunum 1965 1971 var kuldaskeið hér á landi, en síðustu tvö árin hafa verið fremur mild, eins og Páll orðaði það. Við megum þó búast við nokkuð köldum vetri núna, því að mun meiri hafís er nú kominn til Jan Mayen, heldur en var í fyrra, en þá nálgaðist hann vart eyjuna. Páll Bergþórsson sagði, að haft væri eftir dönskum prófessor, að á norðurhveli fari kólnandi fram að aldamótum. Byggir prófessorinn þessa spá sína á rannsóknum á Grænlandi. Þegar farið var að skoða þessar upplýsingar betur, komust menn hins vegar að því, að nú eigi að fara að hlýna hvað úr hverju. Sagðist Páll álita að ekkert væri að marka þessar spár, þegar svona mikill mismunur kæmi fram við aðeins litið eitt nánari athuganir á gögnunum um. Heyrst hefur að tilraunir Bandaríkjamanna til að eyða fellibyljum hafi haft kólnandi áhrif hér á landi, þar sem þessir byljir bera með sér heitt loft. Páll sagði, að ennþá væri ekki öruggt að hægt væri yfirleitt að eyða fellibyljum, eða hafa áhrif á þá. Til þess hefðu þessar tilraunir staðið of stutt og hefðu því ekki tölfræðilegt gildi. Hann bætti því við að varla væri þó lengur vafi á því, að hægt væri að koma í veg fyrir haglél, sem í suðlægari löndum geta valdið miklum skaða t.d. á uppskeru. Þetta er gert með silfurjoðíði og það hefur einmitt einnig verið notað til að reyna að eyða fellibyljum. Páll sagði að lokum, að hann héldi að spár hefðu batnað undanfarin ár, og væri ástæðan aðallega hin aukna notkun á tölvum, við úrvinnslu upplýsinga. hs
Morgunblaðið segir frá nýju húsi Veðurstofunnar 2.desember:
Aðalkosturinn við þessar breytingar er sá, að nú höfum við möguleika á nýjum aðferðum við veðurspár, sem samræmast betur kröfum tímans, sagði Hlynur Sigtryggsson veðurstofustjóri, er hann kallaði á sinn fund blaðamenn vegna bættrar aðstöðu Veðurstofunnar í nýjum húsakynnum við Bústaðaveginn. Nýja húsnæðið var tekið formlega í notkun í ágúst s.l. en síðan hefur starfsemin verið flutt inn í áföngum. Nú er öll starfsemi stofnunarinnar komin undir eitt þak á Bústaðaveginum og una veðurfræðingar þar allvel hag sínum. Má segja, að tími hafi verið til kominn, því allt frá stofnun hefur Veðurstofan verið á hrakhólum með húsnæði. Veðurstofan hóf starfsemi árið 1920 að Skólavörðustíg 3. Húsnæði var þar lítið enda starfsmenn aðeins þrír. Fljótlega þrengdist þó um og var þá flutt í Landssímahúsið og þaðan í Sjómannaskólann árið 1945. Þar hefur Veðurstofan síðan verið til húsa, að undanskilinni veðurspádeild, sem flutti á Reykjavíkurflugvöll í janúar 1950. Árið 1961 setti þáverandi veðurstofustjóri, frú Teresía Guðmundsson, nefnd til að athuga húsnæðisþörf Veðurstofunnar. Árangurinn varð sá, að árið 1967 veitti Alþingi 300 þús krónur til undirbúningsvinnu að byggingu Veðurstofu og hófst sú vinna skömmu síðar. Áætlað er, að fullgerð muni nýja Veðurstofan kosta um 87 milljónir króna. Húsið er 16x40,5 metrar, 6679 rúmmetrar og heildargólfflötur 2183 fermetrar. Það er þrjár hæðir og kjallari en efsta hæðin er inndregin að hálfu. Arkitekt var Skarphéðinn Jóhannsson, en að honum látnum sáu Guðmundur Kr. Guðmundsson og Ólafur Sigurðsson um teiknun innréttinga. Aðspurður sagði Hlynur, að nafn á húsið hefði ekki verið ákveðið, en ýmsar uppástungur hefðu komið fram svo sem Vindheimar, Lægðarbakki, Hæðarbrún og Golan-hæðir, en óbyggt var húsið jafnan nefnt Skýjaborgir.
Óvenjukalt var í nóvember og desember. Á landsvísu hafa ekki komið kaldari dagar síðan, í þessum mánuðum. Hinn 23. nóvember var sérlega kaldur og eins dagarnir 17. til 19.desember. Kuldarnir sköpuðu margs konar vandræði í orkumálum, gríðarlegt álag varð á hitaveitur og raforkuver áttu í vandræðum vegna frosta og vatnsskorts.
Ingibjörg í Síðumúla segir af desember: Fyrstu fjórir dagar mánaðarins frostlausir og gekk á með skúrum. Eftir það mældist alla daga meira og minna frost. Mánuðurinn í heild með fádæmum kaldur, nepju og illviðrasamur. Ekki voru mikil snjóþyngsli, en hagar slæmir og hefur orðið að gefa útigangi lengi. Samgöngur voru mest allan mánuðinn með eðlilegum hætti. Á gamlársdag var vonskuveður. Hríð og skafbylur allan daginn. Varð þá víða ófært og komust færri en vildu á nýársböllin. Ekkert þeirra féll þó niður með öllu.
Mjög hlýtt varð skamma hríð 1. og 2. desember. Hámarkshiti á Galtarvita er sagður 15,7 stig kl.9. Það er á mörkum hins trúverðuga, en enn hlýrra varð þó á Dalatanga, 15,9 stig og víðar var mjög hlýtt.
Morgunblaðið segir 5.desember af jarðskjálftum undir Mýrdalsjökli:
Tíðir jarðskjálftakippir hafa verið undir Mýrdalsjökli síðustu daga og um leið hafa komið ljótar skvettur í árnar, sem renna undan jöklinum. Hafa margir talið að nú væri Kötlugos að byrja. Sveinbjörn Björnsson eðlisfræðingur sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að allt að 3 kippir hefðu mælst á dag að undanförnu. Og stærstu verið 3 stig á Richter-kvarða. Kippirnir virtust allir koma mjög djúpt úr jörðu eða 25 30 km, en sjaldgæft væri að kippir, sem mældust hér á landi ættu rætur sínar að rekja lengra en 10 km undir jarðskorpunni. Því gæti átt sér stað, að eldgos væri í nánd. Hann sagði, að þrátt fyrir þessa kippi ekkert hægt að fullyrða um, að Kötlugos væri að hefjast. Gögnum ætti eftir að safna til að reikna nákvæmlega út, hvaðan kippirnir kæmu, en hinu væri ekki að leyna, að Katla væri búin að sofa óvenjulega lengi eða í 55 ár, en meðaltími milli gosa væri 48 ár.
Þann 5. dýpkaði lægð snögglega við Austfirði og olli þar miklu veðri. Tíminn segir grá 6.desember:
Síðari hluta dags í gær {5.] brast á fárviðri af norðaustri við Austfirði, og olli það manntjóni í Neskaupstað. Hvolfdi þar báti með tveim mönnum á, rétt við land, og drukknaði annar maðurinn, sem á honum var, en formanninum, tókst með harðfylgi að synda í land. Þrír bátar úr Neskaupstað leituðu athvarfs sunnan undir Norðfjarðarhorni, er veðrið brast á. Biðu þeir þar átekta, uns skuttogarinn Barði kom á vettvang. Varð að ráði, að bátarnir fylgdust með honum til Neskaupstaðar, en þangað var komið um fimmleytið. Minnsti báturinn var hafður í vari við togarann alla leið inn að bryggjum í Neskaupstað, en þar skildi leiðir, og ætluðu bátverjar inn í höfnina við fjarðarbotninn. En áður en báturinn næði höfninni, skall á ógurlegur sviptibylur, og hvolfdi bátnum við það. Tókst formanninum, sem er frækinn sundmaður, með naumindum að brjótast til lands á sundi, og var hann fluttur í sjúkrahús, mjög þrekaður. Stóð yfir leit að félaga hans í gærkvöldi. Í þessu sama veðri urðu viðlagasjóðshús, sem standa á svokölluðum Bakkabökkum, átta að tölu, fyrir miklum skemmdum. Fauk af þeim járn og pappi og rúður brotnuðu, og var talið, að ekki nema eitt þeirra væri íbúðarhæft án viðgerðar.
Tíminn segir enn af skaða í sama veðri 7.desember:
Í mannskaðaveðrinu í fyrradag varð það slys á vélbátnum Guðmundi Péturs frá Bolungavík, að matsveininn, Ólaf Ingimarsson, tók út, er brotsjór reið yfir skipið, og drukknaði hann. Þetta gerðist um hádegisbilið um 20 sjómílur frá Horni, þar sem hið versta veður brast á á miðvikudagsmorguninn.
Morgunblaðið segir frá vöktun uppleystra efna í Múlakvísl í pistli 11.desember:
Síðan í september hefur magn uppleystra efna verið meira en venjulega í Múlakvísl. en tvisvar sinnum í viku eru tekin sýni í ánni, í þeim tilgangi að nota það sem hugsanlega aðvörun um gos í Kötlu. ásamt jarðskjálftamælingum. Sigurður Steinþórsson jarðfræðingur hefur athugað sýnin sem Vigfús á Heiði í Mýrdal sendir honum tvisvar í viku. Sagði Sigurður að magn uppleystra efna í ánni hefði verið sveiflukennt. Stærsta sveiflan komið fyrst í september og kom brennisteinfýla af ánni. Síðan jafnaði áin sig aftur. en önnur sveifla með meira magni kom í októberbyrjun og síðan enn ein um sl. mánaðamót. Uppleystu efnin minnkuðu svo eftir mánaðamótin í vatninu. en eru aftur á uppleið nú.
Kuldakastið fór að taka í. Tíminn segir frá stöðunni á Höfn í Hornafirði 12.desember:
Ástandið er heldur bágt hér eystra, sagði Aðalsteinn Aðalsteinsson, fréttaritari Tímans á Höfn í Hornafirði, þegar við höfðum tal af honum í gær. Vatnið í uppstöðulóninu við Smyrlabjargaárvirkjun er alveg þorrið, og þaðan kemur ekkert rafmagn. Þetta kemur okkur svo sem ekki á óvart, því að frostakaflinn er orðinn langur. Núna er frostið vægt, eða svona 3-4 stig og hægviðri. Samkvæmt veðurspánni á að hlýna á næstunni, en það þarf meira en eins eða tveggja daga þíðviðri til þess að virkjunin komist í gang aftur.
Tíminn ræddi hugsanlega snjóflóðhættu 14.desember:
Í fyrrinótt var norðaustan stórhríð á Norðurlandi samfara nokkru frosti, sem er um allt land. Í gær birti víða nokkuð upp aftur og spáin fyrir Norðurland í dag gefur til kynna að koma muni skárra veður. Úrkoma var ekki mjög mikil, en þó setti í allmikla skafla hér og þar og olli ófærð. Múlavegurinn var ófær í gær, er við ræddum við fréttaritara okkar þar, Björn Stefánsson, en ætlunin var að ryðja veginn í dag, ef birti almennilega upp, en hríð var enn til fjalla á Ólafsfirði í gær. Björn kvaðst álita, að allmikil hætta væri á snjóflóði á Múlaveginn núna, það væri alltaf í svona veðri. Þyrfti ekki nema smátitring til að skaflar hlypu fram úr giljunum. Björn sagðist hins vegar ekki hafa spurnir af því, hve mikið hefði fennt í Múlanum, en miklar líkur væru þó á því, að mikið hefði skeflt í gilin, þar sem verið hefði svo hvasst og gilin kröpp og fylltust fljótt. Snjórinn væri laus í sér, og það skapaði mesta hættu. Ekki taldi Björn mikla hættu á snjóflóðum við Ólafsfjarðarbæ sjálfan. Á Siglufirði gerði mikla skafla í stórhríðinni, en fréttaritari okkar þar, Jóhann Þorvaldsson, kvað ekki hættu á snjóflóði. Til þess þyrfti hitabreytingu þ.e.a.s. hlýrra veður, þó gæru snjóflóð átt sér stað í giljum á einstaka stað utan byggðar. Svona veðurlagi, auk þess sem snjóinn setti á auða jörð, fylgdi lítil snjóflóðahætta. Hættan er annars mest báðum megin Strákaganga. Frost var 8-13 stig fyrir norðan í fyrrinótt.
Ástandið í raforkumálum á orkuveitusvæði Laxár er nú mjög slæmt og í gær varð að grípa til rafmagnsskömmtunar á Akureyri, Dalvik og í Eyjafirði. Slæmt veður var nyrðra í fyrrinótt og truflaðist rennsli Laxár frá Mývatni og einnig í Laxárdal.
Tíminn segir enn frá slæmu ástandi á Höfn í Hornafirði 15.desember:
Enn versnar ástandið á Höfn i Hornafirði. Fólk hefur nú flúið úr fjölda húsa, þ.á.m. öllum Viðlagasjóðshúsunum, sem eru um 20 talsins. Svartamyrkur grúfir yfir bænum, þegar rafmagnið er tekið af og fólk situr kappklætt við kertaljós. Í gærkvöldi höfðu um 40 manns fengið inni á hótelinu á Höfn, og að sögn Árna Stefánssonar hótelstjóra var búist við því að enn fjölgaði um kvöldið. Hótelið fékk sérstaka bráðabirgðaraflögn í gærmorgun og er því undanþegið skömmtuninni.
Kortið sýnir hæð 500 hPa-flatarins og þykktina að morgni þriðjudagsins 18.desember. Þetta voru einhverjir köldustu dagar sem við þekkjum í desember síðustu 100 árin rúm. Það er mjög óvenjulegt að sjá þykkt fara niður í 4900 metra við landið.
Nú urðu vandræði við Þjórsá. Tíminn segir frá 18.desember. Ekki er vel upplýst hvort þetta ástand mætti að einhverju leyti rekja til virkjunar Þjórsár, en vetrarrennsli í aftakafrosti var nú talsvert meira en vant er:
Frá Urriðafossi og niður að Egilsstöðum er eitthvað þriggja stundarfjórðunga gangur, sagði Gestur Jónsson, stöðvarstjóri í Villingaholti, við Tímann í gær, og á öllu þessu svæði eru Þjórsárgljúfur full af jakahröngli, svo að út úr flóir. Ætli þau séu ekki á þessu bili viða svona eitt til tvö hundruð metrar á breidd, og þaðan af meira, og áttatíu til hundrað metrar á dýpt, miðað við jafnsléttu. Það hefur fryst og hlánað til skiptis og sífellt hlaðist meira og meira af jakahröngli í gljúfrin, og áin hefur ekki náð að spýta því fram. Á laugardagsnóttina komst jakahrönglið alla leið heim að bæ á Urriðafossi, þar sem þau Haraldur Einarsson og Unnur Þórarinsdóttir búa með börnum sínum, og þar stöðvaðist hrönnin um einn metra frá íbúðarhúsinu, þriggja til fjögurra metra há. Allt var flóandi í vatni, sem nú er að vísu tekið að fjara, því að það hefur fengið framrás í farvegi bæjarlækjarins undir hrönglinu, en jakarnir standa eftir fast við veggina, sumir á stærð við hús. Á sunnudaginn mátti heita orðið bílfært að Urriðafossi. En sums staðar annars staðar voru líklega um fimmtíu metrar niður á veginn. Símastaurar eru á kafi, en símasamband er þó á við alla bæi, þótt það truflaðist um tíma. ... Hér niðri hjá Mjósyndi, sagði Gestur enn fremur, eru háir bakkar og miklir sandar fyrir framan, þegar Þjórsá er eins og hún á að sér. Nú stendur það heima, að jakahrönnin er nokkurn veginn jafnhá bökkunum. Á þessum bæ flæddi árið 1928. Annars er það að segja, að svona óskaplegar jakahrannir höfum við ekki fyrr séð, og við höldum, að breytingar, sem orðið hafa á ánni í sambandi við virkjanir og vatnsveitingar, eigi þátt í því. Mikinn kulda leggur af öllum þessum jökli. Í gærmorgun var fimmtán stiga frost í Villingaholti, en fór niður í ein átján stig, þegar leið á daginn. Á bökkum Þjórsár var aftur á móti mun harðara frost. Svo miklum kulda stafaði frá ísnum, að það var eins og komið væri í frystihús. Bæirnir þrír hér í hverfinu eru einangraðir að því leyti, að vegir hafa lokast á báða bóga, sagði Hreinn Sigtryggsson á Egilsstöðum, er Tíminn átti tal við hann. Engri mjólk verður komið héðan eins og stendur, og í dag kom maður gangandi með póst hingað á bæina. Það hefur hækkað ákaflega mikið í Þjórsá hér niður frá, og flæðir hún upp á veginn á fleiri en einum stað. Ég þori að fullyrða, að það hefur aldrei fyrr hækkað svona mikið í henni þau tuttugu ár, sem ég hef verið hér. Ég býst við, að jakahrönnin, sem hún hefur borið á land, hafi valdið talsverðum skemmdum, rifið upp og brotið girðingarstaura á bökkunum og gert önnur þess konar spjöll.
Rennslisvandræði voru einnig í Laxárvirkjun (en það var býsna venjulegt). Tíminn 19.desember (stytt). Einnig var sagt af ísalögum á Hvammsfirði:
Svo mikið dró úr rennsli Laxár í gær, að aftur varð að gripa til rafmagnsskömmtunar. Mikið krap hefur safnast í ána, allt frá Hólum í Laxárdal og upp að ósum við Mývatn. Orkuframleiðsla virkjunarinnar fór niður fyrir 14 MW í gær, en eðlileg framleiðsla er um 19 MW. Allmikill skafrenningur var nyrðra í gær og talsvert frost. Ástandið er ekki betra við Grímsárvirkjun. Orkuframleiðsla stöðvarinnar var um 700 kw í gær, en er að öllu eðlilegu 3200 kw. Rafmagn er skammtað á orkuveitusvæðinu, og verður áfram með sama veðurlagi. Það er ekki aðeins fyrir norðan og austan, sem rafmagnsskortur er. Erfiðleikar eru einnig farnir að gera vart við sig við Sogið og Búrfellsvirkjun.
Hvammsfjörð hefur ekki lagt fyrir hátíðar þau þrettán eða fjórtán ár, sem ég hef verið hér, sagði Steinþór Þorsteinsson, fréttaritari Tímans í Búðardal, við Tímann í gær, en nú er komið í hann geysilega mikið krap, sem berst fram og aftur fyrir vindi og föllum, og hann er orðinn hvítur yfir að sjá. Steinþór sagði, að ekki þyrfti nema nokkra frostdaga til viðbótar til þess að fjörðinn legði, en á hinn bóginn gæti þessi hroði borist burt, ef hvessti til muna. Fari fjörðurinn undir traustan is svona snemma, sagði Steinþór, er hann fastur fyrir. Hann liggur oftast fram undir apríllok, eða jafnvel fram í maí, og stafar þá af honum verulegur kuldi, þegar út á kemur. Brotni hann upp í vestanroki í stórstraumsflóði, geta hlaðist hér upp hrannir, sem eru tugir metra á hæð, en reki hann út úr firðinum, berst hann iðulega út með landinu, og þá hefur komið fyrir, að hrönglið hefur borist inn í höfnina í Stykkishólmi, svo að erfiðleikum hefur valdið fyrir báta, þó aðeins einn eða tvo sólarhringa.
Tíminn segir 20.desember frá ótta um rafmagnsþurrð á Suðurlandi, slæmu ástandi á Raufarhöfn, símabilunum og ófærð:
Það virðist vera skammt undan, að til alvarlegrar rafmagnsþurrðar komi hér sunnanlands, og getur rafmagnsskömmtun verið á næsta leiti. Í gær var hámarksframleiðslugeta Búrfellsvirkjunar komin niður í áttatíu megavött, og enn harðnaði á dalnum, er ís á Úlfljótsvatni brotnaði og truflaði rennsli í Steingrímsstöð í Soginu. Nægilegt vatn er að vísu í Þjórsá til þess að Búrfellsstöðin geti gengið með venjulegum afköstum, en rennsli hefur tregðast sökum kraps og jakahröngls í uppistöðulóninu. Er nú í ráði að reyna að greiða vatninu leið með sprengingum, og var í gær verið að gera mælingar til undirbúnings því. Til þess hefur þegar verið gripið að minnka orkunotkun áburðarverksmiðjunnar úr átján megavöttum í tæplega sex, og álverksmiðjan í Straumsvik hefur einnig dregið allmikið úr orkunotkun sinni. Jafnframt er heitið á almenning að fara sem allra sparlegast með rafmagn. Annað er það, sem getur steðjað að Reykvíkingum. Heita vatnið í Reykjavik er farið að minnka, og hafa hitaveitunni borist kvartanir úr flestum hverfum. Vill hún einnig beina því til notenda, að þeir spari heita vatnið, svo allir geti fengið eitthvað. Ef vatnið minnkar enn, er hætt við að kalt geti orðið hjá íbúum Skólavörðuholtsins og vestasta hluta vesturborgarinnar.
Mikil ófærð er nú í öllum landshlutum, og viðast ekki fært nema stórum bilum. Mikil brögð eru þó að því að menn leggi af stað upp á von og óvon á litlum bilum. Margir verða að skilja þá eftir, og veldur það miklum töfum fyrir aðra, og jafnvel tjóni. Veðrið var víða þannig í gær, að ekkert var hægt að eiga við mokstur. Á Suðvesturlandi og í Borgarfirði er færð nokkuð góð, nema i uppsveitum. Á Snæfellsnesi skall á stórhríð í fyrrakvöld og er ófært um Staðarsveit og Fróðárheiði. Söfnuðust allmargir bílar saman við Vegamót, og var verið að hjálpa þeim fyrir Kerlingarskarð síðdegis í gær. Vestan Búðardals er ófært, en stórir bílar komast þó eitthvað. Sæmilega er fært út frá Patreksfirði, til Bíldudals og suður á Barðaströnd. Á Norðurlandinu er allt í óvissu, því þar var mjög slæmt veður í gær. Tíminn hafði samband við Jón Ólafsson vegaeftirlitsmann, sem staddur var í Fornahvammi, og sagði hann, að þar væri ekkert hægt að aðhafast vegna veðurs, en jafnskjótt og slotaði, yrði farið að ryðja Holtavörðuheiðina, en ekki væri vitað, hvað snjóað hefði mikið síðan í fyrrakvöld, því vart sæist út úr augum. Þremur stórum bílum á suðurleið var hjálpað yfir heiðina í fyrrakvöld. Allmargir bílar bíða átekta við Staðarskála og á Laugarbakka í Miðfirði eru á annað hundrað manns í bílum. ófært er til Siglufjarðar, og hætta varð mokstri þangað i Fljótunum vegna veðurs. Á Akureyri var stórhríð í gær, og allir vegir í grenndinni að lokast, en reynt var eftir megni að halda leiðinni til Húsavikur opinni. Öxnadalsheiðin var siðast farin í fyrradag, en óvist var um ástand þar í gær. Á Austfjörðum er allt ófært, og ekki unnt að moka þar í gær vegna veðurs. Af Norðausturlandinu hafa engar fréttir borist, þar sem símasamband þangað er lítið sem ekkert. Frá Höfn í Hornafirði og þar í grennd er svipaða sögu að segja. Lónsheiði er ófær, en reynt var í gær að hjálpa 20 bíla lest yfir Breiðamerkursand til Hafnar. Þeir eru á leið austur á Firði og voru á Kirkjubæjarklaustri kl. 3 í fyrrinótt. Einna mestu snjóþyngslin eru í Skaftártungum, og hefur mjólkurbilum tá því svæði verið hjálpað. -SB.
Það fylltist hér allt af vatni í kringum bæinn á þriðjudagsnóttina. svo að aðeins munaði fáum metrum, að það næði húsunum, sagði Haraldur Einarsson á Urriðafossi við Tímann í gær. Vatnsborðið mun hafa verið nítján til tuttugu metrum ofan við venjulegt rennsli bæjarlækjarins, sem stíflaðist. Við sáum okkur þann kost vænstan að fara á næsta bæ og gista þar. Í fyrrinótt sjatnaði vatnið og náði framrás, og eins og stendur er Þjórsá í farvegi sinum, nema hvað hún er líklega eitthvað utan við hann hjá Egilsstöðum. Verið er að reyna að gera veginn færan niður í Egilsstaðahverfið. Leggi Þjórsá efra, verður lát á jakaburðinum, en hana virðist leggja seinna þar upp frá, en áður, síðan virkjanirnar komu til sögu. Auk þess er vetrarrennsli í Þjórsá orðið meira en var vegna vatnsmiðlunar, og það á vafalítið sinn þátt í öllum þessum jökli, sem borist hefur fram. Bæjarhúsin hér á Urriðafossi hafa staðið á sama stað frá ómunatíð, og það fer ekki af því neinum sögum, að þetta eða þessu líkt hafi fyrr gerst, sagði Haraldur enn fremur, enda hefði verið hægðarleikur að færa þau nokkra metra, þar sem þau stóðu hærra, ef þess hefði þurft með.
Undanfarna daga hafa orðið talsverðar bilanir og truflanir á símasambandi víða um land vegna óveðurs og rafmangstruflana. Stutt sambandsslit hafa orðið á radíósambandi milli Reykjavikur og Akureyrar, en tekist hefur að gera við það jafnóðum. Slæmt radíósamband hefur verið milli Akureyrar og Egilsstaða frá því kl.10 á sunnudagsmorgun, og er það vegna rafmagnstruflana á Gagnheiðarstöð. Ekki hefur verið unnt að koma viðgerðarmönnum frá Egilsstöðum upp á Gagnheiði, þar sem til þess þarf snjóbíl, en hann fæst ekki leigður vegna anna við aðra hluti. Viðgerð getur því ekki farið fram fyrr en snjóbíll fæst, nema veður batni svo mikið, að komast megi upp á snjósleða. Símasambandslaust var við Raufarhöfn frá því á laugardag til kl.14 í gær vegna ísingar á línunni. Vinnuflokkur frá Húsavík gerði við línuna, en sambandið er ótryggt, þar sem 5 sm ísing er á henni á 10 km kafla, og færð meðfram henni er mjög erfið. Snjóbíll fékkst frá Kópaskeri til flutninga efnis, en þar sem hann er öryggistæki, var hann kallaður heim í gærkvöldi. Um kl.15:30 í gær féll snjóskriða á símalínuna í Súðavikurhlíð og rofnaði símasamband til Ísafjarðar, Súðavikur og Djúps. Þó geta þessir staðir haft samband um eina línu til Brúar í Hrútafirði. Ekki er unnt að gera við þarna sökum snjóflóðahættu og vonskuveðurs, en viðgerð hefst strax og aðstæður leyfa. -SB.
Hálfgert hörmungarástand hefur ríkt á Raufarhöfn undanfarna daga. Símasambandið við umheiminn rofnaði á laugardag, og komst ekki á aftur fyrr en í gærkvöldi. Á meðan var eina sambandið eins konar skilaboðasamband um loftskeytastöðina á Siglufirði. Ástæða bilunarinnar var ísing, og lögðust símalinur niður á 15 km kafla. Skuttogarinn Rauðinúpur kom til Raufarhafnar á sunnudagsmorgun með 100 lestir af fiski, en erfiðlega gekk að landa úr honum, þar sem gjörsamlega ófært var um bæinn. og gekk mönnum erfiðlega að athafna sig á jarðýtum, þegar þær loksins komust í gang. Löndun lauk loks í gærkvöldi, og var þá eitthvað af fiskinum farið að skemmast. Allir vegir út frá Raufarhöfn eru ófærir, og flugvöllurinn er lokaður. Aftakaveður hefur verið þessa daga á Raufarhöfn, og þar er mjög mikill snjór. Þess má geta, að læknislaust er á staðnum. Sjónvarp og útvarp hafa hvorki heyrst né sést dögum saman.
Morgunblaðið segir einnig frá illviðri á Snæfellsnesi 20.desember:
Borg, 19. desember. Undanfarna daga hefur verið óvenjuslæm norðan- og norðaustanátt á Snæfellsnesi, samfara 1216 stiga frosti. Samgöngur hafa gengið erfiðlega vegna stöðugrar fannkomu og veðurofsa. Í gær var eitt versta veðrið, sérstaklega seinni hluta dagsins. Þá skellti á aftakaroki og fannkomu. Miklar umferðartruflanir urðu. Áætlunarbílar, sem ætluðu til Ólafsvíkur, Stykkishólms og Grundarfjarðar lentu í miklum hrakningum. Bifreið, sem fór til Stykkishólms og Grundarfjarðar komst leiðar sinnar einhvern tíma í nótt. Áætlunarbíllinn til Ólafsvíkur hafði sér til hjálpar 2 veghefla, en veðurofsinn var svo mikill og ófærðin einnig, að bifreiðin sneri við hjá Görðum í Staðarsveit og komst að Vegamótum um þrjúleytið í nótt. Erfiðlega gekk að komast þangað vegna smábíla, sem voru fastir í sköflum. Á bæjum í Staðarsveit gisti mjög margt fólk, sem varð að yfirgefa farartæki sín. Á Vegamótum og Lynghaga gistu um 80 manns í nótt. Þá gistu í Gröf 30 manns, sem urðu að yfirgefa bifreiðarnar vegna veðurofsa og ófærðar. Var heimilisfólkið í Gröf að aðstoða fólk við að komast í hús til kl. 5 í morgun. Klukkan 11 í morgun fór svo áætlunarbíllinn áleiðis til Ólafsvíkur um Kerlingarskarð. Norðan fjalls er miklu minni snjór. Mun áætlunarbíllinn fara aftur til Reykjavikur um Heydalsveg. Í þessum mikla veðurham, sem verið hefur, má þakka fyrir, að ekki skuli hafa orðið slys á fólki. Í dag er vægara veður og frostið um 10 stig. En miklar fannir eru á vegum og tekur langan tíma að koma þeim í eðlilegt horf. Rafmagnstruflanir hafa ekki orðið teljandi í þessum veðurofsa. Páll.
Nú barst hafís í tal. Tíminn segir frá 21.desember - en ekkert varð úr, veðurfar síðari hluta vetrar og vorið 1974 var fádæma gott:
Hafísinn hefur nú stundum verið meiri á þessum tíma heldur en nú er. Á árunum um og eftir miðjan síðasta áratug, þegar is lokaði mörgum höfnum landsins er líða tók á vorið, var ísbrúnin í sjónmáli frá landi í desember. Eitthvað á þessa leið komst Páll Bergþórsson að orði í viðtali við blaðið í gær. Páll sagðist ekki telja ólíklegt, að ísröndin færi eitthvað suður með Austfjörðum, og jafnvel inn á firði fyrir norðan og austan, þegar líða tæki á vorið, þ.e. í apríl-maí. Hann sagði ennfremur, að hinn mikli kuldi, sem verið hefði undanfarið á og í námunda við landið, yki möguleikana á því að ísinn legðist að landinu.
Norðlendingar eru komnir með ísskrekk og hafa farið fram á það við okkur, að sjá til þess, að nægar olíubirgðir verði ávallt til staðar, ef hafnir skyldu lokast skyndilega vegna hafíss, sagði Teitur Jensson, í birgðabókhaldi hjá Olíufélaginu h/f þegar hann var spurður að því, hvernig ástatt væri með olíubirgðir fyrir norðan og austan. Almennt virðast olíufélögin betur undir það búin að hafa fyrir hendi nægar birgðir af olíu fyrir norðan og austan heldur en á ísárunum um og upp úr síðasta áratug, þegar margar hafnir lokuðust um lengri eða skemmri tíma. Blaðið grennslaðist fyrir um þessi mál í gær, og virðist ástandið í þessum málum betra nú, heldur en hefur verið, þrátt fyrir olíukreppuna, sem nú herjar hinn vestræna heim.
Um tvöleytið í gær kom bílalest, sem í var tylft bíla, til Hornafjarðar, eftir langa ferð og stranga. Erfiðast reyndist að brjótast yfir Breiðamerkursand, enda er hann alræmd snjóakista. Bílalestin var einn sólarhring að fara yfir sandinn, en venjulega er sú leið ekin á einni klukkustund. Þetta var mjög erfið ferð, sagði Sigurður Björnsson á Kvískerjum í Öræfum. Bílalestin lagði upp frá Fagurhólsmýri laust eftir hádegi á miðvikudag. Þaðan var vegurinn hingað austur að Kvískerjum greiðfarinn, en héðan og allt austur að Stemmuöldum i Suðursveit þurfti að ryðja veginn. Lestinni til aðstoðar voru tveir heflar og ýta, sem þó bilaði, þannig að ekki varð fullt gagn að henni. Vegurinn um Breiðamerkursand er ekki upphleyptur, þannig að í slóðina skefur jafnharðan og rutt er, ef þannig viðrar. Á miðvikudag var sæmilegt veður og skafrenningur litill, en um nóttina hvessti, og þá fyllti slóðina að baki bilunum jafnóðum og rutt var.
Fréttin hér að ofan er úr Morgunblaðinu 21.desember. Tíminn segir af sama atviki:
Snjóflóð féll úr klettunum fyrir ofan Jörundarskál upp af Siglufjarðarkaupstað um kl.21:30 í fyrrakvöld. Féll það niður gil sem liggur niður af skálinni og þrýstist þar fram allmiklum krafti, breiddi úr sér á um 150 metra breiðri spildu og rann allt fram til sjávar. Þetta mun vera 600-700 metra breitt. Tvö hús, hænsnabú og barnaheimili eyðilögðust í snjóflóðinu, en það fór rétt fram hjá syðsta íbúðarhúsi bæjarins. Að sjálfsögðu var aldimmt þegar flóðið féll og fylgdi því enginn hávaði. Fólkið varð vart við það, þegar rafmagn fór af næstu húsum við þau, sem sópuðust burt. Það var húsið Leikskálar, en þar hefur kvenfélagið Von starfrækt barnaleikvöll á sumrin, og stórt timburhús, sem nú var notað sem hænsnahús. Tók flóðið það af grunninum og mölbraut. Í húsinu voru 500-600 hænsni og mun um helmingur þeirra hafa drepist. Aðrar skemmdir urðu ekki af völdum flóðsins, en verr hefði getað farið, þar sem flóðið féll þvert á háspennulínuna frá Skeiðsfossi en um hana kemur allt rafmagn til Siglufjarðar. Svo heppilega vildi þó til að flóðið smaug þar á milli tveggja staura og snerti hvorugan. Kvenfélagið Von og Óskar Sveinsson, eigandi hænsnabúsins urðu þarna fyrir miklu tjóni, því auk þess sem leikvallarhúsið hvarf. voru í því margs konar munir og áhöld. sem notaðir voru við starfið þar. Þetta snjóflóð mun hafa verið hengja, sem féll úr klettunum alllangt sunnan við það svæði þar sem aðalsnjóflóðahættan er. Ekki var um mikinn snjó að ræða, en vegna loftþrýstings í gilinu var allmikill kraftur á honum. Þess má geta, að þar sem flóðið fór yfir var lítill snjór og jörð er næstum auð eftir, því að flóðið tók með sér allan snjó á leið sinni til sjávar. SB.
Tíminn fjallar 22.desember um aðkomu Bjargráðasjóðs vegna tjónsins í Ellenarveðrinu:
Allir mun ofviðrið sem geisaði sunnan- og vestanlands síðla í september í haust og fellibylurinn Ellen átti sök á. Viða varð verulegt tjón á þessu svæði. En Bjargráðasjóður hljóp undir bakka með því að veita sveitarfélögum vaxtalaus lán er greiðist upp með jöfnum afborgununum á fimm árum. Sveitarfélögin endurlána svo þeim, sem hlut eiga að máli eftir þeim reglum er stjórn sjóðsins hefur ákveðið. Samkvæmt reglum sjóðsins ber sveitarfélögunum að veita sömu kjör á láninu til tjónþola. Bjargráðasjóður setti sjálfur þær reglur í upphafi að tjón, sem næmi minna en 50 þúsund krónum, kæmi ekki til bóta (í formi hinna hagstæðu lána). Þannig munu þeir að sjálfsögðu vera mjög margir, sem verða sjálfir að bera umtalsvert tjón jafnvel upp á tugi þúsunda. Taka má sem dæmi fjölbýlishús, þar sem þakið hefur fokið alveg af, eða kannski af einum stigagangi með 8 íbúðum. Þá er heildartjónið metið, og því síðan deilt niður á íbúðirnar, og ef ekki kemur meira en 50 þúsund í hlut, verða þeir að bera þetta sjálfir. Dýr varð Ellen, og þó er ekki öll sagan sögð. Að sögn Magnúsar Guðjónssonar, framkvæmdastjóra Bjargráðasjóðs, er frá hendi sjóðsins búið að afgreiða lán vegna allra umsókna einstaklinga í 55 sveitarfélögum, sem eru á vestanverðu landinu öllu, frá Rangárvallasýslu vestur og norður um til Eyjafjarðarsýslu. Nema þau lán rétt um 20 milljónum og tjón, sem lán þessi ná til, 40 milljónum. Verður væntanlega lokið við að afhenda lánþegum þessar 20 milljónir fyrir áramót. Auk þessa koma til félög og fyrirtæki, sem ekki verða afgreidd fyrr en eftir áramót. Samkvæmt matinu er tjón þeirra upp á 17 milljónir. Miðað við matsgerðir og umsóknir frá einstaklingum og fyrirtækjum er því heildartjónið upp á 57 milljónir. Dýr varð Ellen" og kemur þó ekki inn í myndina tjón undir 50 þúsundum, eins og fyrr sagði. Að sögn Magnúsar hafa skýrslur frá matsmönnum smátt og smátt verið að berast inn á undanförnum vikum. Sums staðar er búið að afgreiða lánin til tjónþega nú þegar. Í Reykjavík og Hafnarfirði var verið að borga út seinni hluta vikunnar. Matsmenn voru dómkvaddir af sýslumönnum og bæjarfógetum á viðkomandi stöðum eftir beiðnum sveitarstjórna. Mest tjón einstaklings bar Jón í Mosfellssveit. Samkvæmt matinu var tjónið í Reykjavik, hjá einstaklingum og fyrirtækjum, 16 milljónir 224 þúsund, í Kópavogi var metið upp á 2,254 milljónir, og í Hafnarfirði 2,818 milljónir. Sums staðar var tjónið metið hærra en á tveim þeim siðarnefndu. þ.á.m. í Mosfellssveit. Þar var tjónið allhátt miðað við íbúafjölda, eða 5,242 milljónir.enda kom þar inn í hæsta tjón einstaklings á landinu, sem vitað er um, 2,5 milljónir, skv. matinu. Tjónaþoli var Jón V.Bjarnason garðyrkjumaður. Gróðurhús hans, stórt og mikið eyðilagðist með öllu, sem í því var. Fær Jón 2.620 milljón króna lán. Step.
Morgunblaðið segir fréttir að austan og af slysi í Skagafirði í pistli 22.desember:
Egilsstöðum, 21. desember Tíðarfar hefur verið rysjótt á Héraði undanfarið. Hefur gengið á með éljum eða stórhríð. Samgöngur hafa verið mjög erfiðar um Héraðið, því að þótt vegagerðin hafi reynt að opna vegi, hafa þeir lokast jafnharðan aftur. Fjarðarheiði er ófær að vanda og hefur þurft að flytja lækninn á snjóbíl fram og til baka svo til daglega. Í þessum veðrum hafa bílar iðulega festast úti á vegum vegna þess, hve veður hafa skollið skyndilega á. Hefur þá þurft að fara á snjóbílum til þess að leita að fólki, en allt hefur gengið giftusamlega samt. Nú hefur stórhríðinni slotað, vegir innan Héraðs eru flestir að verða færir, en frostið er hér nú 23 stig. Flugsamgöngur eru komnar í eðlilegt horf og fljúga þrjár flugvélar hingað til Egilsstaða í dag. Eins hefur Flugfélag Austurlands haldið áætlun með póst- og farþegaflug til áætlunarstaða. ha.
Mælifelli, 21. desember Sá hörmulegi atburður gerðist í norðanofsaveðrinu, sem gekk hér yfir 18. til 19. desember, að Hrólfur Guðmundsson, bóndi á Lýtingsstöðum í Tungusveit, varð úti á leið milli Lýtingsstaða og Breiðar, þar sem unnusta hans og sonur eiga heima. Var ekki undrast um hann fyrr en í gær síðdegis, er von var á honum heim aftur. Á Breið var ekki búist við honum í slíku veðri og því engin eftirgrennslan. Fjöldi heimamanna og menn úr björgunarsveitum frá Varmahlíð og Sauðárkróki hófu leit í gær kvöldi, en skilyrði voru slæm, skafrenningur og náttmyrkur. Í morgun var aftur farið að leita þegar í birtingu, og fannst lík Hrólfs í skurðbakka neðan við svonefnda Miðaftanshóla í landi Stekkjarholts á hádegi. Kvöldið sem Hrólfur ætlaði að Breið var hörkufrost og aðdynjandi sterkviðri. Álitið er, að hann hafi fallið í skurðinn og hlotið höfuðhögg. Hrólfur bjó á Lýtingsstöðum á móti foreldrum sínum og bróður. Hann var 25 ára og lætur eftir sig unnustu og eitt barn á fyrsta ári. Síra Ágúst.
Fréttir bárust af áhyggjum af vatnsskorti á Stokkseyri. Tíminn segir af því og rafmagnsleysi á Snæfellsnesi 28.desember:
Eftir langvarandi úrkomuleysi lá við vatnsskorti á Stokkseyri um jóladagana, en þá er að sjálfsögðu vatnsnotkunin hvað mest. En að sögn hreppsstjórans, Steingríms Jónssonar, sparaði fólk við sig vatnið, eftir því sem mögulegt var, þannig bjargaðist þetta og er vatnið nú nægilegt. Fram til ársins 1965 notuðu Stokkseyringar brunna, sem voru við hvert hús, en þá var sett upp sogdælukerfi. Þær fá vatn undan hrauninu, og ræður því vatnsmagnið, sem fer ofan í hraunið langt fyrir ofan Stokkseyri, úrslitum. Er þetta mjög gott vatn að sögn Steingríms. Ekki hefur áður komið til vatnsskorts sem þessa, og er þetta enn til marks um hið eindæma tíðarfar desembermánaðar sunnanlands. Sogdælunum gekk illa að ná upp fullum þrýstingi og var því litill kraftur á vatninu þessa tvo, þrjá daga. Við þyrftum bara að fá okkur djúpvatnsdælur í stað þessara og koma þeim niður í vatnið. Með þeim ættum við að vera öruggir með vatn, sagði Steingrímur. Við þurfum að stefna að því að fá þær. Steingrími var ekki kunnugt um, hvort vatnsskorts hefði gætt víðar þarna um slóðir. -Step.
Íbúar á sunnanverðu Snæfellsnesi sátu í myrkrinu á aðfangadag og langt fram á jólanóttina. Ástæðan var ísing, sem settist á raflínuna yfir Fróðárheiði og sleit hana. Þórður Gíslason, bóndi á Ölkeldu í Staðarsveit, sagði að þetta hefði svo sem ekki verið neitt óskaplegt, fólk þarna væri ekki alls óvant rafmagnstruflunum. Meir að segja hefði verð einhver hátíðleiki yfir jólunum við kertaljós. Allur gangur var hafður á við eldamennskuna og vist er að allir fengu að borða. Einna verst kom þetta við útihúsastörfin, mjaltir og umönnun fjár og svo kólnaði nokkuð í þeim húsum, sem hafa rafdrifnar kyndingar. Rafmagnið fór snemma á aðfangadagsmorgun og kom á aftur um eittleytið um nóttina. Bilunin var ekki stórvægileg, en illt var að komast að henni vegna veðurs og ófærðar lengi vel. SI5.
Það hefur verið gjafafrekt hér, algjör jarðbönn fyrir allar skepnur. Það er klakastorka yfir alla jörð, hefur snjóað og bleytt í og síðan frosið, sagði Vernharður Steingrímsson oddviti Stokkseyrarhrepps, er við höfðum samband við hann í gær. Sagði Vernharður, að svona hefði ástandið verið allan desembermánuð og væri það einstakt hér um slóðir. Hross eru orðin gjaffrek hér, og hefur svo ekki verið undanfarin ár. Nei, nei, bændur eru ekki svartsýnir, það er til nóg af heyjum. Svipað mun ástatt viðar um land, enda þótt ekki kunni að þykja eins mikil nýlunda þar og fyrir austan fjall. Gamalt fólk hér í Reykjavik minnist líka varla eins frostharðs desembermánaðar og nú. Step
Klp-Reykjavik. Í gærmorgun fannst fullorðinn maður látinn úti á viðavangi í Sandgerði. Talið er að hann hafi látist úr kulda og vosbúð, en slæmt veður var í Sandgerði í fyrrinótt.
Tíminn segir af Skaftárhlaupi og snjóþyngslum á Fljótsdalshéraði 29.desember:
Um tíuleytið í fyrrakvöld varð þess vart, að Skaftárhlaup væri í aðsigi, en þá leggur jafnan megna brennisteinsfýlu af jöklinum. Í gærkvöldi var hlaupsins samt lítt farið að gæta. Þar eystra er fannfergi mikið og frosthörkur hafa verið miklar allt síðan í nóvember, þannig að áin er öll á ís.
Þessi tíðu hlaup byrjuðu árið 1955, sagði Sigurður jarðfræðingur Þórarinsson í viðtali við Tímann. Framan af komu þau þó ekki nema annað eða þriðja hvert ár. Orsakir þessara tíðu hlaupa geta verið tvær, Annað hvort hefur myndast brennisteinshverasvæði undir jöklinum eða hér er um að ræða smágos. Megn jöklafýla er einkenni þessara hlaupa. Okkur verður það venjulega fyrst fyrir að hringja austur, ef fregnir berast af hverafýlu, þótt norðanlands sé, því að tíðast er það Skaftá, sem þá lætur á sér kræla. Í fyrstu Skaftárhlaupunum á miðjum sjötta áratugnum, varð jöklafýlunnar fyrst vart í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum, svo við stukkum upp í flugvél og flugum norður yfir Ódáðahraun í þeirri trú, að þar væri eitthvað að gerast. En það var þá bara sunnanáttin, sem hafði borið fýluna af Skaftá norður yfir.
Gífurleg snjóþyngsli eru nú á Fljótsdalshéraði. og vatn víða að þverra, því að ekki hefur gert þíðu síðan í nóvembermánuði. Vegir eru viða nálæga ófærir, og fyrir jólin voru menn frá Hákonarstöðum og Grund á Jökuldal efra tvo daga að brjótast í kaupstað á Egilsstöðum. Vatn í Grímsá á Völlum er orðið litið, eins og titt er í frostum á vetrum, og í Lagarfljóti er rennslið nú aðeins fjórtán teningsmetrar á sekúndu, og myndi ekki nægja til nema þúsund kílóvatta raforkuframleiðslu. Þess eru þó dæmi, að vatn í Lagarfljóti hafi orðið miklu minna, og mun það hafa farið lægst í fjóra teningsmetra í langvinnum frostum og þurrviðrum fyrir mörgum árum. Það fylgir þessu þráviðri, að brunnar og vatnsból eru viða að þorna, og sums staðar verður nú bæði að sækja neysluvatn handa fólki og fénaði langar leiðir, og er það erfitt, þar sem illa hagar til og langar leiðir að fara, vegna fannalaganna. Sjónvarpið varð fólki til litillar ánægju austan lands um jólin, því að það sást bæði illa og slitrótt. gbk
Morgunblaðið segir enn af vandræðum á Höfn í Hornafirði í pistli 30.desember:
Elías Jónsson fréttaritari Mbl. í Höfn: Í dag hefur verið hér norðanskafrenningur og fer veður fremur versnandi en hitt. Ástandið á sumum heimilum er allt annað en glæsilegt sakir kulda og rafmagnsskorts. Mikil veikindi eru t.d. á heimili Ingólfs Waage lögregluvarðstjóra, en hann býr í ákaflega lélegu húsnæði, sem hreppurinn hefur útvegað honum hér. Kona Ingólfs og þrjár dætur, þar af ein nýfædd, eru nú allar illa haldnar af veikindum, sem rekja má til kuldans og hins slæma húsnæðis. Ingólfur hefur notast við olíuofna til að halda einhverjum hita í húsinu, en af þeim er stybba og reykur og gefur auga leið, að það er allt annað en glæsilegt að vera með nýfætt barn við slíkar aðstæður. Engin breyting er á lóninu við Smyrlabjargaárvirkjun og ekkert bendir til þess, að virkjunin geti hafið rafmagnsframleiðslu í bráð, svo að þrátt fyrir þær díselvélar, sem komnar eru eða eru væntanlegar á næstunni, er fyrirsjáanlegt, að hér mun ríkja vandræðaástand þar til veðurguðirnir blíðkast.
Ingólfur Geirdal: Þegar verst var flúðum við á hótelið eins og aðrir, sem búa i þessum viðlagasjóðshúsum. Húsin eru svo óþétt, að það er illmögulegt að hafast við í þeim ef eitthvað blæs og miklar frosthörkur eru um leið. Upp á síðkastið hefur ástandið ekki verið jafn slæmt, enda höfum við nú fleiri og betri ofna. Að vísu veldur rafmagnsleysið nokkrum óþægindum og heldur fannst mér dauflegt yfir jólin, en við höfum notast við gasluktir og kertaljós. Rafmagnsskömmtunin kemur í sjálfu sér ekki verst niður á einstaklingnum sjálfum, hitt er verra, að ef ástandið í rafmagnsmálunum batnar ekki kemur það til með að draga slæman dilk á eftir sér í atvinnumálum, þar sem orkufrek fyrirtæki eins og fiskimjölsverksmiðjan verða óstarfhæf.
Kirkjubæjarklaustri, laugardag frá Þórleifi Ólafssyni blaðamanni. Vatnið í Skaftá jókst lítið í nótt. Lítil sem engin jöklafýla er af ánni og bendir margt til þess, að hlaupið komi ekki úr Vatnajökli eins og Skaftárhlaup gera almennt. Kemur þá helst til greina, að það komi úr Langasjó, sem er við suðvesturhorn Vatnajökuls. Sigurjón Rist vatnamælingamaður telur, að í frostunum undanfarið hafi jafnvel frosið fyrir útfall Langasjávar. Þar af leiðandi hafi hækkað í vatninu og nú, er hlýnað hafi, hafi vatnið ruðst fram. Einnig er sá fjarlægi möguleiki til, að malarkambur við Langasjó hafi brostið og vatnið fengið framrás. Er þá ekki að sökum að spyrja, að Langisjór mun tæmast að mestu. Þetta er þó talinn ákaflega fjarlægur möguleiki. Sigurjón segir, að þetta séu aðeins hugmyndir og geti vatnið komið úr Vatnajökli, þó að það sé heldur ósennilegt, sem fyrr greinir. Hlaup þetta í Skaftá virðist því fyrir margar sakir vera hið merkilegasta hlaup þar um slóðir. Þess má geta að Langisjór er 27 ferkílómetrar að stærð og mesta dýpt hans er 75 metrar. Sé fyrri kenningin rétt, á eftir að fá skýringu á því, að jöklafýla fannst víða í fyrramorgun. Sagði Sigurjón, að hún gæti stafað af því, að fyrir neðan Langasjó er mjög mikill framburður úr fyrri Skaftárhlaupum og vatnsflaumurinn á föstudagsmorgun hafi rótað upp leirnum og jöklafýlan í honum þá fengið útrás.
Morgunblaðið segir af lokum Skaftárhlaups 3.janúar 1974:
Hlaupið í Skaftá var í rénun í gær og um hádegisbil var rennslið í ánni, þar sem hún rennur um Skaftárdal, aðeins um 115 teningsmetrar á sekúndu. Þetta hlaup náði því aldrei að verða stórt; þegar mesta vatnið var í ánni reyndist rennslið í Skaftárdal vera 240 teningsmetrar á sekúndu, eða aðeins tíundi hluti af því, sem það reyndist mest vera í fyrra. Enda virðist þetta Skaftárhlaup ekkert eiga skylt við jökulhlaup hinna síðari ára í Skaftá, sagði Sigurjón Rist vatnamælingamaður, þegar við ræddum við hann í gær. Hann sagði, að þar sem hlaupið væri mjög ólíkt hlaupum, sem komið hefðu í Skaftá hin síðari ár, væri nauðsynlegt að fljúga yfir norðvestursvæði Vatnajökuls og reyna að sjá, hvaðan það kæmi. Ketilsig ætti að myndast eftir svona hlaup; enda þótt sjálft rennslið hefði aldrei verið mikið, þá væri það ekkert smáræðis vatnsmagn, sem komið hefði undan jöklinum. Sennilega væru það um 60 millj. teningsmetrar. Einnig væri nauðsynlegt að fullvissa sig um, hvaðan vatnið kæmi. Vatnsborðið á Skaftá við Kirkjubæjarklaustur hækkaði mest um 50 sentímetra í þessu hlaupi, en í Skaftárhlaupum hefur það venjulega hækkað um 2 metra, auk þess sem áin verður þá miklu breiðari.
Morgunblaðið segir af desember í fregn 3.janúar 1974:
Desember 1973 var sá kaldasti á Íslandi á þessari öld og gott betur, því það þarf að fara aftur til ársins 1886 til þess að fá kaldari desember.
Lýkur hér upprifjun hungurdiska á veðri og veðurfari ársins 1973. Að vanda er talnasúpa - meðaltöl, úrkomumagn og fleira í viðhenginu.
7.10.2023 | 22:30
Enn úr líkanheimum -
Nú nálgast háloftalægðardrag úr vestri. Því fylgir þónokkur úrkoma í reiknilíkönum og við lítum á spá igb-líkansins eins og hún var nú í kvöld (laugardag 7.október).
Hér má sjá uppsafnaða úrkomu (heildarúrkomumagn) sem líkanið býr til frá því kl.18 í kvöld (laugardaginn 7.október) til hádegis á þriðjudag (10.október), 66 klukkustundir. Úrkomumagnið er mjög misjafnt - en leggst í rendur, fylgir fjallgörðum og vindátt. Vindáttin er aðallega úr suðvestri eða vestsuðvestri. Hæsta talan er 217 mm - rétt austan við Austurdal í Skagafirði. Ritstjóri hungurdiska minnist þess alloft að hafa séð háar úrkomutölur í líkönum á þessum slóðum - einmitt eins og nú - rönd eftir fjallgarðinum austan Skagafjarðar. Reyndar er líka mikil úrkoma í vesturfjöllunum. vel yfir 100 mm.
Nú er auðvitað spurning hversu raunverulegt þetta er. Líkanið býr til bylgjur yfir fjöllum sínum og kreistir þar út úrkomu í uppstreymi. Þótt líkanið sé í nokkuð hárri upplausn nær það landslaginu samt ekki alveg. Því má búast við talsverðum mun líkans og raunveruleika. gallinn er hins vegar sá að erfitt er að sannreyna hann - úrkomumælingar á svæðinu er afskaplega gisnar.
Rétt er einnig að benda á mikla úrkomu á öðrum svæðum - þar stendur vindur meira af hafi og meiri líkur á að líkanið reikni rétt. Öfgavísar evrópureiknimiðstöðvarinnar eru háir á Vesturlandi á mánudag, og Norðurlandi vestra á þriðjudag. Þeir sem eitthvað eiga undir ættu því að fylgjast vel með spám.
En við lítum á fleiri kort.
Hér má sjá það sem kallað er uppsafnað afrennsli á sama tíma, úrkomu í vökvaformi og snjóleysingu. Lítill snjór er til að leysa þannig að tölur eru aðallega úrkoma í vökvaformi (reyndar tekur jarðvegur líkansins við einhverju smávegis líka). Tölurnar yfir Vesturlandi eru svipaðar á kortunum tveimur - sem og á fjöllunum vestan Skagafjarðar. Munur er meiri austan Skagafjarðar og á jöklum. Hámarkið austan Skagafjarðar er nú 136 mm - virðist vera nærri Norðurárdal - ekki langt frá Valagilsá. Greinilega á mikill hluti úrkomunnar á þessum slóðum að falla sem snjór.
Það sjáum við að hluta til á síðasta kortinu.
Það nær reyndar ekki yfir allar 66 klukkustundirnar, heldur aðeins 12 tíma, frá því kl.6 til kl.18 á mánudag (9.október). Þá eiga að safnast upp nærri 100 kg af snjó á hálendið austan Austurdals, það væri í lausamjöll um það bil 1 m, en vegna þess að hvasst verður væntanlega mun snjórinn safnast í skafla, gil og lautir og þéttast talsvert - en djúpir geta skaflarnir orðið. Miklar hlákur mun þurfa síðar í haust eigi þessi snjór ekki að endast langt fram á næsta sumar nærri hæstu rindum. En við vitum svosem ekkert um það - ekki einu sinni hvort fönnin er raunveruleg eða bara eitthvað stundarfyrirbrigði í reiknilíkani.
6.10.2023 | 20:42
Fyrstu haustlægðirnar?
Svo virðist sem meginstraumar í háloftunum undurbúi nú syrpu lægðardraga úr norðvestri. Á yngri árum fannst ritstjóra hungurdiska það skemmtilegt veðurlag, jafnvel líka fyrstu árin sem hann fékkst við spár. Ástæður kannski þær helstar að lægðardrög sem koma yfir Grænland voru mjög erfið viðfangs - aldrei að vita hvað þau gerðu. Á síðari árum lifir einhver virðing gagnvart þessum villidýrum veðurlagsins í huga ritstjórans - en honum finnst þau sant best í minningunni. Það verður þó að horfast í augu við hin mögulegu leiðindi.
Í dag (föstudaginn 6.október) er mikil sunnanátt ríkjandi vestan Grænlands og þar rignir (og snjóar). Kuldaskil nálgast þar úr vestri og þeim fylgir mikil úrkoma.
Við sjáum hér klippur úr Grænlandsspá igb-líkansins sem reynir að reikna uppsafnaða úrkomu frá því á hádegi í dag fram á mánudagsmorgun á Grænlandi. Þar sjást tölur hærri en 200 mm, bæði á svæði ekki fjarri Nuuk - kannski er það ekki svo óskaplega óvenjulegt, en líka við norðvestur-Grænland - hlýtur að vera harla óvenjulegt þar um slóðir. Veldur umtalsverðri skriðu- og snjóflóðahættu - nema hvað að þarna er varla neitt sem getur skaddast (er þá einhver hætta?).
Lægðin sem þessu veldur grynnist og fer norður undir norðurskaut. Hún er hins vegar hluti af háloftakerfi sem heldur áfram til austurs - yfir jökulinn - eins og ekkert sé.
Kortið sýnir stöðuna um hádegi á mánudag 9.október. Jafnhæðarlínur eru heildregnar, þykkt sýnd með lit. Þykktin mælir hita í neðri hluta veðrahvolfs. Lægðardragið er við austurströnd Grænlands á hraðri austurleið. Lægð myndast á Grænlandshafi, dýpkar talsvert og fer austur um Ísland á aðfaranótt þriðjudags - kannski með haugarigningu um landið vestanvert. Eins og spár eru nú mun hún valda snörpu norðankasti á þriðjudaginn. Við látum liggja milli hluta hversu hvasst verður. Það kólnar með norðanáttinni - og snjóar til fjalla.
Þetta stendur þó ekki lengi því næsta lægðardrag kemur strax á eftir.
Um það eru spár alls ekki sammála. hádegisruna reiknimiðstöðvarinnar gerir talvert meira úr heldur en sú næsta á undan - og sker sig nokkuð úr safnspánum 50 sem henni fylgja. Segir að norðanveðrið - á fimmtudag og föstudag, verði bæði hvasst og mjög kalt. Við getum ekkert gert nema fylgjast vel með þróuninni. En kannski eru þetta fyrstu alvöruhaustlægðirnar tvær sem hér eru á ferð - og það styttist víða í snjóinn.
3.10.2023 | 16:46
Smávegis af september 2023
Eins og fram kemur í yfirliti Veðurstofunnar var hiti hér á landi í september nærri meðallagi 1991 til 2020. Á heimsvísu hafa hins vegar ríkt óvenjuleg hlýindi.
Heildregnar línur sýna meðalhæð 500 hPa-flatarins, jafnþykktarlínur eru daufar og strikaðar, en þykktarvik eru sýnd í lit. Þykktin mælir hita í neðri hluta veðrahvolfs og þykktarvikin eru því hitavik (hér miðað við 1981-2010). Það er varla bláan blett að sjá á kortinu öllu, rétt aðeins á hafsvæðinu milli Grænlands og Svalbarða. Gríðarleg hlýindi eru yfir meginlöndunum, en hiti yfir svæðinu kringum Ísland og suður af er nærri meðallagi viðmiðunaráranna.
Hægt er að finna mánuði í fortíðinni þegar jafnæðarlínur liggja svipað og nú nærri Íslandi - sömuleiðis ámóta þykkt. Enginn þeirra mánaða (t.d. september 1980, 1965 og 1953) sýnir hins vegar neitt í líkingu við þykktarvikin sem nú lágu yfir meginlöndunum. Kannski má segja að í þessu tilviki sé lægðardragið við Ísland afleiðing af samkeppni hlýindanna austan- og vestanvið - til að fá ámóta hér þurfum við eindregnari sunnanátt - sem er ekki í boði þegar svona hlýtt er báðu megin atlantsála. - Atlantshafið sýnist því svalara heldur en svæðin umhverfis, jafnvel þótt yfirborðshiti sjávar sé þar í hæstu hæðum - eins og kortið hér að neðan sýnir.
Dálítið merkilegt. Það er aðeins á örfáum blettum þar sem hiti er lítillega undir meðallagi. Sjávarhitameðaltöl í námunda við ísjaðarinn eru afskaplega óáreiðanleg í endurgreiningunni sem lögð er til grundvallar - kannski marktæk - kannski ekki. Við gætum samt leitað einhverra skýringa á þessum neikvæðu vikum - þær eru ekki endilega réttar. Við getum t.d. sagt að bráðnandi ís úr Íshafinu haldi hita niðri í Austur-Grænlandsstraumnum - það tekur tíma að hækka hitann. Við landgrunnsbrúnir er blöndun milli yfirborðs og þess sem undir er meiri - blöndunin getur haldið hita niðri. Kuldinn við suðurodda Grænlands gæti t.d. stafað af meiri norðvestanátt við ströndina heldur en vant er - og dregur kaldari sjó upp til yfirborðs. Þetta eru þó allt ágiskanir - almennt séð er furðuhlýtt á svæðinu öllu.
Spennandi verður að sjá framhaldið. Nú hlýtur að fara að hausta á meginlöndunum og að draga úr hitavikum þar - alla vega í bili. Gerist það fyrst Evrópumegin aukast líkur á norðanáttum hér á landi - en gerist það hraðar vestanmegin aukast vestan- og sunnanáttarlíkur. Þessi hitavik benda heldur til þess að sunnan- og austanáttir verði blautar hér í haust - en ráða engu ein og sér um tíðni slíkra átta. Við vitum ekki heldur hversu djúpt þessi hlýindi ná - stormar og illviðri hausts og vetrar geta á stuttum tíma svipt þeim burt - ef þau eru aðeins grunnstæð. Þegar kemur fram á vetur geta kaldar strokur úr vestri haft áhrif á stöðugleika - og þar með aukið blöndun.
Taflan sýnir hvernig hita hefur verið háttað á spásvæðum landsins í september. Raðað er í sæti, 1 til 23. Heldur kaldara var um landið norðanvert en syðra. Þó nánast tilviljun í hvaða sæti raðast. Breytileiki er meiri inn til landsins og á hálendinu heldur en við sjávarsíðuna. Þess vegna nægir -0,8 í 17. sæti á Austurlandi að Glettingi, en aðeins í það 15. á Miðhálendinu.
Við þökkum BP fyrir kortagerð.
30.9.2023 | 14:33
Veðurstofusumarið 2023 - hiti
Nú er veðurstofusumrinu nærri lokið. Það tekur yfir mánuðina júní til september. Eins og venjulega lítum við nú á meðalhita þess á landsvísu í samanburði við fyrri ár. Sérlega hlýtt hefur verið í heiminum síðustu mánuðina, hvert metið rekið annað. Hér á landi er þó flest í hófi - að undanteknum methlýjum júnímánuði um landið norðaustanvert. Svo er að heyra að almannarómur sé fremur ánægður með tíðina.
Meðalhiti sumarsins reiknast 9,5 stig. Það er +0,3 stigum ofan meðallags 1991 til 2020, og +0,1 stigi ofan meðallags síðustu tíu ára. Á landsvísu var sumarið 2014 það hlýjasta á þessari öld. Fáein enn hlýrri sumur komu á fyrra hlýskeiði, en munurinn samt sá að þá virðist breytileiki frá ári til árs hafa verið öllu meiri en að undanförnu. Við sjáum á myndinni að þá voru köldu sumrin fleiri en hefur verið upp á síðkastið. Annars verður að telja harla ólíklegt að köld sumur séu alveg úr sögunni - við bíðum bara róleg eftir því næsta.
Á kalda tímanum, sem að sumarlagi byrjaði reyndar fyrir 1965, var hiti almennt svipaður og var á árunum 1890 fram til 1920 (þá komu reyndar fáein enn kaldari sumur í röð). Eitt sumar, 1880, sker sig mjög úr á þeim tíma 19. aldar sem við höfum áreiðanlegar heimildir um. Það var sérlega hlýtt - en sagði ekki fyrir um hinn ofurkalda vetur sem í hönd fór, 1880 til 1881. Með sumrinu 1882 var töldu menn að fullhefnt væri fyrir blíðuna 1880.
Fyrri hluti myndarinnar, fyrir 1874, byggir á mælingum mjög fárra veðurstöðva og óstöðluðum aðstæðum sem við vitum lítið um. Við tökum því hóflegt mark á, en getum þó séð greinilegan mun ára og jafnvel lengri tímabila.
Fyrsta sumar núverandi hlýskeiðs virðist hafa verið 1996. Það var ekki síst sérlega hlýr september sem kom því í það sæti. Næstu tvö sumur á eftir, 1997 og 1998, féllu nær hinu venjulega ástandi kuldaskeiðsins, en síðan hlýnaði verulega, sérstaklega eftir 2001.
Veðurstofuhaustið er tveir mánuðir, október og nóvember. Þá tekur fjögurra mánaða vetur við.
21.9.2023 | 14:03
Fyrstu 20 dagar septembermánaðar
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 17:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.9.2023 | 14:55
Nærri jafndægrum
Nú líður að jafndægrum að hausti, dagur styttist ört og það er farið að kólna á norðurslóðum. Óvenjuleg hlýindi hafa verið víða um heim í sumar, meira að segja yfir miklum hluta Atlantshafs. Ísland hefur þó sloppið við öfgar af þessu tagi, enn sem komið er alla vega. Óvenjuleg úrhelli hafa líka víða valdið stórkostlegu tjóni. Hvar þau koma niður er þó harla tilviljanakennt og mestu tjóni valda þau þar sem tjónnæmi er mikið. Fram að þessu höfum við einnig sloppið við úrhelli. - En einmitt í dag eru úrkomuviðvaranir í gildi um landið austanvert. Einhvern veginn finnst ritstjóra hungurdiska fleiri slíkar viðvaranir í pípunum síðar í haust, þótt rétt sé að taka fram að hann veit ekkert um það - og vel gæti heppni valdið því að hann hafi rangt fyrir sér í þeim efnum. Allt fer það eftir hegðan bylgjugangsins í vestanvindabeltinu, tilviljanakenndum atburðum suður við hvarfbaug og þróun kuldapolla heimskautasvæðanna.
En lítum fyrst á almenna stöðu á norðurhveli.
Kortið gildir um hádegi á morgun, þriðjudaginn 19.september. Jafnhæðarlínur 500 hPa-flatarins eru heildregnar, af þeim ráðum við vindstyrk og stefnu í miðju veðrahvolfi. Litir sýna þykktina, hún mælir hita í neðri hluta veðrahvolfs, því meiri sem hún er því hlýrra er loftið. Blái liturinn er eiginlega afgerandi haustlitur - en þó vekur athygli að þykktin nær hér hvergi niður í eiginlegan vetrarkulda - enginn afgerandi kuldapollur hefur enn komið sér fyrir á norðurslóðum. - Munum þó að um leið og blái liturinn (þykkt minni en 5280 metrar) fer að leika um okkur stórmagnast líkur á næturfrosti, snjó á fjallvegum og jafnvel í byggð.
Allmikið lægðasvæði er fyrir sunnan land og beinir það hlýju lofti úr austri inn yfir landið. Þar er þykkt jafnvel meiri en 5460 metrar - sumarástand. Langt suðvestur í hafi er nýr fellibylur, nefnist Nigel. Örlög hans eru nokkuð óráðin, en skemmtideildir reiknimiðstöðvanna hafa veifað honum á sýningum sínum síðustu daga - þá sem ofurlægð fyrir sunnan land, tölur allt niður í 933 hPa hafa sést. Í dag (mánudag) eru spárnar þó heldur hógværari - og sennilega raunhæfari (um 955 hPa) - þá á laugardag/sunnudag. Rétt að ræða ekki of mikið um það í bili.
En loftið sem kemur nú úr austri er býsna rakt.
Kort dönsku veðurstofunnar (igb-líkanið) sýnir svokallað úrkomumætti í fyrramálið. Úrkomumætti er mælikvarði á vatnsinnihald lofts yfir hverjum stað - skili það sér allt sem úrkoma. Við getum ráðið af kortinu að vatnið er langmest í allra lægstu lögum - áberandi minni vatnsgufa er yfir Vatnafjökli og öðrum háfjöllum heldur en yfir sjó og láglendi. Úrkomumættið er yfir 20 mm á stóru svæði fyrir austan land. Það er nokkuð mikið - en langt í frá sérlega mikið. Til að telja það mjög mikið viljum við fara upp í 30 til 40 mm. En kortið sýnir líka vind í 100 metra hæð (vindörvar) og er hann 20 til 25 m/s á stóru svæði. Þegar vindur kemur að fjalli leirar hann helst til hliðar - en sé þrýstisviðið öflugt getur svo farið að hann þvingist upp hlíðina. Við það kólnar loftið, vatnsgufan þéttist og fellur út sem úrkoma - þéttingin skilar dulvarma sem falinn var í vatngufunni til loftsins það hlýnar og uppstreymið verður auðveldara og auknar líkur verða á því að loftið leiti ekki framhjá fjöllunum. (Þessi saga er nokkuð einfölduð auðvitað).
En þetta þýðir að þrátt fyrir að úrkomumættið á kortinu að ofan sé ekki sérlega mikið á hverjum stað - kemur alltaf nýtt rakt loft inn í fjallauppstreymið mep hvössum vindi og úrkoman getur haldið áfram langtímum saman. Niðurstaðan verður úrhelli.
Hér má sjá úrkomuaftakavísa evrópureiknimiðstöðvarinnar fyrir þriðjudaginn 19.september.
Hér er reynt að spá fyrir um hvort 24-stunda úrkomumagn er nærri metum. Tveir vísar eru sýndir - hér kallaðir útgildavísir (lituðu svæðin) og halavísir (heildregnar línur). Líkanið veit af árstíðasveiflu úrkomunnar - sömuleiðis veit það að úrkoma er mismikil eftir landsvæðum á Íslandi.
Hér verða vísarnir ekki skýrðir frekar, en þess þó getið að veðurfræðingum er sagt að hafa varann á ef útgildavísirinn (litirnir sýna hann) fer yfir 0,9 - og sömuleiðis ef halavísirinn (nafnið vísar til hala tölfræðidreifingar) nálgast 2,0 - hér rýfur hann þau mörk á allstóru svæði (heildregnu línurnar) og fer alveg upp í 4,3 við utanvert Ísafjarðardjúp. Útgildavísirinn er stærri en 0,9 á allstóru svæði líka - dekksti brúni liturinn.
Orðið útgildavísir er þýðing á því erlenda extreme forecast index, EFI, en halavísir reynir að íslenska shift of tail, SOT. - Þýðingar þessar hafa ekki öðlast hefðarrétt (né annan) og aðrar (og vonandi betri) munu e.t.v. sýna sig síðar. Vel má vera að aðrir veðurfræðingar noti aðrar þýðingar heldur en ritstjóri hungurdiska
Útgildavísar evrópureiknimiðstöðvarinnar auðvelda mjög mat því hversu óvenjulegir veðuratburðir sem koma fram í spám eru. Vísarnir byggja á reynslu - vita hversu algengt það veður er sem verið er að spá. Það er hins vegar með þessa vísa eins og annað, rétt er að trúa þeim ekki í blindni og greinilegt að talsverða reynslu þarf til að meta þær upplýsingar sem þeir vísa á. Fullvíst er að vaktveðurfræðingar Veðurstofunnar eru frekar með fingur á púlsinum hvað þetta varðar heldur en ritstjóri hungurdiska (hann er alinn upp í öðrum heimi).
Þeir sem eiga eitthvað undir ættu því að fylgjast vel með veðri og spám - og sérstaklega gefa aðvörunum Veðurstofunnar gaum.
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 16:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.9.2023 | 14:55
Hugsað til ársins 1929
Ársins 1929 verður lengst minnst fyrir óvenjuleg vetrarhlýindi, þau mestu fram til þess tíma í mælisögunni. Ámóta hlýtt eða jafnvel aðeins hlýrra varð síðan 1964 og svipað 2003. Hlýjasti vetur 19. aldar, 1847, var líklega lítillega kaldari, en ekki mikið.
Tíð á árinu 1929 þótti almennt hagstæð til og með ágúst en síðan rysjóttari. Janúar var hægviðrasamur og hagstæður, úrkomusamt var á Vesturlandi. Í febrúar og mars var einmuna tíð um land allt. Mjög úrkomusamt var um landið sunnanvert og fádæma hlýtt og snjólétt. Apríl var lengst af hagstæður, sérstaklega framan af, mjög þurrt var um mestallt land. Maí var frekar óhagstæður og hretasamur framan af, en síðan var tíð hagstæð. Úrkomusamt var, nema á Vesturlandi. Í júní var hagstæð tíð og nokkuð þurr syðra, en síðri og úrkomusamari fyrir norðan. Mjög hagstæð tíð var um nær allt land í júlí. Ágúst var votviðrasamt nyrðra, en annars var tíð talin hagstæð og fremur þurrviðrasöm. September var rysjóttur, erfiður og óvenju illviðrasamur. Leitir voru með allra erfiðasta móti. Tíð var umhleypingasöm og óhagstæð í október, talsvert snjóaði norðanlands eftir miðjan mánuð. Nóvember var talinn hagstæður um landið sunnanvert síðari hlutann, en annars var tíð umhleypingasöm og óhagstæð. Úrkomusamt var á Norður og Austurlandi. Í desember var óstöðug og stormasöm tíð, slæm til sjávarins, en skárri til landsins.
Við rifjum hér upp fréttir ársins tengdar veðri. Ýmislegt er þar minnisstætt og ástæða til að rifja upp. Ekki er sá listi tæmandi. Blaðatextar eru langflestir fengnir af vefnum timarit.is, oft styttir hér og stafsetning oftast færð til nútímahorfs (vonandi sætta höfundar sig við þá meðferð), villur í slíku eru ritstjórans. Að þessu sinni er mest um texta úr Morgunblaðinu, en einnig úr fleiri blöðum. Heimildir eru að auki úr Veðráttunni, tímariti Veðurstofu Íslands, og töluleg gögn og fleira úr gagnagrunni og safni Veðurstofunnar. Nokkuð er leitað til tíðarumsagna veðurathugunarmanna. Talnasúpu má finna í viðhenginu. Margskonar slysfara er ekki getið í þessum pistli - eitthvað af því sem ekki er getið kann að hafa tengst veðri.
Athyglisvert er hversu oft tjón verður á Siglufirði, bæði vegna vinds og ágangs sjávar. Ljóst að tjónnæmi (eins og það nú er kallað) hefur þar verið óeðlilega mikið, lítið hugað að gæðum og endingu mannvirkja - en kannski var best að hafa þetta svona.
Fréttir um ljósagang voru viðloðandi um veturinn. Eitthvað af því tengdist fjarlægum eldingum. Hugsanlegt er að lítið eldgos hafi orðið í Dyngjufjöllum eða Vatnajökli en erfitt um slíkt að segja. Þann 23. júlí varð mikill jarðskjálfti á Reykjanesi, líklega sá öflugasti sem fannst í Reykjavík og nágrenni alla 20. öldina. Upptökin voru óljós í fyrstu. Þann 16.ágúst varð óvenjulegt og stórt hlaup í Tungufljóti í Biskupstungum þegar hluti Hagavatns braust fram.
Byrjum á fáeinum tíðarfarslýsingum úr janúar:
Hvanneyri (Þorgils Guðmundsson): Tíðin framúrskarandi góð. Alauð jörð þar til fjóra síðustu dagana og varla teljandi frost fyrr en eftir 23. Dálítil úrkoma var fyrstu daga mánaðarins og stormur aðfaranótt þess 4. og þá fauk hér á Hvanneyri þak af fjósi sem var í smíðum.
Flatey (Stefán Egilsson). 16.janúar: Klakalaus jörð, tún talsvert græn yfir að líta.
Lambavatn (Ólafur Sveinsson): Hún [tíðin] hefur verið óvenjulega hlý og stillt nema síðustu vikuna hefur verið kuldablástur. Eftir miðjan mánuðinn var allt farið að lifna, svo sóleyjar sáust blómstraðar, því hvergi var klaki í jörð eða svell á polli.
Húsavík (Benedikt Jónsson): Framúrskarandi mild veðrátta og að kalla alauð jörð í sveitum.
Fagridalur (Kristján N. Wiium): Einmuna góð tíð.
Nefbjarnarstaðir (Jón Jónsson): Frá 1. til 16. óvenjulega stillt tíð og mild - jafnvel svo furðu gegndi um þetta leyti árs. Aftur var síðari hluti mánaðarins miklum mun kaldari, en má þó góður hér þegar litið er til árstíðar.
Stórhöfði (Gunnar Þ. Jónathansson): Óvenjugóð tíð mestan hluta þennan mánuð.
Stórinúpur (Ólafur V. Briem): Mjög óvenjulega góð tíð.
Hringrás var mjög afbrigðileg í janúar, febrúar og mars. Sunnanátt við Ísland mun meiri en í meðalári og kuldapollurinn í vestri sérlega slakur á sama tíma - en sú samsuða er óvenjuleg. Litirnir á kortinu sýna þykktarvikin, jákvæði vikin (hlýindin) eru mest vestan Grænlands, en austur í Evrópu var kalt. Mjög óvenjulegt má telja að fáeinir hafísjakar komu að ströndum Finnmerkur í Noregi. Sumir telja þó að um leifar borgarísjaka hafi verið að ræða - en óvenjulegt engu að síður.
Morgunblaðið segir af sunnanroki þann 4. janúar í pistli þann 6.:
Akureyri í gær. Í gær var aftaka sunnanrok hér, en þó þurrt veður. Var veðrið svo mikið, að Leikfélagið treysti ekki fólki til að koma í leikhúsið og féll leiksýning því niður. Vélbátur, sem var á leið frá Siglufirði til Akureyrar, varð að hleypa inn á Dalvík og liggja þar af sér veðrið.
Morgunblaðið segir jarðskjálftafréttir 20.janúar. Við verðum að hafa í huga að jarðskjálftamælingar voru ekki sérlega nákvæmar á landinu á þessum árum og mjög erfitt var að staðsetja skjálfta, jafnvel þótt þeir væru stórir:
Hingað hafa borist fregnir af jarðskjálftum úr nærsveitunum undanfarna daga. Frá Þjórsártúni var Morgunblaðinu sagt í gær, að vart hafi orðið við jarðskjálfta við og við undanfarna 10 daga. Sömu sögu sagði maður er nýlega var austur í Landsveit og Holtum. Um allan Borgarfjörð hefir orðið vart við jarðskjálfta þessa, þó meira í uppsveitunum en í lágsveitunum. Blaðið átti tal við símstöðina hjá Ölfusárbrú í gær og fékk þær fréttir, að þar hefði orðið vart við talsverðar hræringar að undanförnu, en þó mest um seinustu helgi. Bar þó öllu meira á kippunum á Selfossi en í Tryggvaskála. Um allan Flóann hefir jarðskjálftanna orðið vart og eins á Eyrarbakka og Stokkseyri. Í Þingvallasveit hafa jarðskjálftarnir líka gert vart við sig af og til, en mest upp úr helginni. Maður austan úr Grímsnesi kvað hafa verið talsverð brögð að jarðskjálftum þar og margir kippirnir svo snarpir, að hann kvaðst ekki hafa þorað að byrgja kindur í torfhúsi. Í Hveradölum hefir borið einna mest á jarðskjálftunum. Voru þar taldir rúmlega tuttugu kippir á mánudaginn og 11 á þriðjudaginn. Blaðið hefir átt tal við Þorkel Þorkelsson, veðurstofustjóra um þessa jarðskjálfta. Sagði hann að mælir hefði sýnt 10 hræringar hér í Reykjavík á mánudaginn og 4 á þriðjudag. Mælarnir væri ekki svo góðir, að hægt væri að sjá glögglega á þeim hvaða stefnu hræringarnar hefði, en þó mundu þær vera hér frá austri til vesturs, og upptök þeirra mundu oftast vera í 3540 km. fjarlægð, eða einhversstaðar í grennd við Hengilinn eða í hönum sjálfum. Gæti þeir þá stafað af gufuumbrotum í jörðinni, því að það sést á því hvað hræringarnar berast skammt, að þær eiga upptök sín ofarlega. En vel á minnst: Hvenær fáum við sæmilegan jarðskjálftamæli hér eða jarðskjálftamæla? Það var ákveðið fyrir nokkru að fá jarðskjálftamæli hingað og átti að verja fé úr sáttmálasjóði til þess og auk þess mun Dansk-islandsk Samfund hafa ætlað að leggja eitthvað af mörkum til kaupanna. En ekki bólar á Barða og enn mun ekki hafa verið hugsað fyrir húsakynnum hér handa jarðskjálftarannsóknarstöð. En slík stöð þarf að komast upp hér hið fyrsta.
Morgunblaðið segir af góðri færð í pistli 29.janúar:
Bíll austan úr Mýrdal. Kl. um 12 á sunnudagskvöld [27.] kom hingað bíll alla leið austan úr Mýrdal. Var það vörubíll Stefáns kennara Hannessonar í Litla-Hvammi, en bílnum stýrði Brandur sonur Stefáns. Lagði hann á stað frá Vík í Mýrdal »m hádegi á laugardag og voru farþegar 9, þar af 4 strandmenn af þýska togaranum Hermann Löns. Héldu þeir að Hamragörðum (vestan við Seljalandsmúla) á laugardagskvöld. Annar bíll fylgdist með þessa leið og flutti hann þýska strandmenn. Á sunnudag hélt Brandur áfram og stefndi á Teig í Fljótshlíð. Vötnin voru auð, en vatnslítil og gekk vel að komast yfir þau. Komst Brandur á bílnum heilu höldnu vestur í Fljótshlíð og hélt síðan áfram hingað til Reykjavíkur. Er þetta í fyrsta skipti, sem bíl er ekið alla þessa leið.
Morgunblaðið segir af furðuljósum 31.janúar:
Furðuljósin. Í blaðinu í gær var sagt frá furðuljósi, sem fólkið í Bergvík á Kjalanesi hefði séð. Morgunblaðið náði tali af sjónarvotti í gær og sagðist honum svo frá: Það var á fimmtudagskvöldið [24.] um kl. 9. Veður var framúrskarandi fagurt, blæjalogn, skafheiðríkur himinn og glaða, tunglsljós. Um kl. 9 kemur inn drengur, sonur bóndans, og segir að ákaflega stór og einkennileg stjarna sé á lofti. Fóru þá allir út, hæði heimafólk og aðkomufólk, og sáu þá stórt ljósrautt ljós hátt á lofti, á að geta mitt á milli Presthúsa og Brautarholts. Þó var það ekki hærra en svo, að Fjósakonurnar bar yfir það. Stefndi ljósið til norðurs og fór hægt, breytti allt í einu um lit og varð dökkrautt, líkt og hliðarljós á skipi, svo varð það blátt og svo hvítt. Var því líkast sem þarna snerist, lýsandi hnöttur í himingeimnum og hefði mismunandi litbelti. Sáum við oftar en einu sinni hvern lit og horfðum á þetta í fullar 10 mínútur. Var eins og það lækkaði á lofti og hvarf loks sjónum á bak við
Brautárholtsborgina. Við biðum nokkra stund til þess að sjá hvort það kæmi ekki fram aftur, en svo var ekki. Það hélt beinni stefnu og var þó engin andvari er gæti borið það. Um skip gat ekki verið að ræða, og ekki heldur flugvél. Það var svo bjart og skammt á milli er við sáum ljósið fyrst, að við hefðum hlotið að sjá vængi og skrokk á flugvél, hefði hún verið þar á sveimi, enda hlotið að heyra til hennar.
Veðurathugunarmenn segja frá óvenjulegum febrúar:
Lambavatn: Það hefur fremur líkst sumri en vetri. Vætusamt en hlýtt. Jörð oftast frostlaus, frosið á milli á nóttum, en þiðnað fljótt aftur. Hús með torfþökum þar sem skepnur eru í, eru mikils til græn.
Suðureyri (Kristján A. Kristjánsson): Óvenju stilltur, hlýr og snjólaus febrúar. Mjög hagstætt til lands og sjávar.
Grænhóll á Gjögri (Níels Jónsson): Óminnilega góð tíð yfirleitt. Elstu menn mun ekki eftir jafn góðum vetri og þessum, sem af er.
Hraun í Fljótum (Guðmundur Davíðsson): Ágæt tíð allan mánuðinn, nema nokkra daga um 5. til 10. Frost voru mjög væg og stormar engir. Aðeins einn dag nokkuð hvasst.
Húsavík: Ómuna blíðviðri, jörð nær því alauð í lágsveitum. Bílar gengið fyrirstöðulaust uppí efstu sveitir. Síðan 1855 ekki komið slíkur vetur hér til þessa dags [sá tími sem Benedikt man].
Nefbjarnarstaðir: Hin hagstæðasta tíð allan mánuðinn. Óvenjuleg hlýindi og stillingar. Þess má geta að í dag (þ.24) sáust álftir koma fljúgandi af landi ofan. Er það óvanalegt að þær séu á ferð upp til lands um þetta leyti árs.
Papey (Gísli Þorvaldsson): Tíðin hefur verið hlý, en mjög mikið úrfelli (regn), tún slá á grænan lit sem og útjörð víða, sérstaklega úteyjar. Klaki ekki til á jörð. Oftast ógæftir til sjós hér í þessu byggðarlagi og brim á köflum.
Stórhöfði: Stormasamt, stirðar gæftir. [Þ.6. regnmælirinn var fokinn í morgun].
Stórinúpur: Svo gott að elstu menn segjast ekki muna slíkt. Varla sér votta fyrir fönnum í fjöllum þar sem vanar eru að vera stórar fannir sem venjulega ekki fara fyrr en í júnímánuði. Ísar sjást ekki, ár og tjarnir nálega alauðar.
Morgunblaðið segir af illviðri 7.febrúar:
Ofsaveður af útsuðri skall hér á um þrjúleytið í fyrradag [5.]. Voru allir bátar frá verstöðvunum hér syðra á sjó þegar veðrið skall á, en komust heilu og höldnu í höfn og misstu sama og ekkert af veiðarfærum.
Vísir segir af einmunatíð 7.febrúar:
Úr Steingrímsfirði 18.janúar FB. Um áramótin gerði þíðu og þá einmunatíð, að menn muna vart slíka, og hefir hún haldist síðan. Hiti hefir verið flesta daga og klaki að hverfa úr jörðu. Er það nýtt hjá okkur Strandamönnum, að geta herfað flög um miðjan janúar, eins og nú var hægt.
Veðráttan segir frá því að þann 8. hafi eystri hafnarbakkinn í Vestmannaeyjum skemmst af sjógangi. Ekki var alveg hálkulaust í blíðunni. Morgunblaðið 12.febrúar:
Mikil hálka var hér á götunum í gærmorgun [11.] og er hætt við, að slys hafi af hlotist; var Morgunblaðinu tjáð að stúlka hefði dottið á götuna neðst á Bergstaðastræti og lærbrotnað.´
Vísir segir frá 16.febrúar:
Frá Vestfjörðum í janúar FB/JD: Vetur sem þessi hefir ekki komið í elstu manna minnum. Varla fest snjó á jörðu fyrr en síðari hluta janúar. Gerði þá dálitla skussu vikutíma, en brá til hata og þíðu aftur um mánaðamótin. Frost voru dálítil í nóvember öndverðum, en væg þó, og var unnið að jarðabótum við og við fram til jóla og í miðjum janúar var rist ofan af og var þá jörð alþíð nema í stærstu þúfum. Mun slíkt einsdæmi á þessum hjara. Sauðfé og hross hafa gefið, sér með mesta móti úti í vetur, en heygjöf verið þó meiri en ætla mætti, vegna þess að jörðin var illa búin undir veturinn, vegna hinna afar miklu þurrka síðastliðið sumar og úthagar víða sólbrunnir, og svo sífellt berangur, það sem af er vetrinum. Hey voru og víða lítil vegna þurrkanna og úthey frekar létt til fóðurs. Veldur það nokkru þar um, að slegið var með meira móti á engjum s.l. sumar, því síðan bændur fóru að hugsa meira um túnræktina, er meir og meir af engjum í sinu árlega.
Morgunblaðið segir enn af ljósagangi 19.febrúar:
Á áttunda tímanum í fyrrakvöld [17.febrúar] urðu menn varir við ljósagang mikinn í vestri, og stóð þetta alllengi, blossaði upp með stuttu millibili og bar birtu af hingað til Reykjavíkur. Var stundum eins og sindraði eldneistar af aðalljósunum, og sögðu margir, að líkast hefði verið að sjá þetta eins og þegar Kötlugosið braust út fyrst hérna um árið. Gerðu því ýmsir ráð fyrir, að eldur mundi uppi á Reykjanesi, því að svo var þetta magnað, og stóð lengi, að menn gátu tæplega fengið aðra skýringu á því. Var þó ýmsum getum að því leitt, hvað þetta mundi vera, svo sem að skip væri hér vestur í flóa með kastljós, en það gat tæplega átt sér stað, vegna þess, hvernig ljósin höguðu sér, hve ljósmagnið var mikið, og svo vissu menn ekki vonir neinna herskipa á þeim slóðum. Í Hafnarfirði sáust ljós þessi jafn glögglega og hér og þóttu jafn furðuleg. Í gærmorgun átti Morgunblaðið tal við Reykjanes, Hafnir, Keflavík og Sandgerði, til þess að fregna, hvað menn vissu þar um fyrirburð þennan. Á Reykjanesi hafði hans ekki orðið vart, en sú ástæða var til þess, að allir sátu inni í húsi um þetta leyti og voru að hlusta á útvarp. En í útvarpinu voru óvenjulegar truflanir, allra líkast því sem er í skrugguveðri. Í Höfnum sáu menn eldinn til hafs í suðvestri, og virtist vera um skrugguveður að ræða. Komu eldingarnar afarþétt, og var stundum eins og hvíslaðist eldglæður út frá ljósunum í allar áttir, en menn skýra það svo, að þá hafi verið él í hafi og muni birtuna hafa borið þannig í élinu. Horfðu menn á þetta í fulla klukkustund og virtist sem ljósin færðust heldur til vesturs. Nokkrar þrumur heyrðust í fjarska. Einna mest bar á ljósunum í Sandgerði. Þar sáust þau fyrst á 8. tímanum og héldu áfram þangað til klukkan að ganga 11. Voru ljósin í suðvestri og blossarnir mjög bjartir. Það að sjá skyggði heldur ekkert á þá og var alveg heiðskírt allan tímann. Taldar voru þar um 30 skruggur. Það var álit manna þar syðra að hér hafi verið um þrumuveður að ræða og óvenjumiklar og stórar eldingar. En þess ber að geta að eldgosum fylgja jafnan skruggur og eldingar, svo að það er ekki útilokað að hér hafi verið um gos að ræða langt vestur af Reykjanesi.
Enn fréttir af ljósum eða eldi. Morgunblaðið 20.febrúar:
Þjórsártúni 19.febrúar. Á sunnudagskvöldið [17.febrúar] sáu menn í Holtum, á Landi og í Fljótshlíð eld í norðurátt. Segir bóndinn á Skammbeinsstöðum í Holtum að þaðan hafi eldinn borið norðan við Heklu og í sömu stefnu sást hann af bæjum á Landinu og eins á Stórólfshvoli. Þar sást eldinum bregða fyrir af og til á tímabilinu frá kl. 7-9 um kvöldið. Var þá glóbjart veður, heiðríkja og tunglsljós. Ólafur í Auðvarðsholti var einn af þeim sem sá eldinn. Lýsti hann sýninni svo að komið hefði blossandi gosleiftur, einna líkast og í seinasta Heklugosi. Giskaði hann á að eldur mundi vera uppi í Dyngjufjöllum.
Furðuljós sjást enn. Í fyrrinótt [19.] um kl.1 sáu tveir menn hér í bænum þrjú ljós á lofti í suðvesturátt. Voru þau á ferð og stefndu til norðausturs og nálguðust smám saman. Var svo að segja jafnt bil á milli þeirra alltaf og flugu þau afar hátt. Þau voru öll gulgræn að lit. Horfðu mennirnir á ljósin þangað til þau voru komin yfir bæinn og voru þá liðnar um 20 mínútur frá því þeir sáu þau fyrst. Þá fóru mennirnir heim til sín og vissu ekki framar hvað um ljósin varð. Fleiri urðu furðuljósa varir fyrr um kvöldið.
Þrumuveður en ekki eldgos var það, sem menn urðu varir við á sunnudagskvöldið [17.]. Kom hingað í gær belgískur togari, Jeanne, sem hafði verið að veiðum vestur af Reykjanesi þetta kvöld, og sáu skipverjar glöggt að þetta var þrumuveður og gengu eldingar ört.
Enn meiri eldfréttir. Morgunblaðið 21.febrúar:
Akureyri, 20. febr. FB. Fregn frá Breiðumýri hermir að undanfarið hafi sést, eldbjarmi þaðan úr sveitinni frammi í dölum. Talið er, að um gos sé að ræða, í Vatnajökli vestanverðum, en alls ekki í Dyngjufjöllum. Ekkert öskufall, en mistur og móða yfir hálendinu í suðri. Óvenjuleg hlýindi af suðri. Bjarminn lítið sést síðasta sólarhring.
Ljósamálið upplýst? Morgunblaðið 22. febrúar:
Í gærmorgun kom inn á skrifstofu Morgunblaðsins maður, sem Angantýr Hróbjartsson heitir og á heima vestur í bæ. Sagði hann þær fréttir, að hann hefði uppgötvað, hvernig á furðuljósunum stæði og lagði fram poka allmikinn úr bláum silkipappír. Í opi pokans var eirhringur er hélt opinu sundur, en í kross, þvert yfir opið, voru hárfínir vírar, og þar sem þeir skárust, var sérstakur útbúnaður fyrir vír og í honum voru ofurlitlar sviðnar bómullartætlur. Innan í belgnum var dálítið sót, sem sýndi það, að bruni hafði farið fram. Hefir sýnilega logað á bómullinni hún verið vætt í einhverju eldfimu efni en þegar hún var út brunnin og heita loftið fór úr belgnum, hefir hann fallið til jarðar. Angantýr sagði blaðinu svo frá því, hvernig hann komst yfir grip þennan: Að kvöldi hins 19. þ. mán. kl. 9:30 var ég ásamt tveimur mönnum staddur úti fyrir heimili mínu á Holtsgötu 9. Allt í einu sjáum við í norðurátt ljós á lofti blika, á að geta 200 metra yfir sjávarmál. Virtist ljósið líða í áttina til okkar með talsverðum hraða, hvítt á lit og skært. Þóttumst við þegar vissir um, að hér væri eitt furðuljósið" á ferð. Einn okkar hafði séð slíkt ljós áður, og virtist honum þetta ljós mjög svipað því. Óðum færðist undraljósið nær okkur og lækkaði á lofti smátt og smátt, uns það að lokum virtist falla til jarðar og hvarf þá með öllu skammt þaðan, sem við stóðum. Gengum við þá á staðinn, þar sem okkur virtist ljósið hafa fallið niður, og fundum brátt belg þennan. Belgurinn verður til sýnis í glugga Morgunblaðsins í kvöld.
En svo var ekki. Morgunblaðið 23.febrúar:
Í blaðinu í gær var sagt frá furðuljósi, sem fannst vestur í og og var sá, sem hafði hleypt því á stað, beðinn að gefa sig fram. Það stóð ekki á því. Maðurinn kom til blaðsins þegar í gær, og skýrði því frá öllum málavöxtum. Hann kvaðst aðeins hafa sent þetta eina ljós frá sér, og gert það í þeim tilgangi að ganga úr skugga um hvort furðuljós þau, sem sést hafa í allan vetur víðsvegar um land, væri af mannavöldum. Til þess að hita og lýsa belginn hafði hann bómull vætta í bensíni. Sleppti hann belgnum á Ránargötu og segir að hann muni hafa farið svo sem 50 metra í loft upp og ekki verið lengur á flugi en svo sem 23 mínútur, enda er stutt leið þaðan sem belgnum var sleppt og vestur á Holtsgötu. Það sem Angantýr Hróbjartsson sagði um ljósið að sér hefði virst það vera 200 m yfir sjávarmál, þá er það ágiskun, en illt í myrkri að ákveða hæð og fjarlægð. Maður er því enn engu nær um það hvaðan furðuljósin stafa, Sú gáta er óleyst. Að vísu hefir maður vestan af fjörðum sagt Morgunblaðinu að hann viti til þess, að útlendir togarar sendi lík ljósmerki og þetta upp í loftið. Kveðst hann hafa séð þýskan togara senda frá sér ljósmerki á Önundarfirði í vetur, seinni hluta nætur. Hefði hann haft taug við það. Eftir nokkurn tíma dó ljósið og skildi togarinn þá belginn eftir og festina við. Þegar birti af degi sást belgurinn svífa í lofti enn, þótt ljóslaus væri, en hvarf þegar fram á daginn kom. Sami maður sagist hafa séð nokkru seinna en þetta var snemma í janúar ljós koma svífandi utan af hafi. Var það marglitt, stundum eins og rauður kross, stundum rautt, blátt eða hvítt. Horfði hann á það í 20 mínútur, en þá hvarf það. Segist hann hafa séð slík ljós á sveimi í lofti 34 sinnum og ávalt hafa ætlað að þau væri frá útlendum togurum.
Morgunblaðið birti 24.febrúar tilkynningu frá Veðurstofunni:
Veðurstofan hefir gert fyrirspurnir til ýmsra símastöðva um eldgosið, og er hér birtur útdráttur úr þeim svörum, sem hún hefir fengið: Í Mývatnssveit þóttust nokkrir sjá reykjarmökk yfir Dyngjufjöllum þ. 12. þ.m., og um kvöldið sáust mikil leiftur í suðri, og næstu kvöld sáust þau einnig. Stefnan er talin dálítið austan við Öskju. Frá Reykjahlíð báru leiftur við austurbrún Bláfjalls. Úr Laxárdal sáust mikil leiftur aðfaranótt, þ.15. Á Grímsstöðum á Fjöllum sást eldbjarmi fyrst þ. 14. og var stefna á Herðubreið. Jökulsá á Fjöllum hefir ekki vaxið, og ekkert orðið vart við öskufall, en mikil móða í Mývatnssveit og á Grímsstöðum þ. 15.-17. Síðan þ.l6. hefir ekkert orðið vart við eldsmerki, en oftast verið þykkt loft og mistur til landsins. Á Fagurhólsmýri fannst eldlykt þ. 13. og 20., og í Hornafirði urðu menn varir við drunur úr norðvestri þ. 19. og álíta, að stafaði af eldgosi. Í Fljótsdalshéraði hafa menn ekki orðið varir við nein merki eldsumbrota. Eftir þessum fregnum að dæma, kveður eigi mikið að þessum eldsumbrotum ennþá. Eldstöðvarnar virðast, helst vera norðan við Vatnajökul, í Kverkfjöllum, eða milli þeirra og Dyngjufjalla. Veðurstofan, Rvík, 23. febr. 1929. Þorkell Þorkelsson.
Veðráttan bætir smávegis við (febrúarhefti): Þann 15. heyrðust dynkir frá Teigarhorni, úr stefnu milli norðurs og norðvesturs. Þann 18. og 20. fannst eldlykt á Fagurhólsmýri og þann 19. fannst brennisteinslykt frá Stafafelli í Lóni og snarpur jarðskjálftakippur í Bakkafirði kl.04:30. Þann 26. heyrðust dynkir og sást eldbjarmi frá Teigarhorni í sömu átt og þann 15., að sjá milli Hálsfjalls og Búlandstinds, en öskufalls varð ekki vart. Í Axarfirði munu hafa fundist margir jarðskjálftakippir, en allir mjög vægir.
Mars varð óvenjulegastur allra hlýindamánaðanna. Meðalhiti í Reykjavík var 5,9 stig, og 5,7 á Akureyri. Þar var mars hlýrri en bæði apríl og maí.
Kortið sýnir háloftastöðuna í mars 1929. Afskaplega óvenjuleg. Þessi greining segir meðalhita í neðri hluta veðrahvolfs vera um 6 stigum ofan meðallags yfir norðaustanverðu Íslandi - ekki fjarri því sem var á veðurstöðvunum.
Veðurathugunarmenn lýsa hinum óvenjulega marsmánuði:
Flatey: Tíðarfarið í þessum mánuði hefur verið mjög hlýtt og hagstætt yfirleitt, ekki stormasamt, en talsverð úrkoma, aðeins 10 dagar þurrir að mestu og sólfar lítið, þokur og mistur eða móða marga hina þurru daga.
Lambavatn: Það hefir verið svo hagstætt sem framast má kjósa. Sífelld sunnan- og suðvestanátt og hlýja svo gróður er kominn eins og vanalega um hálfan mánuð til 3 vikur af sumri.
Grænhóll: Óminnilega góð tíð. Tveir elstu búhöldar hér, á áttræðisaldri, muna engan vetur þessum líkan.
Grímsstaðir á Fjöllum (Sigurður Kristjánsson): Yfirleitt mjög hagstæð tíð allan þennan mánuð. Alauð jörð, byrjað að gróa ... úr miðjum mánuði. [3. Eldbjarmi og reykjarstrókur; stefna austan Herðubreiðar].
Kelduneskot (Indriði Hannesson): Menn hér undrast mjög þetta fyrirtaks tíðarfar, muna aldrei þvílíkt.
Raufarhöfn (Árni Árnason): Skýrslan ber með sér óvanaleg veðurgæði allan mánuðinn. Vötn og tjarnir voru íslaus í góulok og jafnvel fyrr. En samt skilur hann við okkur með frosti og snjó. AÐ líkindum gerir frostið útaf við gróður þann sem kominn var þó nú sé aftur komin veðurblíða. Hér var vond frosthríð nóttina og fyrripart 1.apríl. Fé víða pössunarlítið og ekki verið að húsum. Eru mann því hræddir um að eitthvað hafi farist í hættur, sem komu í hríðinni.
Nefbjarnarstaðir: Öndvegistíð mestallan mánuðinn. Elstu menn muna ekki jafngóða tíð um þetta leyti árs. Sífelldar stillingar og blíðviðri. Úrkoma afarlítil. Aldrei komið snjókorn úr lofti síðan krapaslettur þ.1. Elds ekki orðið vart.
Stórhöfði: Ágæt tíð. 15. til 18. óvenju mikil móða, skyggni sést óglöggt 2000 m. Talið að stafi af eldi. Annað hef ég ekki getað greint að eldar væri uppi.
Sámsstaðir (Klemenz Kr. Kristjánsson): Jörð farin að grænka í byrjun mánaðar og víðast algræn seinni hlutann.
Norðlingur leitar 2.mars skýringa á blíðviðrinu:
Hvernig stendur á góða veðrinu hér í vetur? Viðtal við Pálma Hannesson náttúrufræðing. Í allan vetur, það sem af er, hefir verið svo að segja látlaust góðviðri hér á landi, svo að líkara hefir verið sumartíð en vetrarveðri. Veturinn í fyrra þótti afburðamildur, en þessi tekur honum fram um hlýindi, snjóleysi og hverskonar mildi og stillur. Túnblettir hafa grænkað á þorranum; vötn, sem jafnan hafa legið undir ís frá því á haustnóttum og til fardaga, hafa verið alauð; hestar hafa ekki fengið heytuggu í húsi í sumum sveitum, það sem af er, og í fjöllum, sem jafnan hafa staðið klædd fannafeldi, sést nú varla snjódíll. En utan úr heiminum, og það jafnvel nágrannalöndunum, berast fregnir um gífurlegt frost, snjókomur og stöðvun umferðar á landi og sjó, vegna vetrarríkis og harðviðra. Það er eðlilegt að menn furði sig á þessu og verði tíðspurult um orsakir að þessari veðurfarslegu byltingu En fæstir munu hafa svar á reiðum höndum við þeim. Helst mundu það þó vera náttúrufræðingarnir og veðurfræðingarnir. Norðlingur hefir því snúið sér til Pálma Hannessonar þeirra erinda að vita, hvort hann gæti nokkuð frætt lesendurna um orsakir veðurblíðunnar. - Því miður veit maður lítið um þær enn þá. Vísindin eða veðurfræðin eru ekki komin svo langt enn. Það eitt má telja nokkurn veginn víst, að hér á landi muni ekki vera komin varanleg veðrabreyting, þó að góðir vetur hafi farið saman nú nokkur ár, og þessi síðasti sé sá mildasti og besti. Hér hafa alltaf skipst á góðir kaflar og vondir, nokkuð hörð ár farið saman og síðan nokkur góð; og engin ástæða er til að ætla, að nú sé komin nokkur óhagganleg festa í veðráttufarið. Hvað stjórnar í raun og veru veðurfarinu hér á landi? Veðráttan byggist aðallega á því, hvernig loftþrýstingin hagar sér yfir Evrópu og Grænlandi. Í vetur hefir t.d. verið há loftþrýsting yfir Evrópu og náð út á Atlandshaf. Pað er ástæðan til hins langvarandi og mikla kulda þar suður frá. En loftvægislægðirnar? Þær ráða aftur á hinn bóginn svo að segja algerlega hita og kulda hér, eftir því hvoru megin þær fara við landið, sunnan megin eða norðan. Fari þær fyrir norðan land, þá streyma hlýir vindar að sunnan og veðrið verður milt og gott, en fari þær fyrir sunnan landið, koma kuldar og stórhríðar, og því meir, sem þær fara nær landinu. Í fyrravor voru suðursæknar lægðir. Þá fengum við kuldann og norðan stormana. En sólin var þá orðin svo hágöngul, að kuldans gætti minna. En hvernig myndast lægðirnar, og hvaða lögmálum hlíta þær? Það þekkir veðurfræðin ekki enn, hvorki hvar lægðirnar kvikna, né hvernig stendur á því, að þær fara í þessa átt en ekki hina. Ef vísindin væru komin svo langt á þessu sviði, þá væri hægt að segja fyrir um veðrið um lengri tíma í stað þess að nú er aðeins hægt að fylgja ferli hverrar einstakrar lægðar. Menn hafa verið að tala um breytingu á Golfstraumnum í sambandi við tíðarfarið, og talið að hann hafi breytt stefnu. Það er ekkert annað en getgáta gripin úr lausu lofti, og hefir ekki við neinar vísindalegar rannsóknir að styðjast. Að vísu hefir Golfstraumurinn verið óvenju norðursækinn nú upp á síðkastið og vatnsmikill. Þér álítið þá, að hér sé ekki um varanlega veðurfarsbreytingu að ræða? Það er ekki hægt að ráða það af neinu, sem menn þekkja eða geta fært rök fyrir. Skynsamlegast held ég að sé að safna í kornhlöðurnar meðan góðærið er, og búa sig undir hörðu og köldu árin Því þau koma eftir reynslu undanfarinna alda.
Vísir birti 4.mars tilkynningu frá Veðurstofunni:
Frá Veðurstofunni. Eldbjarmi og reykjarstrókur sást í gærmorgun frá Grímsstöðum á Fjöllum. Gosstöðvarnar eru sennilega austarlega í Kverkfjöllum, því að stefnuna þangað frá Grímsstöðum ber austan við Herðubreið.
Morgunblaðið segir 7.mars af togarastrandi (í þoku) og tíðarfari í Mýrdal:
Enski togarinn Norse, eign Hellyers Bros, strandaði í þokunni í fyrrinótt við Hvalsnes, sunnan við Sandgerði. [Mannbjörg varð].
Úr Mýrdal. Ómuna góð vetrartíð, um jól gránaði dálítið, en tók upp aftur eftir tæpa viku. Aftur svo lítill snjór fyrstu vikuna af þorra, en síðan í miðþorra hefir verið alauð jörð og klakalaus og grænni en oft hefir verið um sumarmál, annars hefir verið nokkuð stormasamt og afar miklar úrkomur.
Vísir birti 9.mars bréf úr Húnaþingi - dagsett 25.febrúar:
Úr Húnaþingi. 25.febrúar FB Tíðarfar. Tíðin óminnilega góð til þessa, jörð oftast auð, þó fest snjó, en hann horfinn næstu daga. Hafa bifreiðaferðir haldist flesta tíma af Blönduósi í flesta hreppa sýslunnar, sömuleiðis til Hvammstanga og undir Holtavörðuheiði.
Lögrétta greinir 20.mars frá harðindum í Evrópu, en hlýindum á Grænlandi:
Harðindin í Evrópu. Hér á Íslandi hefur í vetur verið einmunatíð, í Reykjavik t.d. varla komið frost, en oftast verið nokkur hiti og oft blíðasta vorveðrátta. Í Grænlandi hafa verið frostlaus góðviðri. En þar bregður svo einkennilega við, að frostleysið er til hins mesta meins og vofði víða hungur yfir fólkinu þess vegna. Eskimóarnir geta sem sé víða ekki notað hundasleða sína til ferðalaga eða fanga þegar snjó og ísa vantar, og var því tilfinnanlegur vistaskortur vegna veiðileysis. En suður um alla Evrópu hafa á sama tíma verið grimmdarhörkur, svo að til vandræða hefur horft um samgöngur og matvælaaðdrætti. Í dönsku sundunum hafa skipaferðir hvað eftir annað teppst eða tafist vegna ísalaga. Í Berlín var nú um mánaðamótin mikið frost, og barst lítið að af matvælum og fór verðlag hækkandi. Bærinn var fisklaus, brennilaus og kolalítill. Barnaskólum var lokað þar í viku, nema í nokkrum fátækustu hverfunum, þar voru skólarnir kyntir vegna heimilislausra barna. Í París var um sama leyti 1516 stiga frost og yfir 20 stig sumstaðar þar í nágrenninu. Signu var farið að leggja og samgöngur töfðust um tíma bæði á ánni, á landi og í lofti. Flugmenn, sem flugu frá Frakklandi til Englands og Þýskalands sögðu, að mun heitara væri í 5001000 m hæð en niðri á jörðunni. Í London var svo kalt að sagt er, að eins mikið frost hafi ekki komið þar í síðastliðin 40 ár. Hús í ýmsum bæjarhlutum urðu vatnslaus og sótti fólk sér vatn í brunahanana á götunum. Ýmsar enskar járnbrautarlestir sátu fastar í snjó. Í Agram í Júgóslavíu voru meterháir skaflar á götunum og hörkurnar náðu einnig langt suður í álfu, suður á Miðjarðarhafsströnd. Í Nissa var hætt við hin venjulegu föstuhátíðahöld vegna kuldans. Þar var hríð og snjóþaktir pálmarnir um alla þessa suðrænu sólskinsströnd. Víða hefur fólk farist í frostunum. Einn morguninn fundust 5 fátæklingar frosnir í hel í París. Í Rúmeníu fórust í einu þorpi um líkt leyti 2 karlar, 2 konur og 6 börn. Í Suðurrússlandi hafa margir helfrosið. Í Kischinev fraus heil bændafjölskylda í hel, 14 manns. Í Buzen helfrusu 12 bændur í miðjum febrúar. Í Tékkóslóvakíu varð helmingur allra járnbrautarmanna óverkfær af frostbólgu. Í Feneyjum var ekki hægt að koma dánu fólki í jörðina fyrir frostum, eyjan, sem kirkjugarðurinn er í, St. Michele, var gaddfrosin og umkringd ísalögum. Svipaðar harðindafregnir bárust víðar að, meðan menn böðuðu sig svo að segja í sól og sumarblíðu norður á Íslandinu á hala veraldar. Nú eru harðindin allstaðar í rénun eða um garð gengin.
Tíminn talar um tíðina 23.mars:
Árferðið. Tíðarfarið hefir i allan vetur verið miklu betra um allt land, en nokkur dæmi sé til í minnum elstu manna. Sífeldar þíður og blíðviðri hafa staðið viku eftir viku. Á þorra tók að votta fyrir gróðri og í miðgóu voru tún orðin græn hér sunnan lands og mun svo verið hafa víðar um land.
Morgunblaðið rekur líka blíðufregnir 24.mars:
Úr Þingeyjarsýslu. Gott er blessað veðrið enn. Öðru hverju hefir rignt á þorranum og það sem liðið er af góu og hefir regnið komið jafnt að norðan sem sunnan að. Vel viðraði s.l. vetur, en þó enn betur nú. Veturinn 192324 var fágætlega góður, þá festi aldrei hélu á glugga hér í sveit á þorra. Nú festi þó hrímu á rúðu tvisvarþrisvar á þorra.
Vísir segir 30.mars af sjóslysi þann 28.apríl og birtir tíðarfregnir:
Auðnum, Vatnsleysuströnd 28/3 FB. Landsynningsrok skall á hér í morgun, og voru allir bátar á sjó. Einum bát hvolfdi á heimsiglingu, var það opinn vélbátur, með þrem mönnum. Tveir mannanna komust á kjöl, og var bjargað, en einn mannanna drukknaði.
FB.30. mars. Af Langanesi. Tíðin hefir verið hér einmuna góð, eins og víðast hvar eða alstaðar á landinu. Alauð jörð síðan nokkru eftir jól, sífeldar stillur og góðviðri. Klaki er nú að mestu úr jörðu.
Veðráttan segir að þann 14. mars hafi flísast úr símastaur og eldingarvari hafi bilað á Efra-Hvoli. Þann 20. mars slitnaði skip upp og rak upp í fjöru í vestanveðri á Ísafjarðarhöfn, en náðist út síðar. Þann 24. olli elding skemmdum á Rafmagnsstöðinni í Reykjavík, öryggi bráðnuðu og önnur rafmagnsvélin skemmdist.
Í blálok marsmánaðar fór kuldastrengur til suðurs rétt fyrir austan land [páskadagur þann 31.]. Gætti hans í fáeina daga við norðausturströndina og jafnvel á Austurlandi - aðrir urðu lítt við hann varir. Nokkuð hret gerði upp úr miðjum apríl. Veðurathugunarmenn segja frá apríltíð.
Hvanneyri: Veðráttan mjög góð, úrkomulítið og hægviðri.
Lambavatn: Fram í miðjan mánuðinn var sífelld hlýja og var allur gróður að lifna eins og komnir væru fardagar. Nú, seinni hluta mánaðarins hefir verið kuldi og næðingar svo allur gróður er að deyja.
Grænhóll. Blíðviðri fyrripart mánaðarins til 16. Snjókast 16. til hádegis og síðan talsvert 17. og 18. Eftir það góðviðri.
Fagridalur: Kuldakast fyrstu dagana, síðan góð veður aftur til þess 17. Þá gekk til kulda er varir út mánuðinn með éljaveðrum oftast. Nokkur snjór á köflum.
Fagurhólsmýri: Veðráttan hefur verið ágætis góð og jörð alveg klakalaus allan mánuðinn.
Stórinúpur: Morguninn þann 18. var regnmælir tómur þrátt fyrir mikla snjókomu daginn fyrir. Hafir víst öllu þyrlað upp jafnóðum af roki. Þar á móti var mælakassinn þá nærri fullur af snjó og töluverðar fannir, t.d. niðurgrafnir vegir óvagnfærir sumstaðar af snjó.
Morgunblaðið segir af veðurfarskenningum 4.apríl. Þess má geta að Sandström þessi er mjög þekktur í sinni grein:
Sænskur veðurfræðingur, J. W. Sandström að nafni, sem kunnur er fyrir rannsóknir sínar á Golfstraumnum, hefir nýlega ritað grein, þar sem hann segir, að hægt sé að spá um veðurfar í Evrópu fyrir nokkra mánuði. Hann skýrir þetta þannig: Áhrifum Golfstraumsins á veðráttu mætti líkja við skál; botninn er í Færeyjum, en barmarnir ná vestur á vesturströnd Grænlands og austur á Rússland. Þegar straumurinn eykst, dýpkar þessi skál, botninn lækkar en barmarnir hækka. En dragi úr straumnum verður skálin flatari. Við barmana í austri og vestri er veðurfar jafnan þveröfugt við það, sem er í miðri skálinni. Því hefir verið haldið fram, að Golfstraumurinn hafi ekki áhrif á veðráttu nema aðeins á hinu takmarkaða svæði, er hann fer um. Sú skoðun er byggð á ónógri þekkingu, því að fyrir löngu er það sannað, að áhrifa Golfstraumsins gætir alla leið suður við Svartahaf og lengst inn í Rússland. Að þetta sé rétt, hafa rannsóknir báðum megin við Golfstrauminn, leitt í ljós. Og af þessu sér maður aftur, að Golfstraumurinn ræður mestu um vetrarveðráttu allt frá vesturströnd Grænlands og austur í Evrópu. En þá er eftir að skýra það hvernig hlýr straumur orsakar kulda eins og þá, sem verið hafa á meginlandi Evrópu í vetur. Yfir Golfstraumnum hlýnar loftið og verður þrungið af gufum og verður þannig léttara en loftið þar um kring og leitar því beint upp í geiminn eins og reykur upp úr reykháf. Hátt uppi dreifist svo loft þetta til beggja handa og fellur niður yfir Evrópu og Grænland. En þetta loft er þá tært og skýjalaust og hleypir því hitageislum frá jörðunni í gegn um sig og út í alheimsrúmið. Nótt eftir nótt heldur þessi hitaútgufun áfram og á hverjum degi kólnar loftið niður við jörðina, vegna þess hvað sólarhitans gætir lítið á þessum árstíma. En þau árin, sem Golfstraumurinn er kaldur, kemur þessi hitaútgufun ekki fyrir og þá er tiltölulega hlýtt í Vestur-Grænlandi og á meginlandi Evrópu. En þegar Golfstraumurinn ræður nú svo miklu um veðurfar í álfunni, þá er það ljóst, að með því að rannsaka hann gaumgæfilega, geta menn sagt fyrir um veðráttu mánuðum saman. Því að hreytingar á Golfstrauminum eru afar hægfara og veðrátta sú, er hann veldur, er því nokkurn veginn stöðug, eins og reynslan hefir sýnt í vetur. Ef vér hefðum vitað það í haust, að sterkur og hlýr Golfstraumur veldur kulda á meginlandi Evrópu, og jafnframt vitað, að hann var óvenju hlýr í haust, þá hefði verið hægt að segja fyrir um vetrarharðindin. Í sumar fer Sandström norður í höf til þess að rannsaka Golfstrauminn og áhrif hans. Hefir verið leigt norskt skip til fararinnar og ætlar Sandström að vera þrjá mánuði í þessum leiðangri og koma hvergi við land á þeim tíma nema sem allra snöggvast á Svalbarða.
Tíminn segir 6.apríl frá óvenjulegum músagangi og fári í svartfugli:
Músagangur hefir verið óvenjulega mikill um allt land og eigi síst norðanlands nú í vetur. Hefir músum mjög fjölgað í góðærinu sem vonlegt er. Hefir kveðið mjög rammt að ófögnuði þessum sumstaðar í Þingeyjarsýslu, svo að til vandræða hefir horft á sumum bæjum.
Fár í svartfugli. Fregnir berast um það, að fár mikið sé í svartfugli um þessar mundir og rekur mjög mikið af dauðum fugli fyrir norðan land.
Morgunblaðið 9.apríl:
FB 3.apríl. Tíðarfar. Einmuna blíða á hverjum degi. Engin frostnótt komið síðan með marsbyrjun. Tún eru mikið farið að grænka. Sóleyjar sá ég í túni mínu þ. 19. mars. Byrjað var að vinna áð jarðabótum hér í byrjun marsmánaðar. Víða er búið að sleppa fé, ...
En þ.16. gerði allhart hret. Morgunblaðið segir frá 18.apríl [Til er grein um þessi hret: Bjarni E. Guðleifsson, 1984. Kaupfélagshretin. Heimaslóð 3: 67-70.]:
Ægissíðu, miðvikudag. Bylur hefir verið hér í dag, ekki meiri fannkoma en svo, að aðeins hefir gránað, en veðurhæð mikil og talsvert frost, svo að komið er hrím á glugga. Enn hvassara var þó uppi á Landi og var þar mikið sandveður og eins niður um alla Rangárvöllu. Bændur höfðu sleppt fé sinu fyrir löngu, en nú var því smalað í dag eins og við varð komið.
Akureyri, miðvikudag. Kaupfélagshret. Hefir verið norðanhríð dag með -4 stiga frosti og hvasst. Lítill hefir þó verið snjóburður hér, en hvítt er orðið ofan í sjó hinum megin fjarðarins og alhvítt fram í firði. Þetta kalla menn hér Kaupfélagshret. Á að halda aðalfund Kaupfélags Eyfirðinga á morgun, en það hefir verið segin saga undanfarin ár, að rétt á undan aðalfundum Kaupfélagsins hefir gert þau verstu hret, sem hér hafa komið.
Morgunblaðið segir enn hretafréttir 19. og 21. apríl:
[19.] Borgarnesi, FB. 18. apríl. Norðanrok og hvítt niður undir sjó. Skepnuhöld góð. Voru menn almennt búnir að sleppa fyrir löngu, en nú eru menn að taka fé á gjöf aftur, vegna, kuldans.
[21.] Vestmanaeyjum, FB 19. apríl. Fyrri hluta vikunnar dágóður afli, en fór minnkandi. Fimmtudagsnótt snjóaði hér, um morguninn alhvít jörð og norðanstormur. Bátar gátu lítið athafnað sig á sjónum þann dag og sneru fljótt heimleiðis. Í dag landlega. Norðanstormur og kuldi.
Maí var heldur hretasamur framan af - en batnaði síðan. Merkasta hretið gerði þann 4. og 5.. var mikil viðbrigði frá allri undangenginni blíðu. Veðurathugunarmenn segja frá maítíð:
Lambavatn. Það var kalt og þurrviðrasamt svo allur gróður var kyrkingslegur þar til síðustu dagana að stillti til og grænkaði.
Húsavík: Fyrstu viku maí var hart snjóáfelli og kuldar og stormar til hins 17. Stöðvaðist allur gróður og dó út nýgræðingur. Síðari hluta mánaðarins glærur og fremur kaldar hafgolur. Úthagi nú að mestu algrænn, og von um enn geti orðið gott grasár.
Fagridalur: Sífelld ótíð miklum snjó fyrri hluta mánaðarins, en þá fór að hlýna og í lok mánaðarins er allt lifnað aftur.
Stórinúpur: Fremur kaldrænt meiri hluta mánaðarins og grasvexti fór lítið fram. Gerði afskapabyl 4., fennti fé í heimahögum og afrétti. Ár stífluðust eða þurrkuðust upp af snjókomunni. Sumar smáár þornuðu alveg. Þjórsá varð svo lítil að enginn maður hefur séð hana slíka. Rann sumstaðar aðeins hér í hraungjám í botninum.
Það er harla óvenjulegt að mestu hríð vetrarins geri í maí - en svo virðist hafa orðið að þessu sinni.
Atburðarásin var afskaplega hefðbundin. Vaxandi háloftalægðardrag kom úr norðvestri, yfir Grænland og olli vestlægum áttum í efri hluta veðrahvolfs. Hlýtt loft samfara djúpri lægð við Bretland sótti á móti - með vaxandi norðaustanátt. Þannig gat snjóað á Suðurlandi, þrátt fyrir að áttin væri norðaustlæg. Athugið að línur á þessu korti eru þéttar dregnar heldur en hefðbundið er.
Morgunblaðið segir af hríðinni í pistli 5.maí:
Hríðin. Í gær mun hafa verið versta veður um land allt, ofsarok af norðri með stórbrimi á Norðurlandi og fannkomu um mikinn hluta landsins. Á Siglufirði hefir snjóað þrjá undanfarna daga, og er komin mikil fönn þar norður frá. Suður í Ölfusi var svo mikil fannkoma að bílar fóru þar útaf veginum og komust ekki leiðar sinnar, að því er Morgunblaðið frétti frá Ölfusárbrú. Frost var ekki mikið norðanlands í gærdag. Skipagöngur hafa ekki teppst til og frá Siglufirði, þrátt fyrir hríðina. Hér var frostlaust veður framan af í gær, en kólnaði með kvöldinu jafnframt því, sem veður harðnaði og gerði verra veður en kom nokkuru sinni á nýliðnum vetri.
Fimmtán bílar voru veðurtepptir að Ölfusárbrú í gær og um 5060 manns næturgestir í Tryggvaskála í nótt. Í bylnum í gær spilltist færðin mjög á vegunum fyrir austan fjall; var veðrið svo vont seinnipartinn, að vegurinn sást ekki og óku margir út af hjá Ingólfsfjalli. Eins og nærri má geta, leið farþegum illa í hrakningum þessum, en slys varð ekkert. Unglingstelpa hafði verið í einum bílnum, sem festist og varð henni svo kalt af að standa úti í hríðinni, að hún féll í yfirlið og var borin austur að Tryggvaskála. Hresstist hún strax er þangað kom og hafði náð sér að fullu í gærkvöldi.
Morgunblaðið segir enn 7.maí:
Borgarnesi, 5. maí FB. Veðrið er allslæmt hér, en ekki frést um skaða af völdum þess enn. Ætla menn, að veður hafi ekki verið það slæmt, að fé hafi farist.
Eyrarbakka, 5. maí FB. Engan bát vantar. Allhvasst í gær og hlóð niður talsverðum snjó, en hann hefir tekið upp að mestu aftur. Gott veður í dag.
Þjórsá, 5. maí FB. Þreifandi norðanbylur skall á hér um miðnætti í fyrrinótt og hélst í þrjú dægur. Nú sæmilegt veður og byllaust, en allhvasst. Veður var svo slæmt fyrsta daginn, að ógerningur var að finna fé, varla farandi milli bæja. Muna menn ekki slíkt veður á þessum tíma árs og varla svo slæmt vetrarveður um langt skeið. Veðrið var vægara austur í Hvolhreppi og Fljótshlíð. Hér eru þriggja mannhæða skaflar sumstaðar, þar sem brúnir eru, og eru menn nú að ná fé úr fönn. Snjóinn leysir fljótt upp og menn moka upp skafla sem óðast, en menn óttast mjög, að talsvert af fé hafi farist, en þó verður ekki með vissu sagt um það enn. Veður mun hafa verið heldur vægara uppi í Hreppum, en sennilega hefir fé fennt þar líka.
Keflavík, 5. maí FB. Allir bátar komnir fram. Í morgun voru níu komnir til Sandgerðis, tveir til Hafnarfjarðar í morgun, einn náði landi í Njarðvíkunum í gær og tveir hér, einn bátur lá undir Hafnarbjargi í nótt, mun nú kominn til Sandgerðis. Átta bátar héðan vora ekki í róðri, þar af tveir í Reykjavík. Í Sandgerði mun engan bát vanta. Töluverðum snjó hlóð hér niður, en er sem óðast að taka upp. Ekki frést, að fé hafi fennt. , Afli ágætur, alltaf komið að með fulla báta. Flestir bátanna hér hafa fengið upp undir sex hundruð skippund og sumir á sjöunda hundrað töluvert. Hefir aldrei verið annar eins afli hér og á þessari vertíð.
Akureyri, 5. maí FB. Stórhríð á tímabili í gær. Bjart yfir og hláka í dag. Þó alsnjóa enn, nema rétt hér í kring. Ekki frést hingað enn um nokkra skaða af völdum ofsaveðursins. Ágætis afli alveg inn á poll. Góð atvinna og vellíðan.
Seinustu fregnir. Fé og hesta hefir fennt til dauðs. Í gærkvöldi bárust Morgunblaðinu þær fregnir, að í gær og fyrradag hefði menn víðsvegar í uppsveitum Árnessýslu verið að draga fé úr fönn. Frá Skálholti fundust 14 kindur fenntar, þar af 2 dauðar. Frá Spóastöðum fundust 11 kindur í fönn, en allar lifandi. Frá Miklaholti fundust nokkrar kindur í fönn og voru þær allar lifandi, en þaðan fundust líka tveir hestar fenntir og voru báðir dauðir. Frá flestum bæjum í Grímsnesi hafa margar kindur fundist í fönn, sumar dauðar, en flestum hafa menn þó náð lifandi.
Bílaferðirnar austur yfir fjall. Á laugardaginn [4.maí], í veðrinu mikla, urðu fjöldamargir bílar hríðtepptir fyrir austan fjall og á fjallinu. Tveir bílar tepptust í Kömbum, og fóru mennirnir gangandi þaðan niður veginn, en urðu að hafa sig alla við að rata. Var veðurhæð afar mikil, blindhríð og kóf. Þegar þeir komu niður undir Kotströnd, sáu þeir glóra í kirkjuna og náðu henni. En þá var dimmviðrið svo mikið, að þeir sáu ekki bæinn, þótt hann sé rétt hjá, og voru um stund að bræða með sér, hvort þeir ættu heldur að leita að bænum, eða reyna að þræða veginn undan veðrinu niður að Ölfusárbrú. Þó varð það úr að þeir leituðu bæjarins og náðu honum. Á sunnudag lögðu 12 bílar í fylkingu að austan. Voru mokstrarmenn í fremsta bílnum og ýmsum fleiri voru fengnar rekur og var bílunum svo rudd braut í gegn um verstu snjóskaflana. Voru þeir á leiðinni mestan hluta dagsins, en strönduðu í snjó neðan við Hólm. Þar urðu allir að ganga af bílunum og niður að Baldurshaga, en bílar komu þangað upp eftir að sækja þá. Í gærmorgun voru bílarnir orðnir 16, sem stöðvast höfðu hjá Hólmi og voru þá sendir menn upp eftir til þess að ryðja þeim braut í gegnum skaflana.
Morgunblaðið segir 9.maí af slysi í Fnjóskadal:
Á laugardagsmorguninn [4.] var fór bóndinn á Belgsá í Fnjóskadal, Karl Kristjánsson, að smala fé sínu. Var norðanhríðin þá skollin yfir með mikilli fannkomu. Kom hann heim aftur um nónbilið. Vantaði hann þá talsvert af fénu. Fór hann því brátt aftur að leita. Bærinn Belgsá stendur að austanverðu í dalnum. Er fjallshlíðin þar snarbrött með köflum. Þegar þannig viðrar eru snjóflóð þar nokkuð tíð. Er mælt að fyrir einum 100 árum hafi bóndinn á Belgsá farist í snjóflóði. Er Karl fór út í hríðina að afliðnu nóni á laugardaginn, hafði fóstri hans, aldraður maður, Indriði að nafni, orð á því við hann, að hann skyldi vara sig á snjóflóðahættunni. Segir nú ekki af ferðum Karls. Undir kvöldið fer heimilisfólki að lengja eftir honum. Veður fór heldur versnandi. Er komið var langt fram á kvöld réð húsfreyja það við sig að leggja út í hríðina til þess að leita af manni sínum. Í fylgd með henni var piltur um fermingu, sem var gestkomandi á bænum þann dag. Ákváðu þau að reyna að komast á beitarhús jarðarinnar, því þau vonuðust eftir, að bóndinn hefði komist þangað. Beitarhúsin eru á eyðijörð fram í dalnum og er löng bæjarleið á milli. Húsfreyjan er Jónasína Sigurðardóttir frá Veturliðastöðum. Tókst henni og piltinum að ná beitarhúsunum; þar grípa þau í tómt. Halda þaðan heimleiðis móti hríðinni. Var það þrekraun að komast þá leið í blindbylnum. Er fram á nóttina kemur leggur Jónasína enn á stað og fer nú út að Þóroddsstöðum. Vekur hún þar upp og biður liðsinnis. Er hafin leit strax á sunnudagsmorguninn, og hefir henni verið haldið sleitulaust áfram síðan. Er stórhríðinni létti af urðu menn varir við snjóflóð mikið, er fallið hafði skammt frá Belgsá. Fannst stafur Karls þar á sunnudag. Allt að tuttugu menn hafa starfað að því að grafa í snjóhrönnunum. Húfa Karls fannst á mánudag. En annan árangur hefir leitin ekki borið, er síðast fréttist. Karl var maður á fertugsaldri, giftur fyrir rúmlega ári. Áttu þau hjón einn son.
Morgunblaðið segir enn af afleiðingum hretsins í pistli 11.maí:
Fjárskaðarnir fyrir austan. Ekki hafa enn komið neinar áreiðanlegar fregnir um, hve miklir hafa orðið fjárskaðar hér í austursýslunum í ofviðrinu mikla fyrir helgina. Fé var komið á afrétt og er því ekki gott að vita hve mikið mun finnast lifandi af því, sem enn vantar. Má vera að flest finnist, en víða eru enn miklar fannir, sem ekki hafa verið rannsakaðar, og þar getur fé leynist enn, bæði dautt og lifandi. Af fjársköðum hefir blaðið frétt, að í Bolbolti hafi farist 8 kindur. Á ýmsum bæjum í Holtum hafa líka orðið vanhöld og vitað er um þó nokkrar kindur, sem hafa drepist í skurðum í Safamýri.
Tíminn segir líka hretfréttir 11.maí:
Stórkostlegar skemmdir hafa orðið á trjám, runnum og blómjurtum í görðum hér í borginni. Voru tré víða allaufguð áður enn kuldinn hófst, en standa nú blaðlaus og munu þurfa langan tíma til að rétta við aftur.
Morgunblaðið segir enn af hretinu í pistli 12.maí:
Fannkoma var mikil í Borgarfirði um síðustu helgi [4. til 5.]. Fé vantar enn í Norðurárdal og hætt við, að það hafi fennt. Í Þverárhlíð fennti ekki fé. Í Helgavatnsskógi voru nokkrar kindur dregnar úr fönn og mun það ekki kafa komið fyrir áður. Hætt er við, að hross, sem komin voru á fjall. hafi fennt. Hafa menn verið gerðir út til þess að grennslast eftir því, en eigi eru þeir komnir aftur. Frost á nóttum og svalviðri, svo gróður vill deyja jafnóðum.
En síðan sneri blíðan aftur. Morgunblaðið 16.maí:
Reykjavík og veðurblíðan. Það er gaman að sjá hve margir menn hér í borginni keppast við að laga í kringum hús sín þessa góðviðrisdaga. Þekja hlöðin, gróðursetja tré og blóm, flytja burt skran og taka til. Ef þessu heldur svona áfram, verður mörgu kippt í lag fyrir hvítasunnuhátíðina, sem jafnan er hin yndislegasta hátíð vorsins. Það væri gott að ýmislegt yrði gert, bænum til prýði og fegrunar einmitt á þessu vori, því margt verður að gera næsta vor, enda ætti það að vera yndi bæjarbúa og ánægja, ekki einungis 1930 heldur öll ár, að gera garðinn frægan með því að græða upp blettina við húsin og halda þar öllu í röð og reglu. Ef útlendir stórbæir hefðu það rými við húsin sem Reykjavíkurbúar almennt hafa, mundu þeir hrósa happi að hafa þar afdrep fyrir börn sín til leikja og gera sjálfum sér þar smágarða til yndis og ánægju. Það er furðulegt hvað gera má þótt úr litlu sé að spila, það sýna húsagarðarnir erlendis. Þar ættum við að taka okkur útlendingana til fyrirmyndar. Lögreglustjóri hefir fyrirskipað almenna vorhreinsun fyrir 20. maí. Vonandi verða allir búnir að laga til hjá sér fyrir þann tíma. Allt bendir, sem betur fer, í þá átt. H.
Af Langanesströnd. Hér er sama einmuna tíðin og verið hefir í allan vetur, svo góð, að elstu menn muna engan annan eins vetur og þennan að stöðugum veðurblíðum. Á annan í páskum snjóaði dálítið, en þann snjó tók að mestu leyti upp daginn eftir. Annar snjór hefir ekki komið hér síðan nokkru eftir hátíðar.Jörð er nú farin að gróa að miklum mun og einstöku sóleyjar farnar að springa út í túnum. Þ. 11. þ.m. var hér 15 stiga hiti í forsælu. Menn eru nú farnir að þekja flög þau, er þeir ristu ofan af í vetur. Nokkrir bændur eru farnir að taka upp mó. Farið er að láta út kýr á stöku stað. Til lóunnar heyrðist hér fyrst á páskadagsmorgun. Hrognkelsaveiði hefir verið fremur lítil, en er nú heldur að aukast.
Morgunblaðið segir fréttir úr Húnaþingi 17.maí - dagsetningar ekki getið - en líklega er verið að tala um veðrið þann 4. eða 5.:
Úr Húnaþingi. Hið fágæta blíðuveður hélst fram yfir miðjan apríl til 17. gekk þá í norðaustan með kafaldi öðru hverju, hafa norðan áttirnar haldist síðan. Í dag norðan hríð, mikil fannkoma, frost tvö stig. Klukkan átta að kvöldi 4 stig. Víða var búið að sleppa fénaði, sumstaðar komið á fjöll. Hafa margir tekið hann aftur. Eftir fréttum að dæma hafa fénaðarhöldin verið fremur góð, en við búið að tíðarumskiptin verði fénaðinum varasöm, hvað heilsu snertir, einkum í þeim héruðum, þar sem veiklunar hefir orðið vart.
Morgunblaðið segir af veðurskeytum 29.maí:
Veðurskeytin verða frá 1. júní send á 1910,8 m bylgju, frá loftskeytastöðinni, en útvarpað á 1200 m bylgju. Á helgum dögum verða skeytin send kl. 11:20 f.h.
Morgunblaðið segir 30.maí frá tíð í Vestmannaeyjum:
Vestmannaeyjum, FB. 27. maí. Síðustu viku hálfgerð rosatíð. Einu sinni farið til fiskjar. Afli lítill sem enginn. Nú blíðviðri.
Veðráttan getur þess að í mánuðinum hafi orðið fjárskaðar í vatnagangi í leysingum norðaustanlands (dagsetning ónákvæm).
Veðurathugunarmenn segja af júnítíð:
Suðureyri: Fremur hlýtt, mjög þurrt, nokkuð vindasamt.
Hraun í Fljótum: Tíðarfar fremur svalt, sérstaklega um nætur, þangað til síðustu daga mánaðarins. Þó tók út yfir um sólstöðurnar. Hretaði þá víða um Norðurland og gjörði hvítt af snjó í fjöllum og niður á láglendi í dölum, en tók fljótt aftur. Þurrviðri voru mikil fram yfir miðjan mánuð og fór grasvexti lítið fram, allt fram yfir hretið. Stormar voru litlir sem engir; aðeins þann fyrsta og svo aftur í hretinu þann 22, en oft voru kuldanæðingar.
Nefbjarnarstaðir: Tíðin í meðallagi heit og úrkomulítil. Má því kallast fremur hagstæð. Í lok mánaðarins gott útlit. Grasspretta í túnum með betra móti.
Morgunblaðið segir af illviðri í pistli 8.júní:
Frá Ísafirði var símað í gær [7.], að þar væri vonskuveður, norðanstormur með mikilli úrkomu og svo illt í sjóinn, að handfæraskip voru að flýja þangað inn að leita sér skjóls.
Morgunblaðið segir af gróðri 13.júní:
Tún eru farin að spretta ágætlega hér í Reykjavík og víða búið að slá einu sinni, og á einum stað, túni frú Katrínar Magnússon, tvisvar. Í Gróðrarstöðinni er búið að slá alla blettina, eins í garðinum við Tjarnarendann. Gömlum mönnum myndi þykja þetta snemma byrjað á slætti, en tíðin hefir líka verið aftaka góð.
Siglfirðingur segir 23.júní af hreti - þá gerði krapahríð víða á norðausturlandi, en festi ekki á láglendi:
Utanátt, bleytur og fremur kalt alla vikuna, Snjóað hefir á nóttum í fjöll og í gær var krapahríð. Sjóveður hafa verið slm.
Morgunblaðið segir 27.júní af varpi í Grímsey:
Varpið í Grímsey. Norðanblöðin skýra frá því, að varpið í Grímsey hafi algerlega brugðist, að þessu sinni, og er ástæðan sú, að sögn Grímseyinga, að fuglinn hefir drepist í vetur í stórhópum. Hefir sáralítið verið af fugli við Grímsey í vor, og búast eyjarskeggjar við, að þetta lagist ekki fyrr en eftir nokkurra ára skeið.
Veðráttan segir að 2.júlí hafi verið snjókoma sums staðar norðaustanlands, en ekki fest ekki á láglendi. Hafís birtist á Húnaflóa og var allmikill um tíma, og fram í ágúst. Hafískoman var afleiðing af hinu afbrigðilega tíðarfari vetrar og vors, suðvestlægum áttum í Grænlandssundi og vestanáttum eða áttleysu yfir Austur-Grænlandsstraumnum norður í hafi.
Veðurathugunarmenn segja af júlítíð:
Júlí: Hvanneyri: Mjög úrkomulítið og að öllu ákjósanlegasta heyskaparveður.
Lambavatn: Það hefir verið hagstætt fyrir landið, hlýtt og skipst á þurrkur og væta.
Grænhóll: Mánuðurinn hlýr og hægviðri yfirleitt. Hafíshroði allmikill oft hér í flóanum síðan 7.júlí.
Húsavík: Veðráttan yfirleitt stillt en fremur köld. Fyrstu dagana súldir. Oft kaldar hafrænur og þokuloft og skin á milli. Aldrei sést hafís hér úti fyrir.
Nefbjarnarstaðir. Tíðarfar mjög hagstætt.
Morgunblaðið segir 19.júlí fréttir að norðan:
Tíðarfarið. Loks kom að því, að tíðarfarið breyttist til hins verra hér norður frá. Var ekki við því að búast, að slík veðurgæði héldust til lengdar. Úr miðjum apríl gekk í þráláta norðaustanátt og kulda, sem héldust stöðugt, að heita mátti fram í miðjan maímánuð. Snjóaði þá mikið í sumum byggðarlögum hér, en í öðrum var að heita mátti auð jörð. Var kominn töluvert mikill gróður hér fyrir þessa kulda; t.d. var fjalldrapi víðast hvar útsprunginn og farið að grænka í túnum. En þessum gróðri fór aftur eða stóð í stað, því frost voru oft á nóttum. Um miðjan maímánuð hlýnaði aftur og gerði sæmilega góða tíð, úrkomur töluverðar af og til, en hlýindi þó. Er útlit fyrir að spretta verði vel i meðallagi, ef ekki koma kuldar; stofn á túnum góður, en engjar lakari.
Morgunblaðið segir af hafís 20.júlí:
Hafís. Þegar Ari fór af veiðum í fyrradag, hitti hann talsverðan hafís á Húnaflóá. Kári Sölmundarson, sem fór þar um 10 tímum seinna, varð lítið var við ís. Aftur á móti símaði Skallagrímur í gærkvöldi, að ís væri í flóanum.
Þann 23.júlí varð harður jarðskjálfti á Reykjanesi. Upptökin nú talin í Brennisteinsfjöllum og giskað á styrk 6. Þetta er líklega sterkasti skjálfti aldarinnar í Reykjavík.
Morgunblaðið segir frá 24.júlí:
Stundarfjórðungi fyrir klukkan 6 í gær, kom hér í Reykjavík svo harður jarðskjálftakippur, að menn muna hér ekki annan eins. Hús hristust svo að brakaði í þeim, og fjölda fólks var nóg boðið, svo það þusti út á göturnar, sumpart til að bjarga sér, ef húsin skyldu hrynja, sumpart til þess, að verða sjónarvottar að atburðum þeim, er fyrir kæmi í grenndinni. Talið er, að kippurinn hafi staðið 3540 sekúndur. Er það langur jarðskjálftakippur. Mest brögð virðast hafa orðið að skemmdum á húsum þeim, sem hlaðin eru úr grásteini, svo sem Alþingishúsinu og Landssímastöðinni. Í velflestum herbergjum þinghússins mun bera á sprungum, einkum meðfram loftum og hrundi nokkuð niður af loftlistum einkum í Neðri deild. Konungsmerkið með kórónunni á þakskegginu yfir innganginum, fékk þverbrest og datt lítill moli úr merkinu niður á gangstéttina. Landssímastöðvarhúsið skemmdist og talsvert, veggir sprungu, reykháfur hrundi og þess háttar. Reykháfar hrundu á allmörgum stöðum í bænum og hefir blaðið ekki tölu á þeim. Sprungur komu í veggi á nokkrum steinsteypuhúsum.
Svo mikil varð jarðhræringin, að þeir sem úti voru, nálægt háum húsum, sáu þau vingsast til. Hvein og brakaði í öllum húsum svo brakhljóðið og glumrugangurinn minnti á að komið var allt í einu ofsarok. En veður varið besta, blæjalogn og sólskin. Á Tjörnina kom allmikil bára, og við hristinginn gaus upp úr henni óþefur mikill. Sumstaðar sáust göturnar og gangstéttirnar ganga svo til að sást í raðir gangstéttaflísanna er þær sporðreistust augnablik úr stellingum sínu. Almennt mun það vera álít manna að jarðskjálftakippur þessi hafi ekki mátt verða mikið meiri til þess að hér hefðu hús hrunið og yfirskollið hið hörmulegasta slys sem fyrir þennan bæ getur komið.
Jarðskjálftinn náði austur að Skeiðarársandi, vestur á Snæfellsnes, norður á Borðeyri, að því er Morgunblaðið frétti í gær. Eins og eðlilegt er, verður mönnum tíðrætt um það, hvort, þessi jarðskjálfti, er náði yfir svo stórt svæði muni vera fyrirboði þess, að eldgos sé í vændum. Er eigi ólíklega tilgetið að svo sé. En hvar er eldsumbrota að vænta. Dr. Helgi Pjeturss mun hafa haldið því fram í vetur, að vænta mætti eldsumbrota í Henglinum. Aðrir spá að Hekla muni nú láta á sér bæra. En sé svo, að upptök jarðskjálftanna. séu austur við Heklu, mun munurinn á styrkleika. þeirra þar eystra og hér í gær tiltölulega lítill. Eftir jarðskjálftasvæðinu í gær að dæma, ættu upptökin að vera vestar en í Heklu.
Sprungur komu í eystri hafnargarðinn, Batterísgarðinn, einar þrjár, og garðhausinn við hafnarmynnið raskaðist eitthvað, óvíst hve mikið. Sprunga kom einnig í hafnarbakkann, þar sem kolahegrinn er.
Annar kippur, miklu vægari, kom klukkan rúmlega sjö og hinn þriðji, þeirra vægastur, klukkan átta.
Morgunblaðið segir frekari jarðskjálftafréttir 25.júlí:
Jarðskjálftinn fannst greinilega á Vestfjörðuna, var kippurinn t.d. allsnarpur á Ísafirði, svo snarpur að bollar brotnuðu t.d., eða annað brothætt i einstaka húsi. Er mjög óvanalegt, að svo snarpur jarðskjálfti komi þar vestra. Kippurinn sem mestur var hér fannst og greinilega á Siglufirði. Hann hefir því náð um meira en hálft landið. Í gær urðu menn varir við nokkrar sprungur í steinhúsum hér í bænum, sem eigi var veitt eftirtekt strax í fyrradag, en komið hafa í jarðskjálftunum.
Morgunblaðið segir af Skeiðará 26.júlí - og síðan heyskaparhorfum:
Undanfarin 5060 ár hefir Skeiðará haft farveg fast. austur við Öræfi, við Skaftafell. Smákvíslar hafa við og við runnið vestur á Skeiðarársand, en aldrei hefir verulegt vatn verið þar, nema þegar hlaup hefir komið í Skeiðará. En nú hefir breyting orðið á þessu. Nú hefir Skeiðará rutt sér farveg fram af miðjum sandinum. Á laugardaginn var braust bún þarna fram með jakaferð og töluverðu vatnsflóði. Voru símamenn að vinnu á sandinum, þegar áin braust fram, 0g tók hún einn símastaur með sér. Á sama tíma og áin braust fram vestur á sandi, varð hún lítil í sínum venjulega farveg. Þessi umbrot í Skeiðará, hafa kunnugir menn eystra sett í samband við hlaup, er mundi vera í aðsigi. Öræfingar sjá venjulega fyrir, þegar Skeiðarárhlaup er í vændum; ráða þeir það af ýmsum breytingum á jöklinum, hann hækkar ört, þegar hlaup er í aðsigi. Skeiðarárhlaup koma venjulega á 511 ára fresti. Síðasta hlaup var í september 1922.
Þjórsárbrú, FB. 24. júlí. Grasvöxtur yfirleitt ágætur þar sem til spyrst, bæði á túnum og útengi. Sérstaklega góður grasvöxtur á áveituengjum, þar sem nægilegt vatn fékkst. Túnasláttur allstaðar vel á veg kominn, sumir um það bil búnir, aðrir vel hálfnaðir. Taðan hirt eftir hendinni hjá flestum.
Holti, FB. 24. júlí. Grasvöxtur í besta lagi hér um slóðir. Gras breiðir sig viðast hvar á túnum og góðengjum. Heyskapur gengur yfirleitt, ágætlega hjá mönnum.
Borgarnesi, FB. 25. júlí. Heyskapur gengur ágætlega héraðinu. Tún sprottin í allra besta lagi. Nýting ágæt. Menn eru ekki almennt búnir með tún ennþá; langt komnir þó niðri í héraðinu, í uppsveitunum um það bil hálfnaðir flestir. Sprettuútlit á engjum var ekki gott, en hefir batnað mikið upp á síðkastið.
Um það bil sem sterkasti jarðskjálftakippurinn reið yfir, sáu menn í Hafnarfirði að reykmökkur gaus upp úr hrauninu skammt frá Helgafelli. Og nokkru seinna uppgötvaðist það, að vatnið í vatnsæðum bæjarins var gruggugt og þóttust menn finna af því brennisteinskeim. Víða hrundu skriður úr fjöllum hér nærlendis, og grjót úr björgum. Sundlaugin hjá Reykjavík sprakk og hripaði allt vatnið úr henni, svo engin sundkennsla getur farið fram fyrst um sinn. En nú er þó þegar byrjað á því, að gera við skemmdirnar. Myndastytta af Jóni Sigurðssyni, sem geymd er í herbergi hans uppi á lofti í Alþingishúsinu, datt í jarðskjálftanum og brotnaði. Snarpari kippur hefir áreiðanlega ekki komið Borgarnesi seinustu 20 árin, segir í símfregn frá Borgarnesi.
Þessi drungalega mynd birtist í Morgunblaðinu, hafís í þoku á Húnaflóa á einu hlýjasta ári allra tíma - segir okkur að þótt getið sé um hafís í fregn eða annál þarf það ekki að tákna að um kalt ár eða kuldatíð hafi verið að ræða.
Skip rakst á ísjaka á Húnaflóa og laskaðist. Morgunblaðið segir frá 27.júlí:
Ísafirði FB 26. júlí. Nóva rakst á hafísjaka í gærkvöldi á Húnaflóa og laskaðist svo mjög, að sjór féll inn í fremra lestarrúm. Bátar voru þegar settir lausir og allt var haft til reiðu, að yfirgefa mætti skipið, því talið var víst, að það mundi sökkva, ef lestarskilrúm biluðu. Nóva kom hingað í nótt og hafa vörur verið losaðar úr henni. Skipið verður lagt upp í fjöru í nótt. [Nánari frásögn farþega má finna í Mbl. 18.ágúst].
Jarðskjálftar í Grindavík. Í fyrrinótt [26.] urðu afar mikil brögð að jarðskjálftum í Grindavík, eftir því, sem Morgunblaðinu var símað í gær. Taldir voru um tuttugu kippir og sumir mjög snarpir, svo að fólk gat tæpast sofið í húsum, eftir því sem tíðindamaður blaðsins skýrði frá. Fæstir af þessum kippum munu hafa fundist hér.
Þetta sumar birtu blöðin oft fréttir af ferðum flugvéla á landinu. Tímamót urðu. Hér kemur fram að Flugfélagið réði sérstakan veðurfræðing til að gera flugveðurspár - í samvinnu við Veðurstofuna. Morgunblaðið 28.júlí:
Dr. Soltau, er undanfarið hefir haft á hendi veðurathuganir fyrir Flugfélag Íslands á Veðurstofunni hér, er á förum héðan. Morgunblaðið náði tali af honum í gær og spurði hann m.a. um veðurathuganir í sambandi við innanlandsflugið. Veðurathuganir þessar eru afarerfiðar að svo komnu. Veðri hér er þannig háttað, að flugferðir geta aðeins orðið að sumrinu. Á veturna hamla stormar fluginu. Að sumrinu má búast við hafís, svo sem nú er, þótt undantekning sé. Hafísinn flytur með sér þokur, sem gera flugið erfitt, ef ekki ómögulegt, vegna þess að aðeins önnur leiðin um landið er fær, sú nyrðri. Tvö þokusvæði eru hættulegust fyrir vestanverðu Norðurlandi og sunnanverðu Austurlandi. Veðráttan norðanlands og sunnan er ákaflega misjöfn. Það er staðreynd, að varla kemur fyrir, að líkt sé veður sunnanlands og norðan. Veðurfregnir þurfa því að verða miklu fullkomnari. Fjórar aðalstöðvar eru hér á landi, sem hafa loftskeytasamband við aðalstöðina Vestmannaeyjar, Ísafjörður, Akureyri og Seyðisfjörður. Þaðan koma veðurfregnir þrisvar á dag. Þessar stöðvar eru auðvitað bestar. Sex stöðvar eru útbúnar með áhöldum til rannsókna, en standa ekki í loftskeytasambandi við stöðina hér. Nokkrar stöðvar eru og hér fleiri, en ófullkomnari. Loks eru sex stöðvar, sem bætt hefir verið við vegna flugferða. Þær eru ekki útbúnar áhöldum, en gefa skýrslu um vindátt, vindstyrk, veðurfar, skýjafar, skýjahæð, útsýni og sjógang. Þær eru að mínu áliti þýðingarmiklar, en geta orðið enn betri, ef þær fá tæki til athugana og skeytasendinga. Allt þarf að verða miklu fullkomnara, ef áreiðanlegt á að verða fyrir flugferðir, enda eru innlendar athuganir hér á byrjunarstigi. Hvað álitið þér um lendingarstað á Íslandi á leið milli Evrópu og Ameríku? Á þeirri leið er ísland ákjósanlegasti og eini lendingarstaðurinn. Grænland getur alls ekki komið til mála, sökum þess, að veðurfar þar er svo óstillt og þokur tíðar. En til þess þurfa veðurfregnir og veðurathuganir hér að verða fullkomnari. Á Grænlandi þarf ekki að bæta mikið veðurstöðvarnar til þess að nægilegar séu, en á Labrador og þar fyrir norðan þyrfti ábyggilegar veðurstöðvar. Og samvinna milli veðurstöðvanna í Evrópu og Ameríku? Samvinnan er nauðsynleg og sjálfsögð. Að vísu verður hún erfið til að byrja með, sökum tímaskekkju, því að hún er 7 tímar milli Hamborgar og New York. En eins og ég sagði áður, þá er Ísland þýðingarmest. Á hafinu verður að sjálfsögðu að notast við veðurfregnir farþegaskipa, enda eru skeytasendingar slíkra skipa stöðugt að fara í vöxt. Þannig eru næstum öll þýsk farþegaskip útbúin með veðurathuganatækjum. Á Labrador og í Newfoundland eru góðar athuganastöðvar. Hvað segið þér um hugmynd v. Gronau, um reglubundnar flugferðir milli Evrópu og Ameríku. Hugmynd v. Gronau er auðvitað ágæt og byggð á langri þekking hans á langflugi, sem flugstjóra flugskólans þýska. - Hvað ætlist þér nú fyrir? Hinn 7. ágúst fer ég héðan, og verð til 1. apríl 1930, kennari við Deutsche Verkehrsfliegerschule, sem v. Gronau stjórnar. Síðan tek ég aftur stöðu mína við Deutsche Seewarte. Hver verður í yðar stað hérna? Á næstunni kemur hingað þýskur veðurfræðingur dr. Kantzenbach, sem mun taka við starfi mínu hér. Hann er starfsmaður flugveðurstofnunar i Deutsche Seewarte og mjög fær maður í sinni grein.
Eitthvað gagn varð af hafísnum. Morgunblaðið 31.júlí - einnig segir af skriðufalli:
Hafísinn og íshúsin. Frá Skagaströnd frétti Morgunblaðið í gær, að menn hefðu farið þaðan allmargar ferðir út að hafísnum í Húnaflóa og tekið þar ís til að nota við frystingu síldar. Sjaldgæft að hafís komi að beinum notum. Veður var gott þar nyrðra, þó hafís væri svo nálægt að til hans sæist frá Skagaströnd.
Skriða hljóp úr Ingólfsfjalli í jarðskjálftanum á þriðjudaginn var. Hrundi hún niður undir beitarhúsin frá Leikskálum, sem eru skammt fyrir ofan þjóðveginn. Tveir stórir steinar liggja niðri við veginn, en aðrir við vegg húsanna. Húsin sakaði ekki, enda segir sagan að Guðmundur góði hafi vígt þau í fyrndinni.
Úr Fljótshlíð. Síðan snemma í vor hefir mjög lítið vatn verið í Þverá. Hefir hún verið svo grunn, að bílar hafa að jafnaði komist hindrunarlaust yfir hana. Hefir þetta sumpart komið til af því, að lítill vöxtur hefir yfirleitt verið í ám, en meira af hinu, að Þveráin hefir lagst frá Hlíðinni, og tiltölulega verið meira vatn í Markárfljóti en venja hefir verið til undanfarin ár. En eftir síðustu fregnum að dæma, er allt að fara í hið fyrra horf, Þveráin að vaxa aftur.
Veðurathugunarmenn segja af tíð í ágúst:
Ágúst: Flatey (Stefán Egilsson). Það má með nýjungum teljast að engin kofna eða lundatekja verður á Breiðarfjarðareyjum í ár. Þegar farið var að aðgæta á venjulegum tíma er allur lundi farinn og kofan dauð í holunum. Orsök vita menn ekki. Sennilegast þykir að smokkfiskur sem kom óvenjusnemma hafi fælt burt sílið og linninn svo orðið að flýja af bjargarskorti.
Lambavatn: Það hefir verið sama blíðviðrið og hagstætt bæði á landi og sjó. Nú síðustu vikuna hefir verið stilla á sjó og landi svo ekki sést ský né fundist undiralda. En aðeins vottur af hélu svo frosið aðeins á mosa í mýrunum. Þ.15. Farnir skaflarnir í Stálfjallinu. Hafa þeir aldrei horfið til fulls í manna minni.
Grænhóll: Hafís úti fyrir meiri part mánaðarins. Snjór nýr á fjöllum alltaf eftir 23. ágúst og þá hvítt í sjó í fyrsta sinni.
Kollsá (Sigurjón Jónsson). Þ.15. Rak hafísjaka inn í Hrútafjörð.
Fagridalur: Góð og hagstæð tíð til 23. og 24., þá stórrigning og úr því óþurrkar út mánuðinn.
Vík í Mýrdal (Haraldur Jónsson): Tíð yfirleitt fremur góð. Nokkur óþurrkakafli um miðjan mánuðinn, en stórrigningar engar.
Morgunblaðið segir af næturfrosti 8.ágúst:
Túnasláttur er almennt að verða búinn i Borgarfirði og bændur komnir á engjar. Taðan er með langmesta móti og nýting ágæt. Frost hefir verið í Borgarfirði undanfarnar nætur; var hylmað yfir polla í Reykholtsdalnum aðfaranótt þriðjudags og miðvikudags.
Kartöfluuppskera byrjuð. Morgunblaðið skýrði frá því í vor, að kartöflum hefði verið sáð í garð hér í Reykjavík hinn 12. mars. Mun aldrei hafa verið sáð jafnsnemma á Íslandi. Og nú er uppskeran komin. Hinn 3. þ. mán. var byrjað að taka upp úr garðinum og varð uppskeran góð. Ein kartafla er til sýnis í glugga Morgunblaðsins í dag.
Þann 1.ágúst sló eldingu niður í gaddavírsgirðingu. Tíminn segir frá því 10.ágúst:
Úr Skaftártungum. Fyrir rúmri viku síðan laust niður eldingu í gaddavírsgirðingu hjá Syðri-Steinsmýri í Meðallandi. Girðingin eyðilagðist á 30 faðma svæði, vírþræðirnir suðust meira og minna saman og kubbuðust sundur að nokkru leyti í örsmáa búta, en staurarnir tvístruðust. Tveim dögum seinna kom önnur elding, sem laust niður svo nærri bænum á Steinsmýri að hann hristist mjög mikið. Grasspretta er með besta móti hér sunnanlands og nýting heyja ágæt.
Morgunblaðið 13.ágúst:
Veiðibjallan [ein af þremur vélum Flugfélags Íslands] kom hingað á laugardagskvöld frá Akureyri. Ætlaði hún að fljúga til Ísafjarðar, en varð að snúa aftur á Húnaflóa vegna hafísþoku, sem lá þvert yfir fjörðinn eins og veggur. Sneri Veiðibjallan því af leið, fór til Stykkishólms og þaðan til Reykjavíkur. Sænskt flutningaskip sneri aftur á Húnaflóa aðfaranótt föstudags og Ísland sneri aftur í Siglufjarðarmynni á laugardagskvöld, vegna ótta við hafís og þoku. Var þó förinni heitið til Ísafjarðar, en nú sneri skipið við austur um land til Reykjavíkur. Farþegarnir, sem ætluðu til Ísafjarðar, 1020 talsins, voru settir í land á Siglufirði og ætluðu að fá Þór til að koma sér vestur. Djúpbáturinn á ísafirði var fenginn til þess að flytja hingað farþega, flutning og póst, sem þaðan átti að fara með Íslandi til Reykjavíkur. Þegar Nóva lenti í hafísnum um daginn og braut sig, náði hún fyrst sambandi við Veiðibjölluna. Var þá um talað að Veiðibjallan reyndi að bjarga farþegum og skipverjum. Mundi hún hafa getað komið 4 mönnum í land í hverri ferð, en á því þurfti ekki að halda, eins og kunnugt er, því að Nóva flaut og komst klaklaust leiðar sinnar. Þó fylgdi Veiðibjallan henni til vonar og vara alla leið að Straumnesi. Sést á þessu að flugvélar, sem hafa loftskeyti, geta, er svo ber undir, bjargað mörgum mannslífum.
Flugfélag Íslands tilkynnir í gærkvöldi: Á flugi Veiðibjöllunnar" til Siglufjarðar sást ís út af Furufirði ca. 2530 km. undan landi, og náði alla leið suður fyrir Gjögur, var þar næst landi ca. 15 km. Suðurendi spangarinnar nær yfir fyrir Reykjarfjörð, sem er ekki nema ca. 15 km. á breidd, til austurs, og beygir svo til norðausturs og sást ekki út yfir spöngina til norðurs. Ísinn yfirleitt sundurlaus. Siglingaleið vestur fyrir land verður að teljast hættulaus innanvert við ísspöngina.
Daginn eftir voru enn fréttir af hafís og tjóni sem hann olli. Morgunblaðið 14.ágúst - einnig fréttir af Skeiðará:
Seint í gærdag kom vélbáturinn Hakion til Siglufjarðar. Hafði hann lent í hafís á Húnaflóa, misst mestöll veiðarfæri sín og laskast svo mikið, að skipverjar komust með naumindum til Siglufjarðar, með því að dæla í sífellu. Skömmu eftir að báturinn kom þangað, sökk hann þar á höfninni.
PB. 13. ágúst. Landssímastjóri fékk þær fregnir í gær, að Skeiðará hefði tekið að vaxa í fyrradag í sínum gamla farveg, en ekki væri hægt að segja með vissu, hvort hún væri að flytjast eða vöxtur hennar væri undirbúningur undir hlaup. Frá Núpsstað fékk landssímastjóri þær fregnir, að jökullinn væri að verða æ ljótari og menn séu smeykir um að hlaup sé í vændum, þótt ekki verði með vissu um það sagt. Þora menn ekki að hætta sér út á sandinn.
Morgunblaðið segir frá 15.ágúst:
Laxveiði í Borgarfirði er fremur lítil í ár. Í Hvítá er veiðin talin tæplega í meðallagi, og í smáánum sem stangveiði er stunduð við, er veiði í minnsta lagi.
Hafísinn. Óðinn kom í fyrrinótt til Ísafjarðar; hafði flutt farþega þá frá Siglufirði, er ætluðu með Íslandi síðast. Ísinn á Húnaflóa nær langt suður fyrir Reykjarfjörð; en þó er allbreið (1012 sjómílna) rifa á ísnum norðaustur af Horni og fór Óðinn þar í gegn. Er þar örugg sigling í björtu, en ef þoka er eða dimmviðri, er ógerningur fyrir skip að fara þessa leið.
Þann 16. ágúst varð mikið hlaup í Tungufljóti. Ítarlegar frásagnir af uppruna þess og aðstæðum birtust í blöðum. Það sem hér fer á eftir er nokkuð stytt - en heildartextarnir eru á timarit.is. Guðmundur Kjartanson fjallar um hlaupið í Náttúrufræðingnum 1938 og Sigurður Þórarinsson gerir athugasemdir 1939. Mestar upplýsingar er þó að finna í grein Guttorms Sigbjarnarsonar í Jökli 1969 (að mestu á ensku).
Morgunblaðið segir fyrst frá 18.ágúst:
Á föstudaginn var [16.ágúst] urðu menn þess varir í Biskupstungum, að Tungufljót óx skyndilega. Varð fljótið svo mikið, er á daginn leið, að gömlu brúna á veginum til Gullfoss tók alveg af, og er annar stöpullinn að mestu hruninn, að því er síðast fréttist. Á engjum meðfram ánni var talsvert af heyjum úti, svo skipt hefir mörg hundruð hestum, ef ekki þúsundum, svo sem á Almenningi, engjum Fellskots, Torfastaða og Bræðratunguhverfis. Tók flæðið allt heyið í gær, jafnt flatt sem sæti. Talið var, að á Torfastöðum hafi farið í flóðið um 100 hestar af heyi, á Króki um 200 hestar og mikið á Lambhúsakoti og Ásakoti, en nákvæmar fregnir eru ókomnar. Tveir menn úr Haukadalshverfinu fóru upp að Hagavatni á föstudag, til þess að athuga þar vegsummerki. Sáu þeir, að jökulstífla sú, sem teppt hefir rennslið úr Hagavatni, er sprungin, og beljar nú vatnið þar fram. Stífla þessi mun hafa haldið Hagavatni uppi undanfarin 20 ár, og hefir það verið mun stærra og dýpra en það áður var. Fyrir mörgum árum hafði svipað hlaup og þetta komið í Tungufljót, og olli þá feikna tjóni. Um miðjan dag í gær óx Hvítá mjög móts við Skálholt; sást þaðan feiknin öll af heyi, er flaut niður eftir ánni. Brúin sem fór í flóðinu var byggð fyrir konungskomuna 1907. Ekki varð vart við vöxt í Ölfusá fyrri en á laugardagsmorgun, og var hann ekki svo mikill að hann kæmi að sök.
Morgunblaðið heldur áfram að segja frá hlaupinu 20.ágúst:
Í gær náði Morgunblaðið samtali við Torfastaði, til þess að fá nánari upplýsingar um flóðið í Tungufljóti. Er flóðið nú mikið farið að fjara. Jafnóðum og fjarar sjást nýjar eyðileggingar, því mikið af engi í Bræðratunguhverfi verður ósláandi í sumar, vegna leðju, sem borist hefir fram í flóðinu. Verst er umhorfs á Pollengi, Fellskots- og Torfastaðaengjum. Er óhugsandi að þessar engjar verði sláandi í sumar. Vöxtur varð mikill í Hvítá og Ölfusá þegar flóðið hljóp fram. Hjá Kiðjabergi tók það með sér þrjá laxakláfa og 2 net. Móts við Arnarbæli hafði yfirborð Ölfusár vaxið um eina alin, en fjaraði fljótt aftur. Um tjón í Flóa eða Ölfusi hefir ekki heyrst.
Morgunblaðið segir af Skeiðarárjökli 21.ágúst:
Skeiðarárjökull hefir hækkað nú undanfarið, og telja kunnugir það fyrirboða þess að hlaup sé í vændum. Símalínan verður ekki tengd saman að svo stöddu, meðal annars vegna þess, að talið er óráðlegt að hafast við að staðaldri á sandinum.
Í Morgunblaðinu 22.ágúst er alllangur pistill um Tungufljótshlaupið - við sleppum honum hér þar sem það sem þar kemur fram er síðan endurtekið - ítarlegar í síðari pistli Morgunblaðsins 28.ágúst:
Eftri hluti myndarinnar er skýringarmynd sem birtist í Morgunblaðinu 22.ágúst, en neðar er kort landmælinga af svæðinu (gert 1937-38). Síðar hafa miklar breytingar orðir þarna og jökullinn rýrnað stórlega.
[28,] Stórkostleg umbrot. Gjá myndast í Fagradalsfjall. Niður hana fellur 100 metra hár foss. Hagavatn lækkar um 9 metra. Vatnsflaumurinn myndar 6 metra djúpan farveg í grágrýtisklappir og þeytir björgum sem eru 810 tonn. Hér birtist skýrsla þeirra félaga, er Morgunblaðið fékk til þess að rannsaka vegsummerki við Hagavatn. Hefir Björn Ólafsson ritað eftirfarandi greinargerð um það, sem fyrir augu þeirra bar þar efra, en Tryggvi Magnússon tók myndirnar. Um Tungufljót og tjónið af hlaupinu og eldri hlaup ritar Þorsteinn Þórarinsson. Þessir þrír menn fóru sem kunnugt er í rannsóknarferðina.
Til þess að hægt sé betur að átta sig á þeirri frásögn, sem fer hér á eftir, ætla ég að lýsa stuttlega legu Hagavatns og umhverfi. Vatnið liggur upp að Fagradalsfjalli að austan og Langjökli að norðan. Að vestan og sunnan liggur að því Lambahraun. Austan við Fagradalsfjall er Fagridalur. Nær hann inn að Langjökli. Innst í dalnum upp við jökulinn rennur Farið niður breiðar eyrar og í Sandvatn, sem er nokkuð fyrir austan. Farið kemur úr Hagavatni. Rennur það niður fjallshrygg sem liggur fast upp að jöklinum. Fjallshryggur þessi er rúmlega 100 metra hár. Sést á því að Hagavatn er hundrað metrum hærra en botn Fagradals. Jarðrask það, sem orðið hefir við hlaupið, er mjög einkennilegt, og stórbrotið. Áður en hlaupið kom, var afrennsli Hagavatns lítið sem ekkert. Afrennsli þetta er kallað Farið, eins og áður er getið. Dregur það nafn af breiðum árfarvegi, sem venjulega var lítið vatn í nema í leysingum. Fyrir hlaupið rann það úr vatninu undir skriðjökulsröndinni og niður af fjallsbrúninni gegnum þröngt klif eða sprungu í fjallinu og var þar lítið gil. Fyrir neðan, fremst í gilinu, voru sléttar klappir sem vatnið rann eftir, á svo sem tuttugu metra breiðu og fimmtíu metra löngu svæði. Var vatnið jafnan svo lítið, að stikla mátti yfir klappirnar þurrum fótum. Eftir því hefir verið tekið, að Hagavatn hefir hækkað með ári hverju undanfarið, svo að sjá mátti greinilegan mun. Hafði jökullinn skriðið fyrir útrennsli vatnsins og var jökulrönd sú um 300 metra löng og 15-20 metra þykk sem lá fyrir vatninu, svo að ekkert komst út nema það sem seitlaði undir ísinn. Ekki er kunnugt að vatnið hafi annarsstaðar útrás. Er því skiljanlegt að vatnið hafi aukist mjög á hverju ári, þar sem jökull liggur nærri fram með endilöngu vatninu. Vatnið hefir ekki verið mælt, en áætlað er að það sé um fjórar rastir á breidd og fimm til sex á lengd. Af því, sem að framan er greint, get.a menn nokkuð markað hvernig umhorfs var fyrir hlaupið. Af vegsummerkjum þeim, sem sjá má, er ekki erfitt að hugsa sér hvernig umbrotin hafa farið fram.
Maður verður forviða og orðlaus yfir þeim heljarkröftum, sem hér hafa verið að verki. Um miðnætti á föstudag 16.þ. m., heyrðu menn á bæjum við Geysi undirgang ógurlegan inn í óbyggðinni. Ætluðu menn að þrumuveður hefðu skollið á yfir jöklunum. Heyrðist þetta langan tíma. Þegar klukkan var fimm um morguninn sáu menn Tungufljót ryðjast fram með gífurlegu vatnsmagni svo flaut yfir alla bakka og tók það með sér brúna, sem á því var skammt frá Geysi. Af brúnni sést nú ekkert eftir nema annar steinstöpullinn hálfur. Jökullinn var búinn að loka Hagavatn inni og hélt í skefjum vatnsþunga miklum. Að lokum hefir jökulbergið sprungið eins og gler fyrir hinum ógurlega vatnsþunga sem leitaði útgöngu. Um leið og vatnið leysist úr viðjum jökulsins geysast það fram í tryllingi í tvö hundruð metra breiðum straum og steypist fram yfir fjallsöxlina, niður í bergskorninginn og ofan í dalinn. Með hamslausu afli tekur það í ferð sinni ísbjörg, móberg og mela. En bergskorninginn í fjallinu rífur straumurinn sundur sem rifinn raft, kastar björgunum úr fjallinu og molar þau eins og brunnið kol á klöppunum fyrir neðan. Hinn ógurlegi vatnskraftur með ísbjörg og grjótbjörg þúsundir smálesta í fari sínu rífur upp klappirnar fyrir neðan, sker sundur bergið og myndar sér þar farveg. Björgin sem straumurinn hefir rifið upp úr klöppunum liggja eins og hráviði út um allar eyrar. Nú er eðlileg útrás frá Hagavatni og áin rennur fram róleg og lygn i þeim farvegi sem jötunumbrot vatnsins hafa myndað. Áin er lík að vatnsmagni og Elliðaárnar. Í gljúfri því, sem vatnið hefir rifið sundur gegnum fjallið, hefir myndast mikill og einkennilegur foss, um hundrað metra hár. Fellur hann fyrst niður 25 metra í víðri hvelfing ofan á bergpall mikinn og þaðan í 75 metra háum breiðum streng niður í botn gljúfursins. Fossinn er nærri inniluktur í gljúfrinu og sést ekki þegar að er komið sunnanmegin árinnar. En norðanmegin sést hann vel. Hann er mikilúðlegur, og tignarlegur. Vatnsúðinn þyrlast um alt gilið og þegar sólin skín á fossinn lýsist alt gljúfrið af rauðgylltum úðasveipum, en margir regnbogar stórir og hreinir speglast í úðanum. Við gáfum fossinum nafn og kölluðum Leynifoss. Eins og áður er skýrt frá, hefir vatnshlaupið rutt sér farveg gegnum klappirnar, fyrir neðan fossinn. Farvegur sá er 50 metra langur, 15 metra breiður og 7 metra djúpur. Er eins og klappirnar hafi verið skornar eftir línu, svo beint, og hreinlega er bergið molað sundur eftir hlaupið. Björg þau sem liggja nú fyrir framan á eyrunum og í farveginum, bera merki eins og þau hafi verið rifin sundur. Uppi á fjallinu þar sem vatnið hefir nú útrás sína, hefir jökullinn sprungið sundur og liggja eftir í farveginum nokkur stór jökulbjörg, sem vatnsstraumurinn hefir ekki getað tekið með sér, eða hafa brotnað úr jöklinum eftir að mesta flóðið var um garð gengið.
Þegar komið er upp á fjallið skín jökullinn við og lítur út eins og ógurlega mikill veggur af gömlum hvítasykri. Sést óviða jafnhvítur, ósprunginn og sléttur skriðjökull og við Hagavatn. Þessi mikli jökulveggur lítur út eins og sneitt hafi verið framan af honum með hníf. Hagavatn hefir lækkað um níu til tíu metra eftir að hlaupið hófst. Mun ekki ofreiknað að áætla - vatnsmegnið, sem farið hefir í hlaupinu, um tvö hundrað miljónir smálesta. Er ekki að undra þótt eitthvað hafi orðið undan að láta, þegar slíkt heljarvatnsmegn brýst fram og niður af 100 metra hæð. Stórt landflæmi, sem legið hefir undir jökulvatninu í tugi ára, hefir nú þornað og gengur eins og nes út í vatnið. Suður- og vesturströnd vatnsins, sem veit að hrauninu hefir þornað upp, svo að eru 4060 metrar frá gömlu vatnslínunni og þangað sem vatnið er nú. Stórir ísjakar, sem áður hafa verið á floti í vatninu standa nú á þurru og gráta síg til þurrðar í sólskininu. Afrennslið frá vatninu og þar til það steypist ofan í gljúfrið af fjallsöxlinni, er um 400500 m langt og 50 metra breitt. Yfir mest af þessum farvegi lá jökullinn fyrir hlaupið.
Fyrir 27 árum kom hlaup úr Hagavatni. Þeir sem eftir því hlaupi muna, segja að það hafi ekki verið nærri eins mikið og þetta síðasta. Vafalaust verða mörg ár þangað til jökullinn getur aftur farið að hefta útrás vatnsins. Leynifoss getur því enn í mörg ár látið gljúfrin titra á kringum sig og sveipað um sig regnbogunum. En að því kemur að jökullinn verður vatninu ofjarl og lokar það aftur inni. Og sagan endurtekur sig. Björn Ólafsson.
Um Tungufljót. Tungufljót hét áður Kaldakvísl og verður ekkert um sagt með vissu, hvenær þessi nafnbreyting varð. Upphaf fljótsins er í austanverðri Haukadalsheiði; uppsprettulindir þar í heiðarhjallanum, Fljótsbotnum. En skammt frá, er þessar lindir eru komnar í einn farveg, rennur Ásbrandsá í Tungufljót. Hún kemur úr Sandvatni, sem liggur á söndunum norður af Haukadalsheiði, en í Sandvatn rennur Farið úr Hagavatni, eins og frá verður sagt. Eftir að Ásbrandsá er komin í Tungufljót, renna í það nokkrar smærri ár úr Haukadal norðanverðum, og þegar það er komið niður í Tungurnar er það vatnsmikið. Hefir það löngum verið slæmur farartálmi, þar sent það klýfur sundur stóra sveit, sem að öðru leyti, er líka innilokuð milli stórvatna. Vöðin á Tungufljóti hafa alla tíma verið breytileg, og raunar aðeins eitt vað, sem alltaf hefir haldist. Það var þó nokkur samgöngubót, þegar brúin var byggð yfir Tungufljót 1907, en til hagkvæmari og almennari nota verður þó brúin, sem væntanlega verður sett yfir það í haust. Meðfram Tungufljóti, neðanvert, eru hin miklu engjalönd Bræðratungu, Pollengi, en flæðihætt er þar, því landið liggur nær í jafnhæð við fljótið. Eru og beggja vegna víð það slægjulönd nokkurra jarða þar, sem mestar skemmdir urðu á í þessu flóði.
Skemmdir eftir flóðið. Þá er flóðið féll niður á sandana austur af Fagradalsfjalli og Einifelli, hækkaði svo í Sandvatni, að nokkur kvísl fljótsins rann austur sandana þaðan og í Sandá, en með henni í Hvítá. Var foráttuvöxtur í Hvítá fyrir það. En meginhluti fljótsins fór eftir Farinu í Ásbrandsá og svo í Tungufljót. Varð það fljótt geysimikið, svo að um kl. 8 á föstudagsmorguninn tók brúna af, og var brúin þó um 3.50 m. yfir venjulegu vatnsborði. En um nóttina áður hefir jökulhaftið sprungið og flóðið runnið fram, því þá heyrðust dynkir í þeirri átt á efstu bæjum í Biskupstungum.
Tungufljót er nokkuð lægra en landið i sveitinni ofanverðri, þar flóði það því ekki víða upp, og ekki til skaða, nema á Almenning fyrir neðan Haukadal. Þar rann það inn í fjárhús og heyhlöðu, og skemmdist heyið. En þegar kom neðar flæddi það yfir allt láglendi, Pollengi hjá Bræðratungu og þau engjalönd öll, er þar eru samhliða. Varð geysimikið tjón af þessu. Tók í burtu allt hey er þar lá, en það var mikið, mest um 200 hesta frá bæ, en 11 bændur misstu þar hey sín. Þó var það tjón meir, að engjalandið gjörspilltist allt, svo ekki verður nytjað í sumar, og ekki um næstu ár. Sumt af því vegna sands og moldar, sem barst með fljótinu. Liggur 40 cm þykkt lag af þeim aur yfir stórum svæðum, en jökulleðja þar sem minna er. Svo má áætla, eftir því, sem næst verður komist, að vatnsmagn fljótsins hafi tólffaldast í flóðinu þegar það var mest.
Fyrri flóð í Tungufljóti. Þó að þetta flóð sé miklu meira en sagnir eru um áður, þá hafa mikil vatnsflóð komið í Tungufljót fyrr. Í jarðabók Árna Magnússonar er getið um spjöll á engjum í Biskupstungum fyrir jökulflóð í fljótinu. (Sjá um Vatnsleysu). Og í minni eldri manna núlifandi hafa tvisvar komið flóð í Tungufljót fyrr. Hið fyrra var um 1884, og gerði þá nokkurn skaða, en síðar varð meira flóð 1902. En hvorttveggja var þá, að það flóð var að miklum mun minna en nú, og hitt, að þá var meir liðið á sumar, öndverður september, enda varð missir heyja og engjalanda miklu minni þá en nú. Að sjálfsögðu hafa öll þessi flóð komið fyrir þá sök, sem nú, að jökullinn hefir sigið fyrir farveginn við fjallið, en vatnið svo sprengt jökulhaftið sundur. Það má telja víst að svo verði enn, þó ekki verði um sagt, hve langan tíma það tekur. En eftir flóðið 1902 var jökullinn 10 ár að fylla farveginn og stífla frárennsli vatnsins, en 17 ár hefir vatnið haldist inni og hækkað, þar til nú, að þessi jökulstífla sprakk. Má því vel vera, að nú líði 30 ár til næsta flóðs, þó ekki verði vitanlega sagt um slíkt með neinni vissu. En því lengur, sem líður milli flóða, þess stærri verða þau. Þorsteinn Þórarinsson.
Morgunblaðið segir af borgarís 30.ágúst - á heldur óvenjulegum stað ef rétt er frá skýrt.
Borgarísjaki stór kvað vera um 3 sjóm. VNV af Lóndröngum. (Fregn frá togaranum ,,Otur)
Seint í ágúst urðu miklir vatnavextir norðanlands. Var úrkoma langmest 23. og 24. Mældist t.d. 73 mm á Hraunum í Fljótum að morgni 24. Morgunblaðið segir frá 31.ágúst:
Akureyri, FB. 31. ágúst. Vatnavextir og stórrigningar hafa valdið skaða á fjórum bæjum í Svarfaðardal fyrir síðustu helgi. Tún eyðilagðist í Sauðaneskoti og engjar spilltust mikið í Sauðanesi, vegna skriðuhlaups. Allmargar kindur urðu fyrir skriðunni, sem hljóp í sjó fram. Síðan hefir dauða skrokkana rekið á fjörur. Nýræktarspildur ónýttust á Dæli í framsveitinni, sömuleiðis hafa engjar spillst á Mársstöðum.
Einnig urðu heyskaðar af völdum hvassviðris í sama veðri. Morgunblaðið 1.september:
Heyskaðar. Í norðanveðrinu fyrra laugardag [24.ágúst] fauk mikið af heyi frá ýmsum bæjum undir Eyjafjöllum. Er mælt, að Magnús bóndi á Steinum hafi misst um 200 hesta og Sigurður á Núpi um 70 hesta. Austur í Fljótshverfi hafði og tapast þetta 1520 hestar frá flestum bæjum.
Tíminn segir einnig af rigningunni nyrðra í pistli 7.september:
Stórrigningar og vatnavextir miklir urðu norðanlands i lok síðasta mánaðar. Urðu heyskaðar nokkrir meðal annars í Eyjafirði. Í Svarfaðardal hljóp skriða á túnið á Sauðaneskoti, yfir engi á Sauðanesi og í sjó fram. Spilltust tún og engi mjög. Enn tók skriðan kindur margar í fallinu og hefir síðan dauða skrokkana rekið upp i fjörurnar.
Og enn segir Morgunblaðið frá sömu skriðuföllum í pistli 12.september:
Skriðuhlaup það, er varð í Svarfaðardal fyrir nokkru, olli meira tjóni en jarðspellum einum. Tók skriðan með sér kindur í sjó fram, og hafa fundist ræflar af 5 eða 6, en búast má við, að margar fleiri hafi farist.
Veðráttan bætir því við að í sama veðri hafi einnig orðið tjón af völdum flóða frammi í Eyjafirði, í Eyjafjarðará og sömuleiðis Þverá við Kaupang. Um svipað leyti (dagsetning þó óviss) féllu þrjár stórar skriður úr Fagraskógarfjalli í Kolbeinsstaðahreppi og spilltu túni við Ytri-Skóga.
Þann 3. snjóaði sumstaðar norðanlands, en festi ekki, en í veðrinu þann 23. snjóaði í sjó á Ströndum og víðar á Vestfjörðum snjóaði.
September varð nokkuð umhleypingasamur. Veðurathugunarmenn segja frá:
Lambavatn: Framan af blíðviðri og þurrkar. En svo gerði stórgerðar rigningar og seinni hluta mánaðarins hefur verið mjög óstöðug tíð og fremur köld. Snjóað af og til á fjöll og oft krapi í byggð þó það hafi þiðnað jafnóðum. Þ.17. Versta og mesta stórviðri sem hér kemur.
Hraun í Fljótum: September hefir verið hryðjusamur og óþægilegur að mestu leyti til heyskaparins, enda mikil hey út víða í lok mánaðarins.
Vík í Mýrdal: Að kveldi þess 5. endaði sólskinið og sumarblíðan. Eftir það kom aldrei þurr dagur og gerðist oft stórviðrasamt er á leið. Hvassast var aðfaranótt þess 26. Þá fauk sexæringur hér í Vík og brotnaði. Brimasamt mjög; aldrei fær sjór síðari hluta mánaðarins. Heyfengur með mesta og besta móti.
Stórinúpur: Fjallmenn gamlir telja versta fjallveður sem þeir hafi fengið í 1. safni.
Stöðugur lægðagangur var nærri landinu síðari hluta mánaðarins. Tvær lægðanna voru mjög krappar og djúpar. Ollu ekki verulegu tjóni þó, en komu mjög illa við haustverk öll.
Lægðin krappa þann 17. september. Stormur var á þriðjungi veðurstöðva og veðrabreytingar snarpar. Kortið sýnir hæð 1000 hPa-flatarins, 40 metrar jafngilda 4 hPa og 0-línan er 1000 hPa.
Síðari lægðin var enn dýpri, kom að sunnan og fór hratt norður með Austurlandi þann 23. og langt norður í haf. Morguninn eftir kom önnur lægð að landinu úr vestri. Endurgreiningin nær dýpt lægðarinnar ekki alveg - en slíkt er algengt. Aðalatrið eru þó rétt og greiningin mjög gagnleg.
Morgunblaðið segir 20.september frá illviðri þann 17. Íslendingur segir þann 20. frá því að sjö bryggjur hafi brotnað í Hrísey í þessu veðri:
Akureyri, FB. 19. sept. Vonskugarður þ. 17. þ.m. Vélbáta vantaði úr Hrísey og frá Siglufirði. Enskir botnvörpungar voru fengnir til þess að leita og fundu Hríseyjarbátana, sem ekki hafði hlekkst á. Siglufjarðarbátur, sem menn voru hræddir um, kom í morgun, hafði hrakið austur Skjálfandaflóa. Allir bátar á Siglufirði töpuðu lóðum, mest 40. Afli sæmilegur.
Óveður mikið gerði austur undir Eyjafjöllum og í Mýrdal á þriðjudaginn var [17.]. Óx allmikið í vötnum, og mun hin nýja brú á Bakkakotsá hafa verið hætt komin. Er það álit kunnugra eystra, að brú þessi muni ekki geta staðið þegar mikill vöxtur kemur í ána. Á Hafursá í Mýrdal var gerð bráðabirgðabrú í sumar, en í þessum síðasta vatnavexti braut áin spildu austan við brúna, svo að auka verður við hana, ef fær á að verða.
Morgunblaðið segir enn af illviðrum 25.september:
Versta veður hefir verið undanfarið á Akureyri. Hefir lengst af verið þar steypirigning og snjóaði undanfarnar vikur niður undir bæi.
Morgunblaðið segir af illviðri í pistli 26.september - við styttum frásögnina talsvert. :
Á mánudaginn var [23.] gerði aftakaveður yfir Suður- og Vesturland. Voru gagnamenn þá komnir á fjöll og hrepptu illviðrið og munu víða hafa verið hætt komnir. ... [Unglingspiltur varð úti í göngum á afrétti Eyfellinga norðan Eyjafjallajökuls]. Í Borgarfirði voru gangnamenn á fjalli þennan dag, og var þar sama illviðrið, dimmviðri og hríð. Týndist þá einn fjárleitarmaðurinn, Hjörleifur Vilhjálmsson frá Tungufelli í Lundareykjadal. ... En laust eftir miðjan dag kom Hjörleifur að Botni í Botnsdal. Í Dölum vestra var sama aftakaveður þennan dag, snjókoma mikil, en lítið frost. Þar villtust 8 menn í göngum, tveir á Miðdalaafrétt og 6 á Dönustaðafjalli, en komust allir til byggða um kvöldið. Þeir, sem á Miðdalaafrétt voru, komust i Haukadal, e» hinir hittu göngumenn úr Hrútafirði og gátu þá áttað sig og komust heim.
Í ritinu Fréttabréf úr Borgarfirði (s.102-103) lýsir Kristleifur Þorsteinsson þessu veðri, 23.september, í Fljótstungurétt á ógleymanlegan hátt. Þar segir m.a.: Þegar komið var í réttina og dráttur hófst, var komið aftakaregn, svo að hver smálækjarspræna valt fram kolmórauð og hver hraundæld var barmafull af vatni. Því næst skall yfir norðanveður með hamslausum snjókrapa, svo að á skammri stundu varð jörð alhvít. Hestar hömuðu sig og skulfu á beinunum, en sauðfé, sem var allt í einni snjósteypu, var drifið í réttina, einn innrekstur eftir annan
Morgunblaðið segir 28. og 29. september frá illviðrum á Siglufirði:
[28.] FB. 27. sept. Frá Siglufirði er símað: Í gær og nótt snjóaði. Er nú alhvítt niður að sjó.
[29.] Siglufirði, FB. 28. sept. Hér gerði í dag norðaustan bleytuhríð með roki og stórbrimi. Bátar flestir í fiskiróðri, en eru allir komnir nema tveir. Ægir fór út um miðjan dag, til að vera bátunum til aðstoðar. Annar þeirra, Stígandi, strandaði rálægt Haganesvík. Ægir bjargaði mönnum og er á leið með þá hingað, og hinn bátinn, Sleipni, sem lá á Haganesvík með bilaða vél, og hefði sennilega strandað, ef hjálp hefði ekki komið.
Október var heldur hryssingslegur. Veðurathugunarmenn segja frá:
Lambavatn: Það hefir verið mjög óstöðugt og kalt. Af og til krapi og snjóhræringur. Kýr voru teknar inn fyrstu daga mánaðarins.
Hraun í Fljótum: Afleitlega umhleypingasamt og verstu veður tímunum saman. Talið er að um 2 þúsund hestar heys hafi orðið úti í Holtshreppi og auk þess talsvert í Haganesvík og víðar í Skagafjarðarsýslu. Þ.23. Miklavatn allt lagt.
Nefbjarnarstaðir: Tíðin í þessum mánuði köld en ekki mjög úrkomusöm. Annars heldur óhagstæð.
Vík í Mýrdal: Mánuðurinn byrjaði með slæmu tíðarfari. Austan Mýrdalssands gerði þá svo mikinn snjó í sumum sveitum að fjárrekstrum varð til tafar. Töluvert umhleypingasamt. Kalt nokkuð í ofanverðum mánuðinum. Sjódeyður voru nægar til þess að hægt var að koma burt öllu kjöti er slátrun endaði.
Stórinúpur: Mjög umhleypingasamt. Hey urðu víða úti og sumstaðar var hirt frum um eða yfir veturnætur.
Morgunblaðið segir af skíðafæri í nágrenni Reykjavíkur 5.október:
Snjórinn er kominn, og er nú ágætt skíðafæri í kring um Kolviðarhól. Þetta er mjög óvenjulegt svona snemma hausts. En þeim, sem langar að reyna haustsnjó á skíðum, gefur Skíðafélagið kost á að komast uppeftir á sunnudaginn, ef veðrið og færðin helst. Þeir gefi sig fram við Müller, Austurstræti 17, sem fyrst í dag, laugardag.
Enn voru vandræði á Siglufirði. Morgunblaðið 10.október:
FB. 9. okt. Frá Siglufirði er símað: Ótíð. Norðangarður í gær með stórbrimi. Bátar voru ekki á sjó. Línugufuskipin Fjölnir, Fróði, og Alden voru einnig inni. Brimið braut alla bryggjuna á Bakka. E.s. Baltic, aukaskip Eimskipafélags Íslands, liggur hér, til þess að taka síld. Það rakst á hafnarbryggjuna og braut tvö skrúfublöðin og skemmdi bryggjuna talsvert. Sjópróf verður haldið í dag. Ráðgert er að draga Baltic til Akureyrar og skipa miklum hluta farmsins upp þar og freista að setja nýja skrúfu í skipið. Í nótt hlóð hér niður talsverðum snjó. Nokkrar kindur flæddi í briminu í gær, undir Strákum, rak þær dauðar.
Morgunblaðið birti 13.október fréttabréf að norðan:
Að norðan. Fréttabréf 29. sept. 1929. Tíðarfar. Sumarið má telja gott. Grasspretta var í meðallagi, þegar fram á sumarið kom, en kuldarnir í vor gerðu það að verkum að seint spratt. Heyskapur hefir gengið vel og nýting heyja víðast hvar góð. Að vísu voru þurrkar heldur stopulir seinnihluta sumarsins, en þó ekki svo, að hey hrektust til skaða. Nú munu allir vera búnir að hirða hey og heyfengur í góðu meðallagi. Þar að auki voru fyrningar miklar s.l. vor, svo að bændur eru vel birgir af heyjum, og er slíkt vel farið, því að góð og mikil hey eru hyrningarsteinninn undir velmegun okkar bændanna.
Morgunblaðið segir 16.nóvember frá fjárskaða í Kolbeinsstaðahreppi 21. október:
Fjárskaði varð á Snorrastöðum í Kolbeinsstaðahreppi í Hnappadalssýslu 21. okt. Fórust þaðan í sjóinn af næsta skeri við Kaldárós 41 ær og 15 lömb. ... Veður var gott um kveldið. logn og bjart af tunglsljósi, en nálægt fjöru gerði kolsvart myrkur og foráttuveður af landssuðri, óeðlilega fljótt aðfall og mikinn áhlaðanda. - Fyrir 30 árum fórust 40 ær í sjóinn frá Snorrastöðum á þessu sama skeri og var það á útmánuðum.
Morgunblaðið auglýsir Þingvallatjöld 24.október - fyrir væntanlega Alþingishátíð sumarið eftir:
Í rigningunni miklu á mánudaginn, kom stór vatnspollur á gólfið í einni kennslustofu barnaskólans, lamdi rigninguna inn um gluggann. En Þingvallatjöldin á Austurvelli láku ekki deigum dropa. Þau hafa nú staðið þar í hálfan mánuð og oft verið mikil rigning, en aldrei hefir nein væta komið inn í þau. Eru þau því eins og bestu hús, og kemur það sér vel, ef stórrigning verður á þjóðhátíðinni að sumri.
Morgunblaðið segir 25.október frá símabilunum í illviðri:
Símslit hafa orðið mikil á Norðurlandi undanfarna daga, því að stórhríð hefir verið. Ekkert samband er við Siglufjörð, margar bilanir milli Akureyrar og Seyðisfjarðar; símslit eru einnig milli Ísafjarðar og Borðeyrar. Væri nú með öllu sambandslaust, milli Reykjavíkur og Austurlands, ef Suðurlandslínan væri ekki komin. Eru öll símskeyti send á þeirri línu nú, og þar hafa engar bilanir orðið.
Og Morgunblaðið segir enn 26.október frá illviðri á Siglufirði 24. og 25. - og leitum á Langanesströnd:
Fjárleitir hafa, gengið afarilla á Langanesströnd. Það er haft eftir gangnamönnum, að naumast hafi innheiðar hálfsmalast. Slæmt var veður í báðum eftirleitum, mikill snjór í heiðum og krapahríðarveður, sem tók af alla. útsýn og villti mönnum leið.
Flóð á Siglufirði. FB. 25.október. Frá Siglufirði er símað: Óstillt og illviðrasamt að undanförnu. Í dag er norðan stórhríð, mikil fannkoma, frost og stórbrim með sjávarflóði. Gengur sjór yfir varnargarðinn norðan á eyrinni og hefir flætt yfir allan norðurhluta hennar. Flætt hefir inn í mörg hús og flýði fólk úr nokkrum húsum í nótt. Flóðið er nú komið suður undir aðalgötuna. Ofsarok var í nótt og sleit m.b. Valdimar og -Kristbjörgu frá bryggjum. Skemmdust þeir mikið og einnig bryggja, sem Valdimar lenti á. Stóran pramma, fullhlaðinn 380 tonn síldar, sem Einkasalan á, sleit einnig frá frambryggjunni, og rak inn á leiruna.
Skaðar urðu víðar í sama veðri. Morgunblaðið 27.október:
Þrír bátar sukku í norðanveðrinu á dögunum, tveir trillubátar á Húsavík og einn lítill vélbátur á Dalvík. Í þessu sama veðri slitnaði upp vélbátur við Hrísey og rak hann upp á Litlu-Árskógsströnd, en skemmdist lítið.
Stórhríð var á Akureyri á fimmtudag og föstudag [24. og 25.]. Voru sumstaðar mannháir snjóskaflar á Akureyri.
Morgunblaðið segir af slysi 6.nóvember:
Reynivöllum í gær. Á miðvikudaginn [30.október] var fór aldraður maður, Eyjólfur Eyjólfsson, frá Helgafelli í Mosfellssveit og ætlaði upp í Kjós að sækja þangað hesta fyrir Níels Guðmundsson bónda á Helgafelli. Var hann ríðandi á hesti, sem Níels átti, en hafði í taumi hest, sem hann átti sjálfur og ætlaði að koma í fóður upp í Kjós. Veður var slæmt um daginn, hvassviðri mikið og snjókoma á fjöllum. Þó voru menn ekkert hræddir um Eyjólf, því að hann var leiðinni gagnkunnugur, hafði alið allan aldur sinn i Kjósinni. En þegar hann var ekki kominn á laugardag, fór Níels bóndi að undrast um hann og símaði að Reynivöllum í Kjós, og bað, að grennslast væri eftir, hvað Eyjólfi liði. Var þá sent frá Reynivöllum á næstu bæi, en enginn vissi neitt til ferða hans. Var þá safnað saman mönnum og hafin leit. Fannst Eyjólfur liðið lík í gilinu í Svínaskarði norðanverðu á mánudaginn. Hafði hann sýnilega hrapað til bana. Ætla menn, að hann hafi ekki getað ráðið sér í ofviðrinu, og hafi það hrakið hann út af veginum og þar fram af í gilið.
Nóvember var einnig nokkuð skakviðrasamur:
Lambavatn: Það hefir verið heldur stirt, vindasamt og snjókoma töluverð framan af. Svo víðast er farið að hýsa fé og tekin inn lömb á gjafajörðum. Nú síðustu vikuna hefir verið sífellt rok austan austnorðan en kuldalaust svo allt er autt í byggð.
Hraun í Fljótum: Tíðarfarið hefir verið mjög umhleypingasamt og ónotalegt fyrir skepnur. Óstillt til sjávarins. Um miðjan mánuðinn mátti heita jarðlaust, jafnvel við sjávarsíðuna en rættist vel úr síðari hluta mánaðarins.
Fagridalur: Dágóð tíð fyrri hluta mánaðarins, en úr því mikil ótíð, með hríðarveðrum og stórkostlegum úrfellum svo fátítt hér annað eins, en þó lítill snjór í byggð, en vatnagangur mikill.
Vík í Mýrdal. Snemma í mánuðinum gerði snjó svo hagar spilltust þar sem eigi brá til hláku fyrr en eftir hálfan mánuð. Varð að gefa fé nokkuð þó að veðrátta væri góð.
Morgunblaðið segir 9.nóvember frá færð á Hellisheiði:
Færðin á Hellisheiði má heita góð ennþá. Kom bíll að austan í gærkveldi, og kvað bílstjórinn góða færð mestan hluta leiðarinnar. Engir stórir skaflar eru ennþá komnir á veginn, með þvi að síðan fór að snjóa hefir verið nokkurn veginn lygnt.
Morgunblaðið segir enn fréttir af fugladauða 21.nóvember:
FB. í nóv. Fuglavarp í Látrabjargi var mjög lélegt. Mun það ef til vill stafa af svartfugladauðanum síðastliðinn vetur. Voru mikil brögð að því á Vestfjörðum. Við Patreksfjörð rak t.d. mergð af dauðum fugli seinni hluta vetrar. Til skamms tíma var fuglaveiði mikið stunduð í bjarginu, en nú er sú veiði lögð niður, nema lítils háttar tekið af eggjum.
Morgunblaðið segir 22.nóvember frá tjóni í Vestmannaeyjum:
FB 20.nóv. Aðfaranótt þriðjudags [19.] var austan hvassviðri og sjávargangur mikill. Nokkrar skemmdir urðu á höfninni. Einn vélbátur sleit festar og rak upp. Báturinn mun óskemmdur, en braut nokkuð annan bát á höfninni. Margir smábátar skemmdust meira og minna, eru sumir ónýttust. Flesta þessara báta tók út úr hrófum. Engir sjóróðrar síðustu daga.
Eilíft vesen á Siglufirði. Morgunblaðið 28.nóvember:
FB. 27. nóv. Frá Siglufirði er símað: Austanhláka og stórfeldar rigningar hér að undanförnu. Ofsarok í gær, en hægara í dag. Í gærkvöldi rak upp á leiruna gufuskipið Urd, leiguskip Sambands íslenskra samvinnufélaga frá D/S Nornan, Gautaborg. Skipið var tómt, hafði sett hér á land leifar farms, tunnuefni. Skipið rakst á bryggjur austan fjarðar, áður en það rak upp, og skemmdust þær talsvert. Sjálft er skipið óskemmt. Liggur það líklegast kjölrétt á mararbakkanum á 34 feta dýpi. Skipshöfnin hefst enn við um borð. Litlar líkur eru til að það komist út hjálparlaust. Áslaug, fisktökuskip Kveldúlfs, liggur hér og lá við, að það ræki á land, en skipverjum tókst að færa skipið áður til þess kæmi. Bárujárnsgirðing Shellfélagsins við Hvanneyri laskaðist mikið í óveðrinu.
Morgunblaðið segir 1.desember af skautasvelli á Tjörninni:
Ágætt skautasvell hefir verið undanfarið á Tjörninni, og hafa margir notað sér það, því að veður hefir verið hið besta.
Veðráttan segir frá heysköðum í vatnagangi norðaustanlands, dagsetningar óvissar. Þ.22. braut stórsjór bát á Höfn í Bakkafirði. Þann 26. brotnaði bátur á Breiðafirði, einn maður drukknaði en tveir komust í land.
Þann 1. kom sérlega djúp lægð að landinu. Að morgni 2. fór sjávarmálsþrýstingur í Vestmannaeyjum niður fyrir 920 hPa og er enn sá lægsti sem mælst hefur hér á landi. Mikið austanveður var á undan lægðinni. Þess gætti mest um vesturhelming landsins, en einnig varð hvasst í öðrum landshlutum. Lesa má um þrýstimetið í pistli á vef Veðurstofunnar - þar eru einnig nokkur veðurkort. Nýrri endurgreiningar ná ekki heldur fullum styrk lægðarinnar.
Veðurathugunarmenn segja frá desembertíðinni - og geta sumir illviðrisins þann 2.
Lambavatn: Annan mánaðarins var hér aftakaveður svo menn þykjast ekki hafa vitað sterkari veður af þeirri átt [norðaustan]. Skemmdir urðu ekki sem teljandi eru, en reif torf af húsum og skemmdi báta. En ekki neitt stórkostlega. Annars hefir verið óslitinn blástur af austri og norðaustri allan mánuðinn en kulda- og úrkomulítið oftast. 19. og 20. gerði hálfgerðan blota svo slæmt var á jörð nokkra daga.
Grænhóll: Aftakaveðrið 1. og 2. desember. Í Naustavík brotnuðu mær til ónýtis tveir bátar, átti bóndinn þá báða. Stór útlend julla, þung, hvolfdi þar á skafli, fauk hún á annan bát bundinn í nausti, braut hann og fór á loftköstum í sjóinn og valt flakið inn í Reykjarfirði. Bóndinn, Guðmundur Árnason, hraustur og harðfenginn maður treysti sér ekki slysalaust að fara að jullunni til að kafmoka hana í snjó, enda hafði hann aðra áhyggju. Járnþak á fjárhúshlöðu hans gekk út og inn í byljunum, en það hékk. Stórflæði og öldurót tók bát bóndans í Ingólfsfirði og braut, var hann í venjulegum vetrarstað. Veðrið tók hann svo af briminu og feykti honum og braut hann í spón. Ingólfsfjarðareyrar voru þá langt fram eftir eitt sjávarflóð (grasi grænar grundir með síkjum) með lágöldu en stórbrot utar. Símastaurarnir sýndust þá standa upp úr firðinum, alllangt frá botni hans. [Um illviðrið þann 21. segir svo]: Trilla stór sem Einar Sigvaldason á Sundnesi á Selströnd við Steingrímsfjörð átti hvarf þá um nóttina af legu, sökk þar eða sleit upp og hefur þá sokkið á firðinum. Lauslegt rak úr henni hins vegar fjarðarins.
Vík í Mýrdal: Óstöðugt tíðarfar, stormasamt og úrkomusamt en fremur hlýtt. Í veðrinu þann 2. urðu allmiklar skemmdir á húsum víða í Mýrdalnum og símastaurar brotnuðu sumstaðar. T.d. fauk þakið af hálfu þakinu á barnaskólanum hér og af íbúðarhúsinu á Brekkum. Nokkrar kindur hrakti í sjó.
Morgunblaðið segir fyrst af illviðrinu í pistli 3.desember:
Í fyrrinótt skall á mikið ofviðri af austri og hélst fram eftir deginum í gær. Náði veðrið yfir allt landið. Var loftvog óvenjulág yfir öllu landinu; í Vestmannaeyjum komst hún t.d. niður á ca. 690 mm (920 hPa) og í Rvík niður á 697,5 mm (930,3 hPa). Upp úr hádegi fór loftvogin ört stígandi. Á hafinu fyrir vestan land var norðan hvassviðri. Á Halanum var norðaustan ofviðri en togarar munu flestir eða allir hafa verið komnir upp að landi, því að Veðurstofan sendi stormfregn á laugardagskvöld [30.nóvember]. Hér í bænum urðu nokkrar skemmdir á húsum, en þó ekki stórvægilegar, losnuðu þakhellur af nokkrum húsum og einstaka reykháfar brotnuðu. Rafmagnsþráður féll niður á Grundarstíg og snerti konu sem þar var á gangi. Lenti í vafningum fyrir fólki er að kom að slíta þráðinn og losa konuna úr rafmagnssambandinu. Hún meiddist talsvert og var í öngviti er hún varð losuð frá þræðinum. Á Selfossi rauf þak af heyhlöðu. Frá Siglufirði var FB símað í gær, að þar hafi fisktökuskip Kveldúlfs, Áslaug, verið nærri strandað; varð með naumindum bjargað. Þök fuku af mörgum útihúsum og einnig skemmdust íbúðarhúsaþök í bænum. Eitt íbúðarhús skemmdist talsvert við það, að þak af öðru húsi fauk á það. Nokkrir hjallar fuku alveg. Símslit urðu víða á Norðurlandi; einnig varð sambandslaust við Vík í Mýrdal.
Morgunblaðið 4.desember:
Símslit urðu allvíða í stórviðrinu á mánudag, svo ekki var vitað um, hvort tjón hefði hlotist af veðrinu. Í gær komst síminn i lag aftur og fékk þá Morgunblaðið nánari fregnir frá ýmsum stöðum úti á landi. Í Mýrdal í Vestur-Skaftafellssýslu rauf þak af útihúsum víða, og einnig skemmdust íbúðarhúsin á Brekkum og Reynir. Á Mýrum í Austur-Skaftafellssýslu hafði fé hrakið í sjó og vötn. Vita menn um 70 fjár, sem þannig hefir farist. Var féð farið að reka austur á söndunum. Undir Eyjafjöllum hafði einnig orðið skaðar á útihúsum; ennfremur hafði þakið fokið af íbúðarhúsinu í Hlíð. Þrumur miklar og eldingar voru um allt Suðurland í gær. Frá Borgarnesi frétti blaðið í gær, að nokkrar skemmdir hefðu orðið af illviðrinu í Kolbeinsstaðahreppi og Miklaholtshreppi. Á Snorrastöðum í Kolbeinsstaðahreppi fauk heyhlaða og týndist nokkuð af heyi, ennfremur urðu tjón á heyjum víðar í þessum hreppum.
Skemmdir af óveðrinu. Morgunblaðið átti tal við Jónas Eyvindsson símamann í gær og leitaði frétta um símslit hér í bænum. Sagði hann, að meir en 200 símar hefðu misst af sambandi vegna línuslita. Sumstaðar höfðu flaggstangir brotnað og fallið niður á línurnar og slitið þær, sumstaðar hafði hrunið úr skorsteinum, járnplötur höfðu fokið af þökum, kassar og annað lauslegt dót hafði lent á línunum og slitið þær. Bjóst hann við, að aðgerðunum mundi að mestu leyti verða lokið í dag; Blaðið hafði tal af rafmagnsstjóra, og kvað hann skemmdir á rafmagnsleiðslum bæjarins ekki hafa verið miklar. Ljós höfðu slokknað í nokkrum götum í Austurbænum, en engar alvarlegar skemmdir hafa orðið. Veðmálaskúr hestamannafélagsins Fáks á skeiðvellinum fauk í fyrradag. Fauk hann um 15 m burtu, út fyrir girðinguna, sem er kringum völlinn. Hann brotnaði og allt, sem í honum var, svo sem borð, stólar o.fl.
Morgunblaðið segir 8.desember enn af veðrinu mikla:
FB. 7. des. Frá Akureyri er símað: Austanveður á mánudaginn olli nokkrum skemmdum hér á höfninni. Lítill vélbátur brotnaði og sökk. Árabátur brotnaði, nokkur skip brotnuðu lítils háttar. Úr Húnavatnssýslu, Skagafirði, Fnjóskadal og Akureyri sást á mánudagskvöldið mikill bjarmi öðru hvoru suður yfir öræfin í stefnu á Vatnajökul, en ekki sést síðan. Tíðarfar gott nú, en áður óstöðugt. Snjólétt.
Veðráttan getur að auki tjóns í illviðrinu þann 2.: Leirsteypuhús eyðilagðist á Sámsstöðum. Þak fauk af hlöðu á Selfossi og hesthúsi í Ölfusi, skúr hestamannafélagsins Fáks í Reykjavík eyðilagðist. Hlaða fauk á Arnarstapa í Álftaneshreppi. Í Miklaholtsseli tók járn af öllum húsum. Hlöður fuku í Dýrafirði.
Tíminn segir frá óvenjulegri vindhviðu þann 5.desember í frásögn sem birtist 26.apríl 1930:
Einkennilegt veðurafbrigði. Bjarnfreður Ingimundarson A Efri Steinsmýri í Skaftafellssýslu ritar Tímanum á þessa leið: Aðfaranótt hins 5. des. [1929] var hér fremur hæg sunnanátt með skúrum, en nálægt kl.3 um nóttina skall á óvenjuleg vindhviða, svo með fádæmum má teljast hér um slóðir á sléttlendinu, þar sem venjulega er jafnvinda. Vindhviðan varaði 23 mínútur, að því búnu, sama veður og áður, dálítil gola. Ofsaúrfelli var þessu samfara, en varaði litlu lengur og kom úr niðdimmum skýflóka, sem hafði þó ekki eins og venjulega festu við sjóndeildarhring, heldur sást í loft allt um kring. Hver maður hrökk úr fasta svefni, því hús hristust mjög af hinum ferlegu átökum. Af sumum húsum flettist grúið torfþak og á einu húsi brotnuðu þil, og munaði minnstu að húsið, sem var heyhlaða, fyki með öllu. Ýmsir lauslegir munir, svo sem spýtur og fleira, hófust í loft upp og fluttust langar leiðir. það sem einkenndi þetta veðurafbrigði var það, að það virðist ekki hafa komið fram nema á litlu svæði, hér á Efri Steinsmýrarbæjum og hjálendu frá Efri Fljótum, sem er hér í 2300 m. fjarlægð. Ennfremur virðist, eftir ýmsum merkjum, t. d. hvernig þak sviptist af húsum og fleira, sem vindurinn hafi snúist líkt og öfugstreymi. Mjög virtist vindhljóðið einkennilegt, svo sogkennt, og með sívaxandi rykkjum, þar til það á einu augnabliki féll niður eins og það kom. það er alveg víst, að hefði vindhrina þessi staðið 515 mínútur, þá hefði hún gert hér mjög minnilegan skaða, og ég gæti trúað, að færri hús hefðu staðist.
Norðlingur segir af eldbjarma í pistli þann 7.desember:
Eldsbjarmi nokkur er sagt, að sést hati suður yfir öræfum mjög víða héðan af Norðurlandi síðastliðið mánudagskvöld [2.desember] bæði frá Blönduósi, úr Skagafirði, héðan af Akureyri og úr Fnjósksdal. En sennilegt er, að þar sé um að ræða birtu og leiftur af eldingum þeim, sem geisuðu um Suðurland einmitt þetta mánudagskvöld.
Morgunblaðið segir enn fréttir af tjóni í illviðrinu mikla í pistli 12.desember:
Aftakaveður gerði aðfaranótt 2. þ.m. fyrir Suðausturlandi, og fylgdi krapahríð. Er það eitt hið mesta hvassviðri er menn muna og olli talsverðu tjóni i Mýrdalnum allvíða. Í Vik fauk hálft þakið af barnaskólanum, á Reyni fauk hey hlaða og nokkuð af heyi og fimm þakplötur af kirkjunni. Á Brekkum tók nokkuð af þakinu af íbúðarhúsinu og varð fólk að flýja húsið. Eins rauf veðrið þak á íbúðarhúsi á Litlu-Hólum og afar víða skemmdust útihús. Þrír símastaurar brotnuðu i túninu í Eyjarhólum og víða slitnaði símalínan. Einhverjir fjárskaðar munu og hafa orðið hefir fé hrakið i sjó, því að kindur er farið að reka.
Morgunblaðið segir 15.desember frá ófærð og hagleysi í Skaftafellssýslu:
Mikinn snjó hefir sett niður í Skaftafellssýslu að undanförnu og er nú alveg haglaust á öllu svæðinu frá eystri hluta Mýrdals og austur í Öræfi. Bílar komast ekkert. Hafði Bjarni í Hólmi keypt hér í Reykjavík nýjan Ford-vörubíl og var kominn með hann austur að Mýrdalssandi, en varð að skilja bílinn þar eftir vegna ófærðar. Fénaður var út um allt þegar byrjaði að snjóa og hefir ekki náðst í hús ennþá.
Húsbrunar eru sérlega hættulegir í illviðrum, Morgunblaðið 18.desember:
Fimm hús brenna á Bíldudal, þar á meðal stórt verslunarhús með miklum vörum og var póstur geymdur þar. Kl. um 8 1/2 á mánudagskvöld urðu menn á Bíldudal þess varir, að eldur var í verslun Bjargráðafjelags Arnfirðinga. Var það mikið hús, en áfast við það var stórt íbúðarhús og bjuggu þar Hannes B. Stephensen kaupmaður og séra Helgi Konráðsson. Voru húsin bæði til samans um 60 álnir á lengd og tvílyft. Eldurinn varð þegar svo magnaður að við ekkert varð ráðið. Var vonsku veður, suðvestan stormur og stórrigning.
Símabilanir hafa orðið nokkrar undanfarna daga. Í fyrradag bilaði línan (koparþráðslínan) á milli Borðeyrar og Akureyrar og austur náðist ekki samband lengra en til Kópaskers. Að sunnanverðu náðist samband ekki lengra í gær en að Hólum í Hornafirði, en allt Austurland, þar á milli og Vopnafjarðar, var sambandslaust.
Morgunblaðið minnir okkur á það 20.desember að lítið var um malbik í Reykjavík á þessum árum:
Ófærðin á götunum var með verra móti í gær. Bíll festist í forinni á Bárugötu, vestanvert við Stýrimannastíg.
Þann 21. og 22. gekk mikið austan- og norðaustanillviðri yfir landið og olli símslitum og samgönguerfiðleikum. Enn voru vandræði á Siglufirði (fastir liðir eins og venjulega þar - má segja). Kortið sýnir veðrið, lægðin kom úr suðri, dýpkaði ört og fór norður með austurströndinni - vindur var fyrst af austri, síðan norðaustri og loks norðri. Morgunblaðið segir fyrst frá 22.desember:
Símslit mikil urðu um alt land í ofveðrinu í gær. Á Suðurlandslínunni náðist samband aðeins í Holt undir Eyjafjöllum, á Norðurlandslínunni til Blönduóss og á Vesturlandslínunni til Hólmavíkur og Patreksfjarðar, lengra ekki. Frá Seyðisfirði náðist samband aðeins suður til Fáskrúðsfjarðar.
Frá Borgarnesi var blaðinu símað í gær, að nokkrir bílar hefðu farið út af þjóðveginum um Mýrarnar í fyrradag, en ekki komið að sök. Veður var afar hvasst þann dag, og áttu bílar erfitt með að komast leiðar sinnar. Í gær var komið besta veður, jörð næstum auð og engin snjókoma, en hvasst nokkuð.
Veðráttan getur þess að í sama veðri hafi tvo vélbáta rekið á land á Dalvík. Nokkrar skemmdir urðu á Akureyri, bátur sökk á Steingrímsfirði. Kirkja fauk á Flugumýri í Skagafirði, snerist útaf grunninum og laskaðist mikið. Símastaurar brotnuðu milli Beruness og Djúpavogs. Hluti girðingar um Íþróttavöllinn í Reykjavík fauk. Ungur maður fórst í snjóflóði í Brekkudal í Strandasýslu (dagsetning þess óviss) og unglingur varð úti milli Grafnings og Ölfuss.
Morgunblaðið segir frá togarastrandi - og síðan frá tjóninu á Siglufirði í pistli 24.desember:
Um kl. 11 á laugardagskvöld [21.desember] strandaði þýskur togari, Alteland, frá Cranz við Elben, sunnan við Hafnarberg á svokölluðum Melum. Var dimmviðri og kafald þegar skipið strandaði, en brimlaust. Skipsmenn, 13 að tölu, komust allir í land óskaddaðir; var skipið svo nálægt landi, að þeir gátu vaðið til lands. Síðan kveiktu þeir bál á strandstaðnum og héldust þar við alla sunnudagsnótt, en á sunnudagsmorgun fóru þeir að leita bæja og stefndu á Reykjanesvitann. Bóndinn á Kalmanstjörn sá til ferða þeirra og fylgdi þeim til vitans. Fengu þeir þar hinar bestu viðtökur á heimili Ólafs Sveinssonar vitavarðar.
Tjón í Siglufirði. FB. 22. des. Frá Siglufirði er símað: Ofsarok á norðan með stórhríð og foráttubrimi skall á aðfaranótt laugardags og hélst laugardag til kvölds með stórflæði og sjávarólgu, sem gekk yfir mestalla eyrina og suður af henni ofan við kvikmyndahúsið og Goos Verksmiðju. Fólk neyddist til þess að flýja úr mörgum húsum og skepnum varð nauðulega bjargað, enda ófært mönnum yfir flóðtímann um norðureyrina sökum vatnsdýptarinnar, nema á bátum, sem einnig var áfært fyrir veðurofsanum á Lækjargötu og Aðalgötu. Þar var flóðið hnédjúpt og í sumum húsum meðfram Lækjargötu álíka. Hús og munir stórskemmt af vatninu, timbur og annað lauslegt flaut í hrönnum á götunum. Félagsbakaríið og margar sölubúðir urðu að hætta afgreiðslu. Vörur stórskemmdust, þar á meðal mikið af mjölvöru í Hertervigsbakaríi. Brimið braut allar bryggjur ríkisbræðslunnar, síldarbryggjur, eign bæjarins, bryggjur dr. Paul, söltunarstöð Halldórs Guðmundssonar, Ásgeirsbryggjur, Baldursbryggju og laskaði Henriksens og Thorarensensbryggjur. Mest er tjón ríkisverksmiðjunnar og Halldórs Guðmundssonar. Einnig tók sjór timbur frá ríkisverksmiðjunni og tunnur og salt á söltunarstöð Halldórs frá Einkasölunni. Brakið úr nyrstu bryggjunum rak á þær innri og braut þær. Tjónið mun sennilega nema yfir 100.000 kr. Tvo vélbáta rak á land í Dalvík, annar brotnaði og braut bryggju. Póstbáturinn lagði af stað héðan á föstudagskvöld, slapp í byrjun ofsans til Hríseyjar, lá þar á laugardaginn. Sæfarinn frá Eskifirði, lestaður beitusíld, lagði af stað héðan. í morgun en sneri aftur sökum brims.
FB, 22. des. Frá Stykkishólmi er símað: Ofviðrið skall á hér aðfaranótt laugardags. Kl. 4 að morgni var aftakaveður. Ekki frést um neinn skaða af völdum veðursins.
Tíminn fjallar um óveðrið rétt fyrir jólin í pistli 31.desember, m.a. vandræðum varðskipsins Þór:
Fyrir og um næstsíðustu helgi gerði ofsalegt stórviðri með fjúki og frosti um nálega allt land. Urðu skaðar á skipum og hafnarmannvirkjum. Eftir að síðasta blað Tímans var fullprentað, bárust hingað fregnir um það, að varðskipið Þór væri strandað á skeri nálægt ósum Laxár, milli Blönduóss og Skagastrandar. Þór lagði af stað frá Blönduósi, föstudagskvöldið 20. þ.m. í foraðsveðri. Hugðist skipstjórinn, Eiríkur Kristófersson, að leita hlés við Grímsey á Steingrímsfirði. En er út kom á flóann bilar stýrisumbúnaður skipsins. Tókst þó að koma við bráðabirgðaviðgerð. Eigi að síður reyndist skipinu um megn að halda gegn stórviðrinu sem á var. Var þá leitað lægis nærri Skagaströnd og legið þar fyrir akkerum allan laugardaginn. En er leið á daginn tók skipið að reka nær landi. Freistuðu þá skipverjar að létta akkerum og færa skipið á dýpri legumið. Slitnuðu þá akkerisfestar en skipið rak samstundis upp á sker. Fréttin barst hingað loftleiðis þegar um kvöldið. En eigi var unnt að ná í símstöðvar frá Blönduósi, eða Skagaströnd, eftir að fréttin barst hingað og eigi fyrr en kl.10 á sunnudagsmorgun. Brugðu bátar við af Skagaströnd og fóru á strandstaðinn. Tókst sex mönnum af Þór, að fara í stærri björgunarbát skipsins yfir í bát af Skagaströnd og voru þeir fluttir í land. Fóru þrír þeirra aftur á vettvang, ásamt Skagstrendingum, til þess að leitast við að bjarga félögum sínum og lentu í miklum hrakningum. Hvolfdi bátnum tvívegis undir þeim, en þeim tókst í bæði skiptin, að koma bátnum á réttan kjöl og tæma úr honum sjóinn. Þótti það vasklega gert. Mennirnir voru Stefán Björnsson 2. stýrimaður, Aðalsteinn Björnsson 1. vélstjóri og Guðmundur Egilsson loftskeytamaður. Eigi tókst björgunin að því sinni, en bátarnir héldust við nálægt skipinu alla næstu nótt til þess að leita færis. Kl. 2 á sunnudag sneri landstjórnin sér til framkvæmdastjóra Alliancefélagsins og óskaði eftir því, að togari félagsins, Hannes ráðherra, sem lá á Önundarfirði freistaði að bjarga mönnunum af Þór. Lagði togarinn af stað litlu síðar og var kominn á strandstaðinn kl. 9 næsta morgun. Trillu-bátarnir frá Skagaströnd aðstoðuðu við björgunina og gekk hún eftir það greiðlega. Er skemmst af því að segja, að mennirnir björguðust allir heilir á húfi og eftir vonum hressir, eftir svo langa vist í köldu skipinu meira og minna votir og hraktir. Þykir öllum hafa tekist giftusamlega, sem áttu hlut að því að afstýra svo hörmulegu slysi sem áhorfðist um skeið. Meðal þeirra manna, sem lentu í þessum hrakningi var séra Jón Guðnason. Var hann settur í land á Blönduósi en skipverjar á Þór fóru yfir í varðskipið Ægi, er einnig var komið á vettvang. Kom Ægir hingað klukkan 9 á aðfangadagskvöldið. Þegar fréttist um að björgun hefði tekist var flaggað á sljómarráðshúsinu. En dómsmálaráðherra og skrifstofustjóri á dómsmálaskrifstofunni fóru út í skipið er það lagði að landi, til þess að bjóða strandmennina velkomna.
Níels veðurathugunarmaður á Grænhól segir í bréfi til Veðurstofunnar frá eldra veðri sem hann lenti í - og fleiru. Við leyfum því að fljóta með. Níels hóf athuganir á Grænhól 1921 og athugaði þar til hann lést 1934.
Grænhóll - aukablað: Fyrsta og annan desember var hér aftakaveður rok úr landsteinum alda mikil og flóð. Var veðrið fyrst austnorðaustan og almest austan. Í rúm 20 ár hefur ekki komið hér jafnmikið veður og hlífði sköðum á ýmsu að allt var freðið. Ég man annað stórviðri um líkt leyti árs, en minna sjóflóð þá og sjórót; var þá mikil fönn og allt freðið. Það var austanveður og ekki stætt úti nema í sköflum og með staf. Ég fauk þá; var ég þá milli 30 og 40 ára, hafði stóran sterkan staf, var á heimleið lausgangandi, ætlaði að standa af mér eitthvað alharðast veður á Reykjanesrimanum, sneri baki í veðrið og pældi stafnum útundan mér og stífaði mig sem gat en ekki dugði það, ég hristist úr þessum skorðum, féll og fauk á flugrennsli yfir mel og fram á mýri um 20 faðma, taldi mig hólpinn að halda limum óbrotnum. - Ég man eftir miklu meira ölduróti fyrir rúmum 30 árum, um haust í norðanbyl og aftakaveðri norðnorðvestan. Þá öldu kalla ég 9 og gamalt fólk hér mundi annað stórbrim eins fyrir tugum ára þá. Aldan nú 2.desember var það, að ég taldi hana 7, mikil var hún hér og flóðið en fráleitt var hún meira en 7, móti hinni 9. Það var stórhrikaleg sjón að sjá þá hryggi koma, hefja sig hærra og hærra, mynda þykkan ægilega háan öldufald og steypa honum svo í dimmsvartri holskeflu niður, sem knúsaði lofti innan í sér í froðukúfa svo ógurlega og fyllti upp víkur og voga, og manni fannst titringurinn greinilegur inni í húsum og aldan átti hér beint í móti veðuraftökunum að sækja. Í veðrinu nú fyrsta og annan desember lágu tveir litlir mótorbátar 4 og 5 tonn á Reykjarfirði, Kúvíkum og varð ekkert að þeim. Eins lágu þeir þar í síðara austanveðrinu 21. desember og varð ekkert að þeim.
[Níels segist nú vera farinn að slappast við veðurathuganir - en bætir við] Það lakasta við að hætta að athuga hér er, - að þessi ár sem ég hef athugað hér eru engin meðalár hér, - heldur þau albestu sem menn muna að flestu og mestu yfirleitt. 1. janúar 1930. Níels Jónsson
Lýkur hér yfirliti hungurdiska um veður og veðurfar ársins 1929.
Vísindi og fræði | Breytt 17.9.2023 kl. 22:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.9.): 259
- Sl. sólarhring: 510
- Sl. viku: 1814
- Frá upphafi: 2499416
Annað
- Innlit í dag: 241
- Innlit sl. viku: 1660
- Gestir í dag: 233
- IP-tölur í dag: 227
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- September 2025
- Ágúst 2025
- Júlí 2025
- Júní 2025
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010