Tuttugu nóvemberdagar

Nóvember heldur áfram - með frekar tíðindalitlu tíðarfari hér á landi - fram að þessu allavega. Meðalhiti fyrstu 20 dagana í Reykjavík er 2,6 stig, +1,1 yfir meðallagi sömu daga áranna 1961-1990, en -0,6 neðan meðallags síðustu tíu ára. Þar með lendir hitinn í 12.hlýjasta sæti (af 19) á öldinni. Hlýjastir voru sömu dagar árið 2011, meðalhiti þá 6,7 stig, en kaldast var 2017, meðalhiti 0,8 stig. Sé litið til lengri tíma voru dagarnir 20 hlýjastir árið 1945, meðalhiti þeirra þá var +8,0 stig, en kaldast var 1880, meðalhiti -2,9 stig.

Á Akureyri er meðalhiti fyrstu 20 daga nóvembermánaðar -0,5 stig, -0,5 stigum neðan meðallags 1961-1990, en -2,1 stigi neðan meðallags síðustu tíu ára.

Kaldast, að tiltölu, hefur verið um landið austanvert, þar er hitinn í 17.hlýjasta sæti á öldinni (eða því þriðjakaldasta vilji menn frekar hafa þann háttinn á röðinni), en um Suður- og Vesturland er hitinn í 12. sæti að ofan - eins og í Reykjavík.

Á einstökum stöðvum er hlýjast að tiltölu á Hornbjargsvita, vikið frá meðallagi síðustu tíu ára er +0,8 stig, en kaldast að tiltölu er á Egilsstaðaflugvelli, -3,3 stig neðan meðallags síðustu tíu ára.

Úrkoma hefur mælst 68,6 mm í Reykjavík til þessa og er það í rétt rúmu meðallagi. Á Akureyri hefur úrkoma aðeins mælst 4,5 mm - innan við tíundihluti meðallags og fer að nálgast að verða óvenjulegt - en verður þó ekki met því í öllum nóvember 1952 mældist úrkoman á Akureyri aðeins 3,0 mm. Úrkoma það sem af er nóvember er nú minni en áður er vitað um á allmörgum stöðvum um landið norðanvert - en mæliraðir eru ekki eins langar og á Akureyri.

Sólskinsstundir hafa til þessa mælst 30,4 í Reykjavík og er það í meðallagi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • w-blogg120324a
  • w-blogg080324a
  • w-blogg010324c
  • w-blogg010324b
  • w-blogg010324a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 11
  • Sl. sólarhring: 76
  • Sl. viku: 979
  • Frá upphafi: 2341353

Annað

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 897
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 10

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband