Ekki eins kalt og spáð var - verður eins hlýtt og spáð er?

Þótt kuldinn um helgina (sunnudagur 25. október) hafi verið heldur leiðinlegur - og ritstjórinn lent í sínum fyrsta snjómokstri á haustinu - telst hann samt ekki til neinna tíðinda. Spáð hafði verið að þykktin yfir miðju landi færi niður í 5120 metra - eða neðar - en svo lág tala telst óvenjuleg í október. Niðurstaðan varð um 60 metrum meiri - um 5180 metrar - en það er næstum algengt. 

Hvað það var nákvæmlega sem spárnar misreiknuðu sig á er ekki gott að segja. Kannski var hlýja loftið suðausturundan ágengara, kannski var upphitun sjávar vanmetin?

En þykktarkort evrópureiknimiðstöðvarinnar leit svona út síðdegis (sunnudag 25. október).

w-blogg261015a

Heildregnu línurnar sýna þykktina, en litir hita í 850 hPa-fletinum. - Jú, það er ekkert langt í mun kaldara loft - en það munar um hvern metratuginn. Hlýja loftið fyrir suðaustan land er í augnablikinu á leið til norðausturs - en nýr skammtur sækir síðan að síðdegis á mánudag - beint úr suðri. 

Ef trúa má reikningum (sem við vitum að er ekki alltaf hægt) hlýnar verulega. Um hádegi á miðvikudag (28. október) verður ástandið - að mati reiknimiðstöðvarinnar - eins og sjá má á kortinu hér að neðan.

w-blogg261015b

Hér hefur hlýnað um 300 metra (15 stig) frá sunnudegi - og hitinn í 850 hPa hækkað ámóta. Austanstrekkingur á að fylgja með í kaupbæti og eykur hann mjög líkur á að við hér niðri í mannheimum njótum - en háloftaylur er aldrei gefin veiði. - Sé þessi spá rétt fellur fjöldi dægurhámarka á veðurstöðvum landsins. Austanáttin er ekki mjög gæf á landsdægurhámörk - ólíklegt er að við náum slíku - jafnvel þótt þessi spá ræstist. Í Reykjavík er allt yfir 11 stigum óvenjulegt síðast í október - og yfir 12 stigum mjög óvenjulegt. Mánaðarhámörk einstakra stöðva eru varla í hættu því þau falla yfirleitt aldrei svo seint í haustmánuði. 

En - kannski ofmetur reiknimiðstöðin hlýindin - rétt eins kuldakastið. Bandaríska veðurstofan var nokkuð sammála þeirri evrópsku um kuldann - og er líka sammála um hlýindin - skyldu þær fara aftur saman út af sporinu? 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Stundum er skotið nokkuð yfir markið þegar spáð er marga daga fram í tímann. Aðallega hefur mér fundist það vera varðandi frostið, þ.e. oft er spáð mun meira frosti en verður. Þetta á ekki síst við þá norsku á yr. Maður fær hroll af því einu saman að horfa á tölurnar þar. Svo er hvaðan kuldinn, eða hitinn kemur. Tel mig ekki vera einan um að finnast norðaustan áttin mild undanfarna vetur.

Hjalti Þórðarson (IP-tala skráð) 26.10.2015 kl. 15:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Mars 2025
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31          

Nýjustu myndir

  • w-blogg230325a
  • Slide15
  • Slide14
  • Slide13
  • Slide12

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.3.): 4
  • Sl. sólarhring: 105
  • Sl. viku: 1338
  • Frá upphafi: 2455664

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 1198
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband