17.1.2016 | 03:09
Smánöldur vegna fellibyls
Fyrir nokkrum dögum myndaðist fellibylur suður af Asóreyjum og hlaut nafnið Alex. Þær fréttir berast út að hann sé sá fyrsti sem myndast á Atlantshafi í janúar síðan 1938 - og það var sá eini þangað til. Listinn sem vitnað er til nær aftur til 1851. Þótt bæði þessi veður (1-1938 og Alex nú) falli undir hefðbundnar skilgreiningar fellibyljamiðstöðvarinnar á fyrirbrigðinu (og hún neyðist því til þess að telja þau með í fellibyljaflokknum) er það að mati ritstjóra hungurdiska (og fleiri kverúlanta) afskaplega óheppilegt. - Þetta eru miklir talningaspillar og jafnvel ruglumræðuvaldar.
Fellibyljir eiga mismunandi uppruna - mismundandi ferli stuðla að myndun þeirra. Þegar aðvaranir takast á við hvern einstakan þeirra kann eðlisuppruninn að vera aukaatriði - á því byggja reglur og ákvörðun fellibyljamiðstöðvarinnar - hún er viðvaranastöð. Fyrir umræðu um veðurfar og veðurfarsbreytingar gegnir allt öðru máli - þar er mikilvægt að myndunarferlin séu aðskilin í tölulegum samantektum. Alls ekki er hægt að gera ráð fyrir því að hnattræn hlýnun (eða ámóta breytingar) hafi sömu áhrif á hina mismunandi myndunarhætti fellibylja. Að telja Alex með í sömu hjörð og hina hreinræktuðu fellibylji hitabeltisins getur ekki verið eðlilegt og beinlínis ruglar umræðuna.
Það er síðan óvenjuleg kokhreysti að telja öruggt að allir kynbræður Alex síðan 1851 séu þekktir - og bróðirinn sé aðeins einn. Fellibyljamiðstöðin gerir það væntanlega ekki - segir aðeins að ekki séu fleiri á skrá. En - í kjölfarið fylgir skriða frétta um einstakan atburð. - Fyrir svo utan það að hvorki vindhraði né lágur loftþrýstingur Alex eru neitt til að gera veður út af á þessu svæði - að því leyti er þetta það sem kallað er ekkifrétt.
Talningarkerfi fellibyljamiðstöðvarinnar er einkennabyggt (morfólógiskt) en það sem ritstjóri hungurdiska vill heldur nota er upprunabyggt (ontogenískt). Einkennabyggð kerfi henta aðvörunum - en hin upprunabyggðu veðurfarsumræðunni.
Þetta er auðvitað algjört nöldur - og ritstjórinn greinilega kominn á nölduraldursstigið á þroskabrautinni. En - reynum að halda uppi ákveðnu hreinlæti í umræðunni.
Þeir sem vilja vita eitthvað meira um þetta geta reynt að finna búta úr bók sem heitir Hurricanes of the North Atlantic: Climate and Society eftir James B. Elsner og A. Birol Kara. Þar er ítarlega fjallað um upprunabyggða flokkun og dæmi gefin um áhrif slíkrar túlkunar á fellibyljasöguna. Bókin er að hluta til opin á vefnum.
Flokkur: Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 03:13 | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 12
- Sl. sólarhring: 829
- Sl. viku: 2334
- Frá upphafi: 2413768
Annað
- Innlit í dag: 12
- Innlit sl. viku: 2153
- Gestir í dag: 12
- IP-tölur í dag: 12
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Athugasemdir
Auðvitað er Alex einstakur ekkert líkur fellibyljum með konunöfnum,sem hafa valdið hörmungum t.d. í Filippseyjum og Indónesíu.Fávís um þessi fyrirbæri,varð mér um og ó þegar menn fóru að velta fyrir sér hugsanlegum flóðbylgjum hér af þeirra völdum.- En svo ólíkt veðravítinu,líkti fyrrverandi bankastjóri (BNA?) Alan Greenspan ástandinu á fjármálamörkuðum eftir alheimskreppuna 2008,að hún væri Tsunami-risaflóðbylgja. Ætti ég val kysi ég hana fremur!! Ætlaði alltaf að óska þér Gleðlegs Nýárs!
Helga Kristjánsdóttir, 17.1.2016 kl. 13:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.