20.3.2025 | 17:11
Hlaupið yfir árið 1997
Tíð var yfirleitt hagstæð á árinu 1997. Janúar byrjaði vel, en síðan var vinda- og umhleypingasamt. Snjór var ekki mikill, en nokkur svellalög. Tíð var rysjótt í febrúar og víða var mikill snjór, einkum í lok mánaðarins. Í mars var sæmileg tíð, allmikill snjór var framan af mánuðinum og færð þá erfið. Svell voru á túnum. Nokkuð góð tíð var í apríl, jörð auð í mánaðarlok og gróður farinn að lifna um landið sunnanvert. Í maí var óhagstæð til fram yfir miðjan mánuð, frostnætur tíðar og gróðri fór lítið fram. Eftir 20. tók gróður vel við sér. Sauðburður gekk vel. Kal var í túnum norðaustanlands. Í júní gerði óvenju snarpt hret snemma í mánuðinum sem var í heild fremur kaldur og tíð stirð. Í júlí var tíð úrkomusöm og erfið til heyskapar um landið sunnanvert, verst þó suðaustanlands. Spretta var góð. Hlýtt var í veðri nema á annesjum á Austfjörðum. Þar var kalt og þokusælt. Ágúst var úrkomusamur um meginhluta landsins og gekk heyskapur treglega á Suðaustur- og Austurlandi. Berjaspretta var undir meðallagi. Vætusöm tíð var í september, en hlý. Uppskera úr görðum var misjöfn eftir frostskemmdir um miðjan mánuð. Berjaspretta var léleg. Í október var milt og vindar hægir. Vætusamt norðaustanlands. Góð tíð var í nóvember. Mikil hlýindi síðari hluta mánaðarins og lítið var um stórviðri. Búfénaður var á beit allan mánuðinn og gæftir voru góðar. Sama má segja um desember. Mikil hlýindi voru um land allt og snjólaust að mestu. Tún voru sums staðar græn fram yfir áramót.
Í textanum hér að neðan er leitast við að rifja upp helstu veðurviðburði ársins. Mun ítarlegri lýsingu á vindáttum, gangi veðurkerfa og þess háttar er auðvitað að finna í Veðráttunni, tímariti Veðurstofu Íslands sem aðgengilegt er á timarit.is. Hér er mjög byggt á fréttum dagblaðanna, Morgunblaðið var drýgst á þessu ári og er aðstandendum þess og annarra blaða þakkað að vanda. Í fáeinum tilvikum hafa augljósar prentvillur verið leiðréttar og stafsetningu í stöku tilviki hnikað til - vonandi að meinalausu.
Þrýstingur var hár fyrstu viku janúar og vindur hægur. Kalt loft laumaðist að úr norðri þann 8. og næstu daga gerði ákveðna austan- og norðaustanátt, hvassast varð þann 11. DV segir frá illviðrinu í pistli 13.janúar:
Í hvassviðri sem gekk yfir Mýrdalinn síðastliðinn laugardag [11.] brotnaði 25 metra hátt fjarskiptamastur Pósts og síma sem er á Reynisfjalli. Í mastrinu voru endurvarpar fyrir Ríkisútvarpið, rás 1 og 2, Sjónvarpið og bæði farsímakerfin. Þegar mastrið féll datt því endurvarp allra þessara miðla út, en það náði til Víkur og hluta sveitarinnar í kring.
Þann 19. skipti aftur yfir í sunnan- og suðvestanátt sem urðu nokkuð ákafar um skeið. Langverst varð veðrið þann 23., sjá kortið að ofan. Þá var djúp lægð á leið norðaustur með austurströnd Grænlands. Óvenjuleg hlýindi voru í hvassri sunnanáttinni, en seint um kvöldið og um nóttina gengu mjög skörp skil yfir - vind lægði um stund og það kólnaði að mun, en síðan gerði allsnarpan útsynning. Tjón varð nokkuð í þessu veðri. Morgunblaðið segir frá 24.janúar:
Björgunarsveitir voru í viðbragðsstöðu vegna hvassviðrisins en ekki urðu verulegar skemmdir á eignum, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Hjálparsveitir aðstoðuðu lögreglu við Möðrufell í Reykjavík í gærkvöldi en þar hafði þakefni losnað af húsi í viðgerð og þá fuku bílar til við Engihjalla. Jafnframt fór sendibifreið út af veginum við Aratún í Hafnarfirði og lenti á tveimur ljósastaurum. Slökkviliðið í Reykjavík var kallað út til þess að taka niður umferðarljós á mótum Suðurlands- og Vesturlandsvegar sem höfðu losnað. Á landsbyggðinni fauk bíll út af veginum við Ós i gærdag, að sögn lögreglu á Akranesi, og þá brotnaði rúða í íbúðarhúsi í Borgarhreppi. Á Ísafirði skemmdist flotbryggja í gærkvöldi og ökumenn lentu í erfiðleikum. Vart varð við rafmagnstruflanir á Hvolsvelli.
Ísafjörður. Morgunblaðið. Bíllinn fór eina eða tvær veltur og stöðvaðist á hvolfi. Ég hef aldrei lent í neinu slíku áður og er þó búinn að aka um veginn í 33 ár. Ég held að beltin og Guð hafi bjargað mér, sagði Valdimar Lúðvík Gíslason, sérleyfishafi á leiðinni milli Ísafjarðar og Bolungarvíkur. Hann lenti í þeirri óhugnanlegu lífsreynslu rétt eftir kl.13 í gærdag, að bifreið hans fauk út af veginum um Óshlíð og stöðvaðist í fjöruborðinu, um 40-50 metrum fyrir neðan veginn. Bifreið Valdimars Lúðvíks, Toyota HiAce, er gjörónýt, en hann slapp með skrámur og mar. Ég var í Seljadalnum, á svipuðum slóðum og vindurinn hafði feykt tveimur öðrum bifreiðum stuttu áður. Það var fljúgandi hálka og miklir sviptivindar og því sneri ég við og ætlaði aftur inn á Ísafjörð. Ég mætti bíl og þurfti því að fara aðeins utar á veginn. Ég náði ekki bílnum á réttan vegarhelming og á sama augnabliki kom mikil vindhviða og nánast feykti bílnum fram af veginum," sagði Valdimar Lúðvík.
DV segir af sama veðri 24.janúar:
Upp úr klukkan níu í gærmorgun fauk strætisvagn í mikilli hálku í svokölluðum Hreggnasa í Hnífsdal með þeim afleiðingum að hann fauk fram af háum vegkanti og hafnaði á stóru timburhúsi sem stendur þar fyrir neðan. Strætisvagninn var að koma frá Ísafirði í mikilli hálku og sterkum sviptivindum. Skipti engum togum er komið var í brekkuna í Hreggnasanum að vagninn fauk til og lenti út af veginum en þarna er nokkuð hár bakki fram af veginum. Rann vagninn nokkra tugi metra niður brekkuna og hafnaði með framendann inni i eldhúsi á Húsinu Hreggnasa 3, sem margir þekkja undir nafninu Græni Dalur. Enginn farþegi var þó í bílnum er óhappið átti sér stað og ekki urðu heldur slys á bílstjóranum. Í húsinu búa þau Ásgeir Bjarni Ingólfsson og María Dröfn Erlendsdóttir ásamt börnum sínum tveim. María var ásamt öðru barna sinna uppi í rúmi á annarri hæð þegar mikil vindhviða kom og skömmu seinna skall strætisvagninn á húsinu með miklum látum. Húsið er mikið skemmt en þau Ásgeir og María höfðu verið að vinna að endurnýjun á eldhúsinu þar sem strætisvagninn lenti. Er eldhúsið mikið brotið sem og gólf og einnig em skemmdir á annarri hæð hússins. Ásgeir Ingólfsson sagðist í samtali við blaðið vera búinn að búa í húsinu í fimm ár. Sagði hann húsið óíbúðarhæft eftir óhappið. Aðeins er um eitt ár síðan sami strætisvagn ók á hús í Sundstrætinu á Ísafirði í mikilli hálku. Það var þann 15. janúar 1996. Það hús skemmdist mikið og er húseigandinn nú langt kominn með að byggja nýtt hús við hlið þess gamla. -HK
Ökumaður flutningabíls missti stjórn á bíl sínum í vindhviðu á Hafnarfjarðarvegi skammt sunnan við Arnarnes í gær. Bíllinn lenti á tveimur ljósastaurum og klippti annan þeirra í sundur. Ökumaður slapp ómeiddur en flutningabíllinn skemmdist nokkuð. -RR
Febrúar var mjög órólegur. Þann 5. gekk allkröpp, en ekki stór lægð til norðurs um landið vestanvert. Hún olli snjókomu og ófærð, - og óvæntu foki í Ólafsfirði. DV segir frá 6.febrúar:
DV, Akureyri: Við erum vön því að það komi svona hnútar í austanáttinni sem kemur hérna einu sinni til tvisvar á ári. Hnútarnir koma úr fjallaskörðunum og eru alveg hábölvaðir, þeir geta tekið heilu húsin, segir Andrés Kristinsson, bóndi á Kvíabekk í Ólafsfirði, en þak fauk af fjárhúsi hjá honum í mikilli vindhviðu í gærmorgun. Andrés segir að nokkrir slíkir hnútar hafi komið í gærmorgun [5.] og einn þeirra hafi verið svo öflugur að hann hristi og skók íbúðarhúsið þar sem heimilisfólkið var. Mikill hávaði fylgdi í hviðunum og varð Andrés sem var inni í bæ ekki var við þegar þakið fauk af fjárhúsinu og það uppgötvaðist ekki fyrr en síðar. Þetta gat farið verr því það voru engar skepnur i húsinu, þær voru allar úti og sakaði ekki. Þakið á fjárhúsinu er hins vegar handónýtt enda mölhrotið fram um alla sveit, sagði Andrés. Einn hestur fannst dauður við háspennustaur í túninu skammt frá bænum. Lögreglan á Ólafsfirði segir að annaðhvort hafi þakplata lent á hestinum eða hann hafi hreinlega fokið á staurinn og drepist þannig. -gk
Morgunblaðið segir frá áhrifum lægðarinnar 6.febrúar (við styttum pistilinn):
Samgöngur fóru úr skorðum á Suðvesturlandi þegar kröpp lægð gekk yfir landið með mikilli snjókomu aðfaranótt miðvikudags [5.] og fram eftir degi í gær. Innanlandsflug lá að langmestu leyti niðri og truflanir urðu á millilandaflugi en margir nýttu sér almenningssamgöngur og skildu bíla sína eftir heima. Þó var nokkuð um að lögregla þyrfti að fjarlægja vanbúna bíla þar sem þeir lokuðu vegum eða hindruðu starf snjómokstursmanna sem eru í stöðugri vinnu við að opna götur og vegi. Um 40 björgunarsveitarmenn á höfuðborgarsvæðinu tóku þátt í að aðstoða bíleigendur og við að koma skólabörnum heim úr skóla og sett var upp sérstök aðgerðarstjórn í lögreglustöðinni í Reykjavík til þess að sinna þeim málum. ... Vilberg Ágústsson, yfirverkstjóri í snjómokstursdeild Gatnamálastjóra, segir að versta veðrið hafi skollið á rétt upp úr miðnætti aðfaranótt miðvikudags en upp úr kl. 4 hafi dregið úr mesta vindinum og tekið að snjóa mikið frameftir morgni. Það er eiginlega ekki hægt að taka neinn einn stað út úr, það hefur verið jafnt fannfergi um alla borgina. Það hefur verið lítið verra í úthverfunum en í vesturbænum, sagði Vilberg.
Lægðir gerðust nú mjög djúpar. Kortið sýnir stöðuna að kvöldi þess 9. en á morguninn eftir varð mesta flóðhæð um langt skeið í Reykjavík. Tjón varð þó minna en vænta mætti. Morgunblaðið segir frá 11.febrúar:
Engin stórvægileg óhöpp urðu í gærmorgun [10.] á Suður- og Suðvesturlandi í mestu flóðhæð sem þar hefur orðið frá því reglulegar mælingar hófust. Vatn flæddi víða yfir bryggjur í höfnum á Suðvesturlandi án þess að tjón hlytist af, en um miðnætti í fyrrinótt sökk smábátur í Reykjavíkurhöfn, þar sem flóðhæðin var mest og fór hún í 5,09 metra. Að sögn hafnsögumanna hafði báturinn verið fullur af snjó og illa frá honum gengið. Alls skemmdust fjórir bátar til viðbótar í Reykjavíkurhöfn um og eftir hádegi í gær og voru þeir allir bundnir við flotbryggjuna, en vindur stóð beint á hana. Gat kom á skrokk tveggja smábáta og einn bátur slitnaði frá bryggjunni og rak upp í fjöru og skemmdist nokkuð, og sá fimmti skemmdist vegna núnings við bryggjuna. Að sögn Hilmars Helgasonar, forstöðumanns Sjómælinga Íslands, er þetta mest flóðhæð sem mælst hefur í Reykjavík frá því reglulegar mælingar hófust árið 1951. Flóðhæðin hefur nokkrum sinnum mælst 4,9 metrar og 1991 komst flóðhæðin í 4,97 metra. Hilmar sagði að flóðhæð yrði mikil fram eftir vikunni og menn ættu því að hafa varann á sér og fylgjast með veðurspá.
Talsverður viðbúnaður var síðdegis í fyrradag og í fyrrinótt af hálfu gatnamálastjórans í Reykjavík vegna flóðahættu og var hreinsað frá niðurföllum á lægstu stöðum í borginni. Úrkoma varð hins vegar mun minni en búist hafði verið við og vindur lítill þannig að hvergi varð teljandi tjón af völdum flóða. Vatn flæddi þó upp um niðurföll á húsi við Skeljagranda snemma í gærmorgun og aðstoðaði slökkviliðið við að dæla vatni þaðan í burt og um hádegisbilið aðstoðaði slökkviliðið við að dæla vatni sem lekið hafði inn í hús við Granaskjól. Í fyrrinótt mældist mesti vindhraði sem mælst hefur í Vestmannaeyjum í vetur eða 82 hnútar [42,2 m/s] að meðaltali, en að sögn Óskars Sigurðssonar vitavarðar fór vindhraðinn upp í 111 hnúta [57,1 m/s] í verstu hviðunum. Engar skemmdir urðu í Vestmannaeyjum af völdum veðursins sjór stóð mjög hátt og flæddi m.a. yfir Bæjarbryggjuna.
Lögreglan í Reykjavík þurfti að aðstoða borgarbúa um hádegi í gær, þegar vindur rauk upp. Algengt var að fólk óskaði aðstoðar í norðurhluta borgarinnar, þar sem gluggar fuku upp í verstu hviðunum. Þá losnaði þakplata af húsi og hafnaði á Sæbrautinni, þar sem hún teppti umferð. Þakplötur losnuðu einnig af húsi við Bauganes, en þær voru festar snarlega áður en þær fóru á flug. Á Patreksfirði fuku þakplötur af hluta þaksins á Félagsheimilinu. Að sögn lögreglu hurfu þær út í sjó.
Slæmt veður var á Hellisheiði í gær og lentu margir ökumenn í vandræðum af þeim sökum. Verst var veðrið fyrir hádegi og segist Stefán Þormar, veitingamaður á Litlu kaffistofunni, sjaldan hafa séð það blindara. Hjá honum leitaði fjöldi vegfarenda skjóls meðan versta veðrið gekk yfir. Tveir flutningabílar lentu þversum á veginum og lokuðu honum í svokölluðum Skerðingum fyrir neðan Litlu kaffistofuna. Veðrið skall á á tíunda tímanum í gærmorgun og var að sögn Stefáns snarvitlaust fram til klukkan hálfeitt. Það sá hreinlega ekki út úr augum. Það voru 30-40 bílar stopp hérna rétt fyrir ofan en sumir komust við illan leik inn á planið hér hjá kaffistofunni, þannig að fólk sat ýmist fast hér inni eða í bílunum. Þegar Vegagerðin loksins komst á staðinn og fór að greiða úr flækjunni datt veðrið fljótlega niður, sagði Stefán.
Skriða féll í Mýrdal, Morgunblaðið segir frá 13.febrúar:
Mikil skriða féll úr fjallinu Pétursey í Mýrdal í gær [12.] og stöðvuðust mannhæðarhá björg aðeins um 100 metra frá íbúðarhúsinu á bænum Eystri-Pétursey, sem stendur undir fjallinu. Mér fannst ég heyra þrumu, leit út um gluggann og sá þá björgin koma veltandi niður hlíðina," segir Sigurjón Eyjólfsson, bóndi á Eystri-Pétursey. Hann segir að hrunið hafi úr klettabelti ofarlega í fjallinu, sem er úr móbergi, um 275 metra hátt. Það er grasi gróin hlíð alveg upp að hömrunum, en björgin hafa rifið grasþekjuna upp á 30-40 metra breiðum kafla og sums staðar stungist djúpt niður í jörðina," segir Sigurjón. Að hans sögn kom minni skriða úr fjallinu fyrir tveimur árum, en hún féll vestar og grjótið var ekki í líkingu við björgin, sem nú komu niður. Skriðan skemmdi ekki tún fyrir Sigurjóni og bæði fólk og fénaður sluppu með skrekkinn.
Ekki er ljóst hvort veður átti beinan þátt í óhappi því sem Morgunblaðið segir frá þann 14.febrúar:
Talið er að tjón sem varð þegar slippkanturinn í höfninni á Akureyri féll niður á nokkurra tuga metra kafla í gærmorgun [13.] nemi tugum milljóna króna. Líklegt er að fylling hafi grafist undan stálþili og fylling innan þess farið út fyrir þilið með þeim afleiðingum að steypt þekja bryggjunnar féll niður. Ekki er vitað hvað olli þessu.
Þann 17. fór sérlega djúp lægð til norðurs fyrir austan land. Kortið sýnir stöðuna kl.6 að morgni þess 18., en þá var miðja hennar komin norður fyrir. Næstu daga fór lægðin síðan til vesturs og suðvesturs að strönd Grænlands vestast á Grænlandshafi, en lægðin sem á kortinu suðaustur af Nýfundnalandi fór svipaða leið og sú fyrri, dýpkaði mjög fyrir suðaustan og austan land og kom síðan upp að Norðausturlandi.
Kortið sýnir stöðuna seint að kvöldi þess 19. febrúar. Þá er eldri lægðin vestast á Grænlandshafi, en sú yngri á norðvesturleið fyrir austan land. Norðanlands og á Vestfjörðum gerði mikla hríð. Lægðin grynntist síðan á svipuðum slóðum, en hríðin hélt áfram. Vindátt var þá lengst af vestan við norður - og sló jafnvel í vestur. Ekki algengt, en reynslan sýnir að snjóflóðahætta er þá viðvarandi á norðanverðum Vestfjörðum og á Tröllaskaga utanverðum. Enda féllu óvenjuleg snjóflóð í Bolungarvík og sömuleiðis varð skæð snjóflóðahrina í Siglufirði, þótt flóðin á síðarnefnda staðnum væru minni heldur en vestra.
Morgunblaðið segir frá 22.febrúar:
Tvö snjóflóð féllu í Bolungarvík og þrjú á Siglufjarðarveg með stuttu millibili í gærkvöldi. Veðurstofa íslands lýsti yfir viðbúnaðarstigi í Bolungarvík og á Siglufirði og mælti fyrir um að hús skyldu rýmd á hættusvæðum. Einnig var lýst yfir viðbúnaðarstigi á Ísafirði, Flateyri og Súðavík. Um sextíu hús voru rýmd í Bolungarvík og yfir fimmtíu á Siglufirði. A Veðurstofu var í nótt ennfremur fylgst grannt með stöðu mála annars staðar á norðanverðum Vestfjörðum.
Tvö snjóflóð féllu úr hlíðum Traðarhyrnu í Bolungarvík í gærkvöldi á tvö hús efst í byggðinni við Dísarland. Fyrra flóðið féll um áttaleytið á efsta hús götunnar en olli engu tjóni. Seinna flóðið féll á tíunda tímanum á hús við sömu götu, braut glugga og fyllti stofuna. íbúar voru að heiman þegar þetta gerðist. Almannavarnanefnd í Bolungarvík rýmdi um sextíu hús í efri bænum ofan Völusteinsstrætis og meðfram hlíðinni. Björgunarsveitin Ernir í Bolungarvík fylgdist með hættusvæðinu í nótt. Á Siglufirði féllu þrjú misstór snjóflóð á Siglufjarðarveg á milli Selgils og Strákaganga um kvöldmatarleytið í gærkvöldi. Af þessum sökum var vegurinn lokaður um óákveðinn tíma. Almannavarnanefnd Siglufjarðar vann hörðum höndum að því seint í gærkvöldi að skipuleggja rýmingu húsa á stóru svæði efst í bænum eftir að Veðurstofan hafði tekið ákvörðun um rýmingu. Fyrstu aðgerðir nefndarinnar miðuðu að því að beina þeim tilmælum til 140 íbúa í 56 húsum að rýma húsin. Íbúum stóð m.a. til boða að
gista í hótelinu og á gistiheimilum.
Morgunblaðið heldur áfram 23.febrúar:
Morgunblaðið. Siglufirði Viðvarandi snjóflóðahætta var enn ríkjandi á Siglufirði um miðjan dag í gær. Mörg smærri flóð og spýjur höfðu fallið í hlíðinni fyrir ofan bæinn, á Ströndinni sunnan við Strákagöng og í svo kölluðum skriðum. Ekki hafði hlotist tjón af. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands var veðurútlit skömmu eftir hádegi í gær svipað og verið hefur undanfarinn sólarhring á Siglufirði og á Vestfjörðum og engar frekari rýmingar fyrirhugaðar, að óbreyttu. Rúta með nemendum úr Fjölbrautaskólanum á Sauðárkróki, sem voru á leið í skíðaferðalag, slapp naumlega þegar snjóflóð féll á veginn fyrir framan hana á Ströndinni á föstudagskvöld. Flóðið reyndist um 3 metra hátt og um 30 metra breitt og var mjög hart í því. Rútan náði að bakka inní Strákagöng og bíða þar uns flóðinu var rutt burt. Veginum frá Siglufirði var lokað, þar sem mörg flóð féllu þar og mikil hreyfing virtist vera í fjöllunum. Fimmtíu og sex hús við Háveg, Hólaveg, Fossveg, Norðurtún, Laugaveg og Suðurgötu með 144 íbúum voru rýmd í fyrrakvöld og gekk sú rýming hratt og vel fyrir sig. Fólkið dvaldi á Hótel Læk og Gistiheimilinu Hvanneyri, þrjár fjölskyldur hafast við í togara við bryggjuna og aðrir voru hjá vinum og ættingjum. Fólki var meinað að fara í hús sín nema í fylgd björgunarsveitarmanna og með snjóflóðaýlur og allar ferðir inn og út af hættusvæðinu voru skráðar hjá lögreglu. Að sögn Guðna Sveinssonar, lögregluvarðstjóra á Siglufirði, höfðu margir orð á því að nú þætti þeim virkileg ástæða til að yfirgefa heimili sín. Sagði hann að um tvö leytið í fyrrinótt hefðu fallið fjögur smáflóð úr Gimbraklettum og námu þau staðar 100 til 150 metrum fyrir ofan byggð. Ennfremur féllu sjö til átta smá spýjur úr fjalli norðan við Hvanneyrará en þau náðu ekki að byggð. Morgunblaðið/Þorkell
Umtalsverðar skemmdir á húsum á Bolungarvík eftir að snjóflóð féllu í fyrrakvöld. Sigurgeir Jóhannsson sem býr í efsta húsinu kom hlaupandi og sagði snjóflóð hafa fallið á húsið sitt og rúður brotnað. Við hringdum í nágrannana til að aðvara þá og í bæjarstjórann, en strax að því loknu fórum við út og skömmu síðar féll flóðið á húsið okkar. Sem betur fer lést enginn eða meiddist, en eignartjónið er gríðarlegt," segir Stefanía Birgisdóttir, sem flúði heimili sitt í Dísarlandi 10 í Bolungarvík í fyrrakvöld ásamt eiginmanni sínum, Olgeiri Hávarðarsyni, og þremur börnum á aldrinum 9 til 16 ára. Um 150-180 manns var gert að yfirgefa heimili sín á Bolungarvík í fyrrakvöld, í samræmi við rýmingaráætlun. Einnig voru hús í Hnífsdal rýmd svo og við Grænagarð og Seljaland á Ísafirði, ellefu íbúar þurftu að yfirgefa hús sín í eldri hluta Súðavíkur og fjörutíu og níu íbúar neyddust til að fara úr húsum sínum á Flateyri.
Snjóflóðið féll á hús Sigurgeirs Jóhannssonar gröfustjóra í Dísarlandi 14 og hús nágranna hans númer 13 um klukkan 19:30. Hann var að moka snjó niðri í bæ þegar Guðlaug Elíasdóttir kona hans hringdi og lét vita. Sigurgeir sagði fréttaritara að það hefði verið sitt fyrsta verk, þegar hann kom upp í Dísarland og sá hvers kyns var, að hafa samband við nágranna sína í húsum nr. 10 og 12 og almannavarnanefnd. Síðar um kvöldið, eða um klukkan 21.30, fór Sigurgeir ásamt syni sínum að heimili þeirra til að sækja bíl og búnað. Voru þeir í húsinu um stund og var Sigurgeir í símasambandi við bæjarverkstjórann er seinna flóðið féll og varð af því mikill hvellur. Það mikill að viðmælandi hans á hinum enda símalínunnar heyrði hann greinilega. Það flóð náði ekki til húss Sigurgeirs en hreif hins vegar bíl sem stóð á hlaðinu og þeytti honum upp að húsinu, um 2 metra. Olgeir Hávarðsson kannaði skemmdir lauslega í gærmorgun ásamt bæjarstjóra, og kom þá í ljós að svefnherbergisálma húss hans er mjög illa farin, að sögn Ólafs Kristjánssonar bæjarstjóra. Svo virðist sem loftþrýstingurinn á undan flóðinu hafi mölvað rúðurnar þannig að snjórinn átti greiða leið inn. Svefnherbergin þrjú eru nánast full af snjó og milliveggir hafa látið undan, segir Ólafur. Einnig sprakk langur skjólveggur fyrir ofan húsið.
Snjór fór jafnframt inn í einingahús við hlið þeirra, í Dísarlandi 8, og er um sjötíu sentimetra þykkt lag af snjó í stofunni þar, auk þess sem flóðið ruddi til húsgögnum og braut glerið í svalahurð. Ég held að fólk eigi almennt erfitt með að gera sér grein fyrir kraftinum, segir Stefanía. Þau hjónin hafa búið í húsinu á sautjánda ár og hefur aldrei staðið nein ógn af snjóflóðahættu til þessa. Við þurftum að rýma húsið þegar snjóflóðin féllu á Súðavík og í Tungudal, en annars aldrei, og höfum ekki leitt hugann mikið að þessari hættu. Miðað við það sem við höfum heyrt gæti flóðið nú verið af því tagi sem fellur á þúsund ára fresti." Við þökkum bara fyrir að þessi spýja kom um áttaleytið á efsta húsið og veitti okkur viðvörun, þannig að við höfðum vit á að flýja húsið. Snjóflóðaeftirlitsmaður og fulltrúar almannavarna voru þarna um tveimur tímum áður og töldu enga hætta á ferð, segir hún.
Í sama blaði er einnig frétt af ráðstefnu um Gjálpargosið haustið 1996:
Ráðstefna um gosið í Vatnajökli. Jarðfræðafélag Íslands gekkst í gær fyrir ráðstefnu um eldgosið í Vatnajökli síðastliðið haust og var á ráðstefnunni kynnt sitthvað af rannsóknum jarðvísindamanna á eldsumbrotunum og afleiðingum þeirra. Flutt voru 25 erindi um skjálfta, eldgos, hlaup, jarðefnafræði, landmótun og samgöngur og sýnd veggspjöld til skýringar. Meðal þess sem fram kom á ráðstefnunni í gærmorgun er að vísindamenn telja talsverðar líkur á því að á umbrotasvæðinu í Vatnajökli verði næstu áratugir viðburðaríkari en þeir sem nýliðnir eru. Þá kom fram að efnasamsetning ísúrs gjóskulagsins úr gosinu 1996 er svipuð og á tímabilinu 1885-1889 og hugsanlega 1938, en önnur en ísúrra gjóskulaga sem talin eru ættuð frá Grímsvatnakerfinu. Því sé umhugsunarefni hvort nýr kafli í gossögu Vatnajökuls hafi byrjað með ísúra gosinu milli 1885 og 1889 og hvort eldstöðvakerfi milli þeirra tveggja sem virkust hafa verið sé að vakna af dvala.
Fyrstu daga marsmánaðar urðu mikil sjóslys, mannskaði varð, en þó minni en á horfðist vegna vasklegrar framgöngu þyrlusveitar Landhelgisgæslunnar. Fyrst strandaði flutningaskipið Vikartindur, síðan fórst Dísarfell og að lokum fiskiskipið Þorsteinn GK. Pistlarnir hér að neðan eru mjög styttir - en mikil illviðri gengu þessa daga en þau ollu ekki miklu tjóni á landi.
Morgunblaðið segir frá 6.mars:
Nítján manna áhöfn þýska flutningaskipsins Vikartinds var bjargað af þyrlu Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF, í gærkvöldi [5.mars], þegar skipið strandaði í fjörunni fyrir neðan Þykkvabæ laust fyrir klukkan 20:30. Skipið hafði þá verið í nauðum um hálfa aðra sjómílu frá landi síðan í gærmorgun. Varðskipið Ægir fékk á sig brot þegar reynt var að koma dráttartaug á milli skipanna, og skemmdist mikið, og er eins skipverja saknað. Fjörur voru gengnar í gærkvöldi og í nótt í leit að manninum. ... Skömmu eftir hádegi í gær barst Landhelgisgæslunni tilkynning frá Vikartindi, sem er 9.200 tonn að stærð og hefur verið í leigu hjá Eimskip frá lokum júlí í fyrra. Þá var skipið um sex sjómílur frá landi útaf Þjórsárósum, í suð-vestan hvassviðri, eða um 8-9 vindstigum, og náði ölduhæð þá allt að tólf metrum. Skipið rak að landi með tveggja og hálfrar sjómílu hraða þegar tilkynningin barst.
Mikill órói var í veðri þessa daga og sjólag afleitt. Kortið sýnir dýpstu lægðina í syrpunni. Hún gekk yfir austanvert landið þann 6. mars og olli töluverðri snjókomu vestanlands, en ofan í hana gerði síðan mikla hláku þegar önnur lægð fór til norðausturs fyrir vestan land aðeins tveimur dögum síðar.
Kortið sýnir síðari lægðina. Morgunblaðið segir af illviðrum 9.mars:
Þungfært var víða um land í gærdag [8.] og lá allt innanlandsflug niðri vegna ókyrrðar og ísingar í lofti. Í gærmorgun var sunnanátt og níu til tíu vindstig, rigning og hlýnandi veður víða um land, en eftir hádegi dró úr vindi. Á norðanverðu Snæfellsnesi og um Kerlingaskarð og Fróðárheiði voru vegir ófærir. Einnig var ófært um Holtavörðuheiði. Á sunnanverðum Vestfjörðum var ófært um Kleifaheiði, Mikladal og Hálfdán, en á norðanverðum Vestfjörðum var ófært um Óshlíð vegna snjóflóða og beðið átekta með mokstur þar. Þá var þungfært um Ísafjarðardjúp og Steingrímsfjarðarheiði og suður frá Hólmavík í Hrútafjörð. Að öðru leyti voru aðalvegir landsins færir, þó víða væri hálka. Fólksbíll fauk út af veginum á móts við Hvammsvík um sjöleytið í gærmorgun og endaði á hvolfi um þrjátíu metra utan vegar, að sögn lögreglunnar í Reykjavík. Ökumaður bílsins slapp svo til ómeiddur.
Mikill vatnselgur myndaðist á götum Reykjavíkur í gær og unnu borgarstarfsmenn að því fram eftir degi að hreinsa snjó og rusl úr niðurföllum. Slökkviliði Reykjavíkur barst tilkynning um vatnsleka í tvö hús í Kópavoginum í gær vegna vatnselgsins. Skemmdir voru óverulegar. Töluvert stórt snjóflóð og nokkur lítil féllu á Óshlíðarveg milli Ísafjarðar og Bolungarvíkur í fyrrinótt og gærmorgun. Talið er að fyrsta og stærsta flóðið hafi fallið skömmu eftir miðnætti, eða um eittleytið. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar í Bolungarvík er harla ólíklegt að nokkur umferð hafi verið á veginum þar sem veður hafi verið mjög slæmt og færð miður góð. Vegurinn var ruddur snemma í gærmorgun en þegar ruðningsmenn voru á leið aftur til Bolungarvíkur hafði nýtt snjóflóð fallið. Samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar í hádeginu í gær var óvíst hvenær tækist að opna veginn. Í dag er útlit fyrir suðvestanátt og slydduél um sunnan- og vestanvert landið en léttskýjað á Norðausturlandi.
DV segir frá Dísarfellsslysinu 10 mars (mikið stytt hér):
Skömmu fyrir klukkan fjögur í fyrrinótt kom tilkynning til Landhelgisgæslunnar frá Reykjavikurradíói um að slagsiða væri komin á Dísarfellið, 20-30 gráða halli og 15 gámar hefðu losnað og farið í sjóinn. Skipið var statt nánast miðja vegu á milli Íslands og Færeyja, 100 sjómílur suðsuðaustur af Hornafirði. Klukkan 4:51 kom tilkynning um að hallinn á skipinu væri orðinn 60 gráður, fjórir gámar til viðbótar höfðu þá farið í sjóinn, svo og annar tveggja björgunarbáta skipsins. Þá kallaði stjórnstöð Landhelgisgæslunnar út áhöfn þyrlunnar. ...
Og daginn eftir, 11.mars segir DV frá óförum Þorsteins GK:
Það var um klukkan 14:46 í gær að haft var samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar úr Þorsteini GK, 178 tonna stálskipi úr Grindavík, og tilkynnt að báturinn hefði fengið veiðarfæri í skrúfuna tæpa sjómílu undan Krísuvíkurbergi. Veður var vont og rak bátinn með landinu. Akkeri voru látin falla til öryggis og áhöfn þyrlunnar, TF-LÍF, var beðin að vera í viðbragðsstöðu. Þegar í ljós kom að báturinn ætti í vandræðum með akkerin var þyrlan send strax á staðinn. Um klukkan 16:40 rak Þorstein að landi án þess að bátar, sem þá vora komnir á staðinn, næðu til hans og eftir að hafa fylgst með bátnum berjast í briminu er óhætt að fullyrða að næsta lítið standi eftir af honum eftir nóttina. Með hverjum hálftímanum sem leið fylgdust menn með því hvernig skipið brotnaði meir og meir undan þunga sjávarins. TF-LÍF, þyrla Landhelgigæslunnar, hefur nú á tæpri viku bjargað 39 mönnum úr sjávarháska. -sv
Flutningabíll með tengivagn fór út af veginum í Kollafirði í Strandasýslu í nótt. Ökumaður missti stjórn á bílnum í vonskuveðri með þeim afleiðingum að hann valt út fyrir veginn en ökumaður slapp ómeiddur. Í tengivagninum voru um 20 tonn af rækju og fór hún öll út úr vagninum. Björgunarsveitin Dagrenning á Hólmavík var kölluð að slysstað vegna blindbyls og ófærðar. Ekki vildi betur til en að snjóflóð féll á bíl björgunarsveitarinnar í svokölluðum Grindarkrók á Hvalsárhöfða og stöðvaðist bíllinn á vegarbrúninni. Ekki urðu slys á fólki. RR
Eftir þetta róaðist veður nokkuð, en talsverður snjór var þó í byggðum landsins. Morgunblaðið segir 18.mars frá vandræðum við Þjórsá:
Selfossi. Morgunblaðið. Þjórsá flæðir nú yfir bakka sína í Villingaholtshreppi og virðist sem klakastífla hafi myndast í ánni með þeim afleiðingum að áin rennur úr farvegi sínum og flæðir inn á land. Þjórsá hefur rofið skarð í veginn fyrir neðan Egilsstaðakot og er hann nú í sundur á þremur stuttum köflum. Áin flæðir inn á lönd kartöflubænda og í gegnum varnargarða sem reistir voru til þess að verjast flóðum sem þessum. Að sögn Guðsteins Hermundssonar, bónda á Egilsstöðum, er ekki um stórflóð að ræða en upphlaup sem þessi eru samt óvenjuleg við þær aðstæður sem eru núna, ekki mikið um leysingar og ennþá kalt í veðri. Svo virðist sem mikil klakamyndun sé orsök þess að áin hafi breytt um farveg. Áin er einnig óvenju vatnsmikil og kann að vera að samspil þessara þátta orsaki þessi flóð, sagði Guðsteinn. Hann taldi jafnvel mögulegt að um væri að kenna miklu streymi frá virkjanasvæði Landsvirkjunar og það er ekki gott ef rétt er, segir Guðsteinn.
Áin flæðir nú yfir landið í Syðri-Gróf, sem er töluvert neðar en Egilsstaðir. Þar eru engir varnargarðar og umlykur vatnið bæinn og kartöflugeymslur eru í hættu vegna vatnsins. Þetta er mjög slæmt mál, þeir hjá Landsvirkjun hafa aukið vatnsrennslið í Þjórsá og það er ástæðan fyrir þessum flóðum. Menn verða að vita hvað þeir eru að gera, það þýðir ekki að dæla vatninu endalaust af hálendinu, það verður að skila sér rétta leið til sjávar," segir Bjarni Jónsson, bóndi í Syðri-Gróf. Þjórsá flæddi síðast á svipuðum slóðum árið 1977 og þá vora reistir varnargarðar til þess að stöðva framrás árinnar. Þeir gera sitt gagn svo langt sem þeir ná en ekki halda þeir þó öllu vatninu í skefjum. Að sögn Valgerðar Gestsdóttur, húsfreyju í Mjósyndi, var flóðið 1977 mjög mikið og vatnið rann heim að bæjum. Það olli tjóni og nú virðist sem sagan sé að endurtaka sig. Þorsteinn Hilmarsson, upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar, sagði aðspurður um fullyrðingar Guðsteins að síðustu daga og vikur hefðu engar sveiflur orðið á vatnsrennsli í Þjórsá. Þessar fullyrðingar koma okkur á óvart. Rennsli í ánni ræðst af framleiðslu í Búrfellsvirkjun og hún er stöðug. Staðreyndin er sú að miðlun vatns veldur stöðugu rennsli en dregur jafnframt úr hættu á ísstíflu og þrepahlaupum," sagði hann. Þorsteinn sagði að hugsanlega mætti rekja tildrög flóðsins til frosthörku síðustu daga en það kynni að leiða til þess að áin bólgnaði út.
En fljótt dró úr flóðinu. Morgunblaðið 19.mars:
Mikið hafði dregið úr vatnselgnum við bæi í Villingaholtshreppi í gær en Þjórsá flóði yfir bakka sína þar í fyrradag. Bjarni Pálsson, bóndi í Syðri-Gróf, segir að mun meira vatnsrennsli sé í Þjórsá en náttúran geri ráð fyrir vegna virkjanaframkvæmda en ekkert hafi verið gert til þess að breyta farvegi árinnar. Vatnið fór yfir lönd Forsætis, Syðri-Grófar og Mjósunds. Bjarni segir að vetrarrennsli Þjórsár hafi aukist mjög mikið. Það þarf að hanna virkjanir með það fyrir augum að vatnið komist alla leið til sjávar. Tuttugu ár eru síðan síðasta flóð kom sem var mjög svipað að um fangi og núna. Í kjölfar þess voru byggðir varnargarðar hjá Mjósundi, næsta bæ fyrir neðan Syðri-Gróf, og hann hefur bjargað mjög miklu núna, sagði Bjarni. Bjarni segir að flóðið í fyrradag sé þó í raun aðeins brot af öllu vatnsmagninu sem er í Þjórsá. Við verstu hugsanlegu aðstæður gæti allt það vatnsmagn farið yfir lönd bænda og út í það þyrðu menn ekki að hugsa. Bjarni sagði að hugsanlega gæti flóðið nú valdið kalskemmdum á túnum ef langvarandi frost fylgdu á eftir og auk þess verða skemmdir á girðingum.
Í apríl og maí var lítið um tíðindi í veðri. Lýsingu má finna í Veðráttunni. Næst dró til verulegra tíðinda snemma í júní þegar óvenjulegt hret gerði. Frá hretinu er greint í sérstökum bloggpistli hungurdiska. Júníhretið 1997. Fróðlegur lestur.
Í hretinu, sem stóð 4. til 8. - og var viðloðandi lengur, sá víða á gróðri. Óvenjumikill munur var á hita þ.3. og 4., víða vel yfir 20 stig norðanlands fyrri daginn, en frost þann síðari. Mjög víða snjóaði og snjó festi um mestallt norðan- og austanvert landið. Ekki hefur mælst meira frost í Vestmannaeyjum í júní, en mælingar hófust þar 1877. Að morgni þess 8. var alhvít jörð á Eyrarbakka og Lækjarbakka. Þann 15. var alhvít jörð í Skagafirði, snjódýpt mældist 15 cm í Litlu-Hlíð og 4 cm á Nautabúi.
Júlí þótti votviðrasamur sunnanlands og heyskapartíð erfið. Þann 11. júlí gerði mikið þrumuveður í Hornafirði. DV segir frá því 14.júlí:
DV.Höfn: Það var alveg óskaplegur hávaði hér í þrumuveðrinu og ljósagangurinn eftir því. Það nötraði allt þegar mest var og ein eldingin kom í túnið hér skammt framan við bæinn, sagði Svanhvít Kristjánsdóttir í Árnanesi. Holan sem kom í túnið þegar eldingunni laust niður er einn og hálfur metri á dýpt og átta minni holur eru í kringum hana. Svanhvít sagði að börnin hefðu verið skelfilega hrædd meðan þrumuveðrið gekk yfir enda hefðu þau aldrei kynnst nokkru þessu líku. Þrumuveðrið sem gekk yfir Hornafjörð á föstudagskvöldið stóð yfir í tæpa klukkustund og muna menn ekki eftir slíku óveðri sem hefur staðið svo lengi með sífelldum þrumum og ljósagangi allan tímann. Rafmagnslaust varð í sveitunum allt suður í Öræfi þegar 5 dreifispennar skemmdust. Nokkra klukkutíma tók að koma rafmagninu á, einkum í Öræfum, Suðursveit og Mýrum. Öræfingar urðu símasambandslausir og erfitt reyndist að fá varahluti á staðinn vegna þess að ekki var hægt að fljúga til Hornafjarðar og þá var vænlegast að fá þá til Egilsstaða og með bíl þaðan. Áætlað tjón RARIK af völdum þrumuveðursins er áætlað 1,5-2 milljónir króna. Heyrst hefur að mörg rafmagnstæki á heimilum hafi skemmst. JI
Fyrri hluti ágústmánaðar bauð upp á ólíka stöðu veðurkerfa, með afskaplega ólíku veðri.
Kortið sýnir 500 hPa hæð og þykkt um hádegi miðvikudaginn 6. ágúst. Í háloftunum er óvenju köld suðvestanátt yfir landinu. Þessa daga var ritstjóri hungurdiska á lítilli ráðstefnu veðursagnfræðinga í Reykjavík. Þann 7. var haldið á Þingvöll í sérlega hryssingslegu, en eftirminnilegu veðri. Þykktin er stöku sinnum minni en þetta fyrri hluta ágústmánaðar, en nær eingöngu í norðlægum áttum.
Vindur snerist síðan um stund til norðurs og það kólnaði enn frekar á landinu. Kortið hér að ofan gildir að morgni þess 9. Þá snjóaði á Grímsstöðum á Fjöllum í hita nærri frostmarki og hiti var ekki nema 4 til 5 stig á láglendi um mikinn hluta Norðurlands. En á aðeins örfáum dögum skipti rækilega um.
Þann 12. ágúst var mikið háþrýstisvæði yfir landinu og hlýtt loft allt um kring. Vandinn var sá að vindur var svo hægur að illa gekk að hreinsa leifar kalda loftsins burt. Hlýjast varð því inn til landsins og á heiðum uppi. Á Hvanneyri í Borgarfirði fór hiti í 30 stig, en viðurkennist ekki sem met. Rökstuðning með og á móti má lesa í pistli hungurdiska um hæsta hita á Íslandi - smáflettingar þarf áður en komið er að atvikinu 11. ágúst 1997. Á kortinu má sjá að þykktin norðan við land er meiri en 5640 metrar, óvenjulega hátt. Í sumum greiningum þess tíma mátti meira að segja sjá 5700 metra þykkt í niðurstreyminu við austurströnd Grænlands. Hvort þeirri ævintýralegu tölu hefur verið náð í raun og veru vitum við ekki.
Á landinu í heild náði hitabylgjan hámarki þann 13. Þá komst hiti í 27,0 stig á Grímsstöðum á Fjöllum (sjá kortið að ofan) og mjög hlýtt var um nær allt land. Hiti á mestöllu hálendinu yfir 20 stig og komst meira að segja í meir en 25 stig á Holtavörðuheiði.
Morgunblaðið segir af heyskaparhorfum 13. ágúst:
Þrálátir óþurrkar á Suður- og Vesturlandi hafa valdið bændum miklum erfiðleikum við heyskap. Jón Vilmundarson, ráðunautur hjá Búnaðarsambandi Suðurlands, sagði að allmargir bændur á Suðurlandi hefðu verið skammt á veg komnir um síðustu helgi þegar þriggja vikna óþurrkakafla lauk. Það sem af er þessari viku hefur verið mjög góð heyskapartíð um allt land og bændur hafa því keppst við. Jón sagði að bændur sem væru vel tækjum búnir, með rúlluvélar eða öfluga súrþurrkun, væru að verða búnir með fyrri slátt. Aðrir væru mjög stutt á veg komnir. Bændur sem byggju eingöngu með sauðfé eða hross hefðu ekki sömu þörf fyrir að slá grasið í snemma og kúabændur og þeir væru því almennt styttra komnir með sinn heyskap. Kúabændur sem ekki hafa annaðhvort rúlluvélar eða heita súrþurrkun eru í vondri stöðu, sagði Jón. Jón sagði að hey hefðu víða hrakist mikið í sumar og væru því léleg að gæðum. Gras væri einnig úr sér sprottið eftir óhemju góða sprettutíð í júlí, en þá fóru saman miklar rigningar og hátt hitastig. Jón sagði að bændur kepptust við í heyskap þessa dagana. Allar horfur væru á að staðan myndi því batna verulega ef þurrt yrði í veðri út þessa viku.
En þrátt fyrir rýra þurrka mátti samt segja að það slyppi til með heyskapinn. Tíð var bærileg síðari hluta ágústmánaðar og fram í september. Mest var kvartað suðaustanlands. Næturfrost um miðjan september spilltu garðauppskeru nokkuð.
Morgunblaðið segir þann 10.september af sandstormi á Mýrdalssandi, alldjúp lægð fór hratt til austurs fyrir norðan land og fylgdi henni hvöss vestlæg átt:
Fagradal - Mikill sandstormur var á Mýrdalssandi allan síðastliðinn mánudag [8.], af þeim sökum var vegurinn yfir sandinn lokaður þar til vindinn lægði á mánudagskvöld. Einar Sveinbjörnsson hjá Veðurstofu íslands segir orsökina vera hvassa vestnorðvestanátt og mjög þurrt loft ættað frá Grænlandi. Hann sagði loftrakann á Norðurhjáleigu í Álftaveri hafa verið 23%, sem er óvenju þurrt loft. Bændur á Suðurlandi hafa átt í erfiðleikum með heyskap vegna stöðugra óþurrka og áttu margir því töluvert aflausu heyi á túnum vegna þess að það spáði þurrki sem reyndar stóðst en rokið olli því að heymagnið ódrýgðist töluvert því að um leið og heyið þornaði fór það að fjúka. Girðingar og skurðir fylltust af heyi og bændur áttu í mesta basli með að ná því sem eftir var af heyi úr girðingum og skurðum í gærmorgun.
Óvenjulega hlýtt varð á Norður- og Austurlandi þann 23. Hiti mældist þá 21,5 stig á Akureyri, sá hæsti svo seint í mánuðinum. Síðan þá hefur hiti tvisvar náð 20 stigum sléttum á Akureyri síðar, þann 24. árið 2019 og 25. árið 2022.
Undir lok september kom sérlega djúp lægð að landinu, ein sú dýpsta sem vitað er um í þeim mánuði. Kortið sýnir stöðuna seint að kvöldi þess 28. Þó lægðin kæmi þá sömu slóð og gamlir fellibyljir sem til Íslands koma fara hefur ekki tekist að tengja hana slíku - vel má þó vera að einhver hvarfbaugshroði (eins og ritstjóri hungurdiska kallar þessi suðrænu kerfi) hafi verið á ferð. Nokkurt tjón varð í þessu veðri.
Morgunblaðið segir frá 30.september:
Mikil röskun varð í óveðrinu á innanlandsflugi, rafmagnsstaurar brotnuðu í Hjaltastaðaþinghá og í Jökulsárhlíð, hlaða sprakk á Borgarfirði eystra og plötumar fuku um allt, bílar skemmdust þegar vinnupallar hrundu ofan á þá við flugturninn á Reykjavíkurflugvelli og kanadísk herflugvél fór út af brautinni á Keflavíkurflugvelli. Einar segir að lægðin, sem var mjög djúp og vatnsþrungin, hafi komið upp að landinu á sunnudag með suðaustan- og austanátt. Lægðarmiðjan hafi svo farið norður með fyrir vestan landið í fyrrinótt og vindur snúist til vestanáttar, fyrst sunnanlands. Síðan hafi vind hert af alvöru í gærmorgun um land allt, og víða farið í 9-10 vindstig og sumstaðar jafnvel 11, einkum til fjalla. Þar sem þessi vestanátt slær sér niður hlémegin fjalla verður vindur oft mjög byljóttur, eins og í Skagafirði, víða á Austfjörðum og í Jökulsárhlíð," segir hann. Lægðarmiðjan fyrir norðan landið fór að grynnast síðdegis í gær og dró þá kaldara loft inn á Vestfirði, þar sem fór að snjóa um hádegisbilið og var víða hált á vegum.
Víða á hálendinu var mikið moldrok og sandfok. Af þeim sökum var til dæmis ekki nema um 500 metra skyggni á Grímsstöðum á Fjöllum um miðjan dag í gær. Einar gerði ráð fyrir að veðrið myndi ganga niður í nótt og í morgun, og verða skaplegt víðast hvar á landinu í dag en þó rigning allra syðst. Í kvöld myndi svo ganga í norðanátt með kólnandi veðri. Næstu daga er útlit fyrir nokkuð rysjótt veður. Mikil röskun varð á flugi innanlands í gær. Snemma í gærmorgun flugu þó vélar frá Íslandsflugi til Akureyrar, Sauðárkróks, Ísafjarðar og Bíldudals en önnur vél sem lagði af stað á Ísafjörð eftir hádegið varð að snúa við og lenda í Reykjavík. Undir kvöld var flogið á Sauðárkrók og frá Vestmannaeyjum og til baka en öðru flugi var aflýst. Flugfélag Íslands fór eina ferð til Akureyrar í gærmorgun og aðra á Ísafjörð um hádegið en úr því var ekkert hægt að fljúga fyrr en undir kvöld. Þá stóð til að fara til Vestmannaeyja og á Sauðárkrók og jafnvel á Húsavík og Hornafjörð.
Í gærmorgun varð ófært yfir Mýrdalssand vegna sandfoks en um miðjan dag var aftur orðið fært. Þá var ófært yfir Möðrudalsöræfi vegna mikils sandroks og þar voru jafnvel steinar á flugi í 9-10 vindstigum, að sögn Pálma Jónssonar, vegaeftirlitsmanns hjá Vegagerð ríkisins. Á Holtavörðuheiði var einnig verulega hvasst um miðjan dag í gær, eða 10-11 vindstig. Staurastæða í stofnlínunni frá Lagarfossvirkjun til Vopnafjarðar, nánar tiltekið í Jökulsárhlíð, brotnaði um tíuleytið í gærmorgun í norðvestanhvassviðri. Erfitt var að vinna að viðgerð í gær vegna veðurs en að sögn Sigurðar Eymundssonar, umdæmisstjóra RARIK á Austurlandi, var Vopnafjarðarsvæðinu séð fyrir rafmagni með díselvélum. Unnið var að því að flytja efni á staðinn í gær og undirbúa viðgerð, sem ráðgert var að hefja snemma í morgun. Sigurður sagði vonir standa til að viðgerð yrði lokið um hádegi í dag. Á sunnudag féll einnig staur um koll í Hjaltastaðaþinghá og orsakaði straumleysi þar í sveit í á þriðju klukkustund.
Á bænum Bakka í Borgarfirði eystra sprakk hlaða bókstaflega í loft upp í gær og dreifðust járnplötumar um allt þorp og jafnvel út á sjó. Ekkert hey var í hlöðunni. Guðmundur Sveinsson, bóndi á Bakka, telur að plata hafi losnað af hlöðunni rokmegin og þar sem hlaðan hafi verið þétt hinumegin hafi eitthvað orðið að láta undan. Þannig að hún hreinlega sprakk og steyptur sjö metra hár stafn lagðist út af, rétt eins og maður leggur aftur Morgunblaðið, sagði Guðmundur. Hann tók fram að veggurinn hefði verið rammlega járnbentur og hefði átt að standast jarðskjálfta en hlaðan hefði ekki staðist allt þetta loft, sem blés inn í hana af miklum krafti en komst hvergi út. Þá lenti danskur ferðamaður í hremmingum á Skeiðarársandi í hávaðaroki um hádegi á sunnudag þegar rör úr ræsi kom fjúkandi á fleygiferð á eftir honum. Að sögn Önnu Maríu Ragnarsdóttur, hótelstjóra á Hótel Skaftafelli, gaf maðurinn í en það dugði ekki til, rörið náði honum, klippti afturbrettið af bílnum og skemmdi hann mikið.
Flugmenn kanadískrar herþotu lentu í erfiðleikum eftir lendingu í suðvestanrokinu í gærmorgun. Þegar verið var að aka vélinni inn á flughlað eftir lendingu misstu flugmennirnir stjórn á henni með þeim afleiðingum að vélin hafnaði úti í móa og sat þar föst. Slökkviliðsmenn voru fljótir til og lögðu bílum sínum áveðurs til að verja hana frá því að fjúka aftur auk þess sem þeir settu loftpúða undir vængina. Að sögn Haralds Stefánssonar slökkviliðsstjóra má telja fullvíst að með því móti hafi tekist að verja vélina frá verulegum skemmdum. Vélin, sem er af tegundinni CL-60, var að koma frá Kanada og millilenti á Keflavíkurflugvelli. Í henni voru 5 manns og sakaði engan. Mjög hvasst var af suðvestan þegar óhappið varð. Vélin lenti á braut 29 sem liggur frá austri til vesturs. Henni var síðan ekið eftir akstursbraut flugvéla sem liggur meðfram norður-suður flugbrautinni. Þar misstu flugmennirnir vélina út af til hægri og þegar þeir keyrðu hana inn á akstursbrautina aftur flaug hún nánast út af hinum megin. Slökkviliðið náði vélinni upp síðdegis með því að lyfta henni upp með loftpúðum og síðan var hún dregin upp á brautina aftur. Talið er að litlar sem engar skemmdir hafi orðið á vélinni.
Ég hef aldrei séð svona áður, en hef þó orðið vitni af mörgum veðrabrigðum," sagði Snæþór Vernharðsson vélstjóranemi við Verkmennaskólann á Akureyri, en hann var ásamt skólabræðrum sínum um borð í Sólbak EA við Fiskihöfnina á Akureyri þegar þeir urðu vitni að því að hvirfilbylur gekk yfir frá Tryggvabraut og austur yfir Eyjafjörð síðdegis í gær. Á leið sinni austur yfir olli hvirfilbylurinn nokkrum skemmdum á þaki íþróttaskemmunnar, lausamunir á skrifstofu aðstoðarslökkviliðsstjóra fóru af stað og tvær rúður í bíl Siglingastofnunar Íslands brotnuðu. Þá tókust 6 smábátar sem stóðu upp á bakka við Skipatanga á loft og skemmdust mismikið. Einn hafnaði í sjónum, annar á hvolfi, tveir fóru á hliðina og aðrir tveir færðust úr stað. Plötur á þaki verbúða þeyttust af og lentu úti í sjó. Ingi Björnsson framkvæmdastjóri Slippstöðvarinnar var úti í glugga og sá þegar ósköpin gengu yfir og bátarnir tókust á loft. Það var hreint ótrúlegt að sjá þetta, strókurinn hélt svo áfram austur yfir fjörðinn og sjórinn hreinlega lyftist upp undan honum, sagði Ingi. Vélstjóranemarnir stóðu aftan við brúna á Sólbak og um tíma fannst þeim bylurinn stefna á sig, en Snæþór sagði að engin hræðsla hefði gripið um sig í hópnum. Þetta var ekki stór hvirfilbylur, en greinilega aflmikill. Það var skrýtið að horfa á þetta. Bátarnir lyftust upp og plötumar af húsunum rifnuðu af og fylgdu bylnum og lentu út í sjó. Þetta var eiginlega bara eins og maður sér í bíó eða sjónvarpinu," sagði Snæþór.
Lægðin sem gekk yfir landið á sunnudag og í gær er sú dýpsta sem hingað hefur komið í september síðan árið 1900, samkvæmt upplýsingum Veðurstofunnar. Hún olli mikilli röskun á samgöngum í lofti, láði og á legi og víða um land varð tjón á eignum.
Október varð meinlaus að mestu. Morgunblaðið segir 6.nóvember frá aurskriðum sem féllu í Hrunamannahreppi þann 31. í kjölfar mikillar úrkomu á Suðurlandi:
Nokkrar aurskriður féllu í hlíðum Kotlaugafjalls aðfaranótt föstudagsins sl. Aðfaranótt föstudagsins 31.október féllu margar aurskriður hér í hreppnum [Hrunamannahrepp]. Langflestar féllu úr Kotlaugafjalli eða nær 20 ef allar smáspýjur eru taldar með. Sú stærsta fór aðeins tvo metra frá vatnsbólinu við bæinn Kotlaugar. Þá hafa fallið 9 skriður í Kópsvatnsásum við bæinn Kópsvatn, einnig má sjá að minni skriður hafa fallið víðar svo sem í Berghylsfjalli. Þessar skriður, sem eru eðlilega mismunandi stórar, hafa valdið allnokkru tjóni á gróðri og eftir þær eru ljót sár í hlíðum. Mikið vatnsveður gekk yfir daginn á undan og þessa umræddu nótt. Þetta er ekki óalgengt fyrirbrigði að slíkar aurskriður komi þegar jarðvegur hefur safnað miklu vatni í fremur grunnan gróður ofan á bergi. Elstu menn muna þó ekki eftir að svo margar og stórar skriður hafi fallið hér um slóðir. Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Þann 2.nóvember gerði fjárskaðahríð í Vestur-Skaftafellssýslu. Hana bar nokkuð óvænt að og Veðurstofan gagnrýnd. Kortið að ofan sýnir stöðuna síðdegis daginn áður, 1.nóvember. Sumarlegt ástand myndu margir segja. Afskaplega grunnar lægðir fyrir sunnan land, greiningin finnur þrjár, engin þeirra er dýpri en 1020 hPa. Fyrir 70 árum hefði verið mjög erfitt að átta sig á hættunni í þessari stöðu, en árið 1997 hafði tölvuspám farið svo fram að þær sýndu töluverða dýpkun á þessu lægðakerfi, á háloftakortum er staðan talsvert ákveðnari, allsnarpt lægðardrag undan Grænlandi suðaustanverðu á leið austur. Á þessu korti gætir þessa lægðardrags ekki - það er barmafullt af köldu lofti, en hlýtt loft sækir á móti sunnan úr hafi. Örin sýnir hreyfingu þeirrar miðju sem varð að aðallægðinni. Hún dýpkaði næsta sólarhringinn um hátt í 30 hPa, það köllum við óðadýpkun. Þrýstispönn yfir landið fór upp fyrir 25 hPa, eins og í (næst-) verstu veðrum. Nú man ritstjórinn auðvitað ekki glöggt hversu mikilli dýpkun spár gerðu ráð fyrir, en örugglega var hún ekki fjarri sanni. Annar vandi var líka á ferð, til þess að gera hafði farið vel með veður og það var ekki sérlega kuldalegt. Nú fór - eins og stundum. Hin mikla úrkoma - öll mynduð sem snjór - var nægilega mikil til þess að loftið sem hún féll niður í kólnaði fljótt niður að frostmarki eða rétt niður fyrir það - og úr varð mikil hríð.
Kortið að ofan sýnir stöðuna síðdegis 2.nóvember. Hiti er vel ofan frostmarks á Vestfjörðum, við Breiðafjörð og suður á Faxaflóa, en úrkoma er í Reykjavík og hiti þar um 1. stig. Slydduhríð eða jafnvel snjókoma er um mestallt Suðurland. Eins og áður sagði olli veðrið miklum fjársköðum, staðbundið. Morgunblaðið segir frá 5.nóvember:
Menn úr þremur björgunarsveitum og bændur í Skaftártungu í Vestur-Skaftafellssýslu leituðu í gær að fé, sem talið er að hafi drepist þegar fennti yfir það á sunnudagskvöld [2.]. Ekki er vitað hvað margar kindur hafa drepist, en í gær höfðu um 120 kindur fundist dauðar og talið er að margar séu enn ófundnar. Kindurnar fennti í kaf í roki og snjókomu, sem gerði á sunnudagskvöld. Bændur fundu dautt fé á mánudag og í gær voru björgunarsveitir kvaddar á vettvang til að hjálpa til við leitina. Sigurður Pétursson, bóndi á Búlandi í Skaftártungu, sagði í gær að leit gengi ágætlega, en hægt vegna þess hvað giljótt væri og seinlegt að athafna sig. Snjórinn er allur í giljunum því að þetta var svo sterkt veður sagði Sigurður. Það hafa sennilega 14 kindur fundist dauðar af mínum bæ og það er eitthvað á nánast öllum bæjum. Hann sagði að verið væri að reyna að smala fyrir myrkur og kvaðst ekkert geta sagt til um það hvað margar myndu ekki skila sér, féð væri það dreift. Það fé, sem við höfum fundið lifandi, er ekki mjög hrakið, sagði hann. Við fundum eina lifandi í skafli og þrjár dauðar." Kvaðst hann telja að sú, sem fannst lifandi, myndi ná sér. Hann sagði að kindurnar hefðu sennilega hrakist ofan í vatnselg því að allir lækir væru uppblásnir og bólgnir af snjó og krapa. Hann sagði að bændurnir í Skaftártungu hefðu gert sér grein fyrir því hvað málið var alvarlegt þegar á mánudag og þá hefðu þeir þegar verið farnir að finna dautt fé, en þeir hefðu viljað kanna aðstæður áður en gripið yrði til stóraðgerða. Hann taldi hins vegar að það hefði ekki verið hægt að ná fleiri kindum lifandi þótt farið hefði verið fyrr af stað.
Oddsteinn Sæmundsson, bóndi á bænum Múla, kvaðst ekki vita hvað hann hefði orðið fyrir miklu tjóni, en í gær hafði hann grafið milli 50 og 60 kindur úr fónn og þar af væru 14 dauðar. Hann sagði að snjórinn hefði verið mjög blautur og kindurnar hefðu kafnað: Þær drepast á skömmum tíma þegar snjórinn er þungur og sígur skart. Erfitt er að átta sig á því hvað fjárskaðinn er mikill og það kemur í fyrsta lagi fram í dag. Það vantar mikið í þessari sveit, sagði Oddsteinn. Það eru fleiri hundruð fjár sem eru farin það er alveg vitað. Það er hálfu verra hér innar í sveitinni." Hann sagði að leitin gengi hægt: Þetta er svo sem enginn snjór en það eru nógu stórir skaflar þar sem þeir eru. Þetta var slíkt hvassviðri að féð hraktist ofan í lautir og læki. Það voru milli 30 og 40 í einum haug í sama skaflinum hjá mér [á mánudag] og það var á þriðja metra niður á sumt af því. Oddsteinn sagði að þetta hefði verið á litlum bletti og hefðu kindurnar fundist með því að notaðar voru stangir. Það sást í eina kind út úr skaflinum, sagði hann. ,Af því vissi maður að þarna voru kindur enda hafði fennt áður í þessari laut. Oddsteinn kvaðst muna eftir öðru eins rétt eftir 1960, en það hefði verið mánuði síðar: Þá gerði grenjandi byl með miklu meiri snjó og þá urðu miklir fjárskaðar hér um allt.
Talið var að nautgripir hefðu einnig drepist í veðrinu, en síðdegis í gær fundust geldneytin á lífi. Að sögn Harðar tóku menn úr björgunarsveitunum Kyndli á Kirkjubæjarklaustri og Víkverja úr Vík í Mýrdal þátt í leitinni auk a.m.k. eins manns úr Álftaveri. Einnig tóku bændur þátt í henni og taldi Davíð að orðið hefði skaði á hverjum einasta bæ í Skaftártungu. Veðrið brast á að kvöldi sunnudags og virtist að sögn Harðar sakleysislegt. Klukkan tíu í gærmorgun var haft samband við hjálparsveitina Kyndil. Sagði hann að smala ætti þar til dimma tæki í gærkvöldi, en ekki væri hægt að leita eftir myrkur.
Ásgeir Sigurðsson, bóndi á Ljótarstöðum, var búinn að finna 31 kind dauða í gær, en hann átti rúmlega 300 kindur. Hann sagðist ekki gera sér grein fyrir hvað hann hefði misst margar kindur í veðrinu, en þær væru mun fleiri en þessar sem þegar hefðu fundist. Líkurnar á því að bjarga fleiri kindum úr fönninni færu minnkandi vegna þess að það hefði rignt á mánudag og frosið í kjölfarið. Skaflarnir væru því afar harðir og lítið loft kæmist niður í fönnina. Skömmu áður en veðrið skall á setti Ásgeir lömbin inn í fjárhús og sagði hann að það hefði bjargað miklu því búast mætti við að þau væru flest dauð ef þau hefðu verið úti. Hann sagði að stór hópur kinda hefði hrakist undan veðrinu ofan í krapatjörn og drepist þar. Flestar kindur sem hefðu náðst lifandi úr sköflunum myndu hafa það af. Ein kind hefði þó drepist eftir að hún kom í hús. Ásgeir sagðist ekki vera allskostar ánægður með frammistöðu Veðurstofunnar. Hún hefði spáð súld eða rigningu og síðan vaxandi suðaustanátt og rigningu um kvöldið. Bændur hefðu því ekki talið ástæðu til að smala.
Daginn eftir voru frekari fréttir. Morgunblaðið 6.nóvember:
Svo virðist sem bærinn Ljótarstaðir hafi farið verst út úr óveðrinu, sem brast á að kvöldi sunnudags með þeim afleiðingum að sennilega drápust að minnsta kosti 224 kindur á átta bæjum í Skaftártungu í Vestur-Skaftafellssýslu. 31 kind hefur fundist dauð á bænum og 43 er saknað, en í gær gerðust þau óvæntu tíðindi að tvær fundust lifandi í djúpum skafli.
[Valur Oddsteinsson í Úthlíð] sagði að áhlaup á auða jörð væri það versta, sem gæti gerst. Hann hafði fundið 10 kindur dauðar í gær, en saknaði sjö. Hann sagði að eftir mikið óveður árið 1961, þegar varð nokkur fjárskaði, þótt ekki hefði verið jafn mikill og nú, hefði hann heitið því að láta slíkt ekki koma fyrir aftur. Síðan hefði hann ávallt haft varann á og oft smalað í fjárhús án þess að þess hefði verið þörf. Á sunnudag hefði verið kraparigning og gránað í rót, en hann hefði metið stöðuna þannig að ekki bæri að aðhafast, enda hefði því verið spáð að frekar myndi hlýna. Um kvöldið hefði hins vegar gert öskubyl. Veðurspá gaf ekki tilefni til aðgerða Ásgeir á Ljótarstöðum gagnrýndi veðurspána. Spáð hefði verið hlýnandi veðri, en síðan gert slíkt bál að fé fennti á túninu við bæinn. Hann sagði að skyggni hefði ekki verið nema nokkrir metrar. Benti því til staðfestingar á heyrúllur rétt fyrir utan eldhúsglugga sinn og sagði að vart hefði mátt greina þær.
Eftir þetta áfall var tíð lengst af góð í nóvember, hlýindi og gróður jafnvel í sprettu. Desember var einnig hlýr og óvenju snjóléttur. Veður voru lengst af góð.
Hlýindin náðu hámarki um miðjan mánuð. Morgunblaðið segir frá 16.desember:
Hlýindi hafa staðið um allt land síðustu daga, sjaldgæf en ekki einstök að sögn Unnar Ólafsdóttur veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands. Hún sagði suðaustlægar áttir ríkja áfram, heldur hægari þó, og að veður færi heldur kólnandi þegar liði á vikuna. Unnur sagði hlýindakafla sem þessa sjaldgæfa en ekki einstaka, þeir kæmu stöku sinnum að vetrarlagi. Opinbert hitamet var þó slegið í Vopnafirði á sunnudag þar sem mældist 18,2 stiga hiti á Skjaldþingsstöðum. Árið 1988 mældist 18 stiga hiti á Seyðisfirði sem er einn mesti hiti í desember. Í Reykjavík mældist mest 10 stiga hiti í gær og víða á Austurlandi hefur verið 12-14 eða jafnvel 16 stiga hiti síðustu daga. Unnur sagði hæð austan við landið og lægð vestan við valda þessum hlýindum og suðlægum vindum sem kæmu lengst sunnan úr höfum. Hún sagði suðaustlægar áttir ríkja næstu daga, úrkoman færi minnkandi og hitinn myndi einnig lækka og jafnvel gæti orðið frost í vikulokin.
Skriður féllu á vegi á nokkrum stöðum á Austfjörðum og Vestfjörðum í hlýindum og vatnagangi um helgina. Þegar frost fór úr fjallshlíðum í skyndilegri þíðunni undanfarna daga losnaði um aur og grjót og sigu skriður niður á vegi. Hvergi mun hafa orðið alvarlegt tjón né heldur verulegar tafir. Á Austurlandi féllu grjótskriður á þjóðveginn í Þvottár- og Hvalnesskriðum, svo og lítils háttar í Kambanesskriðum. Páll Elísson, rekstrarstjóri Vegagerðarinnar á Austurlandi, sagði að umferð hefði lítið truflast þar sem skriðurnar hefðu fallið aðfaranætur sunnudags og mánudags og fljótlegt hefði verið að ryðja grjótinu burt. Ekki sagði hann að teljandi skemmdir hefðu orðið á vegunum. Páll sagði að í blíðunni undanfarið hefðu starfsmenn Vegagerðarinnar unnið dæmigerð vorverk, m.a. farið yfir stikur, lagfært þær og sett upp nýjar þar sem vantaði. Þægilegt væri að vinna slík verk í 14-15 stiga hita.
Akureyri: Fólksbíll skemmdist nokkuð er þak af vinnuskúr í Giljahverfi fauk á bílinn í hvassviðri skömmu eftir hádegi í gær. Einnig fuku tunnur af flutningabíl og skemmdu fólksbíl. Töluvert hvassviðri var á Akureyri í gær og á sunnudag og fór ýmislegt lauslegt af stað, auk þess sem jólatré og skreytingar skemmdust. Lögreglan á Akureyri hafði þó ekki haft spurnir af miklu tjóni né meiðslum á fólki seinni partinn í gær. Jólatré við Akureyrarkirkju fauk í gær. Þá brotnaði toppurinn af hinu stóra jólatré Akureyringa á Ráðhústorgi á sunnudag.
Hlýindin ríktu allt fram yfir jól, en nokkuð kólnaði milli jóla og nýárs. Þá fór mjög djúp lægð til norðurs vestur af landinu, en tjón varð lítið í hvassviðrinu sem fylgdi lægðinni. Morgunblaðið segir frá sjávarflóði 31.desember:
Sjór flæddi inn í hús í Vík í Mýrdal á háflóði í gærkvöldi [30.], en sjávarhæð var óvenju mikil. Að sögn Reynis Ragnarssonar lögregluvarðstjóra flæddi inn í kjallara Víkurprjóns og að Víkurskála. Sjór hefði einnig náð inn á syðstu götuna í bænum. Mjög vont veður var fram eftir degi í gær, en það hafði gengið niður á háflóði og því varð ekki verulegt tjón í flóðinu.
Lýkur hér frásögn hungurdiska um veður og tíðarfar á árinu 1997. Ýmsar tölulegar upplýsingar eru í viðhenginu.
Flokkur: Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 17:25 | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.3.): 58
- Sl. sólarhring: 260
- Sl. viku: 1934
- Frá upphafi: 2454602
Annað
- Innlit í dag: 51
- Innlit sl. viku: 1760
- Gestir í dag: 49
- IP-tölur í dag: 49
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning