30.11.2021 | 22:25
Hlýtt ár (enn og aftur)
Meðalhiti í byggðum landsins í nóvember er mjög nærri meðallagi áranna 1991 til 2020, en lítillega neðan meðallags síðustu tíu ára. Svipað er með hita fyrstu 11 mánuði ársins, hann er lítillega yfir 30-ára meðaltalinu, en örlítið neðan meðaltals síðustu tíu ára.
Á lista yfir meðalhita síðustu 73 árin er hiti í Reykjavík í 15.hlýjasta sæti, en í því fimmtahlýjasta á Akureyri, áttundahlýjasta austur á Dalatanga. Við getum því gengið út frá því að árið 2021 verður í hópi hlýju áranna eins og öll ár þessarar aldar.
Myndin sýnir meðalhita fyrstu 11 mánaða ársins í Reykjavík. Á þessu tímabili hefur hlýnað að meðaltali um 1,1 stig á öld, en þrepaskipting er þó áberandi. Mjög hlýtt var frá því upp úr 1920 til 1965, síðan kalt, sérstaklega í kringum 1980. Hlýnunin síðan gerir meira en að vega upp kólnunina á sjöunda áratugnum - þó ekki hafi orðið miklar breytingar síðustu tuttugu árin tæp.
Eins og alltaf er verið að taka fram segir línurit sem þetta ekkert um framtíðina. Engan (eða fáa alla vega) grunaði 1920 að nú færi mikið hlýskeið í hönd - menn gengu líka alveg grunlausir á móts við kólnunina á sjöunda áratugnum. Það er helst að væntingahljóð hafi verið komið í suma í kringum aldamótin - því áberandi hnattræn hlýnun hafði þá verið í gangi í meir en áratug. En hlýnunin var, þegar hún loksins kom, mun örari heldur en vænta mátti, nánast var hægt að tala um óðahlýnun. Til allrar hamingju dró aðeins úr framsókn hennar. Hefði ákefðin haldist, væri nú meir en 1 stigi hlýrra hér á landi heldur en fyrir 20 árum.
Breytileiki hita frá ári til árs hefur verið heldur minni á núverandi hlýskeiði heldur en á því fyrra - minni heldur en ritstjóri hungurdiska hefði búist við. Hin tilviljanakennda tíðni vindátta frá ári til árs ræður um eða yfir helmingi breytileikans - kannski vægi norðanáttarinnar hafi minnkað - ekki vegna þess að hún sé sjaldséðari heldur vegna þess hversu mikið hún hefur hlýnað. En þrátt fyrir að hin almenna hnattræna hlýnun auki líkur á því að hlýskeiðið haldi áfram hér á landi megum við samt ekki ganga út frá því sem fullvísu.
Svo er spurning hvort annað þrep aukinnar hlýnunar leynist í framtíðinni? Ábyggilega heldur veðráttan þó áfram að koma okkur á óvart - rétt eins og hún hefur gert svo lengi sem elstu menn muna.
Breytileiki desemberhita er mikill - getur hnikað ársmeðalhitanum til um 0,2 til 0,6 stig frá því sem fyrstu 11 mánuðirnir spá. Verði desember mjög hlýr gæti árið endað í 5,6 stigum í Reykjavík, en verði hann mjög kaldur gæti það endað í 5,0 stigum. Meðalhiti fyrstu 11 mánaðaanna er 5,7 stig. Aðeins tvö ár frá aldamótum hefur meðalhiti í Reykjavík verið undir 5 stigum (2013 og 2015). Meðalhiti 1991 til 2020 er 5,1 stig, en meðalhiti síðustu tíu ára 5,4 stig.
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.1.): 31
- Sl. sólarhring: 128
- Sl. viku: 2478
- Frá upphafi: 2434588
Annað
- Innlit í dag: 28
- Innlit sl. viku: 2202
- Gestir í dag: 28
- IP-tölur í dag: 26
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Athugasemdir
Sæll Trausti,
Takk fyrir gott blogg.
Hefur uppbygging borgarinnar eða staðsetning hitamæla áhrif á núverandi hitatölur þá til hækkunar eða lækkunar?
Karl (IP-tala skráð) 1.12.2021 kl. 14:30
Já, staðsetningin gerir það alla vega - ójósara með uppbyggingu borgarinnar. Hitaröðin sem hér er notuð hefur verið lagfærð með tilliti til flutninga. Nú stendur til (vegna skipulagsdellu hjá borginni) að flytja mælingarnar um set. Samanburður bendir til þess að á nýja staðnum sé um 0,2 til 0,3 stigum kaldara heldur en á núverandi stað (lengri samanburð þarf þó til að staðfesta það). Sé þessi munur raunverulegur verða allar eldri hitatölur leiðréttar til nýja staðarins - þegar rætt verður um langtímamælingar í Reykjavík. Þessi breytileiki vegna flutninga er miklu minni heldur en breytileiki hita frá ári til árs - og líka talsvert minni en breytingar á áratugavísu - og lengri breytinga - og breyta reiknaðri leitni því nánast ekki neitt. En allir flutningar eru til leiðinda.
Trausti Jónsson, 1.12.2021 kl. 16:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.