27.4.2018 | 00:47
Kaldur ruðningur úr vestri?
Ástæða er reyndar fyrir spurningarmerkinu í fyrirsögninni. Aðallega vegna þess að loftið sem um ræðir er ekki svo óskaplega kalt - eða verður það ekki þegar hingað er komið. Aftur á móti hefur verið óvenjuhlýtt upp á síðkastið. Apríl það sem af er sá næsthlýjasti á öldinni og reyndar ekki margir í fortíðinni hlýrri heldur.
Því má segja að vorið hafi nú um tíma farið nokkuð fram úr sér og boðið upp á hita sem venjulegur er um og eftir miðjan maí. Það eru því viðbrigði fari hitinn niður í meðallag eða jafnvel lítillega undir það. Tilfinningin er því sú að kalt sé í veðri.
En lítum á stöðuna eins og evrópureiknimiðstöðin stingur upp á að hún verði síðdegis á laugardag 28.apríl.
Hér eru jafnhæðarlínur heildregnar en þykkt sýnd í lit. Þykktin mælir hita í neðri hluta veðrahvolfs, því meiri sem hún er því hlýrra er loftið. Meðalþykkt um miðjan apríl er um 5290 metrar yfir landinu - á mörkum grænu og bláu litanna. Um miðjan maí er hún hins vegar komin upp í 5350 metra. Þetta segir okkur að á laugardaginn verði þykkt lítillega undir meðallagi.
Leifar kuldapollsins Stóra-Bola eru hér vestan Grænlands og eiga víst (sé að marka spár) að senda afleggjara í átt til okkar - þá í gervi einskonar útsynnings. Þykktin fer þá neðar - jafnvel niður undir 5200 metra þegar kaldast verður eftir helgina - sem er reyndar svo algengt í maí að varla telst til tíðinda (teldust frekar tíðindi í júní).
Ætli við sættumst ekki á að flytja spurningarmerkið framar í fyrirsögnina og breytum henni í Kaldur (?) ruðningur úr vestri.
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 895
- Sl. sólarhring: 927
- Sl. viku: 2690
- Frá upphafi: 2413710
Annað
- Innlit í dag: 838
- Innlit sl. viku: 2438
- Gestir í dag: 815
- IP-tölur í dag: 794
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Athugasemdir
Það stefnir í svala daga svona að minnsta kosti er það ekki. Kröfurnar gagnvart veðrinu eru orðnar alveg ótrúlegar. Frost í einhverja daga á miðjum vetri og þá fer nánast allt á hliðina, ef ekki er bjart og kyrrt eftir páska þá er talað um leiðindatíð og svo sé nú ekki talað um sumarið þegar allt annað tíðarfar en 15-20 stiga hiti, sól og logn er bara alls ekki boðlegt. Mér finnst t.d. búin að vera afburðatíð sl mánuð eða svo, logn eða hægur vindur flesta daga, hiti nálægt frosti á nóttunni en oft 5-10 stig á daginn og betra hlýustu dagana fyrir nokkru. Mætti jafnvel rigna meira.
Hjalti Þórðarson (IP-tala skráð) 27.4.2018 kl. 11:54
Sæll Trausti, Átti bágt með að trúa hlýjum apríl, fannst helvíti kalt stundum. Skoðaði svo meðalhitann í Hólmsá við Gunnarsholt og sá að hann var sá mesti síðan 2007, 4,6 gráður bæði árin. Í fyrra var hitinn 3,4 og 4,4 í hitteðfyrra. 2015 var hann 2,7, enda var lélegt laxveiðiár, af smálaxi, árið eftir.
Jón Kristjánsson, 27.4.2018 kl. 22:14
Sæll sömuleiðis Jón. Gaman að heyra af ánum. Fyrsta aprílvikan var frekar köld, en síðan hlýnaði til muna og vorið fór langt framúr sér (í bili að minnsta kosti).
Trausti Jónsson, 27.4.2018 kl. 22:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.