10.1.2022 | 22:35
Knútsbylur - 7. janúar 1886
Í samantektarpistli um veður á árinu 1886 sem birtist hér á hungurdiskum fyrir allnokkru er minnst á mikið illviðri sem gerði á landinu á Knútsdag, 7. janúar 1886. Bylur þessi varð mörgum eftirminnilegur og Halldór Pálsson frá Nesi í Loðmundarfirði tók saman um hann heila bók þar sem safnað er saman ýmsum fróðleik um veðrið og afleiðingar þess - staðreyndir og munnmæli. Þessi bók [Knútsbylur] kom út 1965 og vakti sem vonlegt var athygli ungra veðurnörda.
Þó bókin sé ítarleg var þar ekkert fjallað um eðli veðursins - hvers konar veður þetta var. Fyrir um 35 árum eða svo leit ritstjóri hungurdiska á málið - fór yfir helstu veðurathuganir og komst að einhvers konar niðurstöðu. Ekkert varð þó úr frekari umfjöllun. Í áðurnefndu yfirliti um árið 1886 segir hann hins vegar: Þann 7.janúar (Knútsdag] gerði fárviðri um landið austanvert og er það síðan kennt við daginn og kallað knútsbylur. Verða því vonandi gerð betri skil síðar hér á hungurdiskum. Margri umfjöllun hefur ritstjórinn lofað - og ekki staðið við - en hér er þó gerð tilraun til að krafsa í þá freðnu jörð. Skaðar í veðrinu verða þó ekki tíundaðir hér - heldur er vísað í áðurnefndan pistil - og auðvitað bók Halldórs Pálssonar. Rifjum þó upp setningu úr Fréttum frá Íslandi (1886):
[Sjöunda] janúar var mesta afspyrnurok á Austurlandi; fauk þá nýsmíðuð kirkja á Kálfafellsstað í Suðursveit af grunni og brotnaði, menn týndust, fiskhús fuku, fjárhús rauf, skútur rak upp og um 1000 fjár fórst þar.
Norðan- og norðaustanveður hér á landi eru af ýmsum toga. Þegar ritstjórinn fór að kanna málið komst hann fljótt að því að veðrið var skylt páskahretunum miklu 1963 og 1917 og þar með háloftalægðardragi sem kom úr vestri eða norðvestri handan yfir Grænland. Þó varla væri vafi á þessu voru árið 1987 litlir möguleikar á að staðfesta að svo væri. Þetta var löngu fyrir tíma háloftaathugana. Nú er hins vegar farið að reyna að greina veður langt aftur í tímann á aflfræðilegan hátt í reiknilíkönum. Þó mikil óvissa fylgi slíkum reikningum gefa þeir þó mjög oft góðar vísbendingar um eðli veðra 140 til 150 ár aftur í tímann - og í undantekningatilvikum jafnvel enn lengra. Bandaríska veðurstofan hefur verið í fararbroddi slíkra reikninga fyrir 19.öld og hefur þrisvar birt niðurstöður sem ná til veðurs á árinu 1886. Svo vill til að niðurstaðan varðandi Knútsbyl er heldur síðri í þriðju heldur en annarri tilraun. Gögn úr þeirri annarri (kallast c20v2) eru því notuð hér.
Hér má sjá ágiskun líkansins á hæð 500 hPa-flatarins um miðnætti aðfaranótt 7. janúar 1886. Gríðarmikil hæð er austur af Nýfundnalandi og norðan og norðaustan við hana er vindstrengur úr norðvestri - þvert yfir Grænland - ekki ósvipað og var í áðurnefndum páskahretum. Munurinn er helst sá að bylgjan fer hraðar hjá heldur en í hretunum tveimur. Við nánari athugun kemur í ljós að reikningarnir gera of lítið úr veðrinu. Ástæður geta verið ýmsar. Við verðum að hafa í huga að engar háloftaathuganir er að hafa, aðeins fáeinar stöðvar eru á Vestur-Grænlandi (engin á austurströndinni) og engar stöðvar í öllu norðanverðu Kanada. Takmarkaðar upplýsingar eru því um útbreiðslu og afl kalda loftsins. Svipað má segja um hæðina hlýju - styrkur hennar gæti hæglega verið vanmetinn líka. Engar athuganir er þar að hafa á stóru svæði.
Veðurkortið síðdegis á þrettándanum (6. janúar) er heldur sakleysislegt við Ísland (ekki ósvipað kortum dagana á undan páskahretunum). Dálítil lægð er á Grænlandshafi en mikil hæð suðvestur í hafi. Sé þrýstingur á kortinu við Ísland borinn saman við raunveruleikann - þann sem mældur var á stöðvunum þennan dag eru villur ekki miklar. Þó var vindur á stöðvunum um kvöldið of mikill til þess að þetta geti verið alveg rétt greining. Ákveðin norðaustanátt var í Grímsey bæði kl. 14 og 21. Logn var í Stykkishólmi kl.14, en kl.21 var vindur þar af vestri, talinn 4 vindstig þess tíma. Athugunarmaður í Hólminum, Árni Thorlacius (eða kannski Ólafur sonur hans), var nokkuð örlátur á vindstigin. Fimm vindstig kvarðans voru talin stormur (9 vindstig á Beaufort) og fjögur áttu að vera 7-8 vindstig. Líklegra er að vindur í Hólminum hefði að okkar máli mælst 10-13 m/s fremur en 14-20. En sama er það - jafnþrýstilínur á þessu korti gefa ekki tilefni til 10-13 m/s af vestri. Vestanátt var sömuleiðis í Vestmannaeyjum.
Um landið sunnan- og vestanvert hlánaði aðeins þann 6. en hiti féll síðan mjög ört.
Svo vill til að við eigum upplýsingar um hita á klukkustundar fresti þessa daga í Reykjavík - úr hitamælaskýli sem stóð í garði Schierbeck landlæknis nærri Austurvelli. Við sjáum að það rétt svo hlánaði að kvöldi þess 6., en strax upp úr miðnætti hrapaði hitinn og um hádegi þann 7. (Knútsdag) var komið -10 stiga frost. Enn kaldara varð daginn eftir, en síðan linaði aftur þann 9. Ekki vitum við hvernig vindáttum var háttað í Reykjavík þessa nótt.
Í Reykjavík var sömuleiðis loftþrýstiriti, af honum sjáum við hvernig þrýstingur breyttist í þessu veðri. Það hjálpar okkur líka.
Með því að bera saman ritið og þrýsting sem lesinn var af kvikasilfursloftvog finnum við að ferillinn liggur um 16 mm of hátt á blaðinu (sú lega er málamiðlun til að mjög lágur þrýstingur týnist ekki út af blaðinu, neðsta lína þess er 724 mm (= 965 hPa). Þrýstingur féll síðdegis þann 6. - samtals um 17 mm (23 hPa), en um miðnætti hætti hann að falla og skömmu síðar hrapaði hitinn. Miðja háloftadragsins var þó ekki farin yfir - hún gerði það væntanlega ekki fyrr en þrýstingurinn fór að rísa ákveðið um kl.5 um nóttina. Blási vindur á annað borð samfara svona miklu hitafalli - og rísi þrýstingur ekki á sama tíma - má heita ávísun á eitthvað illt í efni (ekki endilega á sama stað).
Við getum notað þetta þrýstirit til stuðnings til að búa til rit fyrir aðrar stöðvar. Teigarhorn og Stykkishólm. Ritstjórinn gerði það fyrir meir en 39 árum og sýnir næsta mynd riss hans frá þeim tíma - sett inn á hefðbundið þrýstiritablað.
Bláa línan er einfaldlega sú sama og Reykjavíkurþrýstiritið sýnir. Græna línan á að sýna þrýsting í Stykkishólmi, en sú fjólubláa þrýsting á Teigarhorni. Á þessum stöðvum var mælt þrisvar á dag á þessum árum. Á Teigarhorni er þrýstifallið miklu meira heldur en á hinum stöðvunum, í kringum 40 hPa. Kl.8 um morguninn er þrýstimunur á Reykjavík og Stykkishólmi um 9 hPa, það gefur tilefni til vinds á bilinu 15-25 m/s. Munurinn á Stykkishólmi og Teigarhorni er mestur um morguninn, um 38 hPa. Í Stykkishólmi voru þá talin norðaustan 5 vindstig (ef við reiknum með ofmati gætum við talað um 15-18 m/s). Slíkur vindur þýðir að ítrasta þrýstispönn yfir landinu (munur á hæsta og lægsta þrýstingi) hefur verið meiri, e.t.v. yfir 40 hPa. Slíkur munur er óvenjulegur - aðeins örfá dæmi sem við eigum á skrá og ekkert í norðanátt. Höfum þó í huga að ekki hefur miklum tíma verið eytt hér í að fara yfir þrýstiathuganirnar. Vel má vera að slík yfirferð myndi draga eitthvað úr hámarkstölunni - en þó ekki svo að veðrið komist úr flokki þeirra óvenjulegu. Í páskahretinu 1917 var mesti þrýstimunur um 37 hPa og 32 hPa í hretinu 1963.
Veðurathuganir voru gerðar á nokkrum stöðvum á landinu á þessum tíma. Af þeim athugunum er ljóst að veðrið var talsvert verra á Austurlandi heldur en vestanlands og á Norðurlandi. Sömuleiðis stóð það ekki mjög lengi - nokkru styttra heldur en veðrin í páskahretunum sem áður er á minnst. Lægðin sneri ekki upp á sig eins og páskakerfin bæði, heldur fór hún nokkuð greitt til austurs. Veðurathugunarmaður í Þórshöfn í Færeyjum telur allt að því fárviðri daginn eftir - þegar lægðin fór þar hjá - það var óvenjulegt á þeim bæ.
Þrír athugunarmenn segja eitthvað um veðrið - tveir þeirra á dönsku. Myndin sýnir skrif þeirra.
Í lauslegri þýðingu segir Jón á Skeggjastöðum: Þann 7. blés að morgni hægur vestsuðvestan kaldi, en rétt fyrir morgunathugun snerist vindur og nú hófst ofsafengið (gressilegt) óveður af austnorðaustri. Þetta veður hefur vafalítið ólmast um land allt, á mismunandi tíma dags; og á fjölmörgum stöðum valdið miklum slysum, eyðilagt hús og drepið fólk og fénað.
Þorsteinn Jónsson í Vestmannaeyjum segir (í lauslegri þýðingu): Nóttina milli 6. og 7., frá kl. 3 til kl. 7 ólmaðist hér fárviðrislíkur stormur af vestri sem eyðilagði hitamæla nr. 8 og 9, eins og frá er greint í bréfi sem er lagt með mánaðarskýrslunni. Þetta bréf eigum við ekki.
Kl.9 um morguninn mælir Þorsteinn -8,5 stiga frost - á þann eina mæli sem óskaddaður var eftir nóttina (ekki hinn venjulegi mælir - og mælingin því óvissari en vant er). Jafnframt telur hann vind af vestri 5-6 vindstig. Líklega er það 25-30 m/s. Að saman fari svo lágur hiti og svo mikill vindur í vestanátt í Vestmannaeyjum hlýtur að vera nánast - ef ekki alveg - einstakt.
Jón Jónsson í Papey segir að þar hafi verið ofviðri frá kl.11 f.h. til 7 síðdegis. Vindstyrkur 6 (fárviðri) af norðri. Ólafur Jónsson á Teigarhorni segir fárviðri um kvöldið af norðnorðaustri. Kl.8 um morguninn voru þar 3 vindstig (um 10 m/s) af norðaustri - rétt við lægðarmiðjuna.
Hér má sjá tillögu bandarísku endurgreiningarinnar um hæð 1000 hPa-flatarins um hádegi þann 7.janúar 1886 (40 m samsvara 5 hPa). Þrýstispönnin er hér í kringum 25 hPa. Vindátt er rétt. Lægðin er um 974 hPa í miðju, um 10 hPa grynnri heldur en hin raunverulega. Þrátt fyrir allt má telja að endurgreiningunni hafi tekist mjög vel upp í þessu tilviki. Í þriðju endurgreiningunni er lægðarmiðjan 6-7 hPa grynnri, en ámóta staðsett og vindur yfir Íslandi heldur minni.
Eins og áður sagði urðu miklir skaðar í veðrinu sem er í með þeim verstu í sínum flokki, þó það stæði ekki lengi. Vafalítið skall það yfir Austurland á mjög vondum tíma dags. Í öðrum landshlutum hafa menn alls ekki hleypt fé út til beitar - nema í neyð því þar skall veðrið á um nóttina eða undir morgun.
Halldór Pálsson ritaði þrjár bækur til viðbótar um Skaðaveður áranna 1886 til 1901. Megináhersla er á Austurland - en margt er einnig tínt til úr öðrum landshlutum.
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.2.): 0
- Sl. sólarhring: 506
- Sl. viku: 2825
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2437
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.