Fellibylurinn Oscar og óvissa í spám

Fellibylurinn Oscar er á sveimi suðaustur af Bermúdaeyjum og gerir sig líklegan til að leggja leið sína á norðlægari slóðir. Hann er nú furðuöflugur, vindhraði meir en 40 m/s þar sem mest er. Við notum tækifærið og lítum á klasaspákort evrópureiknimiðstöðvarinnar sem nær til sjávarmálsþrýstings síðdegis á föstudaginn kemur, 2.nóvember.

w-blogg301018a

Þrenns konar upplýsingar eru á þessu korti. Daufar strikalínur sýna „aðalspá“ reiknimiðstöðvarinnar - það þarf sennilega að stækka myndina til að hún sjáist nægilega vel. Heildregnu línurnar sýna svonefnt klasameðaltal. Tvisvar á dag eru reiknaðar 50 mismunandi spár - upphafsskilyrðum er breytt lítillega fyrir hverja þeirra - en aðeins lítillega. Upplausn allra þessara spáa er ívið minni heldur en „aðalspárinnar“ sem reyndar er oftast hún réttust þeirra - alla vega fyrstu 4 til 7 dagana. 

Eftir því sem lengra kemur út í framtíðina verða þessar 50 spár ólíkari - lægðir fara mismunandi brautir - og þegar frá líður myndast nýjar lægðir í sumum spánna en ekki öðrum. Bæði aðalspá (daufu strikalínurnar) og meðaltal spánna 50 sýna lægð á svipuðum slóðum á föstudaginn. Þessi lægð kemur að vestan frá Nýfundnalandi á miðvikudag og fer til austurs. 

Litirnir á kortinu eiga að sýna eins konar óvissu - hversu mikið spá um þrýsting í hverjum punkti dreifist. Þægilegt er að nota staðalvik til að slá á stærð dreifingarinnar. Því meira sem það er því ólíkari eru þrýstispárnar 50. Nærri lægðarmiðjunni er staðalvikið hátt í 20 hPa - greinilegt að spárnar eru langt í frá sammála um dýpt lægðarinnar á föstudaginn - en þær virðast hins vegar ekki vera mjög óvissar um það hvar hún verður.

Hér skeikar sennilega því hvort fellibylurinn Oscar nær að ganga inn í Nýfundnalandslægðina eða ekki. Staðalfrávikið kann meira að segja að vera marklítið - hér gæti legið að baki annaðhvort eða (fellibylur eða ekki). Kortið eitt segir okkur ekkert um það. 

Undanfarna daga hafa spár sýnt ámóta hegðun - í sumum þeirra nær fellibylurinn inn í kerfið - í öðrum ekki - rétt eins og í mismunandi spám klasans. Hér má því eins og oft áður sjá dæmi um kerfi sunnan úr höfum (og ritstjóri hungurdiska hefur í óleyfi nefnt hvarfbaugshroða) sem gerir spá næsta óvissa. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

Hérna er nokkuð nákvæmt veðurforrit sem að spáir/áætlar inn í framtíðina: 

https://disasteralert.pdc.org/disasteralert/

Jón Þórhallsson, 31.10.2018 kl. 09:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Des. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Nýjustu myndir

  • w-blogg211224b
  • w-blogg211224
  • w-blogg121224
  • w-blogg111224a
  • w-blogg101224b

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.12.): 19
  • Sl. sólarhring: 213
  • Sl. viku: 984
  • Frá upphafi: 2420868

Annað

  • Innlit í dag: 14
  • Innlit sl. viku: 863
  • Gestir í dag: 14
  • IP-tölur í dag: 14

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband