Mikiđ um ađ vera - vetur í hámarki á norđurhveli?

Viđ lítum nú á tvćr útgáfur af sömu háloftaspánni. Fyrri gerđin hefur oft veriđ sýnd hér á hungurdiskum áđur - en sú síđari ekki. Ástćđa ţess ađ báđar útgáfur eru sýndar hér er eingöngu uppeldisleg.

Undanfarna daga hefur meginkuldapollur norđurhvels (Stóri-Boli) veriđ á hringferđ vestan Grćnlands af fullu afli vetrarins. En nú ţegar er fariđ ađ hlýna sunnar á hvelinu og smám saman mun ţrengja ađ vetrinum á nćstu vikum. Styrkur Stóra-Bola gengur í öldum - hann veikist lítillega og styrkist á víxl. Á nćstunni gerir hann sig áfram gildandi - en spurningin er hvort hann heldur sambandi viđ heimskautaröstina - eins og hann virđist eiga ađ gera nćstu daga. En lítum á hina venjulegu gerđ kortsins - spá evrópureiknimiđstöđvarinnar sem gildir á hádegi á sunnudag (4. mars).

w-blogg030312a

Höfin eru blá, löndin ljósbrún. Ísland er neđan viđ miđja mynd. Bláu og rauđu línurnar sýna hćđ 500 hPa-flatarins í dekametrum (1 dam = 10 metrar). Ţví ţéttari sem línurnar eru ţví meiri er vindurinn milli ţeirra. Ţykka, rauđa línan markar 5460 metra hćđ, en ţynnri rauđar línur eru viđ 5820 metra og 5100 metra hćđ. Almennt má segja ađ ţví lćgri sem flöturinn er ţví kaldara er veđrahvolfiđ.

Viđ sjáum hvernig heimskautaröstin hringar sig um norđurhveliđ, hún er ţar sem jafnhćđarlínurnar eru ţéttastar. Áberandi minni kraftur er í henni yfir austanverđu hvelinu heldur en ţví vestanverđu. Viđ sjáum líka ađ línurnar eru ţéttari í kringum Stóra-Bola (bókstafurinn K) og fylginaut hans yfir Ellesmereeyju (L) heldur en almennt er norđan viđ röstina. Ţađ er varla ađ viđ getum talađ um bolaröst um ţessar ţéttari línur - en gerum ţađ samt - sögunnar vegna.

Viđ sjáum ađ heimskautaröstin og bolaröstin snertast yfir Suđur-Grćnlandi. Viđ getum tekiđ eftir ţví ađ ţar er heimskautaröstin í hćđarbeygju - en bolaröstin í lćgđarbeygju. Heimskautaröstin hefur betur - en hryggurinn hreyfist hratt til austurs. Viđ Nýfundnaland er hrađfara bylgja sem er á leiđ til norđausturs. Ţegar hún fer hjá suđur af beygjunni á bolaröstinni kippir hún í Stóra-Bola, stelur hluta hans og fer međ inn á Grćnlandshaf - en Grćnland stendur fyrir og miđja Bola hrekkur undan.

Ef trúa má spám myndar útskotiđ nýjan kuldapoll á Grćnlandshafi á ađfaranótt ţriđjudags. Hann gćti valdiđ afar vondu veđri hér á landi á ţriđjudag og miđvikudag. En munum ađ hungurdiskar spá ekki veđri og í raun og veru eru fleiri (mildari) möguleikar í stöđunni heldur en hér er lýst.

Síđara kortiđ er alveg eins - en ţó allt öđru vísi. Jafnhćđarlínur 500 hPa-flatarins eru hér svartar og eru nćrri ţví nákvćmlega ţćr sömu og á fyrra korti (teiknipakkarnir draga ţćr ţó ekki nákvćmlega eins). Lituđu fletirnir sýna ţykktina. Helfjólublátt er kalt og hér sést Stóri-Boli sérlega vel í öllu sínu veldi.

w-blogg030312b

Sjá má daufar útlinur landa - kortiđ ţekur ámóta svćđi og ţađ fyrra, Spánn og Norđur-Afríka eru fyrir mđju neđst. Ísland er rétt neđan viđ miđja mynd, rauđa línan - sem sýnir lćgđardragiđ er á sama stađ og á efra kortinu. Ţykktin í miđju Bola er um 4740 metrar og á öllu fjólubláa svćđinu er hún minni en 4920 metrar. Grćnland á ađ sjá um ađ ţessi mikli kuldi komist ekki austurfyrir. Grćnu litirnir byrja viđ 5280 metra og er enn einn skammturinn af hlýju lofti á leiđ um Svalbarđa.

Viđ sjáum ađ í öllum ađalatriđum fylgjast jafnţykktarlitir og jafnhćđarlínur ađ - en ţađ misgengi sem sést er afskaplega mikilvćgt og ţađ alveg sérstaklega ţar sem kalt loft sćkir ađ. Ţađ nefnum viđ riđa (ţykktar- og hćđarlínur mynda net).


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Maí 2024
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Slide10
  • Slide9
  • Slide8
  • Slide7
  • Slide6

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 310
  • Sl. sólarhring: 389
  • Sl. viku: 1868
  • Frá upphafi: 2353005

Annađ

  • Innlit í dag: 274
  • Innlit sl. viku: 1676
  • Gestir í dag: 260
  • IP-tölur í dag: 256

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband