Kólnandi veđur

Undanfarna daga hefur veriđ tiltölulega hlýtt loft yfir landinu, jafnvel frostlaust eđa frostlítiđ á fjallatindum. Himinninn hefur hins vegar veriđ nánast heiđur og vindur mjög hćgur ţannig ađ talsvert hefur náđ ađ kólna í allra neđstu lögum, sérstaklega á flatlendi inn til landsins og í dćldum í landslagi. Um leiđ og vind hefur hreyft lítillega hefur ţetta kalda loft náđ ađ blandast upp og hiti fariđ upp undir eđa yfir frostmarkiđ. Ţar sem ofanloftiđ hefur náđ niđur - eins og á stöku stađ viđ fjöll hefur hiti jafnvel fariđ í 6-8 stig. Í veđurlagi sem ţessu má hafa talsverđa skemmtan af ţví ađ fylgjast međ bílhitamćlum. Geta menn ekiđ úr 4 til 7 stiga hita inn í talsvert frost á ađeins fáeinum kílómetrum (eđa enn styttri vegalengd). 

En hiđ raunverulega kalda norđanloft sćkir nú ađ fyrir alvöru. Fram á miđvikudag á hiti í neđri hluta veđrahvolfs ađ falla um á ađ giska 5 stig og síđan jafnvel önnur fimm fram á föstudag. Ţar sem vindur vex jafnframt eitthvađ mun ţessa hitafalls gćta í mjög mismiklum mćli - og ţađ jafnvel snúast viđ sums stađar ţar sem frostiđ hefur veriđ hvađ mest undanfarna daga. 

w-blogg121222a

Hér má sjá kort sem sýnir stöđuna (ađ mati evrópureiknimiđstöđvarinnar) síđdegis á miđvikudag. Jafnhćđarlínur eru heildregnar. Af ţeim má ráđa vindstefnu og styrk í rúmlega 5 km hćđ. Í stađ hćgviđrisins sem ríkt hefur yfir landinu ađ undanförnu er fariđ ađ blása ákveđiđ af norđvestri í háloftum og ber norđvestanáttin grunn lćgđardrög međ sér ađ vestan til suđausturs yfir Grćnland (rauđar punktalínur). Jafnframt lćđist mjög kalt loft úr norđri til suđurs međ Grćnlandi austanverđu og í átt til okkar međ norđlćgari átt í neđri lögum. Í dag (mánudag 12. desember) var ţykktin yfir landinu 5280 metrar (um 30 metrum yfir međalagi árstímans), en viđ sjáum af kortinu (litirnir) ađ síđdegis á miđvikudaginn er búist viđ ađ ţykktin verđi komin niđur í um 5140 metra yfir miđju landi. Ţađ hefur kólnađ um 140 metra, eđa um 7 stig. Eins og áđur sagđi kólnar sums stađar svo mikiđ, en annars stađar nćrri ţví ekki neitt - vegna betra sambands milli ţess lofts sem hefur fengiđ ađ kólna í friđi yfir landinu undanfarna daga og ţess sem ofar liggur. 

Eins og sjá má á kortinu eru ţessi norđvestanlćgđardrög heldur veigalítil ađ sjá ţarna á miđvikudaginn. Gagnvart ţeim eiga reiknilíkön í ákveđnum erfiđleikum. Grćnland truflar framrás ţeirra mismikiđ eftir hćđ - og síđan eru samskipti ţeirra viđ sjóinn og loftiđ ađ norđan vandamál - ţar sem einhver smáatriđi kunna ađ skipta höfuđmáli fyrir frekari ţróun. 

Svo virđist sem fyrra lćgđardragiđ geri ekki mikiđ. Éljabakkar myndast ţó ábyggilega á Grćnlandshafi. Fram á föstudag á síđan ađ kólna ennţá meira. Spáruna dagsins gerir ráđ fyrir ţví ađ kaldast verđi á föstudagamorgunn, ţá verđi ţykktin yfir miđju landi ekki nema 5040 metrar. Sé ţetta rétt hefur kólnunin frá í dag og fram á föstudag orđiđ 12 stig. Ţađ er verulegt. 

Hvađ síđan gerist á föstudaginn vitum viđ ekki gjörla. Nái ţetta síđara lćgđardrag - eđa fylgja ţess ađ grafa um sig á Grćnlandshafi getur í raun allt gerst - allt frá ţví ađ ţetta renni hjá tiltölulega tíđindalítiđ - yfir í verulega lćgđarmyndun međ illviđri og úrkomu. Fćri ţá eftir ţví hvar og hvenćr sú myndun ćtti sér stađ hvort hann hrykki í hríđargír eđa hláku. Viđ veltum ekki frekari vöngum yfir ţví hér í dag, en ćtli sé samt ekki betra ađ gera ráđ fyrir einhverju veseni frá og međ föstudegi - ţađ vesen gćti stađiđ í nokkra daga. Fylgist alla vega vel međ spám Veđurstofunnar. 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 8
  • Sl. sólarhring: 226
  • Sl. viku: 1930
  • Frá upphafi: 2350799

Annađ

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 1724
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband