Mikið um að vera á norðurhveli - eins og vera ber nærri sólstöðum

Enn lítum við á hefðbundið norðurhvelskort - það breytir stórlega um útlit frá degi til dags og sýður á flestum bylgjum. Kortið gildir um hádegi á laugardag 8. desember.

w-blogg061212

Ísland er rétt neðan við miðja mynd, nærri því ofan í einni stuttbylgjumiðjunni (laugardagslægðin). Sú situr óþægilega ofan á stórum hrygg og fellur hratt til suðausturs og suðurs á jaðri hryggjarins og styrkir kuldasvæðið á meginlandinu. Afleit og kröpp lægð er að komast suður á Miðjarðarhaf. Sú fór tíðindalítið hjá hér í dag (miðvikudag) - en er orðin illvíg þar suður frá. Þykkt er spáð niður undir 5200 metra á Ítalíu á sunnudaginn - það er efni í mikla snjókomu í inn- og uppsveitum.

Hér hvessir eitthvað í svip meðan laugardagslægðin skýst hjá en léttir fljótt til aftur þegar hæðarhryggur fylgir á eftir. Gríðarlegar sveiflur eru síðan í spám sem ná lengra fram í tímann og virðist lægðin sem á kortinu er langt suðvestur í hafi sé erfið viðureignar.

Heimskautakuldinn (fjólublár litur) sem var mestur yfir Síberíu fyrir nokkrum dögum hefur á kortinu fært sig yfir á vesturhvel og svæðið kringum norðurskautið. Hann heldur áfram að sullast um. Þótt hann sé ekkert á suðurleið að sinni hefur hann samt mikil áhrif á bylgjumynstrið með umbrotum sínum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Takk fyrir fróðleikinn, er hægt að sjá reglulega svona norðurhvelskort á vedur.is? (ég rata allavega ekki inná það ef það er til)

Ari (IP-tala skráð) 6.12.2012 kl. 12:43

2 identicon

"Ísland er rétt neðan við miðja mynd." Er ekki stutt í heimskautakuldann (fjólublár litur) Trausti?

Hilmar Hafsteinsson (IP-tala skráð) 6.12.2012 kl. 19:32

3 Smámynd: Trausti Jónsson

Ari - norðurhvelskortin eru aðgengileg hjá Veðurstofunni, en vegna óskiljanlegrar(?) leyndarhyggju evrópureiknimiðstöðvarinnar má Veðurstofan strangt tekið ekki dreifa tenglum á þau á alþjóðavísu. Sendu mér póst á trausti@vedur.is.

Hilmar, mörk fjólubláu litanna og þeirra bláu er við 4920 metra á myndinni. Svo lítil þykkt er alveg sárasjaldgæf hér á landi og má nánast telja upp þau fáu tilvik síðustu 60 ára á fingrum annarrar handar. En fjólublái liturinn hefur þó komist til landsins.

Trausti Jónsson, 7.12.2012 kl. 01:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • w-blogg020524b
  • w-blogg020524a
  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 58
  • Sl. sólarhring: 152
  • Sl. viku: 567
  • Frá upphafi: 2351358

Annað

  • Innlit í dag: 48
  • Innlit sl. viku: 485
  • Gestir í dag: 47
  • IP-tölur í dag: 46

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband