Hár hiti

Það er fremur óvenjulegt að hiti á höfuðborgarsvæðinu fari yfir 10 stig í febrúarmánuði, en gerðist þó í dag (22.febrúar). Við Veðurstofuna fór hiti í 10°C slétt og 10,1 stig á Reykjavíkurflugvelli. Báðar tölur dægurmet. Kvikasilfursmælirinn fór hæst í 9,4 stig - en það er ekki þar með sagt að hann hefði ekki farið enn hærra væru athugunarhættir enn nákvæmlega þeir sömu og áður var. Nú er skýlið nefnilega alveg lokað frá kl.9 til 18 - en var opnað tvisvar á þeim tíma dags hér áður fyrr.

Hæsti hiti sem mælst hefur í febrúar í Reykjavík er 10,2 stig, það var þann 25. árið 2013. Hiti hefur tvisvar mælst 10,1 stig í febrúar í Reykjavík, 1935 og 1942 og einu sinni 10,0 stig (áður en í dag) - það var líka 1942. Reyndar mældist hiti líka rúm 11 stig þann 9.febrúar 1830 - en það var í öðrum heimi.

Nú, svo fór hiti í 12,6 stig á Skrauthólum á Kjalarnesi í dag. Það er hæsti hiti sem vitað er um á höfuðborgarsvæðinu í febrúar. Líkur á svo háum hita eru töluvert meiri á Kjalarnesi heldur en í borginni. Ekki hefur verð mælt á þeim slóðum mjög lengi (þó á Skrauthólum frá 2001 og frá 1998 við Móa). Eldra febrúarhámarksmet höfuðborgarsvæðisins er ekki gamalt, 11,9 stig sem mældust við Blikdalsá fyrir 2 árum.

Hæsti hiti á landinu í dag mældist 14,1 stig á Seyðisfirði, rúmu stigi neðan landsdægurmetsins sem sett var á sama stað 1962.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Á Seyðisfirði 1962; Hvað skyldi hann hafa verið þann dag í Rvk.sama ár? Mér er febrúar svo minnisstæður gangandi um Rykjavíkurstræti eins og um hásumar væri þótt áliðið væri dags. Engin man þetta nema ég þegar ég minni á þessa óvenjulegu blíðu,því ég klikka á ártalinu.  

Helga Kristjánsdóttir, 24.2.2019 kl. 01:33

2 Smámynd: Trausti Jónsson

Hámarkshiti í Reykjavík 22.febrúar 1962 var 5,0 stig. Febrúar 1962 var mikill illviðramánuður framan af með snjó og klaka, en um þann 20. hlánaði og gerði hlýindi í nokkra daga - síðan voru stillur til mánaðamóta en kólnandi veður. En miklar blíður og hlýindi voru í febrúar 1963 og 1964 og sömuleiðis var sérlega hlýtt í febrúar 1965. Mér eru öll þessi blíðviðri sérlega minnisstæð. 

Trausti Jónsson, 24.2.2019 kl. 22:25

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Góð vísbending,eigandi heima á Bergstaðastræti á leið að flytja í Kópavog,stutt að rölta um höfuðborgina og skoða efni í gardínur meðan húsbóndinn var heima..... 

Helga Kristjánsdóttir, 25.2.2019 kl. 00:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 8
  • Sl. sólarhring: 380
  • Sl. viku: 1582
  • Frá upphafi: 2350209

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 1455
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband