Stóri-Boli setur upp ísaldarhattinn

Það skal tekið fram í upphafi að „ísaldarhatturinn“ er orðaleppur úr safni ritstjóra hungurdiska en hvorki eitthvað fræðilega viðurkennt né eitthvað sérlega válegt. Orðið hefur hann sum sé notað áður í pistli. Það var fyrir fimm árum þegar svipað gerðist og nú - og gerist reyndar í fleiri árum en ekki. Nú er fyrirsögnin notuð sem lögð var til hliðar þá - lesendur hungurdiska orðnir vanari ritstjórafroðunni. 

w-blogg290118a

Kortið sýnir spá bandarísku veðurstofunnar um hæð 500 hPa-flatarins og þykktina síðdegis á miðvikudag 31. janúar og nær aðeins yfir norðurslóðir, Ísland er neðst fyrir miðju, norðurskautið nærri miðju myndar. Jafnhæðarlínur eru heildregnar, en þykkt er sýnd með litum. Því minni sem hún er því kaldara er loftið, dökkfjólublátt kaldast. 

Ritstjóri hungurdiska kennir þykkt sem er minni en 4740 metrar við ísöldina og er hún heldur algengari yfir Síberíu heldur en Kanada. Kuldapollurinn Síberíu-Blesi er oft heldur kaldari en sá sem við köllum Stóra-Bola og heldur að jafnaði til yfir Norður-Kanada. Síberíu-Blesi hefur stærra meginland til umráða. 

Á dekksta fjólubláa svæðinu eru þykktin einmitt minni en 4740 metrar. Við megum taka eftir því að tveir dekkstu litirnir eru nokkurn veginn sammiðja háloftahringrásinni - kuldinn fyllir upp í hana og hennar gætir því lítt við jörð. Fyrir tíma háloftaathugana sáust kuldar af þessu tagi því illa - eða það þurfti alla vega sérstaka athygli til að sjá þá. 

Svo lengi sem allt helst í skorðum, kuldinn hreyfist ekki mikið, gerist ekki margt - nema að gríðarkalt er og verður þarna vestan við Baffineyju. En kuldapollar fá sjaldan að vera alveg í friði - það er sífellt verið að sparka í þá. Við vitum enn lítið um hvort eða hvernig nagað verður í Stóra-Bola að þessu sinni. - Kannski hann angri okkur ekkert - en rétt er að fylgjast með. 

Athyglisverður er líka hæðarhryggurinn mikli sem stingur sér inn á kortið vestan Alaska (efst). Hann hefur undanfarna daga valdið töluverðum truflunum á stóru svæði og gríðarlegum hlýindum í háloftum yfir austasta hluta Síberíu - hvort þau hlýindi hafa eitthvað getað skilað sér niður í mannheima höfum við ekki frétt. En ekki mun létt að feykja síberíska dalakuldanum burt með jafn auðveldum hætti og gerist hér norðanlands í sunnanþeynum.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helgi Viðar Hilmarsson

Og þannig orti skáldið:

Í nótt mun ég krókna úr kulda
í kofa við Hudson Bay.
Þú mikli eilífi andi.
Ó Key.

Helgi Viðar Hilmarsson, 30.1.2018 kl. 07:36

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Hvernig fer þetta saman við hnattrænu hlýnunina Trausti?

Ef þessi kuldi er reiknaður inn í hitamagn alls lofthjúps jarðar, hver er þá hnattræna staðan? Eða er ekkert svar við slíku?

Halldór Jónsson, 30.1.2018 kl. 11:54

3 Smámynd: Trausti Jónsson

Þessi kuldi skiptir engu í stóra samhenginu. Það má hlýna um 6 til 8 stig til viðbótar til þess að hann hverfi alveg út af kortunum - slík hlýnun væri með ólíkindum. Það þarf líka 100 ára athuganir til að fullmeta hvort einhverjar marktækar breytingar eru að verða á tíðni hans eða útbreiðslu. Slíkar upplýsingar er ekki enn að hafa á þessum slóðum. En trúlega hefur tíðnin minnkað eitthvað.

Trausti Jónsson, 30.1.2018 kl. 12:45

4 identicon

Sæll Trausti.

Ég hnýt um eftirfarandi svar þitt við spurningu Halldórs Jónssonar: "Það þarf líka 100 ára athuganir til að fullmeta hvort einhverjar marktækar breytingar eru að verða á tíðni hans eða útbreiðslu."

Er ekki sjálfsagt að beita nokkrum mismunandi sviðsmyndum með skvettu af tölvulíkönum til að reyna að komast að niðurstöðu - eða er það ekki nógu vísindalegt?

Hilmar Hafsteinsson (IP-tala skráð) 30.1.2018 kl. 15:08

5 Smámynd: Trausti Jónsson

Tölvulíkön eru ágæt til síns brúks - en eru ekki sannleikurinn -

Trausti Jónsson, 30.1.2018 kl. 20:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 23
  • Sl. sólarhring: 340
  • Sl. viku: 1597
  • Frá upphafi: 2350224

Annað

  • Innlit í dag: 21
  • Innlit sl. viku: 1470
  • Gestir í dag: 21
  • IP-tölur í dag: 21

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband