Hitamet eđur ei?

Nú má telja fullljóst ađ bletturinn Litli-ljótur fer ekki yfir landiđ međ svala sínum. En eins og minnst var á í pistli í gćr er hann samt ekki alveg áhrifalaus. Líklega lćkkar framhjáganga hans laugardagsţykktina (24. mars) um 20 metra miđađ viđ fyrri spár - án Ljóts. Tuttugu metrar eru ekki nema 1°C á hitamćlinum góđa - nćrri ţví ekki neitt.

En í mikilli keppni um met munar um allt - líka 1 stig. En ţegar ţetta er skrifađ um miđnćtti á föstudagskvöldi er auđvitađ ekki komiđ í ljós hvert laugardagshámarkiđ verđur. Ţá kemur í ljós hvort ţetta eina auma stig hefur skipt máli.

Á  bloggsíđu nimbusar  er náiđ fylgst međ metunum sem máli skipta og ekki er ástćđa til ađ fjölyrđa um ţau ađalsmáatriđi hér.

En samt verđur vel ţess virđi ađ fylgjast međ hámarkshitanum á laugardag - sunnudagurinn á ađ verđa ađeins slakari - en síđan er annar og stór hlýindaskammtur á mánudag. Best ađ segja sem minnst um framhaldiđ nema hvađ ţađ er spennandi.

Eftir um ţađ bil viku lýkur síđan hinum formlega vetri og vor tekur viđ - á pappírnum. Síđastliđiđ vor voru mikil átök í veđrinu - allir sunnan- og suđvestanstormarnir í apríl og síđan var sturtađ niđur úr íshafinu eftir miđjan maí. Hvernig verđur vorinu variđ í ár?

En snúum úr frođu yfir í raunverulegan fróđleik.

Eitt af ţví sem fylgst er međ á vorin er viđsnúningur hringrásarinnar í heiđhvolfinu ţegar vindátt snýst úr vestri yfir í austur. Ţessi viđsnúningur er mjög snöggur ofan 30 km hćđar en neđar eru skiptin heldur meira hikandi og ţví meir eftir ţví sem neđar dregur. Viđ skulum líta á ástandiđ í 30 hPa-fletinum eins og gfs-spá bandarísku veđurstofunnar segir ţađ verđa síđdegis á laugardag (24. mars).

w-blogg240312

Hungurdiskar fjalla vonandi betur um heiđhvolfiđ síđar en veđurnörd ćttu ađ leggja ađalatriđi ţessa korts á minniđ. Svartar heildregnar línur sýna hćđ 30 hPa-flatarins. Hann er lćgstur viđ L-iđ, í um 22,6 km. Á jađri kortsins er hćđin víđa um eđa yfir 23,7 km.

Lituđu fletirnir sýna hita. Dekkri blái liturinn sýnir svćđi ţar sem hann er lćgri en -75 stig. Hćstur er hitinn kringum -40 stig viđ austurströnd Asíu. Ţessi stađa er venjuleg á ţessum tíma árs - ţađ er oftar kaldara atlantshafsmegin heldur en kyrrahafsmegin. Viđ gćtum fjallađ um ástćđu ţess síđar.

Ţegar -75 stiga jafnhitalínan hverfur endanlega af kortinu er greinilega fariđ ađ vora í heiđhvolfi. Ekki veit ég hversu lengi vestanröstin í kringum risavaxna lćgđina endist í vor en ţađ verđur spennandi ađ fylgjast međ ţví. Ađ međaltali verđa vindáttarskiptin gjarnan í kringum sumardaginn fyrsta. Veđurnörd ćttu ekki ađ láta ţann merka atburđ fram hjá sér fara og hungurdiskar gefa málinu auga - leggiđ ţetta (vetrar)kort á minniđ.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Júlí 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Nýjustu myndir

  • w-blogg220724b
  • w-blogg220724a
  • w-blogg210724
  • Slide2
  • Slide1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.7.): 17
  • Sl. sólarhring: 434
  • Sl. viku: 2733
  • Frá upphafi: 2378309

Annađ

  • Innlit í dag: 14
  • Innlit sl. viku: 2421
  • Gestir í dag: 14
  • IP-tölur í dag: 14

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband