Býsna mikill snjór

Eins og fram hefur komið í fréttum er nú snjóþungt nokkuð víða um land. Snjó er þó mjög misskipt eins og gengur. Mestur er hann að tiltölu í Fljótum, almennt við Eyjafjörð og svæðinu þar næst austan við. Nokkuð mikill snjór er líka austanlands og verður að teljast óvenjumikill á sunnanverðum Austfjörðum (eftir því sem frést hefur til) sem og á mestöllu Suðausturlandi. Sömuleiðis er allmikill snjór sums staðar á Suðurlandi, einkum inn til sveita. Lítill snjór er hins vegar við Faxaflóa og á Snæfellsnesi - og ekki mjög mikill á vestanverðu Norðurlandi.

Á fáeinum stöðvum fyrir norðan er þetta mesti snjór frá 1995 að telja, t.d. í Fljótum og í Fnjóskadal innanverðum - á sumum stöðvum var snjór ámóta árið 2000.   


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Tröllaskaginn er furðulegt svæði. Þessi ægileg snjór í Fljótum en síðan á sama tíma nánast alautt syðst í Blönduhlíð. Eins og þetta sé ekki í sama landi þó í sama héraði sé. 

Hjalti Þórðarson (IP-tala skráð) 14.3.2020 kl. 17:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Júlí 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Nýjustu myndir

  • w-blogg220724b
  • w-blogg220724a
  • w-blogg210724
  • Slide2
  • Slide1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.7.): 68
  • Sl. sólarhring: 317
  • Sl. viku: 2784
  • Frá upphafi: 2378360

Annað

  • Innlit í dag: 65
  • Innlit sl. viku: 2472
  • Gestir í dag: 64
  • IP-tölur í dag: 64

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband