Seint haust

Veturinn lætur enn á sér standa (18. október) og ritstjóri hungurdiska situr uppi með ýmsar spurningar í því sambandi. Erfitt er að svara þeim sumum - en það má eitthvað reyna. 

Það eru aðeins tveir dagar síðan fyrsta frost haustsins mældist á Akureyri. Lágmarksmælingar hafa verið gerðar þar síðan 1938 og var frostlausa skeiðið nú með allra lengsta móti, 158 dagar, og vantaði aðeins 1 dag upp á að jafna metið, sem er frá 1972. Árið 1939 var lengdin 157 dagar. 

Enn hefur ekki mælst frost í haust í Reykjavík og hefur ekki mælst síðan 30. apríl. Frostlaust hefur því verið í 171 dag samfellt. Langt er þó í metið frá 1939, en þá var frostlaust í Reykjavík í samfellt 201 dag, frysti ekki fyrr en 10. nóvember. Það lengdarmet verður varla slegið nú - því frostlaust yrði að vera allt til 17. nóvember (sem er nánast útilokað). Samfelldar lágmarksmælingar í Reykjavík ná aftur til 1920 - fyrir þann tíma eru þær gloppóttar. Þó var hámark og lágmark mælt 1830 og var frostlaust í 188 daga samfellt. 

Fáein ár önnur eru enn rétt fyrir ofan okkur í frostleysulengd - og vel möguleiki á að ná þeim sumum. Tölurnar eru þessar: 1974 (172 dagar), 1959 (174), 2014 (175), 1846 (175) og 2010 (177). Ekki var lesið af lágmarksmæli í Reykjavík 1915 - en ekkert frost var þá á athugunartíma í 204 daga. Það er afskaplega ólíklegt að lágmarksmælir hefði aldrei sýnt frost í apríl og maí það ár - en vel mögulegt að frostlaust hafi verið í bæði september og október. 

Nú í haust hafa fjölmargar veðurstöðvar verið alveg frostlausar til þessa - og frost hafa verið fátíðari en oftast er á þeim stöðvum þar sem frost hefur mælst. 

Í haust hafa frostnætur verið langflestar á Dyngjujökli, 75 frá 1. ágúst - enda stöðin hátt á jökli. Næstoftast hefur verið frost í Sandbúðum, 23 sinnum á sama tíma - það mun nærri meti í fátækt. Mesta frost sem mælst hefur til þessa í haust í Sandbúðum er -3,3 stig og hefur aldrei verið svo lítið á sama tíma árs. - Þetta sama á við um fjölda stöðva - 

Lægsta lágmark haustsins til þessa í Reykjavík er +1,2 stig (mælt 30. september), við þurfum að fara allt aftur til 1959 til að finna hærri (lágmarks-) tölu en nú +1,5 stig - sem þá mældust reyndar 6. september. 

Í sérstökum pistli verður rifjað upp hversu oft októbermánuður allur hefur verið alveg frostlaus á íslenskum veðurstöðvum. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 7
  • Sl. sólarhring: 402
  • Sl. viku: 1581
  • Frá upphafi: 2350208

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 1454
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband