Fyrri hluti apríl

Fremur kalt var fyrstu daga mánaðarins, en síðan hefur smám saman hlýnað. Meðalhiti það sem af er er nú +3,2 stig í Reykjavík, +0,3 stigum ofan meðallags sömu daga árin 1991 til 2020 og í meðallagi síðustu tíu ára. Hitinn raðast í 12. hlýjasta sæti (af 22) á öldinni. Hlýjastur var fyrri hluti apríl árið 2003, meðalhiti þá 5,1 stig, en kaldastur var hann 2006, meðalhiti +0,4 stig. Á langa listanum er hitinn nú í 44. sæti (af 150). Hlýjastir voru sömu dagar 1929, meðalhiti þá 6,6 stig, en kaldast var 1876, meðalhiti -4,1 stig.

Á Akureyri er meðalhiti dagana 15 +1,4 stig, -0,2 stigum neðan meðallags 1991 til 2020, og einnig -0,2 stig neðan meðallags síðustu 10 ára.

Að tiltölu hefur verið hlýjast á Suðurlandi, hiti raðast þar í 11. hlýjasta sæti aldarinnar, en kaldast hefur verið á Norðurlandi eystra, Austurlandi að Glettingi og Austfjörðum. Þar raðast hitinn í 15. sæti.

Á Sámsstöðum er hiti +0,7 stigum ofan meðallags síðustu tíu ára, en neikvætt vik er mest á Dalatanga, Kambanesi og Vatnsskarði eystra, -1,2 stig.

Úrkoma í Reykjavík hefur mælst 53,6 mm, rúm 50 prósent ofan meðallags. Á Akureyri hefur úrkoman mælst 12,7 mm og er það um 70 prósent meðalúrkomu.

Sólskinsstundir hafa mælst 73,6 í Reykjavík, og er það í meðallagi. Á Akureyri hafa sólskinsstundirnar mælst 39,9, 17 færri en í meðalári.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Mars 2025
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31          

Nýjustu myndir

  • w-blogg230325a
  • Slide15
  • Slide14
  • Slide13
  • Slide12

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.3.): 5
  • Sl. sólarhring: 105
  • Sl. viku: 1339
  • Frá upphafi: 2455665

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 1199
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband