9.3.2019 | 20:42
Fer enn vel með
Veður hefur verið býsna breytilegt í vetur en þó má segja (með örfáum undantekningum) að sérlega vel hafi farið með veður. Oft hefur litið illa út en síðan ekkert eða lítið orðið úr. Á árum áður hefði manni jafnvel þótt þetta nokkuð skítt - en er nú bara þakklæti í hug í garð máttarvaldanna.
Oft er málum öðruvísi háttað - verður einhvern veginn vont úr öllu veðri eða þá verra en útlit var fyrir. - Hinni hagstæðu veðurreynd mun að sjálfsögðu ljúka einhvern tíma, við vitum bara ekki hvenær.
Svo virtist nú fyrir helgina að ný tíska tæki við þegar í næstu viku - jafnvel strax í dag - en enn einu sinni enn virðist minna ætla að verða úr en spár gerðu helst ráð fyrir. Þó koma að landinu í næstu viku tvær til þrjár djúpar og miklar lægðir sem allar gætu valdið verulega slæmu veðri - ef slíkt væri í tísku. En eins og fyrr í vetur er tilhneigingin sú að reiknimiðstöðvar draga meir og meir úr eftir því sem lægðirnar færast nær. - Við megum þó ekki líta alveg til hliðar - verðum að alltaf að gefa hættunum gaum þó meinlitlar virðist.
Kortið sýnir stöðuna í 500 hPa-fletinum á hádegi í dag (laugardag 9.mars). Enn er hæðarhryggur fyrir norðan land eins og oftast að undanförnu. Vindur er hægur í háloftum í námunda við landið. Það ráðum við af legu jafnhæðarlína flatarins (heildregnar). Þykktin er að venju sýnd með litum. Þykktarsviðið í kringum landið er líka heldur gisið - við segjum að þykktarvindur sé hægur.
Nú eru að verða nokkrar breytingar á stöðunni. Háloftalægðin kalda sem er við vesturjaðar kortsins er á leið til austsuðausturs og á að stinga sér á móts við hlýtt loft sem er að koma inn á svæðið úr suðvestri. Á mánudaginn verður útlitið nokkuð annað.
Kortið hér að ofan sýnir tillögu evrópureiknimiðstöðvarinnar um stöðuna á hádegi á mánudag (11.mars). Hæðarhryggurinn hefur hörfað til austurs - og nú er opið fyrir kalda loftið til suðurs og suðausturs nærri Grænlandi. Hér má ekki miklu muna að hann verði slæmur - en svo virðist sem þessi bylgja eigi að ofrísa - það yrði til þess að háloftalægðin kæmist aldrei til Íslands en velti þess í stað til suðausturs um Bretlandseyjar. Við sleppum að vísu ekki alveg - en samt miklu betur en á horfðist í spám fyrir nokkrum dögum.
Alveg dæmigert fyrir veðurlag þessa (hingað til) hagstæða vetrar.
Næsta aðsókn illviðris er síðan á dagskrá á fimmtudag - og enn og aftur um næstu helgi. Skyldi hann halda uppteknum hætti - reiða til höggs - en síðan láta geiga?
Flokkur: Vísindi og fræði | Breytt 10.3.2019 kl. 01:16 | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.11.): 53
- Sl. sólarhring: 375
- Sl. viku: 2447
- Frá upphafi: 2411073
Annað
- Innlit í dag: 46
- Innlit sl. viku: 2113
- Gestir í dag: 45
- IP-tölur í dag: 45
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Athugasemdir
Mér sýnist nú Veðurstofan gera ráð fyrir stormi, roki eða jafnvel ofsaveðri á mánudagskvöldinu, þannig að samkvæmt því á lægð nr. 2 að komast til landsins. Þetta þýðir þá líklega að hinum "hagstæða" vetri er að ljúka og umhleypingar að taka við, þ.e. dæmigert síðvetrarveður.
Hagstæði veturinn kvaddi með -29,3 stiga frosti (í fyrradag) og -21,7 stig í nótt (í Bárðardal).
Það verður fróðlegt að sjá hitatölur yfir fyrstu 10 daga marsmánaðar ... Metkuldi í mars á öldinni?
Torfi Stefánsson (IP-tala skráð) 10.3.2019 kl. 11:07
Það er undarlegt með þennan kulda sem liggur oft í þekktum kuldapollum á landinu enda hefur oft verið hægviðri eða blankalogn í vetur. Flugvöllurinn á Sauðárkróki er alræmdur og gremst okkur Skagfirðingum stundum þegar ógnarmikið frost mælist þar og getur munað jafnvel 5-10 gráðum þar og t.d. á Sauðárkróki eða annars staðar í héraðinu. Á föstudaginn sl lenti ég í öðrum kuldapolli er ég keyrði sem leið lá til Akureyrar og leit á mælinn í bílnum. Í Skagafirði vestan Öxnadalsheiðar var 7-10 stiga frost og 12-14 stig á heiðinni. Síðan keyrði ég niður í Öxnadalinn og viti menn mælirinn fór mest í 21,5 gráður (auðvitað veit maður að þessir mælar eru ekki nákvæmir en gefa þó vissa mynd). Síðan var á Akureyri um 10 gráður. Alveg vita ótrúlegt.
Hjalti Þórðarson (IP-tala skráð) 10.3.2019 kl. 19:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.