Krossmessukast?

Það hefði mátt sleppa spurningarmerkinu í fyrirsögninni ef við erum að hugsa til veðurspár næstu daga. Einhver norðangusa kemur á sunnudag og mánudag með frosti og leiðindum víða á landinu. Hins vegar er afl hennar og eðli ekki enn ljóst og því er fullsnemmt fyrir hungurdiska að fara að smjatta á hinum mismunandi spám og hvernig þær kunni að bregðast. En við skulum af uppeldislegum ástæðum líta á 500 hPa hæðar- og þykktarspá frá evrópureiknimiðstöðinni og gildir hún um hádegi á sunnudag. Nokkrum örvum hefur verið bætt á kortið til áhersluauka. 

Textinn hér að neðan er nokkuð tyrfinn og einkum ætlaður veðurnördum og þeim sem haldnir eru kortalosta.

 w-blogg110512

Fyrst skulum við hafa yfir kortaþuluna sístögluðu. Jafnhæðarlínur 500 hPa-flatarins eru svartar og heildregnar, merktar í dekametrum (1 dekametri = 10 metrar), en jafnþykktarlínur eru rauðar og strikaðar. Þær eru einnig merktar í dekametrum. Í báðum tilvikum eru 6 dekametrar (60 metrar) milli lína. Hvasst er í 500 hPa þar sem jafnhæðarlínurnar eru þéttar. Vindhraði yfir vestanverðu landinu er um 12 m/s í 5280 metrum, en aðeins 5 til 8 m/s yfir Austurlandi.

Fyrir nokkrum dögum var líka fjallað um kort af þessu tagi (hungurdiskar 2. maí). Þar var staðan sú að jafnhæðar- og jafnþykktarlínur féllu saman og þá þannig að brattinn á sviðunum var til sömu handar. Hér er mjög ólíkt ástand. Gríðarlegt misgengi er á milli sviðanna tveggja. Þykktarbratti yfir landinu er meiri heldur en hæðarbratti. Hægt er að reikna „vindhraða“ í þykktarsviðinu - því brattara sem þykktarsviðið er því meiri er þessi vindur - sem á íslensku má kalla þykktarvinden á erlendum málum nefnist hann „thermal wind“ (bein þýðing væri varmavindur - en það heiti væri villandi).

Þar sem þykktarbratti er mikill en enginn hæðarbratti á móti verður til mikill vindur í lægri hluta veðrahvolfs, í stefnu andstæða þykktarvindinum. Lesendur mega ekki hafa áhyggjur af því að átta sig ekki á þessu. Margar endurtekningar þarf til.

Örvarnar á kortinu sýna (vonandi) glögglega að saman stefna kalt loft sem ryðst suður frá Norðaustur-Grænlandi og hlýtt sem streymir til norðurs fyrir austan og norðaustan land. Við getum nærri því séð hvernig þykktarsviðið herpist saman. Vindhraði og hiti ráðast síðan af smáatriðum í árekstrinum - hvenær og hvar hann á sér stað - fari hlýja loftið t.d. að mestu framhjá lendir landið inni í kuldanum en þar sem þá væri aðeins gisið þykktarsvið yfir - yrði vindur lítill. Komi hlýja loftið að með meiri ákefð og fyrr en hér er sýnt verður þykktarsviðið enn þéttara og vindur meiri.

Það er hins vegar tilgangslítið að rekja atburðarás sem enn er þrjá daga í framtíðinni í smáatriðum. Besta matið fellst í spám Veðurstofunnar á hverjum tíma en ekki í steypurausi ritstjóra hungurdiska.

En spurningarmerkið í fyrirsögninni tekur líka til nafns á hreti sem gerir á þessum tíma í maí. Varla er það alþekkt?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Kortalostaveðurnörd... OMG!

Gunnar Th. Gunnarsson, 11.5.2012 kl. 14:04

2 Smámynd: Ben.Ax. (Benedikt  Jóhannes Axelsson)

Sæll. Ég hef dvalist í Gautaborg frá miðjum febrúar og finnst mér veðrið hér vera að mörgu leyti svipað og heima. Samt tala Íslendingar hérna um lengra sumar og meiri hlýindi en á Íslandi. Hér hefur hitinn verið í kringum 10° lengi og frekar andkalt. Hver er í raun munurinn á veðrátturnni hér og heima?

Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson), 11.5.2012 kl. 14:26

3 Smámynd: Trausti Jónsson

Þetta er alveg raunverulegt Gunnar. Benedikt, ég er hef sænsku meðaltölin ekki við hendina þar sem ég sit við tölvuna - en sennilega má finna þau á vef sænsku veðurstofunnar (smhi.se). Það er hlýrra í Svíþjóð sunnanverðri á sumrin heldur en hér á landi þar vorar fyrr og haustar seinna. Vetur eru stundum kaldari þar heldur en á Íslandi - en það er þó ekki algengt. Sólskinsstundir í Svþjóð eru fleiri heldur en á Íslandi og vindur hægari. Ströndin utan við Gautaborg er þó vindasöm og þó nokkuð oft verður mikið foktjón í Svíþjóð. En ég skal reyna að muna eftir að fletta upp raunverulegum tölum.

Trausti Jónsson, 12.5.2012 kl. 01:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • w-blogg020524b
  • w-blogg020524a
  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 108
  • Sl. sólarhring: 199
  • Sl. viku: 617
  • Frá upphafi: 2351408

Annað

  • Innlit í dag: 97
  • Innlit sl. viku: 534
  • Gestir í dag: 96
  • IP-tölur í dag: 95

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband