Fyrri hluti desembermánaðar

Meðalhiti í Reykjavík fyrri hluta desember er +1,2 stig, +0,1 stigi ofan meðallags 1991 til 2020 og +0,8 stigum ofan meðallags sömu daga síðustu tíu ár og raðast í 12.hlýjasta sæti (af 21) á öldinni. Hlýjastur var fyrri hluti desember árið 2016, meðalhiti þá var +6,3 stig. Kaldastur var hann árið 2011, meðalhiti -3,4 stig. Á langa listanum er hitinn í 55.hlýjasta sæti (af 146). Fyrri hluti desember 2016 er einnig á toppnum þar, en kaldastur var fyrri hluti desember árið 1893, meðalhiti þá -5,9 stig.
 
Á Akureyri er meðalhiti nú -0,5 stig, -0,3 stigum neðan meðallags 1991-2020, en +1,1 stigum ofan meðallags sömu daga síðustu tíu árin.
 
Að tiltölu hefur verið hlýjast við Breiðafjörð og á Vestfjörðum. Þar er hitinn í 7.hlýjasta sæti aldarinnar, en kaldast hefur verið á Austurlandi að Glettingi þar sem hitinn raðast í 15.hlýjasta sæti.
 
Miðað við síðustu tíu ár hefur verið hlýjast á Húsafelli, hiti þar +2,0 stigum ofan meðallags. Kaldast hefur hins vegar verið á Brú á Jökuldal þar sem hiti er -0,8 stigum neðan meðallags síðustu tíu ára.
 
Úrkoma hefur mælst 79,7 mm í Reykjavík og er það meir en 70 prósent umfram meðallag. Úrkoma á Akureyri hefur aðeins mælst 3,5 mm og er það tíundihluti meðalúrkomu.
 
Sólskinsstundir hafa mælst 4,5 í Reykjavík, rétt undir meðallagi.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Nýjustu myndir

  • w-blogg120525a
  • w-blogg080525a
  • w-blogg070525b
  • w-blogg070525a
  • Slide8

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.5.): 239
  • Sl. sólarhring: 447
  • Sl. viku: 1812
  • Frá upphafi: 2466372

Annað

  • Innlit í dag: 228
  • Innlit sl. viku: 1668
  • Gestir í dag: 225
  • IP-tölur í dag: 223

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband