Sumardagafjöldi 2020

Ritstjóri hungurdiska skilgreinir sumardaga og telur ţá. Lesa má um skilgreininguna í eldri pistlum. Í Reykjavík hafa langflestir sumardagar ársins skilađ sér í lok ágúst - međaltaliđ er ađeins tveir til ţrír dagar í september (hafa ţó orđiđ ellefu ţegar mest var). 

w-blogg010920-rvk

Í ár eru sumardagar í Reykjavík til ţessa orđnir 21 (1 fleiri heldur en langtímameđaltal 70 ára segir), en 12 dögum fćrri en ađ međallagi á ţessari öld. Ţrjú sumur á öldinni hafa skilađ fćrri sumardögum heldur en ţetta, 2001, 2013 og 2018. Komi sumardagar í september fer fjöldinn nú einnig yfir 2002 og jafnvel 2005 líka. Langflestir urđu sumardagarnir í Reykjavík 2010, 2011 og 2012. Ţó sumardagar ársins í ár (hingađ til) séu fáir miđađ viđ ţađ sem algengast hefur veriđ ađ undanförnu (í fyrra voru ţeir t.d. 43) eru ţeir samt fleiri en var nokkru sinni öll árin frá 1961 til og međ 1986. Kannski megum viđ ţví vel viđ una.

w-blogg010920-ak

Á Akureyri eru sumardagarnir nú orđnir 49 - 3 fleiri en međaltal ţessarar aldar. Ađ auki bćtast ađ jafnađi um fjórir í september (en ţar er auđvitađ ekki á vísan ađ róa). Ţó sumardagarnir hafi veriđ flestir á Akureyri 1955 og 1976 (mikil rigningasumur syđra) er međalfjöldi á ţessari öld samt 6 dögum meiri heldur en langtímameđaltaliđ segir til um. Ţađ eru ađeins tvö ár á ţessari öld sem skiluđu frekar fáum dögum, 2011 og 2015. 

Eftir nokkra daga lítum viđ svo á sumareinkunn hungurdiska (enn er beđiđ eftir lokatölum ágústmánađar). Talsvert samhengi er á milli mćlitalnanna tveggja ţannig ađ líklegt er ađ einkunnin í Reykjavík verđi lćgri en hún hefur oftast veriđ á öldinni - en viđ sjáum til. 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg160424b
  • w-blogg160424a
  • w-blogg120424c
  • w-blogg120424b
  • w-blogg120424a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 68
  • Sl. sólarhring: 115
  • Sl. viku: 1817
  • Frá upphafi: 2348695

Annađ

  • Innlit í dag: 61
  • Innlit sl. viku: 1591
  • Gestir í dag: 58
  • IP-tölur í dag: 58

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband