Óþreyju gætir

Kuldapollurinn mikli sem plagaði Vestur-Grænland fyrr í vikunni er enn á sveimi. Hann verpti „kuldaeggi“ sem er um það bil að fara til austurs rétt fyrir sunnan land þegar þetta er skrifað (föstudagskvöldið 7. júlí). Ekki er hægt að segja að mikil grimmd hafi verið í því - en olli samt staðbundnum skúradembum og svölu veðri - sérstaklega um landið sunnanvert. 

Við að skjóta eggi til austur hrökk meginhluti kuldapollsins í öfuga átt - til vesturs - og hörfaði mesti kuldinn þar með frá Vestur-Grænlandi. Nú virðist annað varp vera að eiga sér stað - og enn verður til lítill kuldapollur sem fer til austurs í stefnu á okkur. - Hálfgert örverpi að vísu - en nægilegur samt til þess að tefja hlýnun hér á landi um að minnsta kosti nokkra daga.

Við lítum á stöðuna eins og evrópureiknimiðtöðin telur hana verða á sunnudag.

w-blogg070717a

Hér er aðalkuldapollurinn merktur með stórri blárri ör og tölustafnum 1. Hann er kominn vel vestur fyrir Baffinsland en afkomendur hans ganga greiðlega til austurs. Sá fyrri - fór framhjá rétt fyrir sunnan okkur í dag er hér kominn austur undir Noreg (merktur tölustafnum 2) en örverpið, bróðir hans er á kortinu yfir Grænlandi og hreyfist í átt til okkar. Engin sérstök illindi fylgja - en harla svalt veðurlag. Enn fleiri sendingar eru svo væntanlegar frá Kanada síðar meir - að vísu er kuldinn að færast aftur í aukana yfir íshafinu og gæti truflað aðalhringrásina eitthvað þegar fram líða stundir. 

Hér Atlantshafsmegin á norðurhveli ganga lægðir nú greiðlega til austurs - furðugreiðlega satt best að segja (held að ameríkumenn kalli það „framsóknarveðurlag“). Mikil hlýindi sækja aftur á móti til norðurs hinum megin heimskauts - mjög hlýir hæðarhryggir sem rauðu örvarnar benda á (þvergirðingar). - Sýna nákvæmlega engan áhuga á okkur. 

Sem stendur sér ekkert fyrir endann á þessari stöðu. Hún er í grunninn ekki svo slæm (segir Pollýanna) - en samt má heyra að margir eru farnir að þreytast á henni og gætir töluverðrar óþolinmæði. Það er um að gera að njóta í botn þeirra gæðastunda sem bregður fyrir - þó hlýindi skorti. 

Viðbótarupplýsingar - settar inn 8. júlí:

Spurt hefur verið um hita- og úrkomufar það sem af er júlí. Ekki eru þó liðnir nema 6 dagar af honum. Meðalhiti þessa sex daga er 10,4 stig í Reykjavík og því nákvæmlega í meðallagi sömu daga 1961 til 1990, en 11,4 á Akureyri. Í Reykjavík er hiti allmikið undir meðallagi síðustu tíu ára, eða -1,6 stig. Á Akureyri er meðalhitinn 1,5 stigum yfir meðallagi 1961 til 1990 og +0,5 yfir meðallagi síðustu tíu ára.

Úrkoma hefur verið í meðallagi á Akureyri, en hún hefur hins vegar verið óvenjulítil í Reykjavík, aðeins 4 mm og er það um þriðjungur meðalúrkomu, sú næstminnsta sömu daga á þessari öld - en sú röðun þarf ekki nema einn mjög blautan dag til að breytast verulega. - Það hefur verið frekar sólarlítið.

Hiti þessa sex fyrstu júlídaga er sá 14.hæsti á öldinni, þrisvar hafa þeir verið kaldari en nú, 2014, 2013 og 2006. Sé samanburður látinn ná til lengri tíma er hitinn þessa daga í Reykjavík í 86. sæti (af þeim 143 sem við höfum greinargóðar upplýsingar um). Að þriðjungatali telst hitinn því í meðallagi þess tíma alls. Á Akureyri eigum við daglegan hita aðeins á lager 82 ár aftur í tímann - þar lendir hitinn nú í 22. sæti og er þar með í hlýjasta þriðjungi.

Hitanum hefur sum sé verið nokkuð misskipt á landinu þessa daga. Að tiltölu hefur verið hlýjast eystra, hiti 1,6 stigum yfir meðallagi síðustu tíu ára á Eyjabökkum, 1,3 yfir því í Papey og 1,2 á Egilsstöðum. Kaldast að tiltölu hefur verið í Reykjanesfjallgarðinum, -2,4 stig undir meðallagi síðustu tíu ára á Skarðsmýrarfjalli og -2,1 undir í Hellisskarði og í Bláfjöllum.

En það er fremur skortur á hlýjum dögum sem einkennt hefur júní- og júlímánuð á þessu ári frekar en að meðalhiti hafi verið sérlega lágur. Hiti náði þó 20 stigum þann 30. júní austur á Borgarfirði eystra. Sú tala verður tekin góð og gild - en þó verður að geta þess að stöðin hefur aðeins verið starfrækt mjög skamma hríð og þarf strangt tekið lengri tíma til að sanna stöðugleika.

Hæsti hiti sem mælst hefur í Reykjavík til þessa á sumrinu er 17,1 stig - mældist hann 21.maí. Tvisvar áður á þessari öld hefur hámarkshitinn í borginni ekki verið kominn hærra á öldinni 7. júlí, það var 2014 (16,5 stig - fór hæst í 19,7 stig það sumar) og 2001 (15,7 stig - fór hæst í 17,2 stig það sumar). Á þeim tíma sem hámarkshiti hefur verið samfellt mældur í Reykjavík (98 ár) hefur hann 51 sinni verið orðinn hærri en nú þann 7. júlí - við erum því nærri miðjum hóp nú. Það gerist endrum og sinnum (fjórum sinnum síðustu 100 árin) að hæsti hiti ársins mælist í maí í Reykjavík, síðast 1988.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Verið getur að hlýindi séu ekki mikil og úrkoma sé óvenju mikil amk óvenju oft á mínum slóðum á Norðurlandi. Man reyndar ekki eftir svona mörgum úrkomudögum í júní. Heyskapartíð var því slök í þeim mánuði amk ef miðað er við undanfarin ár. Veðrið hefur þó oft verið ágætt í sumar og hitinn náði t.d. í 17 stig alla daga frá mánudegi til föstudags í vikunni, í hægri sunnan átt eða logni. Sprettan er því svakaleg. Veit svosem ekki hvernig menn vilja hafa sumrin en veit þó að sól og 20 stig flesta daga er óraunhæft veðurlag sama hvar er á landinu. Meira að segja á Norðurlandi. Vorið og sumarið er því búið að vera allavega. 

Hjalti Þórðarson (IP-tala skráð) 8.7.2017 kl. 09:04

2 identicon

hvernig er reinslan af grænlandsjökli er hann hægjnleg vörn eftir að hann hopaði. skilst að skriðjöklar seu að brotna frá á s. grænlandi mun það hafa breitíngar í för með sér með . straumar hugsanlega breitast sem aftur hefur áhrif á veður.?.

kristinn geir steindórsson briem (IP-tala skráð) 12.7.2017 kl. 06:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg160424b
  • w-blogg160424a
  • w-blogg120424c
  • w-blogg120424b
  • w-blogg120424a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 57
  • Sl. sólarhring: 125
  • Sl. viku: 1806
  • Frá upphafi: 2348684

Annað

  • Innlit í dag: 52
  • Innlit sl. viku: 1582
  • Gestir í dag: 51
  • IP-tölur í dag: 51

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband