Úrkomumet?

Eins og fram hefur komið í fréttum mældist nú gríðarmikil úrkoma í Grundarfirði. Á úrkomusíðunni á vef Veðurstofunnar má sjá mælingu frá því kl.9 miðvikudaginn 7.júní (2023) til kl.9 morguninn eftir komu 86,4 mm í mælinn, og sólarhringinn þar á eftir mældust 159,0 mm. Samtals eru þetta 245,6 mm.

Spurt er hvort hér sé um met að ræða í júnímánuði (en hann er að jafnaði annað hvort þurrasti eða næstþurrasti mánuður ársins). Það er ekki alveg létt að svara því svo vel sé. Ritstjóri hungurdiska hefur þó grafið sig í gegnum gagnagrunn Veðurstofunnar og telur nærri því víst að þetta sé júnímet - en aðeins, sé miðað við tvo sólarhringa. Sé miðað við styttri tíma flækist málið nokkuð. Lengi vel var úrkoma aðeins mæld einu sinni á sólarhring, kl.9 að morgni. Þegar farið var að senda veðurskeyti var á þeim stöðvum einnig mælt kl.18. Ástæður eru fyrir þessu tímavali, en við látum þær liggja milli hluta hér. Eftir að sjálfvirkar úrkomumælingar komu til sögunnar er hægt að miða við venjulegan sólarhring (frá klukkumiðnætti til klukkumiðnættis) og má gera ráð fyrir að slíkt verði gert í framtíðinni. Ef við gerum það hér hækkar sólarhringstalan í Grundarfirði upp í 184,0 mm. Ákefðin hittir sem sagt betur í venjulegan sólarhring heldur en þann sem kenndur er við úrkomumælinguna. Þetta er auðvitað almennt vandamál sem truflar aftakagreiningu. Við vitum eitthvað um venjulega lengd ákefðartímabila, nóg til þess að geta fullyrt að flest sólarhringsmet, (stöðvamet, dægurmet, mánaðamet, landsmet) eru í raun eitthvað of lág - miðað við það að ákefðin hitti sem „best“ í mælitímabilið. Rétt er þó að geta þess að núverandi landsúrkomumet hitti afburðavel í mælisólarhringinn (sjá pistil um það á vef Veðurstofunnar).

Opinbert Íslandsmet júnísólarhringsúrkomu er 187,9 mm, sett á Skjaldþingsstöðum í Vopnafirði þann 24. árið 2017. Hvorug Grundarfjarðarmælingin nú nær þeirri tölu og nær því ekki að vera júnímet fyrir landið. Eins og áður sagði er hins vegar vafalítið um tveggja-sólarhringamet að ræða. Við verðum þó að hafa í huga að úrvinnsla sjálfvirkra úrkomumælinga er nú (því miður) talsvert langt á eftir tímanum og staðfesting á þessu meti fæst varla á næstunni. En fljótt á litið virðist mælingin í lagi.

Úrkoma hefur að minnsta kosti fimm sinnum mælst meiri en 184.0 mm í júlí, mest 201,1 mm á Hánefsstöðum við Seyðisfjörð þann 2. árið 2005. Hæsta talan í maí (mönnuð stöð) er 159,6 mm, mældist í Neskaupstað þann 13. árið 2017, og sama dag mældi sjálfvirka stöðin (réttur sólarhringur) 180,3 mm. Gætum við valið að byrja á hvaða tíma sólarhrings sem er, yrði sólarhringshámarkið hins vegar 223,6 mm - ákafasta úrkoman hitti því illa í sólarhringinn. Úrhellið á Grundarfirði nú hitti hins vegar mjög vel í (réttan) sólarhring, en mun verr í úrkomumælisólarhringinn, hæsta 24-stunda talan er 184,3 mm, aðeins 0,3 mm hærri en sú sem áður var nefnd hér að ofan.

Þess má geta - í framhjáhlaupi - að síðustu 100 árin hefur maí 23 sinnum verið þurrasti mánuður ársins í Reykjavík og 23 sinnum hefur júní verið það. Desember hefur aðeins einu sinni verið þurrasti mánuður ársins (1976). Maí hefur aldrei verið votasti mánuður ársins síðustu öldina í Reykjavík, en júní einu sinni (1960).


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 190
  • Sl. sólarhring: 358
  • Sl. viku: 1506
  • Frá upphafi: 2349975

Annað

  • Innlit í dag: 165
  • Innlit sl. viku: 1368
  • Gestir í dag: 164
  • IP-tölur í dag: 159

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband