Hamskiptin

Hungurdiskar hafa oftar en einu sinni fjallað um hamskipti hitabeltisstorma yfir í norrænar lægðir - síðast í gær. Eins og þar kom fram er fellibylurinn Cristobal nú að undirgangast skiptin. Við notum það tækifæri til að líta á gervihnattamynd sem sýnir kerfið - klæðlítið ef svo má segja. Myndin er fengin af vef kanadísku veðurstofunnar - framhaldið sést svo vel á vef Veðurstofunnar næsta sólarhringinn rúman. Fer kerfið þá væntanlega í nýja haminn og fær svip hefðbundinnar lægðar. 

En hér er myndin sem tekin er seint á föstudagskvöldi 29. ágúst.

w-blogg300814a

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Til hægðarauka hefur rautt L verið sett in þar sem evrópureiknimiðstöðin vill hafa lægðarmiðjuna á sama tíma. Mjög erfitt er að greina hana á þessari mynd. Á gervihnattamyndum einkennast fellibyljir af gríðarmikilli og þéttri þrumubólstrasambreiskju sem greinilega sýna hringstreymi gjarnan í kringum um skýlítinn blett - augað. Þetta mátti sjá á mynd sem fylgdi pistli gærdagsins.

Hér er búið að svipta kerfið þessum einkennum. Smávegis af bólstrum hefur verið skilið eftir þar sem lítið s hefur verið merkt á myndina. Engin háský hringa sig lengur þétt um lægðarmiðjuna og raunar er mjög lítið af háum skýjum sunnan lægðarmiðjunnar - gæti þó verið eitthvað af lágskýjum - jafnvel sjáum við alveg niður til sjávar. Þarna hlýtur að vera mikið niðurstreymi sem eyðir öllum háskýjum. 

Norðan lægðarmiðjunnar eru háskýjabönd - þau hæstu eru sýnd gulbrún að lit. Þau veltast í breiðum boga í hæðarsnúningi langt yfir hringrás sjálfrar lægðarinnar. Mikill vindur er í þessum háloftahæðarhrygg og ber hann skýjaböndin hvert á fætur öðru hratt til austurs - og síðan suðausturs. 

Háloftaröstin sést mjög vel á myndinni hér að neðan. Þetta er spá evrópureiknimiðstöðvarinnar um vindátt og vindhraða í 300 hPa um svipað leyti og myndin. 

w-blogg300814c

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Örvarnar sýna vindátt og vindstyrk - en (heimskauta-)röstin -  þar sem vindurinn er sterkastur er sýnd með litum. Á bláa svæðinu er vindurinn milli 60 og 70 m/s. Sjá má lægðarmiðjuna merkta með tveimur litlum hringjum austur af Nýfundnalandi. Í röstinni má sjá tvo kjarna - eða skotvinda. Sá sem er fyrir suðvestan lægðarmiðjuna hefur enn ekki komið sér upp háskýjum - en þau koma. 

Næsta sólarhringinn dýpkar lægðin lítið eða ekki - en síðan á hún stefnumót við kuldapoll - eins og sagt var frá í pistlinum í gær - og verður ekki endurtekið hér.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • w-blogg010125i
  • w-blogg010125
  • w-blogg271224a
  • w-blogg271224aa
  • w-blogg261224ia

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.1.): 1098
  • Sl. sólarhring: 1109
  • Sl. viku: 3488
  • Frá upphafi: 2426520

Annað

  • Innlit í dag: 983
  • Innlit sl. viku: 3139
  • Gestir í dag: 950
  • IP-tölur í dag: 879

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband