3.8.2015 | 02:45
Haustgrunur?
Fyrst er að fylgjast með framsókn sumarsins - og einhvern tíma nær hún hámarki. Í heiðhvolfinu gerist það strax skömmu eftir sólstöður - en þar er samt langt í haust nú í byrjun ágústmánaðar - sumaraustanáttin er enn ríkjandi. Uppi við miðhvörfin (í um 90 km hæð) eru hlutirnir nokkuð öfugsnúnir - þar er kaldasti tími ársins um mitt sumar - tími silfurskýjanna.
Þau getum við þó ekki séð (vegna birtu) fyrr en eftir 25. júlí. Svo hverfa þau mjög snögglega í ágúst - oftast um miðjan mánuð - þá er orðið of hlýtt þarna uppi til að þau geti haldist við. Segja má að brotthvarf þeirra séu þar fyrstu merki haustkomunnar.
Í Norðuríshafi bráðnar venjulega meiri ís en myndast allt til ágústloka - og í sumum árum allan september líka. En sól lækkar óðum á lofti - þannig að kuldinn á sífellt auðveldara með að ná sér á strik - fái hann frið til þess.
Kuldapollar vetrarins á undan lifa í einhverri mynd nokkuð langt fram eftir sumri - og varla nokkur tími sumarsins sem algjör friður er fyrir þeim. - En það er segin saga að þeir fara að taka sig upp með vaxandi þunga strax í ágúst. Hringsóla um íshafið - og gera stundum útrásir suður á bóginn - og nýir myndast þá fljótlega í stað þeirra sem fara.
Einn slíkur er nú á sveimi og sést hann vel á myndinni hér að neðan. Hún sýnir 500 hPa hæðar- og þykktarspá bandarísku veðurstofunnar sem gildir síðdegis á þriðjudaginn, 4. ágúst.
Norðurskaut er nærri miðri mynd. Ísland alveg neðst. Jafnhæðarlínur eru heildregnar - af þeim má ráða vindstyrk og stefnu í miðju veðrahvolfi. Litirnir sýna þykktina - hún mælir hita í neðri hluta veðrahvolfs. Hér er Ísland að miklu leyti í gula litnum - heldur sjaldgæf sjón í sumar - nærri meðallagi árstímans en ekki neðan þess eins og lengst af hefur verið.
Blái liturinn hvarf af kortunum í nokkra daga í júlí - en er nú kominn aftur. Hugsanlega hverfur hann aftur dag og dag - en er annars kominn til að vera og fyrr en varir verða bláu litirnir aftur orðnir tveir.
Enn er langt til hausts - en samt sjáum við til þess við ystu sjónarrönd.
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (4.1.): 265
- Sl. sólarhring: 273
- Sl. viku: 2982
- Frá upphafi: 2427312
Annað
- Innlit í dag: 241
- Innlit sl. viku: 2678
- Gestir í dag: 221
- IP-tölur í dag: 218
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Athugasemdir
Þessi glyrna er ekki árennileg. En í tilefni dagsins bíð ég gesti mínum upp á glyrnu með kaffinu,lítið staup með líkjöri í.
Helga Kristjánsdóttir, 3.8.2015 kl. 15:57
skemtilegt haglið sem kom um dagin varla boðar það komu vetrar. nú er að spá í kaffibollan fyrir veturin, trúlega verður hann úrkomusamur en hlýr hér um slóðir en hlýr ef marka má hjátrúna. síðann vonumst við til að vetur konúngur sleppi rokinu í vetur er nokkuð bjartsítn á það.svo senilega verðum við að vorkenna norðlendíngum næsta veturef marka má reinsluna
kristinn geir steindórsson briem (IP-tala skráð) 3.8.2015 kl. 17:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.