27.6.2013 | 00:38
Sumargæði í Reykjavík síðustu 90 árin
Fyrir nokkru reyndu hungurdiskar að telja sumardaga í Reykjavík. Í þeirri talningu kom í ljós að síðustu sumur hafa verið sérlega gæf hvað slíka daga varðar. Reyndar eru yfirburðir þeirra fram yfir fyrri sumur svo mikil að ótrúlegt má teljast. Nú er reynd önnur nálgun.
Hún fer þannig fram að litið er á fjóra veðurþætti. Þeir eru mánaðameðalhiti, mánaðarúrkoma, sólskinsstundafjöldi mánaða og úrkomudagafjöldi mánaða. Dagur er talinn úrkomudagur sé sólarhringsúrkoma einn millimetri eða meiri. Í upphafi var miðað við tímabilið 1933 til 2012 - 80 ár og hver mánaðanna júní, júlí og ágúst teknir sér.
Næst var júnímánuðum raðað frá þeim hlýjasta til þess kaldasta. Sextán hlýjustu mánuðirnir (fimmtungur úrtaksins) fengu einkunnina 1, næstu sextán 2 og þeir sextán köldustu fengu töluna fimm. Sömu aðferð var beitt á hinar breytistærðirnar þrjár, sólríkustu mánuðirnir fengu 1 í einkunn en sextán þeir lökustu töluna 5, þurrustu mánuðirnir og þeir sem fæsta áttu úrkomudagana fengu 1 í einkunn, en þeir votustu og úrkomutíðustu fengu 5. Eins og sjá má eru gæði hér metin að nútímahætti. Landbúnaður vill frekar að júní sé tiltölulega úrkomusamur en hlýr - en síðan taki þurrviðri með hlýindum við.
Að lokum eru tölur mánaðanna þriggja ár hvert lagðar saman. Því hærri sem talan er því laklegra var sumarið.
Nú verður að upplýsa að upphaflega ætlaði ritstjórinn að búa til eins konar hrakdagatal fyrir Reykjavík - í andstöðu við sumardagatalið. Í ljós kom hins vegar að virkilegir hrakdagar reyndust fáir og furðumörg sumur án slíkra daga. Sú aðferð sem notuð var reyndist sumsé misheppnuð (og þarf ekki að upplýsa meir um hana). Þá var gripið til aðferðarinnar að ofan - hugmyndin var að leita að rigningasumrum og rigningamánuðum. Þess vegna er hærri einkunn gefin fyrir verra veður - því hærri sem talan var því lakari er mánuðurinn.
En - þegar þetta var komið á mynd varð einhvern veginn ankannanlegt að bestu sumrin skyldu skora lægst. Lokahnykkurinn varð því sá að snúa lokakvarðanum við - á myndinni hér að neðan eru það því bestu sumrin sem fá hæsta einkunn. Tímabilið var síðan lengt aftur til 1921, en sömu einkunnabil notuð.
Eitt sumar skoraði á fullkomlega neikvæðan hátt - fékk núll í einkunn, allir veðurþættir allra mánaðanna fengu 5 - fullkomna skor á hrakviðrakvarðanum, en núll í gæði. Þetta er auðvitað hið illræmda sumar 1983. Ekkert sumar á tímabilinu náði mestu hugsanlegri gæðaskor, 48, en sumarið 2009 komst næst því með 41 stig. Sumur síðustu ára skera sig úr - eins og í sumardagatalningunni - en fá smásamkeppni frá árum í kringum 1930.
Topp-tíu listinn er svona:
röð | ár | gæðaeinkunn | |
1 | 2009 | 41 | |
2 | 1928 | 40 | |
2 | 1931 | 40 | |
4 | 2010 | 39 | |
4 | 2012 | 39 | |
6 | 2011 | 38 | |
7 | 1951 | 37 | |
7 | 1957 | 37 | |
7 | 2007 | 37 | |
10 | 1927 | 36 | |
10 | 1958 | 36 |
En minnt er á að þetta gildir fyrir Reykjavík - líklegt er að ámóta listi eigi við um landið suðvestanvert, en annar norðaustanlands. En lítum líka á botnsætin - þar ættu rigningasumrin að liggja:
röð | ár | gæðaeinkunn | |
1 | 1983 | 0 | |
2 | 1925 | 6 | |
2 | 1984 | 6 | |
4 | 1976 | 8 | |
5 | 1923 | 9 | |
6 | 1955 | 10 | |
6 | 1975 | 10 | |
6 | 1989 | 10 | |
9 | 1969 | 11 | |
10 | 1995 | 12 | |
11 | 1937 | 13 | |
12 | 1947 | 14 | |
13 | 1940 | 15 |
Af frægum rigningasumrum saknar maður helst sumarsins 1972 - en á listanum eru að öðru leyti góðkunningjar veðurnörda. Þau munu þó varla mörg muna 1925 - en það sumar á nokkuð óvænta innkomu - ritstjórinn hefði heldur veðjað á að 1926 væri í hópnum.
Tveir júnímánuðir (2008 og 2012) náðu toppskor (16 stigum) í gæðum en júní 1923, 1979 og 1983 liggja á botninum. Fimm júlímánuðir eru með fullt hús gæða (1936, 1939, 1957, 1958 og 2009), júlí 1925, 1983 og 1989 eru í botni (núll stig). Enginn ágústmánuður er með 16 stig, ástæðan er sennilega sú að sól hefur lækkað á lofti og mikill hiti og mikið sólskin falla síður saman þegar liðið er á sumarið - en það hlýtur samt að koma að því. Þrír ágústmánuðir eru með 15 stig, 1931, 1960 og 2011. Þrír ágústmánuðir ná engu stigi, 1937, 1976 og auðvitað 1983.
Af uppgjöri einstakra mánaða má sjá að fullteins góðir mánuðir hafi komið á árum áður og þau síðustu, en úthald sumra áranna frá og með 2009 hefur verið mjög sérstakt.
Hvar 2013 endar vitum við ekki, en júní virðist það sem af er liggja undir meðalgæðum samkvæmt matsaðferð dagsins.
Hér er auðvitað um leik að ræða en ekki loftslagsvísindi - lesendur hafi það í huga.
Viðbót: Listi um einkunnir einstakra mánaða og sumra er í viðhengi. Þar má einnig finna samskonar mat fyrir Akureyri. Verði þeim að góðu sem vilja neyta.
Flokkur: Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 21:25 | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.12.): 46
- Sl. sólarhring: 239
- Sl. viku: 1008
- Frá upphafi: 2421108
Annað
- Innlit í dag: 42
- Innlit sl. viku: 882
- Gestir í dag: 40
- IP-tölur í dag: 40
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Athugasemdir
Skemmtilegur sumarleikur. En gaman væri nú að sjá, t.d. í fylgiskjali, einkunnargjöf allra mánaðnna hvers fyrir sig og svo sumranna líka.
Sigurður Þór Guðjónsson, 27.6.2013 kl. 15:12
Sigurður. Fylgiskjalið gleymdist þegar færslan var sett inn - en er nú komið á sinn stað. Sem bónus er þar líka að finna samskonar uppgjör fyrir Akureyri.
Trausti Jónsson, 27.6.2013 kl. 21:26
Þetta er auðvitað áhugavert og nú getur maður farið að bera saman við eigið einkunnakerfi. Einhver munur er hér og þar enda aðferðir ólíkar, en við erum sammála um besta sumarið og það sísta frá upphafi minna skráninga 1986.
Emil Hannes Valgeirsson, 27.6.2013 kl. 23:16
Emil, það er gaman að eitthvert samræmi sé með mati þínu og þessu. Auðvitað er hægt að bæta um betur hérna megin og gera þetta vandvirknislegar. Það eru t.d. alls konar misduldir gallar sem leynast í „minni“ aðferð, t.d. sá að hún gefur ekki möguleika á metingi milli stöðva. Langalvarlegasta gallann ætla ég ekki að upplýsa - en hann stendur á nærbuxunum einum ef vel er leitað - t.d. með því að endurtaka matið lið fyrir lið. Það eru hins vegar fáir sem nenna að standa í því. En - topp- og botnlistar verða nær þeir sömu.
Trausti Jónsson, 28.6.2013 kl. 00:17
Spái því að þetta sumar lendi mjög neðarlega á gæðaskalanum, því miður Mun sennilega fá mínus 5-10 stig í gæðaskalanum.
Þori næstum að veðja stórfé á þetta, því þær langtímaspár sem ég hef séð, benda því miður til áframhaldandi vætu og svölu veðri. Það er einfaldlega ekkert sem bendir til annars, því miður.
Sumarið 1983 var töluvert betra en sumarið í ár, því allur maí það ár var bjartur og sólríkur og nokkuð hlýr.
Það sama varð ekki sagt um maí nú í ár sem var sólarlítill, svalur og vætusamur.
Hitinn hefur örsjaldan farið yfir 11 gráður nú í sumar, og sólin sjaldan sést nema nokkrar mínútur í einu.
Þetta er eitt lengsta stöðugleiktímabil í veðri sem ég man eftir. Það búið að vera nær algjörlega verið sama veðrið hér um slóðir síðan í seinnihlutan í apríl nú í vor og allar hrofður að svo verði næstu 2 vikurnar.
Það má búast við því að það verði sprenging í sólarlandaferðum landans nú seinna í sumar og sennileg verður algjört met slegið í þeim efnum.
En mér skilst að veðurspekúlantar og loftslagshlýnunarhræðslumenn séu hæst ánægðir með sumarið í ár og finnst það bar hafa verið gott. Sennilega hafa þeir fengið nett flass-bakk til rigningarsumranna á árunum milli 1970-1980 sem að þeirra mati eru"eðlileg" sumur.
Sumarið 2013 mun svo sannarlega bera heitið; "The Year Without a Summer" og mun bera það nafn með rentu.
Minni á að seinni partinn nú í dag (fimmtudag 27. júní) var skúraveður og hiti 8-9 stig.
Fyrir u.þ.b. hálfu ári, eða laugardaginn 22. des. 2012 var veðrið reyndar betra en þetta því þá var þurrt og skýjað og hiti 8 stig.
Björn J. (IP-tala skráð) 28.6.2013 kl. 00:27
Eftir þessum kvarða koma síðustu sumur ótrúlega vel út í mörg ár, ekki bara í Reykjavík heldur líka fyrir norðan þó stundum hafi menn undanfarin ár verið að kvarta yfir lélegum sumrum þar. En nú eru þáttaskil. Hingað og ekki lengra, segir náttúran!
Sigurður Þór Guðjónsson, 28.6.2013 kl. 00:51
Er það ekki fullmikið að segja með breyttu orðalagi að það sem af er sumars núna (28.6.) sé töluvert verra en 1983? Reyndar var meira sólskin núna í maí en 1983 en aðeins kaldara þá í Reykjavík en talsvert hlýrra á landinu öllu en maí er nú varla sumarmánuður. Það nær svo engri átt að jafna júní 2013 við sumarástandið 1983. En alltaf er spennandi að vita af einhverjum veðurspekúlöntum g gaman væri að vita við hverja er þarna átt. Skyldi ég nokkuð þekkja þá?!!
Sigurður Þór Guðjónsson, 29.6.2013 kl. 15:46
Hlýrra sem sagt í maí 1983 í Reykjavík en 2013 en þó kaldara á landinu.
Sigurður Þór Guðjónsson, 29.6.2013 kl. 17:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.