9.12.2017 | 14:51
Fallvindar?
Við lítum nú á vindaspá sem gildir að morgni mánudags 11.desember. Nei, það er ekkert sérstakt um að vera, en fróðleik má hafa af spákortum.
Hér má sjá vindaspá harmonie-líkansins sem gildir kl. 6 að morgni mánudags. Örvar sýna vindstefnu (og styrk), en litir styrkinn. Það er hvergi hvasst, en þó er kaldi eða meira á bláleitu svæðunum. Vindi er nokkuð misskipt, hann liggur í strengjum. Nokkrar tölur hafa verið settar á kortið.
Það er mjög væg þrýstiknúin norðaustanátt ríkjandi yfir landinu. Þrýstilínur eru fáar (ekki sýndar hér).
1. Hér má sjá hvernig vindur stendur niður af Hofsjökli bæði til norðvesturs og suðvesturs - stefnir greinilega út frá hábungu hans.
2. Vindlæna liggur niður allt Þjórsársvæðið - frá Hofsjökli og til sjávar. Missterk að vísu, mjög líklegt er að hér sjáum við kalt hálendisloft streyma niður á láglendið, þyngdaraflið eykur hraða þess.
3. Þegar komið er út á sjó bætir í vind - það er vegna þess að núningur minnkar, loftið missir fótanna og skríður betur áfram.
4. Strengur er á Faxaflóa - hann var áður fyrr kenndur við veðurstöðina í Síðumúla, í þessu tilviki er hann reyndar ámóta sterkur við hálendisbrúnina uppsveitum Borgarfjarðar (fellur þar framaf) og úti á flóanum, en núningur og blöndun hægir á honum á leiðinni. - Svo nær hann sér aftur á strik yfir sjónum.
5. Við sjáum dálítinn streng yfir Skarðsheiði og Hafnarfjalli - þar myndast dálítil flotbylgja - þó hin almenna norðaustanátt sé ekki mikil nægir hún til að búa hana til.
Stikalína hefur verið sett um þvera mynd - liggur frá Faxaflóa í vestri austur um Esjuna og sker loks hálendisbrúnarvindstrengina. Síðari myndin sýnir lóðrétt vind- og mættishitaþversnið eftir þessari línu, frá jörð og upp í um 700 hPa (3 km hæð).
Sjá má breiddarstig á lárétta ásnum. Litir sýna vindhraða, hann er mestur um 16 m/s í Hreppastrengnum - í um 100 til 200 m hæð yfir jörð. Ef við drögum hina almennu norðaustanátt (um 3 til 5 m/s) frá vindsviðinu kemur í ljós að aukavindstyrkur í strengnum er um 10 m/s - trúlega er mest honum orðinn til við fallið niður brekkuna.
Lega jafnmættishitalínanna er líka fróðleg. Varmaútgeislun lækkar mættishita, þunnt lag af lofti með lágan mættishita myndast því stöðugt yfir landinu í björtu veðri - þessarar lækkunar gætir sérstaklega þar sem loftið snertir enn kaldara yfirborð. Þetta kalda loft rennur sífellt niður í móti í átt til sævar - og myndar vindstrengi eins og þann sem við hér sjáum. Þar sem loftið fellur fram af brúnum vill það blandast við hlýrra loft ofan við - þar er vindur líka hægari og vindur jafnast því líka.
Lengst til vinstri á myndinni erum við yfir sjó (vestur af Faxaflóa) - þar er jafnmættishitalínulaust alveg upp í kílómetershæð - loftið er fullblandað vegna upphitunar sjávar. Yfir Biskupstungum eru línurnar 4 talsins á sama hæðarbili. - Þær eru ábyggilega enn fleiri, þá liggjandi rétt yfir yfirborði. Líkanið segir að á þeim slóðum verði frost í 100 metra hæð yfir jörð um -7 stig, en um -14 stig á veðurstöðvum. Lítinn vind þarf til að jafna þann mun.
Kæmist loftið þar sem vindurinn er mestur á myndinni hér að ofan niður í 1000 hPa yrði hiti þess +1 stig (mættishitinn er 274K).
Flokkur: Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 15:19 | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 90
- Sl. sólarhring: 236
- Sl. viku: 1055
- Frá upphafi: 2420939
Annað
- Innlit í dag: 82
- Innlit sl. viku: 931
- Gestir í dag: 81
- IP-tölur í dag: 80
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.