Fyrri hluti desember

Meðalhiti fyrri hluta desember í Reykjavík er -0,7 stig. Það er -1,3 stigum neðan beggja meðaltalanna 1961 til 1990 og síðustu tíu ára. Meðalhiti dagana 15 er því í 14.hlýjasta sæti (af 19 á öldinni). Kaldastir voru dagarnir 15 árið 2011, meðalhiti þá -3,4 stig, en hlýjastir voru þeir 2016, meðalhiti +6,2 stig. Á langa listanum, sem nær til 144 ára er meðalhitinn í Reykjavík í 94.sæti. Kaldastur var fyrri hluti desember 1893 meðalhiti þá -5,9 stig, en hlýjast var 2016 eins og áður var nefnt.

Á Akureyri er meðalhitinn nú -1,3 stig, -0,5 stigum neðan meðallags sömu daga 1961-1990, en -0,2 neðan meðallags síðustu tíu ára.

Að tiltölu hefur verið kaldast á Suðurlandi og við Faxaflóa og Breiðafjörð, en hlýjast á Austurlandi að Glettingi - þar hefur hiti reyndar verið ofan meðallags síðustu tíu ára.

Á einstökum stöðvum er jákvæða vikið stærst í Möðrudal, þar hefur hiti verið +1,1 stigi ofan meðallag síðustu tíu ára, en kaldast (neikvæðast vik) á Botnsheiði -2,1 stig, og -2,0 í Hjarðarlandi og í Grindavík.

Úrkoma í Reykjavík hefur mælst 33,8 mm og er það undir meðallagi, en á Akureyri hefur hún mælst 89,9 mm sem er um þreföld meðalúrkoma.

Sólskinsstundir hafa mælst 16,8 í Reykjavík um 10 umfram meðallag.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Nýjustu myndir

  • w-blogg120525a
  • w-blogg080525a
  • w-blogg070525b
  • w-blogg070525a
  • Slide8

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.5.): 139
  • Sl. sólarhring: 381
  • Sl. viku: 1712
  • Frá upphafi: 2466272

Annað

  • Innlit í dag: 130
  • Innlit sl. viku: 1570
  • Gestir í dag: 128
  • IP-tölur í dag: 128

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband