11.11.2015 | 03:09
Aðalkuldinn er hinumegin
Þó hiti sé nú í meðallagi (þriðjudag 10. nóvember) og muni trúlega heldur lækka áfram næstu daga er hinn eiginlegi vetur varla kominn á okkar slóðir. Það er auðvitað tilviljun - því hann er þarna einhvers staðar - og gæti þess vegna verið hér. Hann er heldur ekki endilega lengi á leiðinni - fái hann tækifæri til.
Fyrra kortið sem við lítum á í dag sýnir veðrahvolfsástandið á norðurslóðum - eins og bandaríska veðurstofan segir það verða síðdegis á fimmtudaginn 12. nóvember.
Ísland er alveg neðst á þessu korti, en norðurskautið rétt ofan miðju. Kaldir, bláir litir eru nærri einráðir - eins og vera ber þegar komið er fram í nóvember. Jafnhæðarlínur 500 hPa-flatarins eru heildregnar - en þykktin er sýnd í litum. Hún mælir hita í neðri hluta veðrahvolfs - meðalþykkt í nóvember yfir Íslandi er um 5280 metrar, við mörk grænu og bláu litanna.
Eins og sjá má er fimmtudagsþykktin íslenska rétt undir meðallagi. Bláu litatónarnir á þessum kortum eru sex. Fyrstu tveir, þeir ljósustu eru haustlitir, hiti er í kringum frostmark - og frost ekki mjög mikið í þeim næstljósasta - það er fyrst við þriðja lit (þykkt minni en 5160 metrar) sem eitthvað fer að bíta. Fyrir utan kalda tungu vestan Grænlands er sáralítið af mjög köldu lofti á svæðinu - hérna megin norðurskautsins.
Öðru máli gegnir lengra í burtu - við sjáum meira að segja í fjólubláan lit efst á kortinu. Fyrirstöðuhæðin austur af Svalbarða flækist mjög fyrir hringrás kulda um heimskautasvæðið - það tekur tíma að losna við hana.
Kuldinn gæti komið til okkar á tvennan hátt - annað hvort myndi hæðarhryggur úr suðvestri stugga við kalda draginu við Vestur-Grænland þannig að það þvingaðist yfir jökulinn - norðanáttin vestan við dragið næði þá til Íslands - ekki ofan af Grænlandi - heldur til suðurs fyrir austan það. Í framtíðarsýn sumra spáa á það að gerast á þriðjudag í næstu viku. Þette er auðvitað of langur tími til þess að við getum gert okkur mikla grillu út af því fyrr en þá nær dregur.
Norðanáttin sem spáð er fram til þess tíma er upprunnin í fölbláu litunum - norðanátt jú, en ekki köld. Hinn möguleikinn á innreið vetrarins hér á landi er að allt norðurhvelskerfið snúi sér - en það tekur enn lengri tíma.
Síðara kortið gildir á sama tíma og það fyrra - og sýnir það sama nema hvað undir er miklu stærra svæði.
Þótt kortið sé ættað frá evrópureiknimiðstöðinni sýnir það nokkurn veginn það sama og hitt á því svæði sem sameiginlegt er. Hér sjáum við - ef vel er rýnt í kortið að heimskautaröstin (eða strangt tekið hes hennar) liggur hringinn í kringum blá svæði myndarinnar - grænu svæðin eru mjóslegin og jafnhæðarlínur þéttar.
Fjöldi lægðardraga (háloftabylgna) hreyfist austur í námunda við röstina. Þróun þeirra ræður miklu um framhaldið - við getum talið 6 til 8 bylgjur á hringnum - einhverjar þeirra munu rísa og dæla þar með hlýju lofti norður (og köldu suður) - jafnvel til okkar.
En svo langt sem þessar spár ná - 10 daga fram í tímann - eigum við allan tímann að vera norðan rastar - ekkert hlýtt loft - en hvort eitthvað kalt kemur heldur er ekki gott að sjá.
Ein eða tvær djúpar lægðir eiga að fara hjá norðanverðum Bretlandseyjum næstu dagana - ameríska spáin gerir meira úr þeim fyrir okkur heldur en evrópureiknimiðstöðin - fari svo fylgir einhver haustnæðingur - evrópureiknimiðstöðin gerir minna úr.
En málið er það að þótt hann kólni - er vetur konungur varla mættur á svæðið - hann er að sinna öðrum viðskiptavinum handan hafs - einhverjir fulltrúar leppríkja hans sýna sig þó í boðinu - en ekki hann sjálfur.
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (12.11.): 331
- Sl. sólarhring: 360
- Sl. viku: 2203
- Frá upphafi: 2409751
Annað
- Innlit í dag: 293
- Innlit sl. viku: 1983
- Gestir í dag: 262
- IP-tölur í dag: 253
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.