10.8.2012 | 00:45
Af hitametum dagsins (9. ágúst 2012)
Í dag (fimmtudaginn 9. ágúst) féll fjöldi hámarkshitameta. Ekki er rúm til að greina frá þeim öllum hér - enda ekki alveg tímabært. Met eiga sér ákveðna goggunarröð. Merkilegast er þegar hitamet fyrir landið allt fyrir árið í heild fellur. Það gerðist ekki nú. Næstmerkilegast er þegar landshitamet einstakra mánaða falla, í þessu tilviki ágústmánaðar. Það gerðist ekki heldur nú. Næst í goggunarröðinni eru dægurmet fyrir landið í heild (eitt féll núna). Síðan koma hæstu árshámörk einstakra stöðva - slatti af slíkum féll í dag. Við lítum nánar á þau hér að neðan. Að lokum eru dægurmet einstakra stöðva - fjölmörk slík fuku í dag (sleppum þeim - nær alveg).
Ný árshámörk teljast því merkilegri eftir því sem stöðin hefur athugað lengur. Síðasta stóra hitabylgjan kom í lok júlí 2008. Við skulum sleppa því að geta um stöðvar sem athugað hafa skemur en frá þeim tíma - þær eru margar og metin því mörg. Næsta hitabylgja þar á undan var sú í ágúst 2004. Stöð sem athugaði í þessum tveimur hitabylgjum og á met í dag er orðin nokkuð sjóuð - og met á henni telst því merkilegt.
En sjálfvirkar stöðvar sem settu met í dag (og byrjuðu fyrir 2008) eru (tölur í °C):
byrjar | nýtt met | nafn | ||
1998 | 28,0 | Eskifjörður | ||
1999 | 27,9 | Neskaupstaður sjálfvirk stöð | * | |
2007 | 27,8 | Fáskrúðsfjörður Ljósaland | ||
2000 | 27,6 | Kollaleira sjálfvirk stöð | * | |
1995 | 27,0 | Seyðisfjörður | ||
1996 | 26,8 | Bjarnarey | ||
1994 | 25,9 | Dalatangi sjálfvirk stöð | * | |
2000 | 25,8 | Vattarnes | ||
2000 | 24,5 | Brúðardalur | ||
2005 | 24,3 | Akureyri - Krossanesbraut | * | |
2005 | 22,4 | Flatey á Skjálfanda | ||
2006 | 21,9 | Þórdalsheiði | ||
1994 | 21,4 | Fontur | ||
2007 | 21,2 | Hallsteinsdalsvarp | ||
2006 | 21,1 | Brúaröræfi | ||
1996 | 24,6 | Fagridalur | ||
1995 | 23,5 | Oddsskarð | ||
2006 | 21,7 | Öxi | ||
1997 | 22,0 | Breiðdalsheiði |
Sjá má litla stjörnu á eftir nafni fjögurra stöðva - þar eru til alllangar raðir mannaðra athugana. Í Neskaupstað er talan í dag hærri heldur en hefur mælst þar áður - mannaðar mælingar byrjuðu 1975. Stigin 27,8 eru e.t.v. merkilegasta uppskera dagsins. Hitinn á Eskifirði er met fyrir 9. ágúst á landinu öllu.
Á Kollaleiru var mönnuð stöð frá 1976 til 2007. Á henni mældist 28,9 stiga hiti þann 4. júlí 1991 - ótrúlega hátt en áreiðanlega rétt. Sami hiti mældist á Seyðisfirði í hitabylgjunni miklu í júlí 1911 ög stendur það met enn. Annars er sjálfvirka stöðin á allt öðrum stað í firðinum og ætti því varla að berast saman við þá mönnuðu þar sem athugunum lauk 2001.
Mannaða stöðin á Dalatanga á sjónarmun hærri tölu en sjálfvirka stöðin sýndi í dag, það eru 26,0 stig sem mældust 12. september 1949 og er enn hæsti hiti sem mælst hefur á landinu í september. Hiti á Akureyri hefur auðvitað orðið meiri en Krossanesbrautin mældi í dag. En mannaða stöðin þar var sjónarmun hærri heldur en Krossanesbrautin að þessu sinni með 24,3 stig.
Þetta er hæsti hiti sem mælst hefur 9. ágúst á Akureyri. Síðastliðin nótt (aðfaranótt þ.9.) var mjög hlý og var mældist hæsti lágmarkshiti næturinnar á landinu á Akureyri og Skjaldþingsstöðum, 17,2 stig. Þetta er óvenju hátt - en samt ekki met. Hæsta næturlágmark á Akureyri mældist 4. júlí 1991 (sama dag og Kollaleirumetið að ofan) 17,7 stig. Reykjavík á reyndar 18,2 stig sem hæsta næturlágmark (31. júlí 1980).
Hæsta næturlágmark sem vitað er um hér á landi eru 20,4 stig sem mældust á Seyðisfirði 22, júlí árið 2000. Það er eina skiptið sem hiti á íslenskri veðurstöð hefur ekki farið niður fyrir 20 stig að næturlagi.
Líklega verður varla eins heitt á morgun (föstudag) og var í dag, en þó verður annað met líklega jafnað á morgun því þá verða komnir 15 dagar í röð með landshámarkshita 20 stigum eða meir. Ef 20 stig mælast einhvers staðar á laugardag er komið nýtt met í tuttugustigasyrpu. Lesa má um slíkar syrpur í fróðleikspistli á vef Veðurstofunnar.
Reyndar er með þetta met eins og mörg önnur að niðurstaðan fer að nokkru eftir því hvernig talið er. Stundum gerist það (á mönnuðum stöðvum) að hámarkshiti dagsins verður kl. 18 eða síðar að deginum. Sá hiti lekur yfir á hámarkshita dagsins eftir sem þá getur talist 20 stiga dagur án þess að hiti þann dag fari nokkurn tíma í 20 stiga markið. Þessi skráningarháttur getur því brúað eins dags göt í syrpulistum. Lengsta slíka syrpan er 18 dagar - en vel má vera að við náum þeim dagafjölda líka nú - við fylgjumst með.
Alla dagana 6. til 25. júlí 1927 fór hámarkshiti dagsins í 20 stig eða meir á Grímsstöðum á Fjöllum. Þetta eru tuttugu dagar í röð. Miðað við hita á staðnum sömu daga kl. 15 er þetta ekki alveg trúverðugt - en mjög þurrt var þá á þessum slóðum og dægursveifla hitans mjög stór langflesta dagana. Við eigum þessa syrpu á lager.
Að lokum er rétt - til skemmtunar (eða þannig) að minnast á úrkomuspá fyrir Reykjavík næstu daga. Á vef Veðurstofunnar er nú spáð 46 mm úrkomu á laugardag og sunnudag. Það er ekki oft sem það gerist. Til að athuga málið var flett upp á spá bandarísku veðurstofunnar fyrir Reykjavík á sama tíma. Þar kemur í ljós að úrkomumagnið sem falla á frá því kl. 15 á morgun - föstudag til sama tíma á sunnudag er 157 mm. Því er varla hægt að trúa - þetta væri glæsilegt met. Sé rýnt í spákortin kemur í ljós að hér er í báðum tilvikum um örmjótt úrkomusvæði (reyndar tvö) að ræða með mjög mikilli úrkomu á litlu svæði. Ekki er víst að það verði til í næstu spá - en það er alltaf eitthvað í pípunum.
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.3.): 166
- Sl. sólarhring: 235
- Sl. viku: 1728
- Frá upphafi: 2452834
Annað
- Innlit í dag: 157
- Innlit sl. viku: 1599
- Gestir í dag: 154
- IP-tölur í dag: 153
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.