22.2.2022 | 22:16
Loft að vestan - og síðan að norðan
Nú í kvöld - þriðjudaginn 22. febrúar - er komið skaplegt veður víðast hvar á landinu eftir rúmlega sólarhringsátök. Lægðin sem sótti inn yfir landið vestanvert í nótt - miðjuþrýstingur náði niður undir 945 hPa - er nú farin að grynnast og hún hefur hörfað vestur á Grænlandshaf. Þar tekur hún hring - verður svo gripin af kaldri háloftalægð sem fer til austurs fyrir sunnan land á morgun.
Lægðin dró mikla stroku af köldu kanadalofti út yfir Atlantshaf - það er nú um það bil að ná til okkar - spurning hversu langt það fer norður á landið áður en það hörfar undan norðanáttinni sem nær undirtökum á landinu síðdegis og annað kvöld (miðvikudag).
Á miðnætti í kvöld verður staðan þessi (að sögn harmonie-líkansins).
Úrkomubakkinn við Suðurland er jaðar köldu strokunnar ð vestan. Ólgar þar og hrærist - vel blandað í glasi. Töluverð úrkoma virðist vera í þessum bakka. Þess vegna er spurning hvort bætir á snjóinn hér suðvestanlands í nótt eða í fyrramálið. Stendur það glöggt - því norðanáttin sækir fram fyrir norðan okkur. Við sjáum gríðarmikinn streng úti á Grænlandssundi. Heldur dregur úr honum þegar hann fellur suður yfir landið - en er þó nægilega öflugur til þess að Veðurstofan er með aðvaranir í gildi vegna hans um landið norðvestanvert - við tökum mark á þeim.
Hér má sjá ratsjármynd Veðurstofunnar kl. 21:20 nú í kvöld. Allmikill kraftur er í úrkomubakkanum - og svo sýnist sem hann hafi undið eitthvað upp á sig.
Það sést jafnvel betur á þessari mynd. Þar sýnist sem bakkinn sé samsettur úr fjölda lítilla kuðunga sem liggja hlið við hlið - væntanlega skiptast á snörp uppstreymissvæði með töluverðri úrkomu og síðan úrkomuminni belti á milli. Rétt fyrir ferðalanga sunnan- og suðvestanlands að gefa þessum bakka gaum í nótt og fram eftir morgni - sömuleiðis skefur ábyggilega á vegum þegar norðanstrengurinn nær undirtökum síðdegis.
Illviðrið í gær og í dag (21. og 22.) febrúar er í flokki þeirra verri hér á landi - miðað við vindhraða sennilega í flokki 10 til 15 verstu á þessari öld. Foktjón varð víða um land - auk þess sem vatnsagi olli sköðum og samgöngur röskuðust. Raflínur sködduðust.
Nokkur tími verður þar til vindhraðamet á einstökum stöðvum verða staðfest - en líklega eru þau flest í lagi. Ársvindhraðamet voru slegin á þessum veðurstöðvum (upphafsár í sviga - aðeins stöðvar sem hafa mælt í meir en 18 ár eru tilgreindar): Haugur í Miðfirði (2003), Kálfhóll á Skeiðum (2003), Veiðivatnahraun (1993), við Gullfoss (2001), Skálholt (1998), Víkurskarð (1995) og Vatnsskarð eystra (1999). Uppgjör dagsins í dag (þriðjudags) hefur ekki borist þannig að hugsanlega bætast fleiri stöðvar við listann. Fjöldi febrúarmeta féll.
Eins og minnst var á hér að ofan er þetta kalda loft sem sækir að landinu úr suðri sérlega vel hrært. Það sést vel á myndinni hér að neðan.
Þetta er þversnið frá suðri (vinstra megin) til norðurs (hægra megin) - eftir 23°V, frá 63 til 67°N. Litir og vindörvar sýna vindátt og vindstyrk, en heildregnar línur mættishita. Það óvenjulega á þessari mynd er það hversu fáar jafnmættishitalínurnar eru. Yfir Faxaflóa er enga línu að finna fyrr en upp í um 700 hPa (3 km hæð) og þar fyrir ofan eru línurnar mjög gisnar, allt upp að veðrahvörfum í um 400 hPa hæð. Ofan veðrahvarfa (sem eru til þess að gera neðarlega) eru jafnmættishitalínur mjög þéttar að vanda. Eftir sólarhring verða 5 jafnmættishitalínur neðan 700 hPa ofan Faxaflóa - mun venjulegra ástand. Þéttni jafnmættishitalína sýnir hversu vel loftið er blandað (hrært) - því færri sem þær eru því betur er blandað. Þeir (fáu) sem fylgjast með myndum af þessu tagi ættu að gefa þessu gaum.
Flokkur: Vísindi og fræði | Breytt 23.2.2022 kl. 01:47 | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 174
- Sl. sólarhring: 386
- Sl. viku: 1969
- Frá upphafi: 2412989
Annað
- Innlit í dag: 162
- Innlit sl. viku: 1762
- Gestir í dag: 161
- IP-tölur í dag: 159
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.