8.6.2025 | 23:40
Maí sem sumarmánuður?
Ýmsir hafa vikið þeirri spurningu að ritstjóra hungurdiska hvernig sé með maí sem sumarmánuð? Fyrir nokkrum árum var hér á hungurdiskum fjallað um september sem sumarmánuð og þar kom nokkuð skýrt fram að þótt september gæti alloft talist til sumarsins gerði maí það hins vegar aldrei. Svarið er enn hið sama, maí er aldrei sumarmánuður en við skulum samt líta nánar á málið. Við reynum að leita uppi þann maímánuð sem kemst næst því.
Til leitarinnar notum við landsmeðalhita í byggð. Reyndar er sú gagnaröð ekki sérlega áreiðanleg framan af - og stenst varla alvarlega rýni - en við látum sem ekkert sé í þessum leik. Við gætum leitað á sama hátt fyrir einstakar stöðvar - og gerum það e.t.v. einhvern tíma í framtíðinni (eða kannski gera lesendur það bara sjálfir). Svarið kann að verða eitthvað annað þegar einstakar stöðvar eru undir.
Það háir leit af þessu tagi nokkuð að allmikið hefur hlýnað síðustu 150 árin - það á við bæði um maí og sumarið í heild. Hlýnunin er á bilinu 0,7 til 0,8°C/öld.
Það sem við sjáum á myndinni er þetta: Lárétti ásinn vísar til síðustu 200 ára (rétt rúmlega), en sá lóðrétti er hitakvarði. Græna feita línan sýnir 30-árakeðjumeðalhita (alþjóða-) sumarsins, til þess teljast mánuðirnir júní til ágúst. Sumur áranna 1995 til 2024 eru því lengst til vinstri - en línan hefst við árabilið 1824 til 1853. Græni ferillinn hefur í heildina þokast upp á við, en þó er sveiflan sem við sjáum í 30-ára hitanum enn meiri en hlýnunin er. Rétt að benda á að þessi 30-ára ferill hefur aldrei legið hærra en nú, sumarið hefur aldrei verið hlýrra.
Rauða þykka línan sýnir það sama - en á við maí. Þessi lína hefur þokast upp á við líka - fjöláratugasveiflurnar enn meira áberandi en sumarhitasveiflurnar - en fylgjast að mestu að í tíma, en þó ber svo við að 30-ára meðaltalið nú er ekki alveg jafnhátt og það var hæst á árunum 1928 til 1961 - munar 0,2 stigum.
Þreparitið sýnir hins vegar landsmeðalhita einstakra maímánaða - mjög breytilegur greinilega. Allt frá hinum illræmda maí 1979 (og 1866, sem var ámóta kaldur) allt til hlýindanna miklu í nýliðnum maímánuði. Hann var, á landsvísu, sá hlýjasti sem við þekkjum til.
Enginn maí kemst nærri meðalhita sumarsins (sem slatti af septembermánuðum náði), ekki einu sinni sá nýliðni, þó má benda á að hann var lítillega hlýrri heldur en meðalsumarið á árunum 1865 til 1893, hefði verið sannur sumarmánuður þá.
Á myndinni setjum við ártöl við hlýjustu og köldustu maímánuðina. Á landsvísu hefur það aðeins þrisvar gerst að maí hefur verið hlýrri heldur en júní sama ár, en aldrei hlýrri en júlí eða ágúst sama árs. Eins og rifjað var upp á hungurdiskum ber það hins vegar oftar við á einstökum stöðvum að maí sé kaldari heldur en júní. Sérataklega á þetta við um landið norðaustanvert, en hefur raunar gerst víðar.
Vegna hins sérlega hlýja maímánaðar í ár er nú, kannski í fyrsta sinn, möguleiki á að hann verði hlýrri (þegar upp er staðið) heldur en júní, júlí eða ágúst. Þess má t.d. geta að sumarið 1979 var landsmeðalhiti í bæði júní og júlí lægri heldur en meðalhitinn í maí nú og meðalhiti í ágúst það ár var jafn meðalhita maímánaðar nú. Svipað var sumarið 1993, þá voru bæði júní og júlí kaldari á landsvísu heldur en maí nú, og ágúst aðeins rétt sjónarmun hlýrri. Við vonum þó (þrátt fyrir að það væri einstakur viðburður) - að það gerist ekki.
Flokkur: Vísindi og fræði | Breytt 9.6.2025 kl. 01:05 | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 42
- Sl. sólarhring: 132
- Sl. viku: 1120
- Frá upphafi: 2474912
Annað
- Innlit í dag: 38
- Innlit sl. viku: 990
- Gestir í dag: 36
- IP-tölur í dag: 36
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júní 2025
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning