10.8.2015 | 02:04
Hitinn fyrstu sjö mánuði ársins 2015 - er hann lágur?
Veðurstofan birti á dögunum yfirlit um hita í Reykjavík og á Akureyri fyrstu sjö mánuði ársins 2015. Þar kom fram að hitinn í Reykjavík er -0,3 stigum undir meðallagi áranna 1961 til 1990, en +0,2 stig ofan við það á Akureyri. Þetta er auðvitað enginn óskahiti en í langtímasamhengi ekkert sérstaklega lágur.
Rétt er að taka fram að hér er ekki verið að fjalla um sumarhitann fyrir norðan og austan - hann hefur verið óvenjulágur í raun og veru.
Lítum á mynd sem sýnir meðalhita fyrstu sjö mánaða ársins í Reykjavík 1871 til 2014.
Jú, hitinn í ár er miklu lægri en verið hefur að undanförnu - þess vegna finnst flestum hafa verið kalt - en aðeins fyrir 13 árum hefðu þessir sjö mánuðir verið taldir alveg eðlilegir hvað hita varðar. - Það eru undanfarin 12 ár sem hafa verið allsendis óvenjuleg.
Meira að segja á hlýskeiðinu 1925 til 1965 (og maklega er rómað) voru sjö fyrstu mánuðir ársins hvað eftir annað ámóta og nú - og 1949 og 1951 töluvert kaldari. Var hlýskeiðið 1925 til 1965 búið með kuldanum fyrstu sjö mánuði ársins 1931? Það var ekki heldur búið 1949 eða 1951. Það stóð í 40 ár.
Núverandi hlýskeið sýnist á þessari mynd hafa staðið í aðeins 12 ár - ríki einhver regla í hlýskeiðasveiflum ætti það þá ekki að standa 28 ár til viðbótar? Nei - það er engin þannig regla - því miður (eða til allrar hamingju). Núverandi hlýskeið gæti þess vegna verið búið - það er engin fortíðarregla sem verndar það - það er heldur engin regla sem segir - að sé það búið - hljóti kuldi þess vegna að standa í áratugi - síður en svo.
En ljóst er að árið verður ekki sérlega hlýtt. Fyrstu sjö mánuðir ársins segja mikið um meðalhita þess í heild. Það sést vel á myndinni hér að neðan.
Lárétti ásinn sýnir meðalhita fyrstu 7 mánaða ársins í Reykjavík - en sá lóðrétti meðalhita ársins alls. Mikil fylgni er á milli. Lóðrétta strikalínan sýnir hita það sem af er ári 2015, hún sker rauðu aðfallslínuna við 4,3 stig. Svo kalt ár hefur ekki komið í Reykjavík síðan 1995 - en þá var meðalhitinn hins vegar talsvert lægri eða 3,8 stig.
Við sjáum að eitt ár - kaldara er þetta - náði að hala sig upp í fimm stig áður en því var lokið. Það var 1958.
Það má líka taka eftir því að árin sem voru áberandi hæst á efri myndinni (1964 og 1929) sprungu á limminu - stóðu ekki alveg undir væntingum. Það gerðu hins vegar 2003, 2014, 2010, 1941 og 1939.
Við lékum sama leik fyrir mánuði - þá gaf aðfallsspáin ársmeðalhitann 4,2 stig - en gefur 4,3 stig nú - júlímánuður hefur dregið ársspána upp um 0,06 stig. - En nú eru aðeins fjórir og hálfur mánuður til að vinna árið upp í 5 stig - eins og árið 1958 gerði - það er harla ólíklegt að slíkt takist.
Eitt ár hlýskeiðsins gamla lenti að lokum undir fjórum stigum. Við eigum meiri möguleika á því heldur en að ná fimmu. Keppnismenn: Hvoru liðinu fylgið þið? Því hlýja eða því kalda?
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (4.1.): 265
- Sl. sólarhring: 274
- Sl. viku: 2982
- Frá upphafi: 2427312
Annað
- Innlit í dag: 241
- Innlit sl. viku: 2678
- Gestir í dag: 221
- IP-tölur í dag: 218
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Athugasemdir
hef trú á því hlýra, það virðast vera minni sveuplur í núverandi hlískeiði en hlýskeiðinu milli 1918-1955
kristinn geir steindórsson briem (IP-tala skráð) 10.8.2015 kl. 06:55
Það er nokkuð sérkennilegt að tala um að árið í ár 2015 sé ekkert óvenjulegt hvað hitastig varðar. Það séu aðeins íðustu 12 ár sem hafa verið óvenjulega hlý.Það raunverulega óvenjulega við þetta ár er hversu miklu kaldara það er en undanfarin ár.
Reyndar er annað ár á þessu tímabili einnig kalt, en það var í hitteðfyrra (2013). Þá var ársmeðalhitinn undir fimm gráðum (4,9) en öll hin árin voru yfir það. Skrítið að það skuli ekki koma fram á grafinu hér að ofan. Líkleg skýring er sú að síðustu fimm mánuðir þess árs hafi verið mjög kaldir. Nú stefni í árshita upp á 4,3 stig sem er harla mikið hrap niður á við - og hlýtur að teljast óvenjulegt - en gæti orðið enn verra ef það hagar sér eins og 2013.
Einnig talar Trausti um að fyrra "hlýskeiðið" hafi staðið í 40 ár, frá 1925-1965 eða þar um bil. Sambærilegar tölur, sem eru til frá 1949, segja þó annað. Ársmeðaltalshitinn fer sjaldan upp fyrir 5 stigin á þessu tímabili (aðeins árin 1953, 1956-1960, 1964-65).Kannski má segja að fyrra hlýskeiðið hafi staðið í 20 ár, frá 1925-1945? Það er þá ekki svo langt frá lengd seinna hlýskeiðsins sem var 12 ár (2002-2014, eða kannski frekar 2003-2012?!).
Ég tel a.m.k. hæpið að tala um hlýskeið þegar ársmeðaltalshitinn er undir 5 stigum. Síðasta hlýskeiði lauk því um áramótin 2012-2013 (2014 undantekningin sem afsannar ekki regluna!). Árið í ár er annað árið (af þremur) sem sýnir, að mínu mati, að nýtt "kuldaskeið" sé hafið, svipað hitafar og á köldustu árunum 1979-1995. Þetta nýja kuldaskeið gæti þannig staðið í 15 ár ...
Leiðinlegt en því miður bendir margt til þess að svo verði. Þetta er hins vegar engin keppni eða óskhyggja - hvað þá metingur!
Torfi Stefánsson (IP-tala skráð) 10.8.2015 kl. 07:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.