Smáviðrasamt?

Oft er talað um stórviðri eða að tíð hafi verið stórviðrasöm. Því er auðvitað upplagt að segja að veðurlag sé „smáviðrasamt“. Fyrir ekki svo mörgum árum hefði ritstjóranum samt þótt það orð harla fáránlegt - kannski orðið til hjá fjölmiðlungum (sem alltaf er verið að skamma fyrir eitthvað - stundum ómaklega). En sannleikurinn er sá að einhver hefð er á bakvið notkun hugtaksins. Sést endrum og sinnum í gömlum mánaðaryfirlitum veðurathugunarmanna og virðist eiga við tíðarfar þegar breytileiki er nokkur í veðri en öll veður eru fremur smágerð, úrkomur ekki mjög miklar, vindur ekki heldur og kraftur hrakviðra með minnsta móti. 

Veðurlag um þessar mundir er dálítið svona. Það er ekki endilega blíðutíð og veður skiptast á (þó sérlega sólríkt og þurrt hafi verið sumstaðar suðvestanlands). En samt er þetta varla nákvæmlega það sem veðurathugunarmennirnir áttu við - við skulum hugsa málið betur.

w-blogg200323a

Hér að ofan er kort sem sýnir stöðuna á norðurhveli - eins og evrópureiknimiðstöðin vill hafa hana síðdegis á morgun (föstudag 21. júlí). Jafnhæðarlínur 500 hPa-flatarins eru heildregnar. Þær sýna vindstyrk og stefnu. Litir marka þykktina, en hún mælir hita í neðri hluta veðrahvolfs. Því meiri sem hún er því hlýrra er loftið. Það er hlýtt um mestallt hvelið (eins og vera ber á hlýjasta tíma ársins). 

Hér við land er meðalþykkt í júlí 5460 metrar - á mörkum gulu og grænu litanna á kortinu - rétt eins og spáð er á morgun. Allt með felldu hvað það varðar. Aðalvindátt í háloftunum er úr norðvestri hér við land - en mjög hæg - um og innan við 10 m/s í rúmlega 5 km hæð. Neðar, í 850 hPa og þar undir, er áttin óráðin, mjög hæg. Þetta er í aðalatriðum veðurlagið sem spáð er fram yfir helgi - smábylgjur koma með norðvestanáttinni og fara til suðausturs fyrir suðvestan land. Frekast er gert ráð fyrir því að heldur kólni. 

Norður í Íshafi er öflugur kuldapollur. Hann hreyfist þar í hringi og kemur ekki við sögu hér nema eitthvað stuggi við honum og beini honum hingað (heldur ólíklegt - í bili að minnsta kosti). Að tiltölu er frekar svalt á Bretlandseyjum og í sunnanverðri Skandinavíu. Við sjáum að þykktin þar er svipuð og hér eða litlu meiri - en ætti að vera í kringum 5550 metrar. Slíkt vik er nægilega mikið til þess að mönnum þykir kalt.

w-blogg200323b

Kortið sýnir spá fyrir næstu viku (mánudag 24. til sunnudags 30.júlí). Svipað hér - mjög hæg norðvestlæg átt ríkjandi og þykktin svipuð og í meðallagi, litir sýna hér þykktarvik. Mikið  neikvætt þykktarvik er yfir Norðursjó, -55 metrar. Þar er hita spáð meir en 2 stigum neðan meðallags, og mikilli lægðasveigju á jafnhæðarlínum - og tvöfaldri meðalúrkomu. Hér segir spáin hins vegar frá úrkomu undir meðallagi - en samt ekki þurru alla daga. Annars væri gott að fá rigningu á Suðvesturlandi til að vökva gróður og kannski hreinsa eitthvað af þessari leiðindamengun frá gosinu - sem er kannski ekki beinlínis hættuleg (nema ofan í því) en spillir útliti lofts og himins. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • w-blogg040524c
  • w-blogg040524b
  • w-blogg040524a
  • w-blogg020524b
  • w-blogg020524a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 238
  • Sl. sólarhring: 323
  • Sl. viku: 1324
  • Frá upphafi: 2352283

Annað

  • Innlit í dag: 208
  • Innlit sl. viku: 1194
  • Gestir í dag: 200
  • IP-tölur í dag: 200

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband