Þurrt loft yfir landinu

Á morgun, laugardaginn 13. september, verður þurrt loft yfir landinu. Var það reyndar líka síðdegis í dag (föstudag). Sá þurrkur virtist koma með vestanáttinni hvössu ofan að frá Grænlandi. Þurrkur morgundagsins - alla vega sá yfir Vesturlandi er hins vegar eitthvað flóknara mál - við látum vera að fimbulfamba um það. 

Fyrsta kortið sýnir rakastig eins og harmonie-spálíkan Veðurstofunnar segir það verða um kl. 15 á morgun, laugardag.

w-blogg130914a 

Hér er aðalþurrkurinn austanlands - eins og vera ber í suðvestan- og vestanáttinni. Þar sjást mjög lágar tölur (prósentur), jafnvel niður undir 20 prósent á Héraði og yfir eldgosaslóðum í Holuhrauni. Snæfellsnesfjallgarðurinn á Vesturlandi er hins vegar hulinn skýjum - en rakastig undir 70 prósentum í Borgarfirði og á höfuðborgarsvæðinu. Einkennilegir hárakablettir eru undan Austur- og Norðausturlandi - er líkanið í flippi - eða verður þetta svona?

Ef við hoppum upp um einn staðalþrýstiflöt og lítum á rakann í 925 hPa kemur í ljós að þar er skraufþurrt loft á ferð - rétt í Esjuhæð.

w-blogg130914b 

 Ský eru á Snæfellsnesi - en yfir Faxaflóa er ævintýralega þurrt loft - rakastigið undir 10 prósentum. Svona nokkuð sést furðuoft í líkönum - en er á mörkum hins trúlega. Hér hlýtur að vera um mikið niðurstreymi að ræða - ekki sést úr hvaða hæð þetta loft er „upphaflega“ komið. Líkanið fær það í fangið - nokkurn veginn í þessari hæð úr heimslíkani evrópureiknimiðstöðvarinnar. 

En hversu þykkt er þetta þurra lag? Svar við því fæst á þriðju myndinni sem sýnir rakasnið sama tíma úr harmonie-líkaninu.

w-blogg130914c 

Sjá má legu þversniðsins á litlu myndinni í efra hægra horni, það liggur frá suðri til norðurs eftir 23. lengdarbaugnum. Litirnir sýna rakastigið - heildregnar línur jafngildismættishitann í sniðinu (höfum ekki áhyggjur af honum í þetta sinn) en hvítar strikalínur sýna eðlisraka - hversu mikil vatnsgufa (í grömmum) er í hverju kílói lofts. Myndin skýrist eitthvað við stækkun.

Hér sést þurra loftið sérlega vel - það rétt nær niður í 925 hPa (sjá lóðrétta kvarðann) og síðan upp í um 800 hPa, milli tveggja og þriggja kílómetra. Þar fyrir ofan er rakara - miðský (og háský) frá lægðakerfi sem nálgast annað kvöld. Þurrara loft er þar enn ofan við. 

Rakara loft liggur sem klessa yfir Faxaflóa neðst vinstra megin á myndinni. Sunnan- og suðvestanátt er í lofti og býr til bylgju yfir Snæfellsnesi - hún nær að hræra þurrasta loftinu saman við rakara loft fyrir ofan. Rakastigið er talsvert hærra yfir Breiðafirði heldur en Faxaflóa. 

Svona er það - segir líkanið. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 386
  • Sl. sólarhring: 509
  • Sl. viku: 1702
  • Frá upphafi: 2350171

Annað

  • Innlit í dag: 346
  • Innlit sl. viku: 1549
  • Gestir í dag: 336
  • IP-tölur í dag: 324

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband